Morgunblaðið - 06.08.1999, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Afkoma Fjárfestingarbanka atvinnulífsins batnar verulega milli ára
Hagnaður fyrir skatta
974 milljónir króna
F 0i"!
lllll
FJARFESTINGARBANKI
ATVINNULÍFSINS HF
Rekstrarreikningur 1. jan.-30. júní
Rekstrarreikningur
1999
1998
Breyting
Vaxtatekjur
Vaxtagjöld
Milljónir króna
2.636
2.112
2.025
1.467
Hreinar vaxtatekjur
Aðrar rekstrartekjur
524
1.051
558
160
-6%
557%
Hreinar rekstrartekjur
Önnur rekstrargjöld
Framlag í afskriftareikning útlána
Tekjuskattur
1.575
465
-137
239
718
277
-84
8
119%
68%
63%
2888%
Hagnaður tímabilsins
734
349
110%
Efnahagsreikningur
1999
1998
Breyting
Eianir: \
Milljónir króna
Sjóður og kröfur á lánastofnanir
Útlán
Markaðsverðbréf og eignarhl. í félögum
Aðrar eignir
Eignir samtals
30. júní
5.073
64.503
10.963
1.326
31. des.
1.522
55.341
6.028
1.276
44%
7%
37%
36%
81.865
64.167
13%
Skuiriir oa eiglO Í6:\
Skuidlr við lánastofnanir
Lántaka
Aðrar skuldir
Tekjuskattsskuldbinding
Eigið fé
Skuldir og eigið fé samtals
3.055
65.844
3.637
45
8.284
8.521
46.274
898
0
—8474
-71%
24%
1304%
5%
81.865
64.167
13%
Fjárfestingarbanki atvinnulífs-
ins (FBA) skilaði 974 milljóna
króna hagnaði fyrir skatta á fyrstu
sex mánuðum þessa árs og er það
hærri upphæð en allt árið í fyrra,
þegar heildarhagnaður nam 734
milljónum króna. Hagnaður fyrir
skatta fyrstu sex mánuði ársins
1998 nam 357 milljónum króna og
er aukningin 173% milli ára. FBA
birti kannað árshlutauppgjör fyrir
fyrstu sex mánuði ársins í gær.
Samkvæmt uppgjörinu nema
reiknaðir skattar á fyrstu sex mán-
uðum ársins 239 milljónum króna
en bankinn greiddi ekki tekjuskatt
á síðasta ári vegna uppsafnaðs
skattalegs taps frá forverum hans,
fjárfestingalánasjóðum ríkisins.
Yfirfæranlegt skattalegt tap bank-
ans mun allt nýtast á árinu. Að
teknu tilliti til reiknaðra skatta
nemur hagnaður fyrstu sex mánuði
þessa árs 734 milljónum króna,
sem er sama upphæð og nemur
heildarhagnaði fyrir allt síðasta ár.
Samkvæmt endurskoðaðri
rekstraráætlun er gert ráð fyrir að
hagnaður ársins verði 1.345 millj-
ónir fyrir skatta og 1.044 milljónir,
sé tekið tillit til reiknaðra skatta.
Meginskýringin
breytt tekjumyndun
Meginskýringu á bættri afkomu
milli ára er að finna í þeirri stefnu
sem mörkuð var af stjóm bankans
á haustmánuðum 1997 og fól í sér
breytingar á tekjumyndun bank-
ans. Samhliða því að dregið hefur
verið úr vexti útlána hefur umsýsla
með markaðsverðbréf, en einkum
þó gengishagnaður vegna viðskipta
með hlutabréf, skilað auknum tekj-
um til bankans.
Alls námu vaxtatekjur FBA
2.636 milljónum á fyrri helmingi
þessa árs. Vöxtur útlána var 7%
milli ára en tekjur vegna vaxta-
munar, þ.e. mismunar á vaxtatekj-
um og vaxtagjöldum, lækka um 33
milljónir, voru 525 milljónir fyrir
sex fyrstu mánuði þessa árs. Aftur
á móti hafa aðrar rekstrartekjur
vaxið um 891 milljón milli ára, eða
tæplega sjöfaldast, og námu 1.051
milljón króna fyrir fyrstu sex mán-
uði þessa árs.
„Um 2/3 af rekstrartekjum bank-
ans koma frá nýjum starfsþáttum,
sem voru ekki hluti af starfsemi
fjárfestingalánasjóðanna sem
bankinn óx upp af,“ segir Bjarni
Armannson, forstjóri FBA. „Til
samanburðar má nefna að á síðasta
ári voru hreinar vaxtatekjur 65%
af tekjum bankans en hafa einung-
is verið 33% á fyrri helmingi þessa
árs. Auknar tekjur af nýjum
rekstrarþáttum koma í raun til af
tvennu. í fyrsta lagi var skulda-
bréfamarkaður mjög hagstæður
fyrstu mánuði ársins og það gátum
við nýtt okkur. Og í öðru lagi hefur
bankinn verið mjög virkur á hluta-
bréfamarkaði á síðari hluta tíma-
bilsins og átt í nokkrum allstórum
viðskiptum. Sem dæmi má nefna
viðskipti með bréf í Baugi hf. og
deCode genetics Inc. en að auki er
fjöldinn allur af verkefnum sem
bankinn hefur sinnt á þessu sviði.
Markaðshlutdeild okkar á skulda-
bréfa-, hlutabréfa- og gjaldeyris-
markaði hefur verið að vaxa jafnt
og þétt. Með réttri stefnu og góðu
og samhentu starfsfólki hefur tek-
ist að ná þessum góða árangri. Ég
vil í raun þakka þennan árangur
samheldnu og hörkuduglegu
starfsfólki bankans.“
Bjarni segir að af 816 milljóna
króna gengishagnaði af fjármála-
starfsemi á fyrstu sex mánuðum
þessa árs megi rekja tæplega 700
milljónir tii veltuhlutabréfa og ríf-
lega 100 milljónir til veltuskulda-
bréfa. „Skuldabréfin eru aðallega
ríkisskuldabréf en af hagnaði
vegna hlutabréfa má rekja um
fjórðung til viðskipta með bréf
Baugs og deCode. Rétt er þó að
minna á að hagnaður af fjármála-
starfsemi er háður sveiflum á fjár-
magnsmarkaði hverju sinni og
tekjur geta fyrirvaralítið orðið
gjöld þegar illa gengur. Við gerum
þess vegna ekki ráð fyrir sams
konar tekjuaukningu á síðari hluta
ársins af þessari starfsemi."
Aukin verðbréfaútgáfa
Vöxtur efnahagsreiknings bank-
ans var um 13% á fyrri hluta ársins
og námu heildareignir FBA tæpum
82 milljörðum króna í lok júní. Eig-
ið fé bankans hefur vaxið um 5%
milli ára, er nú tæpir 9,3 milljarðar
en var tæpir 8,5 milljarðar fyrstu
sex mánuði síðasta árs. Eiginfjár-
hlutfall bankans í lok júní, mælt á
svokölluðum CAD-grunni, var
14,4% og er það hið hæsta sem
þekkist meðal íslenskra viðskipta-
banka og lánastofnana. I uppgjör-
inu kemur fram að rekstrarafkoma
bankans á fyrstu sex mánuðum
ársins jafngildi 17% arðsemi eigin
fjár á árs grundvelli.
„Það vekur athygli að þrátt fyrir
um 13% vöxt í efnahagsreikningi
hafa útlán aðeins aukist um 7%,“
segir Bjami Ármannsson. „Skýr-
ingin á vextinum liggur einkum í
aukningu á þeim markaðsverðbréf-
um sem bankinn hefur gefið út og
útlánum til annarra lánastofnana. I
kjölfarið hafa skuldir við lánastofn-
anir lækkað um rúmlega 7 millj-
arða sem er mjög ánægjuleg breyt-
ing. Við höfum í vaxandi mæli farið
út í verðbréfaútgáfu á erlendum
mörkuðum í stað þess að taka
skammtímalán í bönkum ytra,
t.a.m. hefur EMTN útgáfa bank-
ans verið skráð í kauphöllinni í
London. Samtals hefur verðbréfa-
útgáfa okkar farið úr tæpum tíu
milljörðum í rúmlega 21 milljarð á
fyrstu sex mánuðum þessa árs og
það er skýringin á þessum vexti.“
Starfsmenn njóta
betri árangurs
„Við höfum auðvitað verið að
byggja upp starfsemi bankans, ráða
starfsfólk, þróa verkferla og byggja
upp þekkingu. Uppbyggingin hefur
verið að skila sér til viðskiptavina
okkar og það færir þessi auknu
verðmæti inn í bankann. Við höfum
tekið upp árangurstengt launakerfi
sem hefur í för með sér að starfs-
menn njóta þess ef þeir skila bætt-
um árangri. Góður árangur starfs-
manna það sem af er þessu ári hef-
ur leitt til þess að við höfum gjald-
fært um 91 milljón króna vegna
þessarar tengingar. Gæði kerfisins
felast í því að því hærri sem launin
eru, þeim mun meira fær hluthaf-
inn í sinn hlut í formi hagnaðar og
betri árangurs," segir Bjarni.
Opnað var fyrir viðskipti með
bréf í FBA á Verðbréfaþingi ís-
lands að nýju í morgun og námu
viðskipti dagsins rúmlega 33,5
milljónum króna. Gengi bréfanna
hækkaði um 2,5% yfir daginn og
var 2,93 í síðustu viðskiptum á
þinginu.
ÍVottavél
Hl Electrolux
• 1400 snúninga vinda
* , • Tekur 5 kg.
• Þvottahæftii A
• Þvær á 0-95°
• Hljóðlát
• H:85 sm, B:60sm
D:58 sm
84.900 kr.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
HOOVER
ryksugur
Bjóðum nú þessar þekktu
og vönduðu ryksugur
á tilboðsverði.
Fjölmargar gerðir.
Verðfrá
ÍmÍíí®”""*'"”'
TÖFRASÓPURINN
og VAPORI gólfhreinsivélin
* gir í kaupoæti.
Gjörið svo vel, ágœtu viðskiptavinir.
PFA F
cHeimilistækjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími: 533 2222
Veffang: www.pfaff.is