Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ lesa fornsögu í útvarpinu og ég legði til að við opnuðum útvarpið og lét- um strákinn heita fyi-sta karlmanns- nafninu sem fyrir kæmi í sögunni - og það var Flóki. Eg sagðist vilja láta skíra strákinn það - hvað sem hver segði og það varð. Þegar Flóki óx upp var hann mjög ánægður með nafnið sitt, fannst það gott lista- mannsnafn. Flóki var skemmtilegur strákur og eftir að hann byrjaði að teikna þá sleppti hann ekki blýant- inum. Hann var ekki nema tveggja og hálfs árs þegar hann fyrst fór að teikna. Ég var með hann á Hellu, það var rigning og ég var að skrifa Alfreð manninum mínum. Þá spurði ég Flóka í gamni hvort hann vildi ekki líka skrifa pabba sínum. Jú, hann vildi það og fékk bláan renn- ing. Hann páraði á hann mynd af sjálfum sér og rigningu allt í kring, hún var svo sniðug þessi fyrsta teikning hans. Eftir þetta sleppti hann ekki blýantinum. Ég ýtti undir þessa teikniáráttu hjá honum þannig að ég sá um að alltaf væri við höndina pappír og blýantur. Hann fór ekki í símann öðruvísi en teikna á meðan. Síminn var frammi á gangi og símaskráin var jafnan útteiknuð. Frænka hans ein vildi fá að koma með sína til að hann gæti párað í hana líka, en það varð ekki af fram- kvæmdum hjá henni.“ Banvænn ættarsjúkdómur „Við Alfreð maðurinn minn byrj- uðum að búa á Oðinsgötu 4 og þar er Flóki fæddur í litlu þakherbergi á fjórðu hæð. Lengst af bjuggum við Alfreð hins vegar á Bárugötu 18 þar sem tengdafaðir minn hafði búið. Alfreð maðurinn minn var frábær heimilisfaðir. Hann starfaði sem verkstjóri hjá Sameinaða gufuskipa- félaginu þar sem faðir hans vann og tók við af honum þegar hann lést. Systkini Aifreðs vildu að við fengj- um hús tengdaföður míns þegar hann var allur. Ingibjörg dóttir mín fylgdi mér ekki þangað, hún vildi vera kyrr hjá mömmu. Yngsta bam mitt var dóttir sem heitir Guðlaug eftir ömmu sinni. Hún og Flóki fengu bæði blöðrunýru og faðir þeirra einnig. Þessi sjúkdómur var í föðurætt Alfreðs. Karl faðir hans og mörg föðursystkini fóru úr þessum sjúkdómi. Maðurinn minn og Flóki dóu báðir af hans völdum en Gulla dóttir mín lamaðist til hálfs á full- orðinsárum.“ Overgurinn Búri „Ég hef eins og mamma haft áhuga á dulrænum efnum, fór stundum í andaglas og þess háttar. Ég get ekki neitað því að sumt sem fyrir mig hefur borið er dálítið skrít- ið. Það býr t.d. hjá mér dvergur í íbúðinni minni í Hamraborg. Ég kalla hann Búra. Það var skringilegt hvemig ég kynntist honum. Fyrst þegar ég varð vör við hann hafði ég aðeins búið í þessari íbúð í tvo daga. Þá vildi dótturdóttir mín og maður hennar endilega bjóða mér út að borða en ég vildi það ekki svo þau komu með hátíðarmatinn til mín. Þau komu með lundir og þrjár kart- öflur með, stórar og góðar, og svo fóra þau. Ég ætlaði að hita lundim- ar í potti með sósu sem þau komu líka með. Ég skar kjötið í þrjá parta en þá hringdi síminn. Þegar ég kom aftur var einn kjötbitinn farinn. Nú - ég varð hissa. „Ég át hann ábyggi- lega ekki,“ tautaði ég. Hvemig sem ég gáði fann ég ekki kjötbitann. Aft- ur hringdi síminn og ég stökk til að svara. Þegar ég kom aftur þá vantar eina kartölfuna. „Ne-ei - kartöflur ét ég ekki eintómar, kemur ekki til mála.“ Ég setti svo það sem eftir var í sósuna og borðaði. Um nóttina, undir morgun, þá komst ég í mjög einkennilegt ástand. Ég var ekki vakandi og ekki sofandi. Þá fannst mér koma til mín pínulítill maður, hann náði mér svo sem upp að hné. „Hvað ertu þú að gera hér?“ sagði ég. „Ég á heima hér,“ sagði hann nokkuð hvass á brún. „Ég á heima hér,“svaraði ég. „Ég var hér á und- an þér,“ svaraði hann. Hann hafði borðað kjötbitann og kartöfluna. Um þetta og fleira ræddum við sam- an nokkra stund. Meðal annars barst í tal hundur sem dóttir mín átti. Hann kom jafnan á miklu stökki inn á stofugólf og stansaði þar og glápti um allt. Nú sagði Búri mér að hundurinn væri alltaf á eftir sér. „Mér finnst gaman að sjá hver er að koma þegar dyrabjöllunni er hringt,“ bætir hann við. „Heyrðu Búri minn, þú skalt hoppa upp á skápinn í forstofunni þegar ég opna og standa uppi á honum, þá nær hundurinn þér ekki.“ Svo veit ég ekki meir fyiT en dyrabjallan hring- ir skömmu síðar og hundurinn kem- ur inn með dóttur minni. Hann ætl- aði að stökkva inn í stofu eins og hann var vanur en hætti snögglega við, setti fætumar upp á skápinn og horfði upp á hann langa stund. Dótt- ir mín átti lítið sjal og derhúfu. Hún sagðist ekki vita hvað hún ætti að gera við þetta. „Gefðu mér þetta handa honum Búra, þetta passar al- veg á hann,“ segi ég. Ég tók svo sjalið og húfuna og fer með það heim. Skömmu síðar kom barna- bamabarn mitt og vildi fá húfuna. Mamma hans hélt að það gerði ekki til þótt strákurinn fengi húfuna. Strákurinn var varla kominn út þeg- ar hann datt hrottalega, það lá við að hann hálsbrotnaði, hann varð að vera með strekk. Kolsvartur mökk- ur kom út úr bíl móður hans og hún fór með hann stöð af stöð en enginn gat sagt henni hvað þetta væri. „Nú skuluð þið skila sjalinu og húfunni aftur,“ sagði ég við þau. Þau gerðu það og strákurinn varð frískur dag- inn eftir og mökkurinn hvarf úr bflnum eins og skot. Að þessu hef ég mörg vitni. Búri býr enn hjá mér en hann hefur stöku sinnum fylgt mér upp á spítala þegar ég þarf að fara þangað. Ég hef séð hann þar stöku morgna, þegar ég hef þessa ein- kennilegu sjón.“ Kjarval og Flóki voru vinir Skyldi Flóki hafa trúað á svona yfírskilvitlega hluti? „Já, honum fannst gaman að Búra og tiltækjum hans,“ svarar Guðrún. „Flóki var svo sérstakur drengur að enginn getur trúað hvað ég sakna hans. Við trúðum hvort öðra fyrir öllu sem máli skipti. Ég hjálpaði honum þeg- ar hann hélt sýningar, var í miðasöl- unni m.a. Kjarval var boðið á eina slíka sýningu. Vinur minn einn kom og lét mig vita að Kjarval væri að koma á sýninguna. Hann hafði heyrt hann segja við kunninga sinn fyrir utan: „Eg er að fara að sjá stálkjaftinn!" Þegar hann kom inn vildi hann endilega borga en ég sagði að hann væri boðinn. Svo fór hann að skoða myndimar og gekk allt í kring í Listamannaskálanum þar til hann staldraði við eina mynd- ina og sagði: „Þetta er sko gillígott!" með mikill hrifningu. Síðan bauð hann Flóka heim til sín upp á sýra- drykk - þeir vora vinir eftir það.“ Guðrún Nielsen hefur unnið mik- ið við að smíða og tálga ýmsa gripi. „Ég á heilt herbergi af gripum á Safnasafninu fyrir norðan,“ segir hún þegar ég spyr hana um störf hennar. „Ég hef selt mikið af þess- um gripum, þeir vora beinlínis rifnir út úr höndunum á mér, einkum af útlendingum. Ég teiknaði á kubba, sagaði út og tálgaði mannamyndir og fleira. Ég bjó t.d. til mynd af séra Arna gamla Þórarinssyni, sem ég hef ekki tímt að láta frá mér. Ég fór að tálga eftir að við Alfreð fluttum á Báragötuna. Þar hafði ég svo mikið pláss. Þá var Flóki orðinn nokkuð stálpaður. Hann var afar hrifínn af myndunum mínum og ég af mynd- um hans. Við voram hrifín af verk- um hvort annars. Ég hef ekki unnið við annað en þetta og heimilisstörf- in. Ekki heldur eftir að maðurinn minn dó. Faðir minn var vel stæður og hjálpaði mér og eftir hann fékk ég talsverðan arf. Ég keypti mér m.a. stóra villu við Hlíðarveginn. Þar bjó Flóki hjá mér um tíma með sinni dönsku konu, þau áttu saman einn son. Mér fannst mjög gaman að fá að hafa þau hjá mér. Dætur mín- ar bjuggu líka nálægt mér með börnin sín. Eftir að Flóki var skilinn við Annette og fluttur burt þá kom hann vikulega til mín og fékk hjá mér kjötsúpu, líka eftir að ég flutti í Hamraborgina. Svo kom hann eitt sinn sem oftar og borðar en nokkru síðar hringdi stúlka sem hann bjó þá með og sagði mér að Flóki hefði skyndilega orðið mikið veikur. Ég fór strax upp á spítala en honum þyngdi svo ört að hann var orðinn meðvitundarlaus þegar ég kom. Ég gat því ekki kvatt hann - aðeins ver- ið hjá honum þegar hann dó.“ ALFREÐ Flóki. Myndin er tekin á sýningu listamannsins. Elnstigi listarinnar * AÆVIDOGUM Flóka var hann meðal kunn- ustu manna, bæði fyrir list sína og einkalíf sem mönnum varð tíðrætt um. Myndir hans þóttu með afbrigðum djarflegar, jafnvel „klúr- ar“. Hann var ósmeykur við að kalla sjálfan sig séní og margir karlar öfunduðu hann af kvenhylli því af einu viðtali af mörgum mátti skilja að hann byggi í sátt og samlyndi við tvær konur. Bækur komu út um hann, sýningar hans vöktu mikla athygli og að honum látnum var gefin út bók um hann. Ummæli hans um sjálfan sig og aðra settu lit á listalífið. Hann skar sig alls staðar úr. Nú er þögnin algeng- ust um nafn hans. Flóka líkaði ekki þögnin. Sum ummæli hans vora beinlínis sett fram til að rjúfa hana. Og áhugaleysi sumra gagnrýnenda á list hans særði hann. Flóki tók þessu þó öllu karlmannlega og talaði um of- ursmáa heila þeirra sem meta listaverk. Talsverður hluti listaverka Flóka er nú fyrir milligöngu réttsýnna manna í eigu Kjarvalsstaða, einnig ýmis persónuleg gögn hans, skissur og bréf. Vel fer á því að Listasafn Reykjavíkur varðveiti sem mest af verkum Flóka og það sem tengist lífí hans. Myndir Flóka era unnar í ákveðinni hefð sem kenna má við expressjónisma, súrrealisma, tákn- myndastefnu. Algengastar eru blekteikningar og stórar krítarmyndir. Ég hygg að súrrealisminn sé ríkastur í myndunum. Áhugi hans á framkristni, fjölkynngi og á margvíslegum sviðum lostans mót- aði hann, ekki síst á lokatímabili ferilsins. Hann las alltaf mikið og bókmenntir eru oft kveikja vei-k- anna. Þetta á hann sameiginlegt með ýmsum meist- uram liðins tíma: sjálfum Diirer, Goya, Bretanum Aubrey Beardsley, James Ensor, Alfred Kubin, belgísku bræðrunum Magritte og Delvaux, Salvador Dalí. Meðal fremstu lærimeistara era líka skáld, enda held ég að Flóki hefði ekki síður unað sér í hlut- verki skáldsins en listamannsins. Þegar honum lá hvað mest á hjarta var honum tamt að grípa til bók- ar, einkum til ljóða symbólista og þeirra sem með sérstæðum hætti sameinuðu symbólisma og róman- tísku. Oft var Charles Baudelaire á vörum. Vel má kalla Flóka „bókmenntalegan“ listamann en þá má ekki gleyma að listin er í fyrirrúmi, síðan kemur frásögnin sem oftast er þannig að ráða verð- ur í hana. Menn túlka list hver með sínum hætti. Það verður að harma að Flóki fékk ekki nógu mörg verk á sviði bókaskreytinga, en meðal þess sem hann myndlýsti er Bjólfskviða. Einnig birtust oft eftir hann teikningar, m. a. í Lesbók Morgun- blaðsins, sumar gerðar með miklum ágætum. Bókin Alfreð Flóki - Teikningar, með inngangs- orðum eftir Jóhann Hjálmarsson, kom út 1963. Furðuveröld Alfreðs Flóka eftir Aðalstein Ingólfs- son, með íslenskum og enskum texta, kom út 1986 (Útgefandi Bókaútgáfan hf.). Kafli er um Flóka í bókinni íslensk list (Skuggahrafn og vísdómsugla) 1981 (Útg. Bókaútgáfan Hildur). Ævintýrabókin um Alfreð Flóka eftir Nínu Björk Árnadóttur kom svo að honum látnum 1992 (Útgefandi Forlagið). Alfreð Flóki Nielsen fæddist í Reykjavík 19. des- ember 1938 og ólst þar upp, sonur hjónanna Alfreðs Nielsens og Guðrúnar Guðmundsdóttur Nielsen. Hann vakti snemma athygli fyrir teiknihæfileika sína og kom Jóhann Briem, listmálari og kennari hans í gagnfræðaskóla, strax auga á yfirburði hans. Flóki nam í Myndlista- og handíðaskólanum 1954- 1957 þar sem aðalkennari hans var Sigurður Sig- urðsson. Síðan tók við nám í Listaakademíunni dönsku í Kaupmannahöfn 1958-1962 hjá Soren Hjorth-Nielsen, en í Kaupmannahöfn bjó hann lengi og starfaði að list sinni. Hann kvæntist danskri konu, Annette Bauder Jensen. Þau skildu. Sonur þeirrra er Axel Darri Flókason, fæddur 4. júlí 1964, búsettur í Danmörku. Flóki lést 18. júní 1987. Hér heima sýndi Flóki oftast í Bogasal Þjóð- minjasafnsins, fyrst 1959, og í Listmunahúsinu í Reykjavík. Erlendis sýndi hann víða, m. a. í Kaup- mannahöfn og New York og tók þátt í fjölda sam- sýninga. Má nefna Surrealisterne í Charlottenborg 1970 og World Sun-ealist Exhibition í Chicago 1976. Undir það má taka með Aðalsteini Ingólfssyni að ákvörðun ungs reykvísks listamanns um miðjan sjötta áratug að „afneita listasögunni" eigi sér enga hliðstæðu í íslenskri listasögu, segja skilið við stefn- ur og strauma tuttugustu aldar og skapa sér eigin myndveröld. Flóki valdi vissulega einstigi á tímum þegar afstrakthst var nær einráð. Að því má þó huga að Dalí, Magritte, Delvaux, Erró og ýmsir fleiri, til dæmis hópur ungra austurrískra súrrea- lista, höfðu valið líka leið en Flóki jós af enn eldri brunnum þrátt fyrir ungan aldur. Nú verður tæpast um þetta spurt og allra síst deilt því að dæmum um skylda afneitun hefur fjölg- að. Fleira má nú en áður! Jóhann Hjálmarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.