Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 45

Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 45
■ Þrautin þyngri Farvegur kláms og ósóma? ViIsnaþáttur Limran hefur haslað sér völl meðal hag- orðra íslendinga og gefur ferskeytlunni Itt- ið eftir. Vel heppnuð limra stingur enda dálítið í stúf bæði aö innihaldi sem ytri byggingu. Hún er eitthvað svo smellin eins og greina má í Fríhálsi Þorsteins Valdi- marssonar: Ég aðhefst það eitt sem ég vil og því aðeins að mig langi til. En langi þig til að mig langi til - þá langar mig til svo ég vil! „Góð limra segir eitthvaö sem kemur al- veg óvænt og er ekki sjálfsögð niðurstaða af efni limrunnar," segir Kristján Karlsson skáld. Hann skrifar um limruna t Viðskipta- dagbókina í ár og getur þess að bragarhátt- urinn sé talinn upprunninn í Englandi á fyrri öldum og sé líklega kenndur við borgina Li- merick á írlandi. Það var Þorsteinn Valdi- marsson sem fann upp á nafngiftinni limra en Jóhann S. Hannesson kallaði háttinn hlymrek eftir gömlu íslensku heiti á borg- inni Limerick. Jóhann á einmitt heiðurinn af landskunnum hlymrek: Það er almenningsálit í sveitinni, að ást séra Marteins á geitinni megi hreint ekki lá þegar litið er á hve lík hún er Jórunni heitinni. Kristján Karlsson segir frá því í ofan- greindri umfjöllun um limruna að áöur en hún hafi fengið nafn og náð fótfestu hér- lendis bregði hættinum eða að minnsta kosti líkum brag fyrir í íslenskum kveð- skap, einkum sálmum, t.d. hjá Valdimari Briem: Hvað eru dauðlegir menn, að þú minnzt þeirra getur mannanna börn, að þú vegsemdar slíkrar þau metur? Manninn á jörð máttugri englanna hjörð lítið eitt lægra þú setur. Ekki eru allar limrur svo hástemmdar. Önnu Snorradóttur verður hugsað til hins eina sanna matarkúrs: Ég bið yður barasta um eitt: að borða ekki neitt sem er feitt. Þá línurnar endast og endast og endast og á endanum verða ekki neitt. En aftur að Kristjáni. Hann segir að lim- runni fýlgi Ijótt orðbragð og dónaleg hugs- un. „Það lá við á síðari hluta nftjándu ald- ar að hún yrði ekki annað en farvegur kláms og ósóma þegar opinber siðprýði reis sem hæst. En eftir því sem frelsi orð- listar rýmkaðist þá gerðist limran fjölbreytt- ari og virðing hennar jókst." Kristján bregð- ur limrunni fyrir sig: Eitt sinn var kerling á Kea hafði komið til landsins með BEA. Hún sat þar við borð og sagði ekki orð en saup þess á milli af tea. Allar eru þessar limrur í Viðskiptadagbók- inni og fleiri til. Halldór Blöndal yrkir: „Hvað er sakleysi?" segir hún Marta, sem síst vildi um litblindu kvarta. En átti þó tvisvar sinnum tvívegis þrisvar stundum tvíbura hvíta, oft svarta. Það er við hæfi að enda þessa umfjöllun um limruna á Kristjáni Eldjárn, forseta ts- lands, sem kemst svo að oröi: Allt það sem hafa menn hátt um hugsa og tala ég fátt um. En ég hugsa um hitt - slíkt er háttalag mitt - sem talað er lítið og lágt um. Spurt er í þessu tölublaði Dag- skrárblaðsins er spurn- ingakeppni úr efni sem finna má á síðum Fólks í fréttum í Morgunblaðinu. Nú reynir á minnið og athyglisgáfuna. 1. Nýlega voru leikstjóran- um Maríu Sigurðardóttur veitt verðlaunin Auðhumla ‘99. Fyrir hvað hlaut hún verðlaunin? 2. Hertogaynjan af York, Sara Ferguson, er að velta fyrir sér að flytja frá Englandi. Hvaða land hefur hún í huga? 3. Leikari nokkur hefur dregið athygli að málefnum Tfbeta. Hver er hann? 4. Nýlega gaf framhalds- skóli út skólablað með sér- stakri tölvuunninni forsíðu. Hvaða skóli var það? 5. Hver samdi spurning- arnar í nýafstaðinni Spurn- ingakeppni framhaldsskól- anna? 6. Fræg rokksveit hyggst halda í tónleikaferð 9. ágúst nk. Hvaða sveit? 7. Fregnir hafa borist af því aö evrópsk prinsessa eigi von á barni. Hvaða prinsessa er það? 8. Hvaða ungi bandaríski leikstjóri sagði í samtali í Mbl. að hann væri ekki fimm ára? 9. Hvaða þekkta popp- stjarna ætlar að halda styrktartónleika fýrir bág- stödd börn í Suður-Afríku næstkomandi júní? 10. Kvikmyndin Popp í Reykjavík var sýnd erlendis fyrir skömmu. Hvar? 11. í hvaða hljómsveit er bassaleikarinn Richard „Cass“ Lewis? 12. Hvaða hljómsveit hlaut þann vafasama heiður að fá Razzie-verðlaunin fyrir að sýna verstu leiktaktana árið 1998? 13. Hvaða leikstjóri hlaut Razzie-verðlaunin sem versti leikstjóri ársins 1998 og fyr- ir hvaða mynd? 14. Hvern kaila Bretar „herr amanninn sem greiðir leig- una“? 15. Hvaða íslenski tónlistar- maður gaf nýlega út plötuna „Roads"? 16. Hvaða leikari fannst lát- inn á hótelherbergi nýlega og í hvaða sjónvarpsþætti lék hann? 17. Hvaða söngkonu var lýst f Interview sem „Eartha Kitt á draumkenndum þunglynd- islyfjum"? 18. Hvaða tískuhönnuður hannaði brúðarföt á tónlist- armanninn Sting og eigin- konu hans Trudie Styler snemma á 9. áratugnum? 19. Um hvað fjallar heimild- armyndin Corþus Camera sem sýnd var á Stöð 2 á föstudaginn langa? 20. Hvað heitir nýkrýndur íslandsmeistari í samkvæm- isdönsum unglinga II sem lenti í umferðarslysi stuttu fyrir keppni? ■jjWppsHJJG jnpjaijuSeiy oz wnuiAjsp ujnujpi je jjpuAiuspfj e>|Bj pe nfuðApjS pc| lup 61 ‘aoesjaA juue.io si •jnjippsnjunr jpjapw 7/ 'Bnpn 3o snei j >j?l ujos pueiýjoujs PfAeo ’9l •sujofa I.33IS uuunpeqnjj. si -ajeads0>ieqs uie||||M ‘H ’oqoAsd juAj ju^es ue^ sng x/ ‘S|J!0 aojds ’ZI -ajsueuv >|un>is iuuqjaAS n>isajq/ •// nMJpiuuea j 01 uos>ioer |aeqo!y\| 6 uepseyi 8Mer ’8 -euueupfqsBunuo>| n>isuæds jjjjpp ejsBuA ‘eujjsuqo 7 lAJ'3'd '9 -uoss|n>ipr jBn||/ s ->iJAef>iA8y j uujipMsejuuajM > -0J8O pjeqojy x 'SSJAS ‘Z JjðAS j xas P!Ju>i!8| p UMpspejauj juAj 7 45

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.