Morgunblaðið - 14.04.1999, Page 46
Elskunnar logandi
bál - Lust och
fágring stor, ('95)
Frumsýningar
M Vel leikin, stýrð 1
9 0g skrifuð l
$
þroskasaga um fyrstu kynni 15 ára
unglings (Thomas Viderberg), af unað-
semdum ástarinnar, sem hér em að
vísu forboðnar. Því hún, (Marika La-
gercrantz) er kennslukonnan hans,
rösklega tuttugu ámm eldri og harðgift í
ofanálag. Ekki fyrir klámhunda þó eró-
tísk sé heldur alvarleg og gamsöm og
heiðarleg lýsing á þessum geðslegu
tímamótum Eini Ijóðurinn að La-
gercrantz er alltof ungleg og Widerberg
of fullorðinslegur. Bíórásin, 21.04.
I Am a Fugitive From
a Chain Gang, ('32)
Sígild mynd um ófullkomið
dómskerfi, ójöfnuð og ranglæti
sem leiða til dapurlegra örlaga. Paul
Muni leikur mann sem er saklaus
dæmdur fyrir morð og áhorfendur
fylgjast með því hvernig aðstæðurnar
umturna honum til hins verra. Þessi
flötur á málinu þótti byltingarkenndur
á fjórða ártugnum, en myndin hefur
ætíð nóg fram að færa. TNT, 25.04.
Lúðrasveit verkalýðsins
- Brassed Off, ( 96)
U Ung kona blæs nýju lífi í lúðra-
* sveitina og fátæka og svartsýna
íbúa í afsetnum námabæ. Góður
hljóðfæraleikari getur gert kraftaverk,
er niðurstaðan. Notaleg og mannleg
bresk nýbylgjumynd. Tara Fitzgerald,
Pete Postlethwait, Ewan McGregor.
Sýn, 17.04.
Nijinsky, ('80)
U Sjálfsævisöguleg mynd um
* raunalegt Iffshlaup stórdansar-
ans, um og eftir aldamótin síðustu.
VMG segir myndina góða og vel
leikna af George de la Pena í titil-
hlutverkinu og Alan Bates sem elsk-
hugi hans í stormasömu lífi. Forvitni-
leg. Stöð 2, 25.04.
Óttalaus - Fearless, ('93)
Að öllu jöfnu hrífst ég af því sem
þeir gera, leikstjórinn Peter Weir
og leikarinn Jeff Bridges. Þessi fárán-
lega mynd um eftirhreytur flugslyss er
undantekning. Þrátt fyrir mannskapinn
sló hún aldrei á rétta strengi. Efnið og
persónurnar ótrúverðugar, framvindan
skrýtin og nokkrir óþolandi leikarar
é
(þ.á.m. Rosie Perez og Tom Hulce),
bæta ekki úr skák. RUV, 24.04
Rauður - Rouge, ('94)
U Takmörkuð tjáskipti einstaklinga
* í samtímanum er viðfangsefni
Kieslowskis í síðustu myndinni í þrí-
eykinu sem hann kenndi við frönsku
fánalitina. Iréne Jacob og Jean Louis
Trintignant leik firna vel tískusýningar-
stúlku og dómara á eftirlaunum, sem
tengjast ólíklegum vinaböndum í hrá-
slagalegum heimi. Bíórásin, 27.04.
Savage Messiah, (72)
j Ein af hinum persónulegu æði-
9 bunumyndum Kens Russell um
hugðarefni hans; gengna, Evrópska
20. aldar listamenn. Að þessu sinni
franska málarann Gaudier, sem 18
ára tók upp samband við Pólverjann
Sophie Brzeska, sem var 20 árum
eldri. Maltin segir myndina í rösku
meðallagi. TNT, 26.04
Synd og skömm
- Baby of Macon, ('93)
/ Forvitnileg, búningamynd um
* stöðu konunnar á 17. Öld, er því
miður yfirborðsdkennd og innihaldsrýr.
Margir em á öðm máli, menn hata eða
elska þessa fáséðu mynd frá Peter
Greenaway. Bíórásin, 24.04.
Sæmd - Gloiy, ('89)
jl, Sannsöguleg, magnþrungin
v mynd um hetjulega baráttu
þeldökkrar hersveitar í þrælastríðinu,
séða með augum Norðurríkjamanns-
ins sem þjálfaði hann til afreksverka.
Margföld Óskarsverðlaunamynd, m.a.
fyrir framlag leikaranna Denzel Wash-
ington og Jane Alexanderog stórfeng-
lega kvikmyndatöku Freddie Frances.
Ein besta stríðsmynd allra tíma. Leik-
stjóri Edward Zwick. RUV, 16.04.
Vandalaus verk
- Five Easy Pieces, (70)
ji, Ein af "myndum" áttunda ára-
*F tugarins, með sterkum frá-
hvarfseinkennum frá þeim sjöunda.
Jack Nicholson slær í gegn sem fyrr-
um upprennandi konsertpíanisti frá
menningarheimili, sem snýr baki við
fortíðina. Gerist farandverkamaður við
olíuborun um árabil uns ræturnar
kalla á hann. Hárfín persónusköpun
og þjóðfélagsskoðun sem lýsir gapinu
á milli ólíkra stétta þar sem Nichol-
son, Karen Black, Billy "Green" Bush
og Susan Anspach túlka ólíkar per-
sónur af innlifun. Sígild. RUV, 18.04.
Við rætur eldfjallsins
- Under the Volcano, ('84)
jj, Það á við að hinsti dagurinn í lífi
9 fyllibyttu (Albert Rnney), mennta-
manns og ræðismanns hans hátignar í
Mexíkó, ber uppá Alraheilagramessu -
dag hinna dauðu. Kona hans (J. Bis-
set) er þó komin til hans aftur og reyn-
ir með hjálp bróður hans að stöðva
þennan virðulega drykkjurút á hraðferð
hans til glötunar. Huston gerði það
sem flestir töldu ógerlegt, að filma
þetta kunna verk Lowrys. Handritið er
bókmenntalegt en fumlaus leikstjóm
og afburða leikur Rnneys gera mynd-
ina að eftirminnilegri sorgarsögu um
fagra drauma, sokkna í tequila og
sjálfseyðingarhvöt, svo sterka að jafn-
vel ástin fær engu áorkað. Sýn, 30.04.
The White Cliffs of Dover, ('45)
/ Lagið alkunna úr myndinni, stapp-
9 aði stálinu í Bandamenn í glímu
þeirra við andskota sína hinumegin við
Ermasundið í seinna stríði. Það heldur,
öðru fremur, nafni þesssarar klúta-
myndar á lofti. Irene Dunne leikur
Bandan'ska konu sem giftist Breta sem
fellur í fyrra stn'ði, sonur þeina í því
seinna. Þn'r klútar. TNT, 22.04.
QMMMNMYNDIR
j Hans hátign
Royal Flash, (75)
Vel mönnuð bún-
ingamynd um
ífléttu sem Ottó Bis-
mark (Oliver Reed) setur upp svo
skelmi nokkrum (Malcolm
McDowell), takist að krækja sér í
hagkvæmt kvonfang (Britt Ekland).
Þrátt fyrir mannval (Alan Bates, Lion-
el Jeffries, Joss Ackland), og óað-
finnanlegt útlit, þá nær þessi ærsla-
leikur frá Viktoríutímunum aldrei
umtalsverðu flugi. Sýn, 23.04.
í klemmu - Grídlock'd, ('97)
U Tupac Shakur og Tim Roth gera
* meðalmynd góða með sannfær-
andi gamanleik sem fíklar og tónlist-
armenn sem vilja fara á snúruna. Það
reynist erfiðara í New York en Njarð-
víkunum. Sýn, 22.04.
Kokkteill - Cocktail, ('88)
/ Feykivinsæl og jafn ómerkileg
9 rómatísk gamanmynd um tilvist-
arkreppu barþjóna. Sem í þessu til-
felli eru álíka merkileg og hvert annað
barsnakk. Efnið sem dugði þessu
hanastéli til vinsældanna erTom Cru-
ise. Bryan Brown, Elzabeth Shue.
Stöð 2, 17.04.
Meðeigandinn
- The Associate, ('96)
/ Gamansöm og alvarleg ádeila á
9 karlaveldið í viðskiptaheiminum
séð með augum dugandi konu sem
sér að hún kemst hvorki lönd né
strönd á Wall Street uppá eigið for-
dæmi. Stofnar fyrirtæki með tilbúnum
karlmeðeigenda - (hún sjálf) - og allt
gengur í haginn um sinn. Eli Wallach,
Diane Wiest. Bíórásin, 17.04.
Pappírsflóð - The Paper Chase, (73)
U Stórskemmtileg blanda drama
* og gamanmyndar um sam-
skiptaörðugleika nýliða (Timothy Bott-
oms), við lagadeild Harvardháskóla og
prófessorsins hans (John Houseman).
Þeir lagast ekki þegar nemandinn
kemst að því að kærastan hans er
dóttir lærimeistarans. Vel skrifuð og
leikin (Houseman fékk Óskarinn),
gæðamynd. Stöð 2,18.04.
Þú tekur það ekki með þér - You
Can't Take It W'rth You, ( 38)
jt, Mynd mánaðarins er sextug en
9 sígild og síung gamanmynd
sem hlaut Óskarinn sem besta mynd
ársins, ásamt Frank Capra fyrir leik-
stjórnina. Segir af viðskiptum Vander-
hof-fjölskyldunnar (höfuð hennar leik-
ur Lionel Barrymore), er elsta dóttirin
(Jean Arthur) fellur fyrir syni (James
Stewart), auðmanns sem ásælist
eigur hinna sérvitru Vanderhofa.
Bíórásin, 20.04
PENNUMYNDIR
Berserkurínn
Demolition Man, ('93)
U Stallone leikur
* löggu sem legið
hefur í frystirnum í 36
46