Morgunblaðið - 06.08.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999
MORGUN BLAÐIÐ
Jafnréttislög brotin í V-Eyjafjallahreppi
Oddviti gagnrýn-
ir úrskurðinn
HREPPSNEFND Vestur-Eyja-
fjallahrepps hefur ekki ákveðið
hvernig hún bregst við þeirri nið-
urstöðu kærunefndar jafnréttis-
mála að brotin hafí verið jafnrétt-
islög við ráðningu sveitarstjóra í
hreppnum.
Með úrskurði kærunefndarinnar
var þess farið á leit við hrepps-
nefndina að hún fyndi viðunandi
lausn á málinu. Nefndin taldi að
ráða hefði átt konu sem var meðal
umsækjenda en ekki karl sem ráð-
inn var.
Hreppsnefnd á eftir að
fjalla um málið
Sveinbjöm Jónsson oddviti sagði
að nefndin myndi væntanlega ræða
málið á næsta fundi sínum. Hann
sagðist hissa á úrskurðinum og því
að verslunarskólapróf kærandans
og kennaramenntun og tveggja ára
háskólanám þess sem ráðinn var
væru lögð að jöfnu. Þá væri farið
rangt með staðreyndir í úrskurðin-
um, m.a. þegar staðhæft væri að
kærandinn hefði verið formaður
skólanefndar sveitarfélagsins.
12-14 mál hafa farið
til dómstóla
Stefanía Traustadóttir, félags-
fræðingur á Skrifstofu jafnréttis-
mála, sagði í samtali við Morgun-
blaðsins að þegar ársskýrslur
Jafnréttisráðs væru lesnar sæist
að frá 1991 hefði verið leitað með
12-14 mál til dómstóla í framhaldi
af kærumeðferð vegna þess að við-
unandi lausn hefði ekki fundist eft-
ir úrskurð kærunefndarinnar.
Nefndin tekur 8-12 mál til með-
ferðar á ári en Stefanía sagði að
kærunefndin hefði ekki yfirsýn yf-
ir það hverju „viðunandi lausnir"
mála fælust yfirleitt. Leit að slíkri
niðurstöðu væri milli kærandans
og hins kærða en ef ekki gengi
saman kæmi stundum til kasta
dómstóla, fyrir frumkvæði kæru-
nefndarinnar, sem þá fæli lög-
mönnum úti í bæ málareksturinn
en á sinn kostnað.
Burnham kaupir í
Sfldarvinnslunni
LÍFEYRISSJÓÐUR Austur-
lands heíúr selt verðbréfafyrir-
tækinu Bumham Intemational
hlutabréf í Síldarvinnslunni hf.
að nafnvirði 30 milljónir króna
sern er 3,41% af heildarhlutafé
Síldarvinnslunnar, á genginu 4,3.
Tilkynning um söluna barst
Verðbréfaþingi íslands í gær.
Fyrir átti Lífeyrissjóður Aust-
urlands hlutafé í Sfldarvinnsl-
unni að nafnvirði rúmlega 52
milljónir króna sem er tæplega
6% af heildarhlutafé, en eftir söl-
una á lífeyrissjóðurinn 2,53% af
hefldarhlutafé Sfldarvinnslunnar.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
REYNIR Jónsson og Sólveig Sigfúsdóttir léttklædd í blíðunni ásamt vinnumanninum Ágústi Jónssyni
við uppskerustörf.
Sæmilegar horfur með
uppskeru grænmetis
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
MJÖG heitir dagar hafa verið hér í
uppsveitum á Suðurlandi að und-
anfömu sem kemur sér vel fyrir
hvers konar jarðargróða. Frétta-
ritari fór á stúfana og heimsótti
garðyrkjubændur að störfum en
þeir fagna hitanum mjög.
Uppskera grænmetis hér í sveit-
inni er mun seinna á ferðinni en í
fyrra, segir Reynir Jónsson á
Reykási sem er einn garðyrkju-
bænda sem stunda útirækt á
Flúðasvæðinu. Uppskeran er um
þremur vikum seinna á ferðinni en
í fyrra en þá var óvenju hagstæð
sprettutíð. Kuldarnir og bleytan í
júnímánuði hafa haft slæm áhrif
og tafið fyrir, sagði Reynir.
Hann er farinn að senda á mark-
að fyrir nokkru hvítkál, spergilkál,
blómkál og gulrófur og svo er um
fleiri garðyrkjubændur, auk kína-
káls, en uppskera á því hófst fyrir
nokkrum vikum. Þá eru komnar á
markaðinn kartöflur frá nokkrum
bændum og telja þeir að uppskera
geti orðið sæmfleg ef góð tíð helst
áfram. I næstu viku verður farið
að taka upp gulrætur úr heitum
görðum. Eftir þessa heitu daga
sem verið hafa að undanförnu seg-
ir Reynir að spretta grænmetis
hafi tekið feikna vel við sér. „Það
er nægur raki í jörðinni og það
rýkur allur gróður af stað. Það
liggur við að maður heyri græn-
metið vaxa og vonandi er að þessir
hitar haldist áfram sem lengst,“
segir Reynir.
FIB-trygg-
ingar hafa
hækkað
um 21%
FÍB-tryggingar hafa hækkað ið-
gjöld bifreiðatrygginga um 21% að
jafnaði í kjölfar breytinga á skaða-
bótalögum í vor. Stóru tryggingafé-
lögin þrjú hækkuðu iðgjöld sín um
35-40% að jafnaði 1. júní sl. FÍB-
tryggingar hafa enn ekki tekið
ákvörðun um hvort iðgjöldin verði
hækkuð meira.
Halldór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðlegrar miðlun-
ar, sem sér um FIB-tryggingar fyr-
ir Félag íslenskra bifreiðaeigenda,
segir að iðgjöldin hafi hækkað um
10% 1. júní sl. og aftur um 10% 15.
júlí sl. „Ætli við séum ekki ennþá
um 15-20% lægri en aðrir í bfla-
tryggingum," segir Halldór.
Hann segir að ákvörðun um það
hvort farið verði út í frekari hækk-
anir verði tekin síðar. „Við förum
aðra leið að þessu en hinir. Það veit
enginn hvað þarf að hækka mikið
vegna skaðabótalaganna. Hinir
hækkuðu strax um hátt í 40%, en
við ætlum að sjá hvemig rejmslan
verður af þeim tjónum sem koma
inn eftir breytinguna, og haga segl-
um eftir því.“
---------------
Olíumengun
á Seyðisfirði
VART hefur orðið við olíubrák í
sjónum á Seyðisfirði.
Grunur leikur á að mengunin
kunni að stafa frá E1 Grfllo sem
sökkt var í firðinum á stríðsárunum.
Að sögn lögreglu staðarins verður
málið kannað nánar í dag.
Samartburður á iðgjöldum ábyrgðartryggingar algengs fólksbíls
Forsendun Toyota Corolla 1997 með algengustu vélarstærð (milliflokkur). Ökumaður 25 ára og eldri. Innifalið er ábyrgðartrygging,
slysatrygging ökumanns og framrúðutrygging. Tryggingataki hefur ekki önnur viðskipti við tryggingafélagið. Tryggingamiðstöðin,
VIS og Sjóvá-Almennar bjóða þeim viðskiptavinum afslátt sem einnig hafa aðrar tryggingar hjá félögunum.
Samanburður á iðgjöldum ábyrgðartryggingar algengs fólksbíls
Forsendur: Toyota Corolla 1997 með algengustu vélarstærð (milliflokkur). Ökumaður 25 ára og eldri. Innifalið er ábyrgðartrygging,
slvsatrygging ökumanns og framrúðutrygging. Tryggingataki hefur ekki önnur viðskipti við tryggingafélagið. Tryggingamiðstöðin,
VÍS og Sjóvá-Almennar bjóða þeim viðskiptavinum afslátt sem einnig hafa aðrar tryggingar hjá félögunum.
Reykjavík
lægsta iðgjald
(70-75% bónus)
Egilsstaðir
lægsta iðgjald
rtBiXg) # 91
(70-75% bónus)
o I.IIO
19.140
irtBÍCg) # ®
Reykjavík
30% bónus
100.524
Egilsstaðir
30% bónus
FfB(g) # 9!
Alþjóðlegur
eðlisfræðiskóli
á Akureyri
ÞRIÐJÚDAGINN 10. ágúst verð-
ur settur á Akureyri alþjóðlegur
eðlisfræðiskóli þar sem margir
þekktir fræðimenn á sviðinu
munu halda fyrirlestra. Tilgang-
ur skólans er að kynna nýjustu
strauma í eðlisfræði en yfirskrift
hans er: Quantum Geometry, á
ensku, eða Skammtafræðileg
rúmfræði.
Skólinn er einkum ætlaður
eðlisfræðingum sem komnir eru
vel á veg með doktorsverkefni
en meðal þeirra sem sækja hann
eru einnig doktorar og einstaka
starfandi prófessorar. Fyrir-
lestrar eru þó opnir öllum þeim
sem áhuga hafa á efninu. Skóla-
hald verður í Menntaskólanum
og fyrirlestrar haldnir á sal.
Að sögn Lárusar Thorlacius,
prófessors í eðlisfræði við Há-
skóla íslands, sem ásamt Þórði
Jónssyni, H.Í., Paolo di Vecchia
frá NORDITA og Andrew
Stromingar frá Harvard-há-
skóla, skipuleggur skólann, hafa
um 60 þátttakendur skráð sig í
hann og þar af fjórir íslending-
ar.
Meðal fyrirlesara eru Jan Arn-
bjorn frá Kaupmannahafnarhá-
skóla, Paolo di Vecchia frá
NORDITA, Þór Jónsson H.Í., J.
Jurkewicz frá háskólanum í Ja-
gellonian, J. Louis, háskólanum í
Halle, Yuri Makeenko frá
Moskvu, L. Susskind frá Stan-
ford-háskóla, W. Taylor frá MIT,
Lárus Thorlacius H.í. og H.
Verlinde, Princeton-háskóla.
Þeir munu m.a. ljalla um
strengjafræði (og ofur-strengja-
fræði), fylkjafræði (himnufræði),
svartar holur, p-fleti, kvarða-
kenningu, þyngdaraflsskammta-
fræði; slembifleti og tvíeðli.