Morgunblaðið - 12.05.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.05.1999, Blaðsíða 47
að rán mislukkaðs húsvarðar á of- dekraðri dóttur (Cameron Diaz) hús- bónda síns. Stöð 2, 22. 05. Slither ('73) / Skemmtilega geggjuð gaman- •M mynd um seinheppna þjófa og ránsfeng, berst leikurinn um þjóð- vegi Kaliforníu, þvera og endilanga. Howard Zieff var gamanmyndaleik- stjóri sem sannarlega lofaði góðu á þessum árum ogJames Caan, Sally Kellerman og Peter Boyle leika að hætti hússins. TNT, 14.05. The Yelloe Rolls Royce ('64) u Þægileg, íburðarmikli gaman- W mynd, í dag forvitnilegust fyrir óvenju þéttan leikhóþ sem fylgir sögu bílsins sem titillinn snýst um. Rex Harrison, Shirley McLaine, Ingrid Bergman, Jeanne Moreau, George C. Scott, svo aðeins nokkrir séu nefndir. TNT, 16.05 HROLLVEKJUR - Ovætturinn - The Relic ('97) / lllyrmi leikur 1! lausum hala f Jnáttúrugripasafni Chicago-borgar. Góðar brellur gera myndina að bærilegri skemmtun en leikaramir, Penelope Ann Miller. Linda Hunt og Tom Sizemore eru þeim mun mélkisulegri. Stöð 2, 24.05. B/ins- oq sönqvamyndir Showgirls ('95) Að margra áliti i versta mynd allra tíma, segjum að hún sé ein nokk- urra úr þeim flokki. Þrátt fyrir leik- stjórn Pauls Verhoevens (Robocop), glæst smástirni, vönduð leiktjöld og búninga og ómælt fé, vaknar þessi grófa mynd um Las Vegas þak við tjöldin, aldrei til lífsins. Alltof löng en handrit Joes Esterhaz (Basic In- sticnt), verst af öllu vondu - var þó eitt það dýrasta í sögunni. Bfórásin, 12.05. Priscialla, drottning eyðimerkur- innar - Priscilla, Queen of the Destert ('94) j, Hvar sem maður flokkar þessa w geggjuðu perlu um dragdrottn- ingar og kynskipting í harðri lífsbar- áttunni í auðnum Ástralíu, er útkom- an jafnan hin sama. Frábær og engri lík gamanmynd um erfitt líf jaðarpersóna sem reyna að bera höfuðið hátt. Fyndin, mannleg. Ter- ence Stamp. Hugo Weaving, Guy Pi- erce. Sýn, 22.05. SPENNUMYNDIR Dauðsmannseyja - Cuthroat Island ('95) / Sjóræningja- w mynd af gamla skólanum, (dularfullt kort, faldir fjársjóðir, augnleppar, rommið, allt heila galleríið), virkar ekki sem skyldi þrátt fyrir líflega leikstjórn Rennys Harlin - sem gerir yfirleitt betur. Geena Davis, Frank Langlla, Matthew Modine. Bíórásin, 25.05. (Glæponar - Original Gangsters ('97) / Smábæjarryskingar enda með * manndrápi og borgarnir taka lög og rétt í sínar hendur er gömul lumma líkt og leikhópurinn (Pam Grier, Fred Willaimason, James Brown og Paul Winfield). Myndin virðist lítið forvitnileg að því undan- skildu að þessar gömlu, lituðu B- myndahetjur fá óvænt að liðka sig í ellinni. Maltin segir myndina sæmi- lega. Sýn, 14. 05. The Mask Of Fumanchu ('32) jj Sögð besta myndin um meist- W araþrjótinn (Boris Karloff), sem reynir hvað hann getur til að ná yfirráðum á jarðkringlunni. En þökk- um ofursþæjaranum Neyland Smith (Lewis Stone), að hún snýst enn. Fyndin og sþennandi, með Myrnu Loy, einni af ofurstjörnum fjórða áratugarins. Söguleg. TNT, 15.04. Tveir sólarhringar enn - Another 48 Hours ('90) / Nolte og Murþhy hittast aftur W eftir fimm ár og sameinast um að finna glæpamann sem vill Murphy feigan. Ljósrit af fyrri mynd- inni en hefur ákveðið skemmtigildi þó. Hill er orðinn meistari í að senda menn hægt í gegnum rúður en öll frumlegheit eru löngu horfin og myndin hans er uppfull af klisj- um. Lítið gerttil að breyta eða bæta efnið og Murphy dauðyflisiegur mið- að við hinn fjöruga og skemmtilega Murphy fyrri myndarinnar. Nolte samurvið sig. RUV, 22.05. Morð i' Hvíta húsinu - Murder At 1600 ('97) Lítið minnisstæð mynd um baktjaldamakk og samtrygg- ingu innan veggja Hvíta hússins í kjölfar morðs sem þar er framið. Ótrúleg (jafnvel á þessum slóðum), gloþþótt, með slarkfærum spennu- atriðum frá hendi B-mynda leik- stjórans Dwights Little. Wesley Snipes. Bíórásin, 17.05. Stjörnuhliðið - Stargate ('94) U Spennandi og mátulega ævin- * týraleg vísindaskáldsöguleg mynd um flakk í tíma og rúmi fyrir tilverknað dularfulls hrings sem finnst í egypsku eyðimörkinni. Kurt Russell, James Spader. Leikstjóri Roland Emmerich (Independent Day). Bíórásin, 24.05. Veiðimennirnir - Jagarna ('96) Sænskur tryllir um lögreglu- mann sem orðinn er mæddur af giæpaveröld höfuðborgarinnar og heldur aftur norður á heimaslóðirn- ar. Þá tekur ekki betra við. Ótrúverð- ug en stemmningsrík, spennandi og Rolf Lassgard er fjallbrattur í aðal- hlutverkinu. Bíórásin, 19.05. I VESTRMR Villta vestrið - Go West ( '41) / Ekki er allt gull Jlp sem glóir; Maltin segir þennan gamanvestra með hinum einu og sönnu (og mistæku) Marx-bræðrum, litla skemmtun uns kemur að lífleg- um lokakafla. Sýn. 25.05. Enn heiti ég Trinity - Trinity Is Still My Name ('72) / Trinity-formúlan entist ekki í W: tvær myndir þrátt fyrir ágæt til- þrif Terences Hills og Buds Sþencers í mynd nr. 2., um bræðurna ósáru á hverju sem gengur. Sýn, 34.05. Leigumorðingjar - My Name Is Nobody ('73) — Tilraun til að samtvinna vin- ^ sældir farsa þeirra Trinity- þræðra og klassískra vestra, fer meira og minna út um þúfur í lang- hundi um ungan leigudráþsmann (Terence Hill) sem kemur sér ekki að því að dreþa gamlan útlaga (Henry Fonda). Tímasóun. Sýn, 20.05. The Rounders ('65) jj Gömlu kempurnar, Henry W Fonda og Glenn Ford, halda nútíma vestra á floti sem blautir kúasmalar sem dreymir um betra líf en að sólunda laununum jafnan á næsta bar. l' þessa sígildu hít; kven- fólk, spil og vín. TNT, 17.05. BARNAOQ________ FJÖLSKYLDUMYNDIR Hundaheppni - Ruke ('95) m Fjölskyldufaðir * ferst f bílslysi og endurfæðist í hundslíki. Maltin segir myndina góða en betur við hæfi fullorðinna en bama. Matthew Modine, Eric Stolz, Nancy Travis. Stöð 2, 14.05. Nýliði ársins - Rookie of the Year ('93) U Daniel Stem er ekki aðeins * óvenju sannfærandi aula- myndaleikari heldur frambærilegur leikstjóri. Tekst, með hjálp góðra leik- ara að gera góða fjölskyldumynd úr lummunni um strákgepil sem verður ofurmenni á iþróttasviðinu. Með Stern, Gary Busey, Dan Hedeya, o.fl. vönum mönnum. Sýn, 19.05. Frelsum Willy; Leiðin heim -Free Willy 2 ( '95) / Vemmileg framhaldsmynd um W: Keiko, sem nú snýr af hafi til að heiisa upþ á vini sína í mann- heimum. Alténd vel meint, bendir ungum áhorfendum á nauðsyn þess að ganga vel um umhverfið. Bíórás- in, 15.05. Sæbjöm Valdimarsson Meistaraverk Góð Sæmileg ^ Léleg w I 47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.