Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 6
6 C FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
Góð loftræsting
léttir lífið!
Bjóðum mikið úrval af viftum og loftræstibúnaði frá Xpelair.
Hönnun og framleiðsla Xpelair er þróuð eftir viðurkenndum
ISO 9001 staðli. Vanti þig loftræstibúnað fyrir heimilið,
sumarbústaðinn eða iðnaðar- og atvinnuhúsnæðið hefur
Xpelair örugglega lausnina.
1 Xpelair DX100
glugga- og veggviftur.
Ífif* gr Öflugar og öruggar viftur. Ýmsar útfærslur.
E Tilvaldar f bað- og snyrtiherbergi á
heimilum, sumarbústöðum og smærri
vinnustöðum.
s -— Leitið nánari upplýsinga.
Xpelair NWA og NWAN
spaðaviftur.
Fyrir þá sem hafa kynnst þessum vinsælu
spaðaviftum eru þær algjörlega ómissandi
þáttur í tilverunni. Henta vel á öllum
vinnustöðum. Kynntu þér málið.
^ íf . :
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
islensk erfðagreining til umfjöllunar í Financial Times
Þekktasta líftækni-
fyrirtækið í Evrópu?
'Xpelair
Ferskur andblær.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Borðviftur frá Bomann.
Þrjár stærðir.
Mjög hagstætt verð.
:Éh^iMÉÉá&
Ógna yfirburða-
stöðu Banda-
ríkjamanna
í GREIN sem birt var í stórblaðinu
Financial Times í vikunni, þar sem
fjallað er um líftæknifyrirtæki í
Evrópu út frá ráðstefnu um líftækni
sem haldin var í Amsterdam í
Hollandi nýlega, er meðal annars
sagt frá starfsemi íslenskrar erfða-
greiningar.
A ráðstefnunni voru saman kom-
in helstu fyrirtæki álfunnar á sviði
líftækni og genarannsókna og í
greininni segir að af öllum fyrir-
tækjunum á ráðstefnunni, 26 að
tolu, sé Islensk erfðagreining lík-
lega það þekktasta.
Greint er frá því hvernig fyrir-
tækið hyggst nota heilsufarsupplýs-
ingar Islendinga til að búa til
gagnagrunn á heilbrigðissviði sem
síðan verði notaður í hagnýtum til-
gangi.
Andstaðan að dvína
í blaðagreininni er spurt hvort ný
kynslóð fyrirtækja í líftækniiðnaði í
Evrópu ógni nú yfirburðastöðu
bandarískra fyrirtækja á þessu
sviði. Sagt er að líftækniiðnaðurinn
í Evrópu sé ennþá aðeins fjórðung-
ur af stærð bandaríska iðnaðarins,
en vaxi tvisvar sinnum hraðar. „Ef
ný kynslóð fyrirtækja í Evrópu
stendur undir vonum mun draum-
urinn um jafnræði milli heimsálf-
Færeyingar!
AFLVAKI" EIMSKIP
Við bjóðum ykkur yelkoiima til Islands og
vomimst til aðkaupstefnan RekTór vcrði ykkur
og íslenskiun fyrirtækjmn árangursrík. Við
hvetjum íslendinga til aðfjölmenna í Perlxma
föstudaginn 7. maí kl. 13:00 - 17:00 og laugar-
daginn 8. maí kl. 11:00 -16:00 til aðsjá og
kynnast íramleiðsluvörum og þjónustu hátt í
30 færeyskra fyrirta-kja.
Sjámnst síðan að ári í Eæreyjum á TórKek
2000 kaupstefaunni!
0
///
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS
Hallvcigarstígur 1 • 101 Rcykjavík
Sími 511 4000 • Fax 511 4040
Tölvur og tækni á Netinu mbl.is
4ÍÍ.MF eiTTHXTAO /\!ÝrTT~
Dreifing líftæknifyrirtækja
um vestanverða Evrópu
..SíD /w /; \
|| I ,lr>)
anna í þessum geira vísindanna
verða að veruleika," segir í blaðinu.
Sagt er frá því að Iíklega sé Is-
lensk erfðagreining jafn þekkt í
Evrópu og raun ber vitni annars
vegar vegna milljarða samnings
þess við svissneska lyfjafyrirtækið
Roche og hins vegar vegna þess að
áætlanir um gerð miðlægs gagna-
grunns á heilbrigðissviði hafa valdið
deilum sem vakið hafi athygli víða.
Eins og það er orðað í greininni hef-
ur lítill hópur Islendinga mótmælt
grunninum vegna þess að þeir telja
hann ógna friðhelgi einkalífsins og
mannréttindum almennt.
I blaðinu er vitnað I Hannes
Smárason hjá ÍE. Segir hann að
andstaðan við gagnagrunninn sé að
dvína nú þegar Alþingi hafí heimil-
að gerð grunnsins. „Óll umfjöllunin
hefur hjálpað til að kynna fyrirtæk-
ið þó auðvitað hafí mikið af umræð-
unni um starfsemi þess verið yfír-
borðskennd og mótuð af tilfínninga-
semi,“ segir Hannes.
Tvíburarannsóknafyrirtæki í
sömu stöðu og ÍE
Greinarhöfundur bætir síðan við
að umræðan tengd friðhelgi einka-
lífsins og brotum á mannréttindum
snerti önnur fyrirtæki í svipaðri
stöðu og IE á sama hátt, fyrirtæki
sem byggja rannsóknir sínar á
genarannsóknum innan fjölskyldna,
eins og Oxygen og Gemini frá Bret-
landi til dæmis.
Um þau fyrirtæki er einnig fjall-
að sérstaklega í gi’eininni en
Oxygen leitar sjúkdómagena með
því að rannsaka fjölskyldur, aðal-
lega í Bi’etlandi.
Gemini er hins vegar að búa til
gagnagrunn þar sem safnað er sam-
an upplýsingum um genauppbygg-
ingu og lífsstíl tvíbura í þeim til-
gangi að fínna sjúkdómsgen.
Fer MCI í slaginn
um MwdiaOne?
New York. Reuters.
• WORLDCom Inc. íhugar að koma til liðs við Comcast Corp. í
margi-a milljarða dollara baráttu við AT&T um kaup á kapalsjónvarps-
fyrirtækinu MediaOne Group Inc. að sögn New York Tirnes.
Heimildarmenn blaðsins segja að ákvörðun MCI geti leitt til uppgjörs
milli stærstu fjarskiptafyrirtækja Bandaríkjanna. AT&T er í fyrsta sæti
og MCI í því fjórða.
AT&T gerði óvænt tilboð í MediaOne í síðasta mánuði og á mánudag
kvaðst MediaOne hafa tekið óumbeðnu 68 milljarða dollara boði AT&T.
Með því að taka boði AT&T dró MediaOne til baka fyrra samþykki við
53 milljarða dollara boði Comcat, annars stórs kapalfyi’irtækis.
MediaOne, sem er þriðja stærsta kapalfyrirtæki Bandai’íkjanna, sam-
þykkti kaup Comcast á fyrirtækinu í marz, en AT&T bauð betur.
Comcast hefur frest til fímmtudags til að gera nýtt tilboð að sögn
N.Y. Times.
Evrópa sameinast
í eitt kaupþing
London. Reuters.
• ÁTTA helztu verðbréfaþing Evrópu hafa staðfest að þau muni koma
á fót einu tölvuvæddu viðskiptakei’fi fyrh- allt meginland álfunnar.
Með hinu sameiginlega kerfí sameinast London, Amsterdam, Brussel,
Frankfurt, Madríd, Mílanó, París og Zurich í eitt kaupþing, sem mun ná
yfir alla Evrópu.
I viljayfirlýsingu undirritaðri í Madríd er að fínna áætlun um gang
samruna hinna átta kauphalla, sem var fyrst boðaður í nóvemberlok í
fyrra.
Markaðssamrunann má rekja til þess að kauphallirnar í London og
Frankfurt komu á fót bandalagi í júlí 1988.