Morgunblaðið - 30.05.1999, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ
10 B SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
QUINTA de Azevedo, eitt elsta og glæsilegasta
óðalssetur Vinho Verde, hýsir nú eitt besta
víngerðarhús svæðisins.
HÁTÆKNIN hefur hafið innreið sína í víngerð Portú-
gala og er víngerðarhúsið Quinta dos Carvalhais í Dao
eitt gleggsta dæmið þar um.
PORTÚGAL
ekki bara púrtvín
OPORTO, miðstöð portúgalska víniðnaðarins, er lit-
skrúðug og falleg borg.
Morgunblaðið/Steingrímur
DOURO-dalurinn er tignarlegt vínræktarsvæði er minnir um margt á suðræna útgáfu af Rínardalnum.
Portúgölsk vín hafa
vakið stöðugt meiri at-
hygli á alþjóðlegum
markaði síðustu árin.
Steingrímur Sigur-
geirsson segir að
Portúgal bjóði upp á
fjölbreytt úrval vína er
hafi mikla sérstöðu.
ORTÚGAL gat lengi vel
einungis státað af tvennu er
vín voru annars vegar þrátt
fyrir að vera sjöunda mikil-
vægasta vínframleiðsluríki veraldar
þegar magn er annars vegar. í
fyrsta lagi hinum einstöku púrtvín-
um landsins og í öðru lagi Mateus,
sem lengi vel var mest selda vínteg-
und í heimi. Önnur vín Portúgals
vöktu litla athygli utan heimahag-
anna enda framleiðslan yfirleitt ekki
ýkja spennandi.
Þetta hefur gjörbreyst á undan-
fómum áratug og að mörgu leyti er
Portúgal nú eitthvert athyglisverð-
asta víngerðarland Evrópu. Hinar
stórstígu framfarir tengjast að miklu
leyti inngöngu Portúgala í Evrópu-
sambandið árið 1986. Hún hefur ekki
einungis orðið til að fjármagna
glæsilegar hraðbrautir um landið
þvert og endilangt heldur hefur að-
ildin einnig verið hreinræktuð
vítamínsprauta fyrir víniðnaðinn. Sá
tími er löngu liðinn að portúgölsk vín
séu samnefnari fyrir þunglamaleg,
óspennandi og yflrleitt oxideruð vín
er einungis höfða til Portúgala.
Ný tækni hefur hafið innreið sína í
Portúgal, sem gert hefur vínfram-
leiðendum kleift að nýta þá sérstöðu
sem landið hefur á sviði víniðnaðar.
Hún felst ekki síst í þeirri fjöl-
breyttu flóru vínþrúgna er Portúgal-
ar hafa yfir að ráða. Portúgölsk vín
eru ekki einn ein útgáfan af hinum
alþjóðlegu Chardonnay- og Caber-
net-vínum heldur heimur út af fyrir
sig. Þau eru því tilvalin tilbreyting
auk þess sem margar hinna portú-
gölsku þrúgna eru vel þess virði að
þeim sé gefinn gaumur og má nefna
sem dæmi hina rauðu þrúgu Touriga
Nacional, en úr henni eru framleidd
mörg af bestu vínum landsins. Aðrar
athyglisverðar og algengar þrúgur
eru til dæmis hinar svörtu Touriga
Francesa, Tinto Roriz (sem raunar
er algeng á Spáni undir nafninu
Tempranillo) og Tinto Barroca.
Fortíð og nútið
En þrátt fyrir hina nýju tækni og
almennar framfarir er fortíðin
aldrei langt undan í sveitum Portú-
gals. Það þarf ekki að fara langt út
fyrir hraðbrautirnar til að vera
kominn inn í sveitir þar sem svart-
klæddar konur ganga á milli húsa
teymandi múlasna um þrönga vega-
slóðana eða til að rekast á tannlausa
fjárhirða syngjandi úti í haga fyrir
rollumar sínar.
Portúgölsk vín era yfirleitt ein-
fóld vín. Þægileg og aðlaðandi, full
af ávexti með góða tanníska undir-
stöðu, en ekki ýkja djúp. Að sama
skapi eru þau ekki dýr á alþjóðlegan
mælikvarða. Undantekningin á
þessu eru auðvitað púrtvínin, stór-
brotin og margþætt þegar best læt-
ur og að sama skapi dýr. Og vissu-
lega eru framleiddir einstaka rauðir
risar í Portúgal og ber þar hæst
Barca Velha frá Douro-dalnum. En
jafnvel það vín er ekki dýrt í saman-
burði við dýr vín annarra ríkja.
Fyrst og fremst eru vínin frá
Portúgal matarvín, vín sem falla full-
komlega að matargerð heimamanna.
Hún kann að vera einfaldari en sú
spænska en er engu að síður ljúffeng
þegar vel lætur. Grillaðir mjólkur-
grísir, saltfiskur í fjölbreytilegum
útgáfum, súpur og bragðmiklar pyls-
ur. Einstaldega vel útfærðir pott-
réttir eru einnig eitt af einkennum
portúgalskrar matargerðar að ekki
sé minnst á hið ferska sjávarfang,
sem gjaman er grillað.
Vinho Verde
Portúgal býr yfir miklum fjöl-
breytileika hvað ræktunaraðstæður
varðar, loftslag og jarðveg og hafa
jafnt Miðjarðar- sem Atlantshafið
áhrif á loftslag á hinum skilgreindu
vínræktarsvæðum er falla undir
D.O.C.-löggjöfina, sem byggist á
svipuðum forsendum og Appelation
Controlée-löggjöfin í Frakklandi.
Norður af borginni Oporto í norð-
urhluta landsins í áttina að Galisíu
og spænsku landamærunum er að
finna héraðið Minho en þar eru
framleidd vínin Vinho Verde.
Nafnið er ekki eingöngu tilkomið
vegna þess að vín héraðsins séu
græn, þótt vissulega megi stundum
finna græna bragðtóna í hinum léttu
hvítvínum héraðsins, sem best eru
nokkurra mánaða gömul. Ekki síður
vísar nafnið til héraðsins sígræna.
Loftslag er mjög rakt og hlýtt á
þessum slóðum og landslagið grænt
árið um kring og gróið og vínviður
spenntur upp á víra setur sterkan
svip á umhverfið.
Meirihluti framleiðslunnar er
rauðvín en flestir þekkja þó Vinho
Verde sem hvítvínssvæði þar sem
framleidd eru létt og lipur vín, allt
að því perlandi, er ber að drekka vel
kæld og ung, helst í sumarhitum.
Þau eru lág í áfengi, yfirleitt ekki
nema um 9% og sýrumikil. Margar
þrúgur eru notaðar við framleiðsl-
una og ekki gilda strangar reglur
um að tilteknar þrúgur verði að nota
í ákveðnum hlutföllum.
Bestu vínin eru framleidd úr
þrúgunni Alvarinho og minna um
margt á vín úr sömu þrúgu frá
Galisíu á Spáni, þar sem þrúgan
heitir Albarino, enda yfirleitt hærri í
áfengi en hin einfaldari Vinho Ver-
de. Alvarinho-vínin fi'á Vinho Verde
eru einu vín héraðsins sem sú regla
heimamanna, að best sé að drekka
vínin fyrir næstu uppskeru, á ekki
við. Þau þola vel 2-3 ára geymslu.
Rauðvín Vinho Verde sjást nær
aldrei utan héraðsins.
Bairrada og Douro
Sé ekið suður af Oporto í áttina að
Lissabon er komið að héruðunum
Bairrada og Dao. Hið fyrraefnda er
yngra og hefur einungis verið skil-
greint D.O.C.-víngerðarsvæði frá
því árið 1979 þótt þegar í byrjun
aldarinnar hafi það komið til greina
sem afmarkað svæði. Bairrada er
ekki síst þekkt fyrir einhver bestu
freyðivín Portúgals þótt rauðvínin
þaðan séu einnig góð kaup.
Austur af Bairrada er að finna
eitthvert þekktasta vínræktarsvæði
Portúgals, Dao. Það var þegar orðið
að afmörkuðu víngerðarsvæði á
fjórtándu öld og voru sett um það
lög árið 1907. Héraðið teygir sig yfir
töluvert landsvæði og er einungis
brot þess lagt undir vínrækt. Þetta
er hæðótt svæði þar sem lítil þorp
leynast í dalverpum og vínekrumar
breiða sig yfirleitt ekki yfir stór
svæði í einu heldur eru bundnar við
litla skika hér og þar.
Dao er öðru fremur rauðvínshér-
að og var lengi þekkt fyrir þung og
gömul vín í þeim stíl, sem lengi voru
helsta tákn portúgalskrar víngerð-
ar. Breytingarnar hafa hins vegar
verið miklar í Dao á síðastliðnum
áratug og ekki síst eru stöðugt fleiri
vínræktendur að átta sig á mögu-
leikum þrúgunnar Touriga
Nacional.
Þá er framleiðslan í auknum mæli
að færast á hendur einstakra fram-
leiðenda en lengi vel voru flest vín
framleidd af vínsamlögum, sem
bændur afhentu þrúgurnar. Stöðugt
fjölgar hins vegar svokölluðum vin-
hos de Quinta eða sjálfstæðum vín-
gerðarhúsum. Þá hefur víngerðar-
risinn Sogrape einnig haft mikil
áhrif á framþróun á svæðinu með
því að reisa risastóra og hátækni-
vædda víngerð, Quinta dos Carval-
hais, í héraðinu miðju, einhverja þá
fullkomnustu í öllu Portúgal, þar
sem m.a. eru framleidd vin á borð
við Duque de Viseu, nýtískulegur
Dao þar sem Touriga Nacional
gegnir lykilhlutverki.
011 þessi fjárfesting og hugarfars-
breyting í héraðinu er farin að skila
sér í mun betri vínum en áður og
Dao-vinin eru nú orðið vel þess virði
að þeim sé gefinn gaumur.
Douro og Alentejo
Norður af Dao er hins vegar Do-
uro-dalurinn, sem þekktastur er
sem uppspretta púrtvínsframleiðsl-
unnar. Douro er hins vegar einnig
eitthvert forvitnilegasta víngerðar-
svæði Portúgals. Það er ekki langt
síðan það var talið allt að því óvið-
eigandi að rækta þrúgur á þessu
svæði til framleiðslu á „venjulegum"
vínum en ekki púrtvínum einvörð-
ungu og hálfgerð helgispjöll að nota
þrúguna Touriga Nacional í „óæðri“
vín. Það var ekki fyrr en 1982 að
Douro varð að skilgreindu D.O.C.-
svæði fyrii- léttvín.
Staðreyndin er hins vegar sú að
fá önnur svæði Portúgals henta
jafnvel til framleiðslu rauðvína og
Douro, líkt og sífellt fleiri dæmi
sanna. Héðan kemur til að mynda
hið fyrrnefnda Barca Velha, sem
púrtvínsframleiðandinn Ferreira
framleiðir úr Touriga Nacional.
Loftslagið einkennist af andstæðum,
kaldir, rakir vetur og funheit og
þurr sumur.
Douro er einstaklega tilkomumik-
ið vínhérað er teygir sig um Douro-
dalinn frá spænsku landamærunum
vestur að Oporto. Tignarleg áin
rennur í bugðum á milli brattra
hæðanna þar sem vínekrurnar era
gróðursettar á endalausum stöllum.
Syðsta vínræktarhérað Portúgals
er Alentejo, sem ekki síður en önnur
héruð landsins hefur vakið stöðugt
aukna athygli og er farið að senda
frá sér æ fleiri vönduð og athyglis-
verð vín. A sléttum Alentejo hafa til
að mynda ástralskir víngerðarmenn
reynt fyrir sér með góðum árangri
og nokkrir portúgalskir framleið-
endur hafa tekið upp þann forna sið,
með góðum árangri, að láta hluta
framleiðslunnar gerjast í stórum
leirkerjum.