Morgunblaðið - 06.08.1999, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 17
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristján
ARI Teitsson, forseti Norrænu bændasamtakanna, afhendir Páli
Lýðssyni menningarverðlaun samtakanna.
Páll Lýðsson hlaut Menn-
ingarverðlaun Norrænu
bændasamtakanna
ME NNINGARVE RÐLAUN Nor-
rænu bændasamtakanna voru af-
hent á Akureyri á miðvikudag í
tengslum við aðalfund samtakanna.
Verðlaunin, sem eru peningaverð-
laun, hlaut að þessu sinni Páll Lýðs-
son bóndi og sagnfræðingur i Litlu-
Sandvík í Flóa fyrir margháttuð fé-
lagsmálastörf og störf að menning-
armálum. I fréttatilkynningu frá að-
alfundi bændasamtakanna segir að
Páll Lýðsson hafí í störfum sínum
sem bóndi, félagsmálamaður, kenn-
ari, fræðimaður og sagnaritari sam-
einað það sem um aldir var aðals-
merki margra íslenskra bænda og
haldið því á lofti.
Páll Lýðsson hefur stundað fjöl-
þætt ritstörf sem tengjast sögu
byggðarlags hans. Má þar meðal
annars nefna sögu Búnaðarsam-
bands Suðurlands. Hann hefur
einnig komið að varðveislu þjóðlegra
og sögulegra verðmæta í héraðinu,
en hann var fyrsti stjórnarformaður
Byggða- og listasafns Árnessýslu.
Páll hefur einnig kennt við skóla á
Selfossi, bæði íslensku og sögu.
Einnig átti hann sæti í skólanefnd-
um Héraðsskólans á Laugarvatni og
Fjölbrautaskóla Suðurlands og sat í
stjórn Tónlistarskóla Árnessýslu.
Páll hefur gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum en hann var alllengi oddviti
og hreppstjóri í sveit sinni. Hann
hefur einnig verið formaður Slátur-
félags Suðurlands um langt skeið.
Menningarverðlaun Norrænu
bændasamtakanna hafa verið veitt
frá árinu 1945. Verðlaunahafar eru
valdir frá því landi þar sem aðal-
fundurinn er haldinn og skal verð-
launahafinn hafa með menningarvið-
leitni sinni reynst landbúnaði vel,
segir í fréttatilkynningu frá Nor-
rænu bændasamtökunum.
kmark
Leðursófasett,
þriggja sæta sófi
og tveir stólar
Vönduð leðursófasett frá Ítalíu,
fást í Ijósu og svörtu.
Kringlan, Smáratorg og Sk
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
^^^Staeisis^issmssmif^ ■