Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 26

Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 26
Ork í Tékklandi Skólastelpa brennd á báli Ævi og örlög Jóhönnu af Örk eru efni- vióur dýrustu sjónvarpsmyndar sem gerð hefur verió. Börkur Gunnarsson fylgdist meó tökum í Prag og talaói vió aóalleikarana LeeLee Sobieski og Peter Strauss RÉTT -fyrir utan Prag í Tékklandi á sléttu við Kozarovice er búið að reisa miklar tjaldbúðir við eystri endann en við þann vestri gnæfir nýreistur kastali sem ku líkjast kastala í Frakk- landi sem Jóhanna af Örk leiddi her sinn gegn á 15. öld. Á sléttunni ríða á annað hundrað riddarar í fullum her- klæðum og undirbúa árás. Það hefur rignt mikið í Tékklandi undanfarna daga og forin nær hestum upp fyrir hófa. Veriö er að framleiöa tveggja þátta myndaröö (bandarísk-kanadísk framleiðsla) um ævi og enda- lok Jóhönnu af Örk sem fékk vitrun frá æðri máttarvöldum þegar hún var unglingur og var sett fyrir franska herinn í bar- áttunni við Englendinga í hund- rað ára stríöinu á 15. öld. Hún vann frækilega sigra, en féll loks í hendur Englend- inga og var brennd á báli fyrir trúvillu. En seinna var hún gerð aö dýrlingi af páfanum í Róm. Fjárhagsáætlun til kvik- myndagerðarinnar hljóöar upp á 25 milljónir dollara eða hátt á annan milljarö íslenskra króna og er þetta dýrasta sjón- varpsmynd sem gerö hefur ver- ið. Enda eru mörg hundruð hestar og yfir 3 þúsund auka- leikarar notaöir í sumum bar- dagasenunum og að sjálf- sögðu flestir klæddir í miðalda- herbúninga. FLESTIR DEYJA í DAG Þá eru ótaldir þeir kastalar og virki sem reist hafa verið og filmukostnaður (myndin er tek- in á 35 mm filmu) og þær sex kvikmyndavélar sem í erfiðustu tökunum eru allar í notkun. Vegna ömurlegra aðstæðna sem hafa myndast vegna rign- inga er veriö að koma öllum bílum af svæðinu þar sem þeir festast ítrekað og valda töfum á tökum. í stað þess að nota bíl ríöur leikstjórinn (Christian Duguay) á hesti eins og herfor- ingi um svæðiö og hrópar skip- anir sínar í lúður. Hann er reyndar hæstánægður með að- stæðurnar, að hans mati hjálp- ar forarsvaöið til við sjónræna hliö myndarinnar. En þeirtæp- lega átta hundruð leikarar, sem eru á tökustaö þennan dag, eru ekki eins ánægðir. Það er allhvasst og kuldinn er of mikill þótt hann sé ekki nógu mikill til að frysta jarð- veginn. Handan kastalans er halli þar sem nokkur hundruð þreyttir og kaldir aukaleikarar hafa safnast saman í kringum tunnur sínar og þeim er leyfi- legt að kveikja bál til að halda á sér hita. Þarna mega hinir ensku riddarar frá 15. öld, kappklæddir í brynjur og með sverð í hendi, reykja Winston Lights, drekka kók og boröa pítsur. Að sögn leikstjórans verða þeir flestir að deyja í dag svo aö tökurnar verði ekki á eftir áætlun. Einn kvikmyndatökumanna hristir hausinn og segir: „Ég veit ekki hvaö þeir borga þeim, en það er örugglega ekki þess virði," enda híma þeir mestan hluta dagsins í hallanum og bíða eftir að fá flensu eöa vera kallaöir í tökur. En eins og þekkt er fer meirihluti vinnu- dagsins í að bíða og vera til taks þegar kalliö kemur. Það er tiltölulega algengt að stór vestræn framleiðsluverkefni séu flutt til Tékklands þar sem er ódýrt vinnuafl. Kynningarfull- trúi verkefnisins viðurkennir að það, ásamt því að landslagiö hér hentar myndinni vel, hafi vegiö þyngst í þeirri ákvörðun að kvikmynda hana í Tékk- landi. SKORTUR Á KVENHETJUM Það hafa áöur veriö gerðar myndir um Jóhönnu af Örk, frægust er líklega sú sem Ingrid Bergman lék aðalhlut- verkið í. En jafnan hefur Jó- hanna af Örk verið leikin af leikkonu sem hefur verið kom- in hátt á þrítugsaldurinn en nú bregður svo við að sett er í hlutverkið stúlka sem er á sama aldri og Jóhanna af Örk var þegar hún hóf herferð sína. Leelee Sobieski sem leikur aö- alhlutverkiö er aðeins 16 ára gömul en er með fimm ára leikferil að baki. Önnur hlut- verk eru í höndum fólks eins og Peters O'Toole, Jacqueline Bissett, Chads Willetts og Pet- ers Strauss. En hvað veldur þessum nýtil- komnu vinsældum Jóhönnu af Örk? Þetta er nefnilega ekki eina myndin sem veriö er aö gera um hana; á sama ttma er Luc Besson aö taka upp kvik- mynd um þennan dýrling frá 15. öld. „Hugsanlega er skort- ur á kvenhetjum á markaðn- um," segir kynningarfulltrúinn. „Þaö er rétt að það er athyglis- verð tilviljun að tvö stór verk- efni um hana eru sett í gang á sama tíma." Og við horfum á Leelee Sobieski, 16 ára unglings- stúlku, leiða nokkur hundruð manna riddaralið fullorðinna karlmanna til árásar á Eng- lendingana, sem þegar hafa fengið sinn síöasta smók og 26

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.