Morgunblaðið - 06.06.1999, Page 4

Morgunblaðið - 06.06.1999, Page 4
4 E SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRA , UMSOKN TIL ATVINNU Leiðin til betra starfs Fæst í bókabúðum SJÚKRAHÚS REYKJ AVÍ K U R ■ ■ Oldrunarsvið Öldrunarlækningadeild B-4 Fossvogi sinnir bráðaþjónustu aldraðra, greiningu, mati og meðferð. Mjög virk endurhæfing er í gangi og sinnir deildin einnig á hverjum tíma endurhæf- ingu sjúklinga eftir lærbrot. Unnið er eftir skipu- lagsformi einstaklingshæfðrar hjúkrunar og er lögð rík áhersla á teymisvinnu og heildræn vinnubrögð. Starfsaðstaða er með ágætum. Aðstoðardeildarstjóri Laus er staða aðstoðardeildarstjóra. Stjórnun- arheild deildarinnar mynda deildarstjóri og tveir aðstoðardeildarstjórar sem skipta með sér stjórnunar- og þróunarlegum verkefnum. Launakjör eru samkvæmt framgangsmati hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingur Laus er staða hjúkrunarfræðings á næturvökt- um frá 1. júlí. Vinnutími er frá kl. 23.00—8.30. Sjúkraliðar Lausar eru stöður sjúkraliða á allar vaktir nú þegar og frá 1. september. Vaktafyrirkomulag og starfshlutfall samningsatriði. Sumarafleysingar — Vantar enn fólk í sumar- afleysingar. Hentar vel hjúkrunar-, sjúkraliða- og læknanemum. Mörg námstækifæri bjóðast á deildinni og eru viðfangsefni í umönnun sjúklinga okkar afar fjölbreytt. Nánari upplýsingar um starfsemi og launakjör hjá Guðrúnu Sigurjónsdóttur deildarstjóra í síma 525 1536 og Önnu Birnu Jensdóttur hjúkrunarframkvæmda- stjóra í síma 525 1888. Lyflækningasvið Sviðsstjóri hjúkrunar Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfram- kvæmdastjóra lyflækningasviðs Sjúkra- húss Reykjavíkur. Hjúkrunarframkvæmda- stjóri er sviðsstjóri sviðsins og myndar ásamt forstöðulækni sviðsstjórn. Lyflækningasvið þjónar sjúklingum með meltingarfærasjúkdóma, innkirtla- og efn- askiptasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, lung- nasjúkdóma, smitsjúkdóma, blóðsjúk- dóma, krabbameín og hjartasjúkdóma. Barnadeild sjúkrahússins tilheyrir lyf- lækningasviði. Sviðsstjóri hjúkrunar ber ábyrgð á að hjúkrun á lyflækningasviði sé í samræmi við hugmyndafræði hjúkrunar á Sjúkra- húsi Reykjavíkur, í samráði við hjúkrunar- deildarstjóra. Sviðsstjórar stjórna rekstri lyflækningasviðs og vinna að heildarskip- ulagi og samhæfingu starfseminnar. Þeir sjá jafnframt um að allar rekstrarákvarð- anir séu í samræmi við áætlanir hverju sinni. Sviðsstjóri hjúkrunar stuðlar að ákjósan- legum skilyrðum fyrir rannsóknir og kennslu í samráði við fræðslu-, rannsókna- og gæðasvið og hjúkrunardeildarstjóra viðkomandi deilda. Æskilegt er að viðkomandi hafi masters- menntun í hjúkrun eða á öðru sviði sem nýtist innan heilbrigðisstofnana. Mikil- vægt er að viðkomandi hafi stjórnunar- menntun og víðtæka reynslu af stjórnun- arstörfum. Starfið er veitt frá og með 1. ágúst 1999 eða eftir nánara samkomu- lagi. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri í síma 525 1220, netfang sigs@shr.is Umsóknum skal skilað á skrifstofu hjúkrunar- forstjóra fyrir 15. júlí 1999 og skal þeim fylgja upplýsingar um menntun, rannsóknir og fyrri störf. Fræðslu-, rannsókna- og gæðasvið Sviðsstjóri hjúkrunar Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfram- kvæmdastjóra Fræðslu-, rannsókna- og gæða- sviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur. Hjúkrunarfram- kvæmdastjóri er sviðsstjóri sviðsins og mynd- ar ásamt forstöðulækni sviðsstjórn. SHR er kennslusjúkrahús, sem starfar í nánum tenglum við Háskóla íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir. SHR tekur virkan þátt í þjálfun og kennslu þeirra sem stunda nám í heilbrigðisvísindum. Fræðslu-, rannsókna- og gæðasvið hefur um- sjón með endurmenntun, fræðslu og nám- skeiðahaidi fyrir alla starfsmenn sjúkrahússins. Jafnframt veita sviðsstjórar ráðgjöf við vís- indavinnu, útgáfu fræðsluefnis fyrir sjúklinga og annað það efni sem heyrir undir rannsóknir, fræðslu- og gæðamál. Æskilegt er að viðkomandi hafi doktorsmennt- un og reynslu af klínískum rannsóknum. Mastersmenntun í hjúkrun eða á öðru sviði sem nýtist innan heilbrigðisstofnana áskilin. Starfið er veittfrá og með 1. ágúst 1999 eða eftir nánara samkomulagi. Allar nánari upplýsingar gefur hjúkrunar- forstjóri í síma 525-1220, netfang sigs@shr.is. Umsóknum skal skilað á skrifstofu hjúkrunar- forstjóra fyrir 15. júlí 1999 og skal þeim fylgja upplýsingar um menntun, rannsóknir og önnur vísindastörf. Yfirfélagsráðgjafi Laus er til umsóknar starf yfirfélagsráðgjafa við öldrunarsvið SHR, Landakoti. Hér er um að ræða fjölbreytt og áhugavert starf þar sem öldrunarþjónustan er í stöðugri þróun. í starfinu felst umsjón og skipulagning á fé- lagsráðgjafaþjónustu á öldrunarsviði SHR, Landakoti. Unnið er í þverfaglegri teymisvinnu við greiningu, meðferð og stuðning við aldraða. Einnig er ráðgjöf og stuðningur við aðstandendur. Stafið gerir kröfur um skipu- lagshæfileika og hæfni til samvinnu. Ráðið er í starfið frá 1. september 1999. Umsóknarfrestur er til 28. júní 1999. Allar nánari upplýsingar veitir Jóna Eggertsdóttir, forstödufélagsrádgjafi, í sfma 525 1000 eda 525 1545. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. ÍSAFJARÐARBÆR Grunnskólar ísafjarðarbæjar Við bjóðum betur - miklu betur! ísafjarðarbær vard til við sameiningu sex sveitarfélaga á norðanverdum Vestfjörð- um 1. júní 1996. Hér hefur myndast öflugt sveitarfélag með 4.500 íbúum þar sem lögð er áhersia á menntun og uppbygg- ingu skóla. í bænum eru fjórir skólar og eru þeir allir einsetnir. í bæjarfélaginu er margháttuð þjónusta og atvinnustarf- semi, auk þess sem Vestfirðir eru þekktir fyrir sérstæða náttúru og fjölbreytt tæki- færi eru til útivistar og íþróttaiðkana. Skólarnir hafa afnot af góðum íþróttahús- um og í nágrenni bæjarins er eitt besta skíðasvæði landsins. ísafjörður I Grunnskólanum á ísafirði eru 550 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn var einsettur haustið 1998. Menntamálaráðuneytið hefur veitt skólan- um styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla skólaárið 1999/00 til að vinna að þróunarverkefni á yngsta stigi, sem hlotið hefur heitið „Saman í takt, heimili og skóli". Einnig er skólinn aðili að Comeniusar-verkefni á vegum Evrópusambandsins sem m.a. tekur til gagnkvæmra heim- sókna kennara. Áhersla er lögð á endurskipulagningu stærðfræði- kennslu og tölvu-og upplýsingatækni. Við óskum eftir að ráða hugmyndaríka og metnaðarfulla kennara sem eru tilbúnir til að leggja tíma og orku í samstarf innan árganga. Næsta skólaár vantar til starfa við skólann: Tónmenntakennara, sér- kennara, þroskaþjálfa, verkgreinakennara og bekkjarkennara á yngsta og miðstigi. Skólastjóri er Kristinn Breiðfj. Guðmundsson, vs. 456 3044, netfang krbg@isafjordur.is. Aðstoðarskólastjóri er Jónína Ó. Emilsdóttir, netfang jonín@isafjordur.is. Suðureyri Nemendur í skólanum eru 56 í 1. — 10. bekk. Næsta vetur vantar til starfa tvo kennara. Meðal kennslugreina eru: Heimilisfræði, saumar, tónmennt, sérkennsla og almenn bekkjarkennsla á miðstigi. Skóla- stjóri er Magnús S. Jónsson, s. 456 6129 (skóli), 456 6120 (fax) og 456 6119 (heima), netfang: msj@snerpa.is. Þingeyri (skólanum eru 70 nemendur í 1. —10. bekk. Aðeins vantar íþróttakenn- ara í 2/3 til starfa við skólann næsta vetur. Skólastjóri er Guðmundur Þorkelsson, s. 456 8106 (skóli) og 456 4494 (heima) Netfang: gth@snerpa.is. Önundarfjörður Nemendur skólans eru 62 i 1.—10. bekk. Tvo kennara vantar til starfa næsta skólaár. Meðal kennslugreina eru: Enska, mynd- og handmennt, danska, heimilisfræði, tónmennt, íþróttir og sérkennsla. Skólastjóri er Sigrún Sóley Jökulsdóttir, s. 456 7670 (skóli) og 456 7755 (heima), netfang: sigrun@isafjordur.is. Aðstoðarskólastjóri er Kristrún Birg- isdóttir, s. 861 8971. Við bjóðum betur — hafðu samband sem fyrst! Umsóknarfrestur er til 15. júní 1999. Einholtsskóli auglýsir: Einholtsskóla vantar kennara í fullt starf á næsta skólaári. Einholtsskóli er sérskóli fyrir unglinga á aldrin- um 13—16 ára. Æskilegt er að viðkomandi hafi tveggja ára framhaldsnám í sérkennslu og ekki kemur til greina að ráða leiðbeinanda. Starfið er mjög krefjandi en jafnframt mjög gefandi fyrir kennara, sem hefur gaman af að vinna með unglingum í nánu samstarfi við aðra kennara. Kennarinn þarf að geta kennt sem flestar bóklegar greinar, þó er sérstaklega leitað að kennara með góða þekkingu á tölv- um, stærðfræði eða samfélagsfræðigreinum. Viðkomandi þarf að vera þolinmóður og tilbú- inn að taka þátt í félagslegum athöfnum nem- enda. Nánari upplýsingar gefur Jóhanna Gestsdóttir, skólastjóri, í símum 562 3711 og 552 4634.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.