Morgunblaðið - 06.08.1999, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aukin jarðhitavirkni víða á Mýrdalsjökli gæti leitt til vatnssöfnunar
Morgunblaðið/RAX
HORFT til suðurs yfir Kötlu þar sem þrír gamlir sigkatlar sjást sem hafa dýpkað og sprungið síðustu daga.
í Kötluaskjan
iAustmannsbungaj
Katlar frá
4.-5. ágúst
Kötlukollar"
Eldri,
þekkt
jarðhita
svæði
Kötluskarð
MYRDALS
JOKULL
EYJAFJALLA-
JÖKULL
Mýrdals-
sandur
Dyrhólej
I
:
Sala Mjólkursamlags SAH samþykkt
Söluverð 103,4 milljdnir
Níu sigkatlar hafa
myndast á jöklinum
Á FULLTRÚAFUNDI Sölufélags
Austur-Húnvetninga, sem haldinn
var á Blönduósi í gærkvöldi, var
kynnt samkomulag um sölu á
Mjólkursamlagi SAH til Mjólkur-
samsölunnar í Reykjavík og aðild
austur-húnvetnskra mjólkurfram-
leiðenda að Mjólkursamsölunni.
Kom fram að kaupverðið er 103,4
milljónir kr.
Þeir sem kynntu samkomulagið
voru Ragnar Bjarnason, formaður
stjómar SAH, og kaupfélagsstjór-
inn Ólafur H. Magnússon. Fundur-
inn samþykkti tillögu stjómar með
22 atkvæðum gegn 2. í framhaldinu
verður gerður formlegur kaup-
samningur og félagsleg staða aust-
ur-húnvetnskra kúabænda útfærð.
Gert er ráð fyrir að yfirtakan eigi
sér stað 1. september næstkomandi.
Samkvæmt samkomulaginu er gert
ráð fyrir að áfram verði starfrækt
mjólkursamlag á Blönduósi á með-
an hagkvæmt þykir og forsendur
leyfa, eins og það er orðað.
NÝIR sigkatlar hafa myndast í
norðanverðum Mýrdalsjökli og seg-
ir Helgi Bjömsson jöklafræðingur
greinilegt að um aukna jarðhita-
virkni sé að ræða undir jöklinum,
bæði aukinn styrk þar sem jarðhiti
var fyrir auk þess sem virkni sé á
nýjum stöðum. Hann segir mikil-
vægt að fylgjast vel með yfirborði
jökulsins og útilokar ekki þann
möguleika að breytingar í sigi jök-
ulsins leiði til þess að vatn taki að
safnast fyrir í öskjunni sem er undir
Mýrdalsjökli. Ef slíkt gerðist staf-
aði mun meiri hætta af jöklinum en
ef bræðsluvatn rynni jafnóðum
fram.
Reynir Ragnarsson, lögreglu-
maður í Vík, hefur fylgst vel með
Mýrdalsjökli undanfamar vikur.
Hann varð var við nýjan sigketil 3.
ágúst, sem er í jaðri annars ketils
sem venjulega hefur verið óspmng-
inn. I gær tók Reynir eftir tveimur
nýjum sigkötlum við upptök Entu-
jökuls, sem fellur norðvestur úr
Mýrdalsjökli. Áður hafði Reynir
uppgötvað nýjan sigketil ofan við
Sólheimajökul, en úr honum kom
hlaup í Jökulsá á Sólheimasandi um
20. júlí.
Helgi Björnsson sagði að það
hefðu verið þekkt sex jarðhitasvæði
í Mýrdaisjökli og vart hefði orðið
við aukna jarðhitavirkni í fimm
þeirra. Auk þess hefðu myndast
fjórir nýir katlar, þar af einn á alveg
nýju svæði. Samtals væm núna níu
sigkatlar á jöklinum. Það færi því
ekkert á milli mála að talsvert mikil
bráðnun ætti sér stað undir jöklin-
um.
Hvað verður um vatnið?
Þetta vekur upp þá spumingu,
hvað verður um vatnið sem er að
bráðna? Helgi sagði að ekkert benti
til annars en vatnið rynni enn úr
kötlunum og í jökulárnar sem renna
frá honum á Mýrdalssandi, Sól-
heimasandi og um Emstmr. Úr
sumum sigkötlunum kæmi þetta í
skvettum, en úr öðmm rynni þetta
nær stöðugt.
„Þessi aukna jarðhitavirkni gæti
hins vegar farið að hafa svo mikO
áhrif á sig jökulsins og þar með
breyttust afrennslisleiðir vatnsins.
Ef það gerðist er ekki hægt að úti-
loka að vatn tæki að safnast fyrir í
botni öskjunnar í Mýrdalsjökli. Þá
skapast aukin hætta af jöklinum
því ef eldgos kemur upp í slíkum
vatnsgeymi verður flóðið sem fylg-
ir í kjölfarið mun stærra, en ef ein-
göngu félli fram vatn sem bráðnar í
sjálfu eldgosinu," sagði Helgi.
Helgi sagði að það væri athyglis-
vert að engir jarðskjálftar hefðu
fylgt myndun sigkatlanna sem
hefðu komið í ljós síðustu daga.
SennOegasta skýringin væri sú að
þessa auknu jai’ðhitavirkni mætti
relqa til innskota kviku undir jökl-
inum undanfarna mánuði. Hann
sagði að áram og áratugum saman
hefði verið reynt að fylgjast vel með
yfirborði Mýrdalsjökuls til þess að
reyna að afla upplýsinga um breyt-
ingar á yfirborði sem bentu tO auk-
ins jarðhita og breytingar á af-
rennsli vatns, einkum vísbendingar
um uppsöfnun vatns undir jöklinum
þannig að hægt væri að vara við
hættu af jöklinum.
„Aukinn jarðhiti á þessu svæði
gæti verið fyrirboði Kötlugoss. Við
höfum dæmi um tengsl mOli aukins
jarðhita og eldgoss. Árið 1960 varð
vart við aukinn jarðhita í Öskju og
árið eftir varð þar eldgos,“ sagði
Helgi.
Bent hefur verið á að áður hafi
orðið vart aukinnar jarðhitavirkni í
Mýrdalsjökli án þess að neitt frekar
gerðist. Slíkt gerðist t.d. 1955. Helgi
sagði að þá hefði orðið vart við stað-
bundna virkni á þeim slóðum þar
sem Katla gaus 1918, en nú mætti
sjá skýr merki um aukna jarðhita-
virkni í nær öllum þekktum jarð-
hitasvæðum á jöklinum og ný svæði
komið fram.
Helgi sagði að Mýrdalsjökull
væri nær allur mikið sprunginn
innan öskjunnar. Sprungurnar
væru auk þess á hreyfingu og nýj-
ar að myndast. Það væri helst á
Hábungu að sunnan og Goðabungu
að vestan sem jökullinn væri sæmi-
lega heill. Við þessar aðstæður
væri jökullinn varasamur og ekki
hægt að mæla með því að fólk ferð-
aðist um hann.
9,5%
OKKAR SÉRFRÆÐINGAR
þín ávöxtun
BUNAÐARRANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á traustí