Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 27

Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 27
kastaö frá sér kóki og pítsum. Þaö er komiö aö því að Jó- hanna af Örk leiöi þá í dauð- ann svo þeir geti farið heim til sín í hlýjuna og fái ekki flensu. BLÓÐUGUR UPP AÐ HNJÁM Peter Strauss er hávaxinn og kraftalegur maöur og útlit hans fellur vel að hlutverki hans, en hann leikur málaliöa (La Hire) í her Jóhönnu af Örk, mann sem hefur stríð að atvinnu og berst fyrir þann sem borgar best. Strauss segir að honum líki hlutverk sitt vel, La Hire virðist vantrúaður á að Jóhanna sé í beinu sambandi við guð og er gjarnan kaldhæðinn í sam- skiptum við hana, en á milli þeirra myndast samt sterk per- sónuleg tengsl. Strauss er ný- kominn úr sigursælli árás á virki Englendinga, blóðugur í framan og aurugur upp að hnjám, enda mikið rignt í Tékk- landi undanfarna daga. Erfiður dagur? „Þér ætti aö líka þessi kuldi; þú ert frá íslandi. Ég er hissa aö sjá þig ekki hérna á stuttermabol! I augnablikinu vildi ég frekar vera í Los Angel- es eða á hótelherberginu í Prag; það er yndisleg borg. En ég held að þeir hafi náð góð- um myndum í dag. Þetta veður var upplagt fyrir árásina á virk- iö. Christian [leikstjórinnj var í það minnsta ánægður." Finnst þér hlutverkið henta þér? „Já, mér finnst þaö nokkuð vel skrifaö. Það er auövelt að ímynda sér að málaliði eins og La Hire taki því með fyrirvara þegar 16 ára unglingsstúlka fullyrðir að hún sé sendiboði guðs f stríöi. Hann virðist líta svo á að hún hafi verið á rétt- um stað á réttum tíma og fýlgir henni fyrst um sinn á meöan það hentar honum. En þegar hún ofmetnast og vill ráöast á París þá yfirgefur La Hire hóp- inn. Mér finnst annars hin guð- lega upplifun Jóhönnu vel skrif- uð í handritinu, bæði skoðun þeirra.sem trúa á hana og þeirra sem eru vantrúaöir er kynnt en í handritinu er ekki tekin afstaöa. La Hire lítur guð- lega upplifun hennar kald- hæðnum augum.“ Ert þú kaldhæðinn? „[Hlæjandi] Það geturðu bók- að." Hvað heldur þú um hina raunverulegu Jóhönnu af Örk? „Eg held einsog La Hire að hún hafi veriö á réttum staö á réttum tíma.“ Hefurðu séö þær myndir sem hafa verið gerðar um Jó- hönnu af Örk? „Ég sá myndina þar sem Ingrid Bergman lék aðalhlut- verkið, en man lít- ,, 4 ið eftir henni 'MÉ■ nema hvað Ingrid var ótrúlega fal- leg.“ Hvernig hefur þér líkað fram að þessu? „Að öllu gamni slepptu um veðrið, þá hefur þetta satt að segja verið eitt skemmtilegasta hef tekið þátt í og hef ég þó verið nokkuö lengi í brans- anum. Þetta leit út fyrir aö verða erfitt verk- efni og ill- fram- kvæman- legt en allir hér hafa unniö feikigott starf og vinnan með leikstjóranum veriö hreint út sagt frábær. Hann er mjög skapandi og hvetjandi foringi." Nú er þetta sjónvarpsmynd, hver finnst þér helsti munurinn á að leika í sjónvarpsmynd og kvikmynd? „Munurinn liggur fyrst og fremst í fjármagninu, það eru meiri peningar í kvikmynda- geröinni og þar af leiðandi tækifæri til að kvikmynda af kjarki og vandvirkni. Oft hafa sjónvarpsmyndagerðarmenn ekki efni á því. En í þessu til- viki er mikið fe iagf f myndina og leikstjórinn hefur í engu slakaö á kröfunum. Frá fyrsta tökudegi hefur hann myndað af miklum kjarki og hrifið okkur öll með. Hann hefur mest unn- ið við sjónvarpsmyndagerö og gert eina kvikmynd, en eftir þetta er ég ekki í nokkrum vafa um að hann gerir eingöngu kvikmyndir." Nú sér ieikstjórinn um flest- ar tökur sjálfur, var hann ekki fyrir þær sakir í minna sam- bandi við ykkur? „Ja, ég óttaöist það til aö byrja með, en hiö gagnstæða varð raunin. Leikstjórn hans var aö mínu mati nánast lýta- laus." Hvað með samstarfið við meðleikara? „Ég hef unnið með Peter O’Toole áður og þaö er alltaf ánægjulegt. Annars er skemmtilegt að minnast þess að við Leelee lékum saman í fyrstu mynd henn- ar, sem ég man ekki í augnablikinu hvað heitir. Þar lékum við feðgin, svo aö ég hef föðurtil- finningar til hennar og það var dásamlegt að vinna með henni að þessari mynd." MÁ EKKERT TALA UM KUBRICK Leelee Sobieski er aðeins 16 ára gömul en hefur fimm ára leikferil að baki og leikur m.a. í myndinni Dóttir hermanns grætur ei sem sýnd er í Háskóla-bíói. Faöir hennar er franskur málari en móðir hennar bandarískur handritshöfundur. Bæði fylgdu þau dóttur sinni til Tékklands. Því miður var Sobieski hálf- lasin og búin að missa röddina í kuldanum, og því var blaða- manni Morgunblaðsins f fyrstu meinað að tala viö hana. En einhvern veginn endaði hann í tjaldi hennar. „Frá íslandi?" spurði hún fyrst hissa. „Vá, ég veit ekkert um þá eyju nema að Björk er þaðan." Það er ekki mikið meira merkitegt að vita um ísiand hvort eð er. En hvemig kom það til að þú fékkst þetta hiut- verk? „Það var bara haft samband við mig og mér leist mjög vel á þetta, Jóhanna af Örk hefur alltaf veriö leikin af leikkonum sem voru orðnar miklu eldri en hún var þegar hún tók viö stjórn hersins. En þá var hún einmitt 16 ára gömul eins og ég.“ En þrátt fyrir að vera ekki nema 16 ára, þá hefurðu lang- an leikaraferil að baki. „Ég veit ekki hvort hann er langur. Ég lék fyrst í kvikmynd fyrir sex árum, þá lék ég einmitt á móti Peter Strauss og lék dóttur hans. Síöan þá hef ég leikið í nokkrum mynd- um, meðal annars Deep Impact og Eyes Wide Shut sem Stanley Kubrick leikstýrði og veröur frumsýnd í sumar. En mér er ekki leyfilegt að tjá mig um þá mynd." Eru ieikarar í fjölskyldunni? „Ja, hann þabbi lék eitthvaö áður en hann lagði málaralist- ina fyrir sig.“ Ætlaöiröu alltaf að verða leikari? „Nei, hreint ekki. Ég ætlaði að verða rithöfundur og málari. Það er reyndar ekki rétt að segja ætlaði, því ég ætla enn að verða rithöfundur og málari. Ég verð bara aö bíða og sjá hvernig vinnst úr þessu." Hvernig hefur annars gengið viö tökurnar? „Mjög vel. Christian er ein- staklega vandvirkur leikstjóri og ég er mjög örugg undir hans stjórn. Hann kemur því skýrt og greinilega á framfæri hvað hann vill og ég tel að mér hafi tekist vel upp. Þetta hefur í þaö minnsta veriö ákaflega ánægjuleg reynsla. Ekki skemmir fýrir að hafa alla fjöl- skylduna með sér. Meira aö segja bróðir minn er hérna og hann leikur lítiö hlutverk í myndinni. Á kvöldin þegartök- um er lokið förum við í sérút- búiö skólatjald á svæðinu þar sem mamma kennir okkur námsefnið sem við erum að missa af heima." Hefur þetta verið erfitt? „Erfitt en ánægjulegt. Þó það verði gaman að koma heim þá hafa þetta veriö ótrú- lega skemmtilegir mánuðir hér í Tékklandi, tækifæri sem ég hefði ekki fyrir nokkurn mun viljað missa af.“ 27

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.