Morgunblaðið - 06.06.1999, Síða 16

Morgunblaðið - 06.06.1999, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ ,16 E SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1999 Þróunarsamvinnu- stofnun íslands óskar eftir að ráða skipstjóra /skipstjórnar- kennara við sjávarútvegsskóla Namibíu í Walvis Bay. Viðkomandi þarf að hafa farmann- apróf, helst skipstjórnarpróf 4. stigs og reynslu af skipstjórnarstörfum. Góð enskukunnátta er nauðsynleg og einhver kennslureynsla. Reiknað er með að viðkom- andi hefji störf í september nk. og að ráðning- artími sé til ársloka árið 2001. Laun eru skv. launakerfi Sameinuðu þjóðanna. Umsóknir skulu berast fyrir 20. júní nk. til skrif- stofu ÞSSÍ, Rauðarárstíg 25,105 Reykjavík, s. 560 9980, fax 560 9982, netfang: iceida@utn.stjr.is. Þar eru einnig veittar nánari upplýsingar. MÝRDALSHREPPUR Mýrarbraut 13. 870 Vík í Mýrdal Mýrdalshreppur auglýsir Kennarar, íþróttakennarar, leikskóla- kennarar, þroskaþjálfar Kennara vantar við Grunnskóla Mýrdalshrepps næsta skólaár. Meðal kennslugreina: Kennsla yngri barna, íþróttir, handmennt, tungumál, tölvukennsla og sérkennsla. Launauppbót, húsnæðisfríðindi og flutnings- styrkur.Tveggja klukkustundar aksturfrá Rvík. Upplýsingar gefa skólastjóri Kolbrún Hjör- leifsdóttir, vs. 487 1242 og hs. 487 1287, og sveitarstjóri Hafsteinn Jóhannesson, sími 487 1210 og hs. 487 1174. VINNUEFTIRUT RÍKISINS Administratíon of occupational safety and health Bíldshöföa 16 • Pósthólf 12220 • 132 Reykjavík Fulltrúi á skrifstofu Aðalskrifstofan í Reykjavík óskar eftir starfs- manni til að annast símvörslu, afgreiðslu og almenn skrifstofustörf. Viðkomandi þarf að vera vanur/vön vinnu við tölvur. Starfið er fjölbreytt og vinnustaðurinn er reyklaus. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagrún Þórðardóttir, skrifstofustjóri, í síma 567 2500. Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila fyrir 25. júní nk. til Vinnu- eftirlits ríkisins, Bíldshöfða 16, 112 Reykjavík. Konrektor Starf konrektors/aðstoðarskólameistara við Menntaskólann í Reykjavík er laust til umsókn- ar. Aðstoðarskólameistari er staðgengill skóla- meistara og vinnur með honum við daglega stjórn skólans og rekstur. Aðstoðarskólameistari er ráðinn til fimm ára frá 1. ágúst nk. Laun eru skv. kjarasamningi HÍK. Umsóknarfrestur er til 28. júní. Nánari upplýsingar veitir rektor í síma 551 4177. Rektor. Sjúkraþjálfunarstöðin Háteigsvegi Óskum eftir að ráða sjúkraþjálfara sem fyrst eða eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 551 4646, Ásdís, Laufey eða Ragnheiður. CJflLDORFSKÓLl'NN t I L/EKÖ/IRBOTNUM er sjálfstæður skóli í nánum tengslum við óspillta íslenska náttúru. Hann hefur sérstöðu í íslensku skólaflórunni vegna ytri aðstæðna og þeirra leiða, sem farnar eru í innra starfi. Uppeldisfræði Rúdólfs Steiners er grundvöllur skólastarfsins, þarsem hugsun, tilfinningar og viiji barnsins eru lögð að jöfnu. Við óskum eftir kennurum, dugmiklu jákvæðu og skapandi fólki, sem hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu skólans. Upplýsingar í síma 587 4499 milli kl. 10 og 12, einnig hjá Sigfúsi í síma 897 0065 og Lóu í síma 699 3630. Samfélagsgreinar — húsbóndi Við Framhaldsskólann á Laugum vantar okkur kennara í samfélagsgreinum. Einnig er laust til umsóknar starf húsbónda á heimavist. í skólanum eru um 100 nemendur. Boðið er upp á almenna námsbraut auk félagsfræðibrautar til stúdentsprófs og náms í íþrótt- um og íþróttafræðum. Langflestir nemendur búa á heimavist. Á Laugum er jafnframt grunnskóli, tónlistarskóli, leikskóli og heilsu- gæsla. Þar er einnig ýmis þjónusta eins og kjörbúð, bókaverslun, pósthús og sparisjóður. Laun skv. kjarasamningum fjármálaráðuneytis, HÍK og SFR. Umsóknarfrestur er til 19. júní. Nánari upplýsingar gefur skólameistari, Hjalti Jón Sveinsson, í símum 464 3112 og 464 3113 eða Sverrir Haraldsson, áfangastjóri, í símum 464 3330 og 464 3126. Sölumaður — sjávarútvegur Fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða sölumann til að annast sölu á vörum til útgerðar. Viðkomandi þarf að vera röskur, geta unnið sjálfstætt, koma vel fyrir, hafa létta lund og ánægju af samskiptum við fólk. Hann þarf að þekkja vel til í sjávarútvegi, helst með reynslu í sjómennsku, einkum skipstjórn eða útgerð. í starfinu felst bæði skrifstofuvinna/afgreiðsla og ferðalög um landið með daglegum sam- skiptum við útgerðar- og skipstjórnarmenn. Um er að ræða framtíðarstarf fyrir réttan aðila. Umsækjendur eru beðnir að gera grein fyrir sér í skriflegri umsókn, merktri: „Sölumaður — sjávarútvegur — 8116", og senda hana til afgreiðslu Mbl. fyrir 15. júní nk. Skólastjóra vantar Laus er til umsóknar staða skólastjóra og ein kennarastaða við Litlulaugaskóla í Reykjadal. í skólanum eru 35 nemendur í 1, —10.bekk. Vegna sveigjanlegra kennsluhátta í fámennum skóla er um fjölbreytilega kennslu að ræða en æskilegar kennslugreinar eru enska, stærð- fræði og raungreinar. Þá er æskilegt að um- sækjendur séu vanir tölvunotkun. Umsóknar- frestur er til 20. júní nk. Skólinn erað Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu en þar er einnig leikskóli, tónlistarskóli og framhaldsskóli. Til Húsavíkur er 40 km akstur og til Akureyrar 60 km. Veðursæld er óvíða meiri. Ódýr húsaleiga og kynding. Nánari upplýsingar gefur Angantýr Einarsson skólastjóri í síma 464 3167 og Sverrir Haralds- son formaður skólanefndar í síma 464 3126. Sendiráð Frakklands leitar að starfsmanni Skrifstofustarf er laust til umsóknar í sendiráði Frakklands. Áhugasamir eru beðnir um að senda inn yfirlit um reynslu og fyrri störf til Bernard Cocquebert, Sendiráði Frakklands, Túngötu 22, B.P. 1750, 121 Reykjavík. Skilyrði fyrir ráðningu er góð frönsku- og íslenskukunnátta. Staðan er laus nú þegar. Frá Menntaskólanum í Reykjavík Varðstjóri Slökkvilið Hafnarfjarðar Hér með er auglýst laus staða varðstjóra hjá Slökkviliði Hafnarfjarðar frá og með 1. ágúst 1999. Laun eru samkvæmt kjarasamningum við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar. Leitað er eftir einstaklingi með reynslu og menntun á sviði brunamála og slökkvistarfa. Viðkomandi þarf að hafa stjórnunarhæfileika. Skrifleg umsókn, ásamt greinargerð um aldur menntun og fyrri störf, berist undirrituðum fyrir 1. júlí nk. Slökkviliðsstjórinn í Hafnarfirði. Blaðberar Blaðbera vantar í Vatnsendahverfi. Þarf að hafa bíl ^ | Upplýsingar gefnar í síma 569 1122 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaóið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Skólastjóri og kennari óskast að Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi. Staða skólastjóra Laugagerðisskóla er laustil umsóknar. Umsóknarfrestur ertil 13. júní nk. Skólinn er um 120 km frá Reykjavík, nemendur eru um 45, allir í heimanakstri. Kennsluaðstaða er góð, vel búnar rúmgóðar kennslustofur, íþróttahús og sundlaug. Skólastjórabústaður er einbýlishús með frírri hitaveitu. Ennfremur vantar kennara í hlutastarf í hand- og myndmennt og heimilisfræði. Upplýsingar veita Sigrún Ólafsdóttir í síma 435 6631 og Guðbjartur Alexanderson í síma 435 6685. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Hljóðdeild Starfsmaður óskast í tímabundið starf í hljóð- deild Þjóðleikhússins, þ.e. frá 1.9. nk. til 30.6. árið 2000. Æskilegt er að umsækjandi hafi ein- hverja reynslu í hljóðvinnslu og almennri við- haldsvinnu hljóðtæknibúnaðar. Um er að ræða vaktavinnu. Laun fara eftir kjarasamningi RSÍ við ríkissjóð. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrir störf berist skrifstofu Þjóðleikhússins, Lindargötu 7, fyrir 21. júní nk. Grunnskólinn í Grindavík Lausar kennarastöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður: Bekkjarkennsla í 1.-8. bekk, kennsla í kjarna- greinum í 9. bekk og myndmennt. Grindavík er blómlegt bæjarfélag með 2200 íbúa í aðeins 50 km fjar- lægð frá höfuðborginni. Nemendur eru um 390 í 1.-10. bekk. I skólan- um er unnið framsækið starf af áhugasömu starfsliði. Yfirstandandi eru miklar byggingaframkvæmdir við skólann og verður hann einset- inn að þeim loknum. Grindavíkurbær greiðir 10% álag á föst laun kennara sem búa á staðnum. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri í síma 426 8555 (vs), 426 8504 (hs) og 426 8363. Umsóknarfrestur er til 16. júní. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.