Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 19
H
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 B 19
Breska stjórnin
ver erfðabreytt
matvæli
London. Morgunblaðið.
BREZKUR almenningur hefur að
engu fullyrðingar ríkisstjórnarinnar
um skaðleysi erfðabreyttra mat-
væla og heldur fast við að snið-
ganga þau áfram. Bæði er að
stöðugt berast fréttir af skaðsemi
efnanna og svo segja menn að spor-
in frá nautakjötinu og Kreutzfeldt-
sjúkdómnum hræði, en þar þótti
mönnum brezka ríkisstjórnin taka
of seint á málum.
Bretar hafa verið mjög á móti
erfðabreyttum efnum í matvælum
og það svo, að verzlanakeðjur hafa
hver á fætur annarri úthýst vörum,
sem innihalda erfðabreytt efni, úr
vörumerkjum sínum. Ríkisstjórnin
hefur sett reglur um merkingar á
matvælum, sem innihalda erfða-
breytt soja eða maís, en hefur verið
gagnrýnd fyrir að ganga of skammt,
bæði hvað varðar merkingar og
rannsóknir á áhrifum erfðabreyttra
efna á grænmeti og umhverfi.
Margir hafa og hvatt ríkisstjómina
til þess að setja þriggja ára bann á
erfðabreytt grænmeti, en aðrir
lagzt gegn því og sagt strangar
reglur duga.
En í síðustu viku rak eitt og ann-
að á fjörur fólks, sem setti þessi mál
í sviðsljósið og yfirlýsingamar
gengu sitt á hvað svo brezkur al-
menningur vissi eiginlega ekki,
hvaðan á hann stóð veðrið. En hvað
sem hver segir, þá stendur fólk
bara stormana af sér og heldur sínu
striki gegn erfðabreytingunum.
Vikan hófst á því, að Konunglega
vísindafélagið lýsti því yfir, að rann-
sóknir Arpad Puszati, sem hann
sagði hafa sýnt að neysla erfða-
breyttra kartaflna hefði skaðleg
áhrif á rottur, væru ómarktækar.
Vart hafði fólk kyngt þessum boð-
skap, þegar brezku læknasamtökin
lýstu því yfir, að notkun erfða-
breyttra efna gæti haft skaðleg
áhrif á umhverfið og fæðukeðjuna
til lengri tíma litið. Þessu fylgdu
sögur af því að aðalvísindaráðgjafi
ríkisstjórnarinnar, Robert May,
væri sammála þeim sem teldu að
erfðabreytt grænmeti eigi ekki að
setja á almennan markað fyrr en í
fyrsta lagi 2003.
Og eins og þetta væri ekki nóg,
þá bámst fréttir vestan um haf, frá
Cornell-háskóla um að rannsóknir
þar á bæ hefðu leitt í ljós að erfða-
breytt maísfrjókom ganga af fiðr-
ildalirfum dauðum.
Nú þótti brezku ríkisstjórninni
nóg komið og í síðustu viku flutti
Jack Cunningham ráðherra þinginu
þann boðskap að helztu ráðgjafar
ríkisstjórnarinnar teldu með öllu
ósannað að erfðabreytt matvæli
væru mönnum hættuleg. Og þegar
gengið var á hann í sjónvarpsfrétt-
um, hvort hann teldi þau þá skað-
laus, svaraði hann játandi. Margir
vilja líka skipta málinu í tvennt;
annars vegar séu þessi efni í mat-
Laugavegi 4, sími 551 4473
vælum skaðlaus fólki, en annað geti
verið um umhverfisáhrif þeirra í
ræktun. Cunningham boðaði hert
eftirlit með notkun erfðabreyttra
efna við grænmetisræktun og tvær
nýjar nefndir eiga að hafa eftirlit og
umsjón með rannsóknum á áhrifum
erfðabreyttra efna á manninn og
umhverfi hans.
En allt kom fyrir ekki. Skoðana-
kannanir sýndu strax að almenning-
ur tók lítið mark á öryggisstimpli
ríkisstjórnarinnar. Aðeins 35% að-
spurðra sögðust treysta ríkisstjóm-
inni til þess að taka réttar ákvarð-
anir í málinu og aðeins 1% taldi
erfðabreytt matvæli geta orðið
mannkyninu til góðs.
En hafi þessar niðurstöður vakið
litla gleði forsætisráðherrans í
Downingstræti, þá er nú kátt í höll-
inni. Karl Bretaprins hefur árum
saman verið talsmaður lífrænnar
ræktunar og rekur slíkan búskap. Á
vefsíðu sinni lýsti hann efasemdum
um að rétt væri að gefa erfða-
breyttri ræktun lausan tauminn og
hefur fjöldi fólks tekið boði hans um
skoðanaskipti á vefsíðunni og lýst
stuðningi við málflutning hans.
Hvað sem segja má um stöðu hans
með brezku þjóðinni, þá er hann
greinilega hennar maður í erfða-
breyttum efnum.
Blair snýr vöm í sókn
Rflrisstjórnin hefur nú hins vegar
snúið vörn í sókn og Tony Blair, for-
sætisráðherra, réðist á fimmtudag
harkalega að blöðunum fyrir að
gera fólk móðursjúkt í garð erfða-
breyttra matvæla. Sagði hann þau
þyrla upp moldviðri í hvert sinn,
sem einhver segði eitthvað gegn
erfðabreyttum matvælum, en þegja
svo þunnu hljóði, þegar menn
kæmu fram með rök með ræktun
þeirra.
Forsætisráðherra sækir nú rök
með erfðabreyttum matvælum í
nýja skýrslu sérstakrar hugmynda-
nefndar rfldsstjómarinnar, sem
skipuð er vísindamönnum, lögfræð-
ingum, heimspekingum og um-
hverfissinum. I skýrslunni er lögð
sendi frá sér yfirlýsingu, þar sem
áherzlan er lögð á, að erfðabreytt
matvæli séu ekki óhollari en önnur
og þróuð ríki hafa áríðandi skyldum
að gegna við þau vanþróuðu með því
að veita þeim aðgang að erfða-
breyttum matvælum, sem gætu
hamlað þar gegn hungri. Það væri
því siðferðilega rangt að stöðva
framleiðslu þeirra. En nefndin segir
einnig, að sjálfsagt sé að setja regl-
ur um ræktun erfðabreyttra mat-
væla og bregðast við óskum neyt-
enda í Bretlandi, þannig að þeir,
sem af einhverjum ástæðum, vilja
ekki neyta erfðabreyttra matvæla
eigi annars kost og að neytendur
geti af vörumerkingum séð, hvað
þeim stendur til boða.
J L
Morgunblaðið býður þér að fá blaðið þitt
1
i
,
sérpakkað og merkt á sölustað nálægt
sumarleyfisstaðnum þínum hér á landi.
Sendum blaðið í a.m.k. 4 daga samfleytt,
pöntun þarf að berast fyrir kl. 16.00.
Nýttu þér þjónustu Morgunblaðsins
og fylgstu með.
Hringdu í áskriftardeildina í síma
♦