Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 16
16 B bbbf t-AM flfí HtíÖWtpPImljl SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn Tónlistaráhugamenn víða um land bíða með óþreyju þriðju plötu hljómsveitarinnar Sigur Rósar, sem væntanleg er 12. júní næst- komandi. Árni Matthíasson ræddi við liðsmenn hljómsveitarinnar sem sögðust leggja áherslu á að tónlist þeirra verði tímalaus. FYRIR ALLLÖNGU, á hljóm- sveitamælikvarða, sendi hljómsveit sem hét Victory Rose frá sér lag á safnplötu. Lagið, Fljúgðu, sem mörgum þótti hálfgerð lagleysa, var mótuð bjög- ' un, torskilin samsuða af bjögun og suði. Ekki heyrðist meira frá Vict- ory Rose, en þess meira tók að heyrast um hljómsveitina Sigur Rós Sú var skipuð síðhærðum skeggjuðum piltum sem fluttu hægfara rokktónlist og seiðandi, notuðu fiðluboga á gítarinn til að seiða fram óvenjulega hljóma sem hnigu og risu. Síðan er langt um liðið, Sigur Rósar piltar búnir að klippa sig, senda frá sér breiðskíf- ur, eina með frumsömdu efni, Von, og aðra með endurgerðum lögum - af Von, Von brigði. 12. júní næst- komandi kemur úr þriðja breið- skifa sveitarinnar, Ágætis byrjun, og sjaldan verið önnur eins eftir- vænting fyrir nokkurri plötu og einmitt þeirri. Sigur Rós skipa sem stendur þeir Jón Þór Birgisson, Georg Hólm og Kjartan Sveinsson, en -v. annar stofnenda sveitarinnar, 1 Ágúst Sævar Gunnarsson, er hætt> ur þó hann leiki enn með þeim fé- lögum á tónleikum og verður svo þar til staðgengill finnst. Þeir Jón Þór og Ágúst teljast upphafsmenn sveitarinnar og það voru þeir sem fengu hugmyndina að því að fara í hljóðver sem Victory Rose að taka upp lag fyrir Smekkleysuútgáfuna. Það var árið 1994. Þegar kom að upptökunum slóst Georg í hópinn. Síðar bættist þeim liðsauki í Kjart- ani sem varð þó ekki eiginlegur meðlimur í sveitinni fyrr en fyrir skemmstu, en hann hefur leikið með henni á tónleikum alllengi. Ekki voru þeir félagar nema sex tíma að taka upp fyrsta lagið, sem ber í sér bergmál af því sem síðar átti eftir að verða. Þeir félagar segja að þó þeir hafi þannig verið búnir að finna hvaða leið það var sem þeir vildu fara hafi þeir farið inn í skúr og byrjað að æfa allt aðra gerð af tónlist. „Það er svo sérkennilegt," segir Georg, „að þetta lag var einmitt það sem okk- ur langaði mest til að gera en þeg- ar við síðan fórum að æfa í bíl- skúrnum æfðum við allt aðra gerð af tónlist, Smashing Pumpkins- rokk. Það var ekki fyrr en eftir nokkurn tíma að við fórum aftur í átt að því sem við höfðum byrjað á að gera að við áttuðum okkur aftur á því að það var einmitt það sem við vildum í tónlist." Ekki liggur eftir Victory Rose nema þetta eina lag á plasti, sem tekið var upp á sex tímum, og sveitin lifði eiginlega ekki lengi eft- ir að það var komið út; þeir félagar segja að þeim hafi þótt hallærislegt að vera íslensk hljómsveit að syngja á íslensku, en heita upp á ensku. Victory Rose varð því að Sigur Rós. Ekki spillti að þeirra sögn að nafnið er miklu skemmti- legra á íslensku en ensku. Þeir félagar koma hver úr sinni áttinni, Jón Þór ólst upp í Mosfells- bæ og Kjartan bjó þ_ar einnig um tíma, en Georg og Ágúst eru úr Reykjavík. Tónlistarlega komu þeir einnig hver úr sinni áttinni, hlustuðu á allskonar tónlist, þung- arokk, framúrstefnu, nýaldartón- list, trúbadúrapopp, nýrokk; ekki á það sama en sameinuðust í Sigur Rós. Fyrsta breiðskífan, Von, kom út haustið 1997 og á síðasta ári kom út endurgerð hennar, Von brigði, þar sem ýmsir tónlistarmenn fór hönd- um um hugverk þeirra Sigur Rósar manna og endurgerðu að vild. Jón Þór segir að það hafi verið afskap- lega gaman að fá lögin til baka end- urunnin af öðrum. „Það var gaman að sjá hvað öðrum fannst, hvað aðr- ir sáu í lögunum, en okkur fannst ekki síst gaman að endurvinna lög og langar til að gera meira af því, leita að kjamanum í einhverju og draga hann fram.“ Sér á báti Sigur Rós hefur ævinlega verið sér á báti í tónsköpun sinni og einnig látið minna fara fyrir sér en gengur og gerist með rokksveitir. Það kallar á að menn geti í eyðurn- ar og sögumar af sveitinni eru óteljandi og sumar all svæsnar. Þeir félagar láta í ljós undrun yfir því hvernig sögur fari af stað, enda sé varla til prúðari og rólegri hljómsveit. Meðal annars fór það orð af sveitinni að henni væri ókleift að ljúka við nokkurt verk-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.