Morgunblaðið - 06.08.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 29
LISTIR
Eins og poppstjömur
- án peninganna
s
I tengslum við Listahátíð og Reykjavík
menningarborg 2000 setja fjórir ungir
Bretar upp sýningu í Nýlistasafninu. Þau
Sarah Lucas, Gillian Wearing, Angus
Fairhurst og Michael Landy eru í fram-
varðasveit breskra listamanna sem hafa
vakið mikla athygli á síðasta áratug. Þau
komu hingað til lands til að kynna sér
aðstæður og Einar Falur Ingólfsson
drakk þá með þeim morgunkaffí.
Morgunblaðið/Einar Falur
BRETARNIR sem sýna í Nýlistasafninu í maí á næsta ári: Gillian
Wearing, Michael Landy, Sarah Lucas og Angus Fairhurst.
í BRETLANDI hefur á síðustu
árum mikið verið rætt um upp-
reisn nýrrar ferskrai’ myndlistar.
Sensation-sýningin sem vakti gíf-
urlega athygli árið 1997 er nú á
ferðalagi um heiminn og þar er
kastljósum beint að verkum úr
Saatchi-safninu eftir valinn hóp
ungra listamanna. Sumir úr þess-
um hópi eru orðnar hálfgerðar
poppstjörnur og margt annað
hefur orðið til að beina athyglinni
að þeim, eins og deilur um Turn-
er-verðlaunin sem veitt eru ungu
listafólki. Síðan virðist einfald-
lega vera mikill áhugi á því hvað
þetta fólk er að gera í listinni.
Þrjú fjórmenninganna sem
sýna í Nýlistasafninu, Sarah,
Gillian og Michael, eiga verk á
Sensation-sýningunni. Gillian
hlaut að auki hin virtu Turner-
verðlaun árið 1997. Þafa öll verið
ákaflega virk við sýningahald síð-
asta áratuginn, sýnt víða í heima-
landinu, víðsvegar um Evrópu og
í Bandaríkjunum.
„Nýlistasafnið er fínt,“ sagði
Sarah; „vinalegt.“
„Já, safnið virkar vel á mig,“
bætir Angus við. „Og við höfum
skemmt okkur vel héma.“
Gillian segir að þau hafi endi-
lega vilja koma til að skoða rýmið
til að geta betur unnið út frá því
og þeim lítist öllum vel á það sem
þau hafi séð. „Það er skrýtið þeg-
ar maður þekkir ekki rýmið sem
verkin eiga að fai-a inní, hrein-
lega óþægilegt.“
„Nú komum við örugglega aft-
ur á næsta ári“, segir Sarah.
Sýning fjórmenninganna er
miðsýningin í röð þriggja sýninga
í Nýlistasafninu á menningarár-
inu og verður opnuð 21. maí. Þau
segjast öll vinna mikið og gera ný
verk fyrir sýningar, en eldri verk
séu einnig á ferðinni og sjáist hér
og þar. „Maður getur ekki gert
ný verk íýrir allar sýningar sem
manni er boðið að taka þátt í“,
segir Gillian, „en íýrir þessa sýn-
ingu hér ætlum við að gera okkar
besta.“
Þau segjast vilja gera og sýna
hér verk sem tali við hvert annað,
að innan safnsins verði samræða
á milli verkanna.
„Við munum reyna að halda
pressu á hvert annað fyrir þessa
sýningu, reyna að vanda eins vel
til hennar og við getum,“ segir
Michael.
„Við höfum ákveðið að skrifa
um verk hvers annars í sýningar-
skrána,“ segir Angus. „Eða ég
ákvað það og mér heyrist að þau
hin hafí samþykkt hugmyndina!
En við vitum ekki hver dregur
stysta stráið og þarf að skrifa um
leiðinlegustu verkin," segir hann
og hlær.
Þegar þau eru spurð um lista-
lífið í Lundúnaborg um þessar
mundir svara þau öll á einn veg;
það sé mjög líflegt.
„Það er fínt að vera listamaður
í London um þessar mundir,"
segir Sarah. „Það er mikið af
sýningum og fullt af fólki að
skapa áhugaverða myndlist,“
bæta hin við og tala hvert ofan í
annað. „Tate er til dæmis að
opna samtímasafn á næsta ári og
það er búin að vera spenna vegna
þess, verk hafa verið keypt af
ungum listamönnum og svo hafa
þeir bara átt helling af verkum
sem lítið hafa sést en fá nú að
njóta sín. Þá hefur miklu meira
af peningum verið að koma inn í
samtímalistina á allra síðustu ár-
um en í langan tíma þar á undan.
Já, það er býsna líflegt í London
núna, margir góðir listamann á
ferðinni, fólk sem kemur alls
staðar að úr landinu."
„Sýningar eru aftur vinsælar,"
segir Michael. „Það er hluti af
lífsmynstri margra í dag að fara
á sýningar og iýlgjast með því
hvað samtímalistamenn eru að
gera. Áhuginn er býsna mikill."
„Já, maður finnur fyrir við-
brögðum og athygli í dag,“ segir
Sarah.
Gillian segir fjölmiðla fylgjast
vel með því sem sé að gerast.
„Það er mikið fjallað um listir og
ánægjulegt að sjá hvað það hefur
aukist á síðustu ámm; og hvað
efnistökin era orðin ferskari."
„Við fáum meiri umfjöllun en
flestir aðrir hópar í samgfélag-
inu,“ segir Sarah; „maður er
stundum spurður hver sé blaða-
fulltrúinn manns. En það er svo
mikið af þessum miðlum, þeir
verða að hafa eitthvert efni að
bjóða upp á.“
Haft er á orði að þau, þessir
ungu bresku listamenn, séu eins
og poppstjörnur.
„Já, en án peninganna," svarar
Sarah, snögg uppá lagið. „Og án
lífvarðanna," bætir Gillian við.
Þau tala um að þótt London sé
miðstöð hræringa í listinni séu
einnig áhugaverðir hlutir að ger-
ast í öðram borgum Englands.
„Ég held að í þessari þróun skipti
miklu máli að miðborgirnar era
að ganga í endurnýjun lífdaga,"
segir Sarah. „Fólk er að flytja úr
úthverfunum og aftur inn í gömlu
borgarhlutana og við það mynd-
ast heilmikil jákvæð spenna og
gerjun.“
Þau segja að viðskipti með
listaverk hafi breyst mikið á síð-
ustu árum. Ungt fólk hafi kominn
inn á markaðinn og farið að
kaupa myndlist og þá gjarnan
valið verk mjög persónulega,
ekki bara til að fjárfesta. Stóru
kaupendurnir komi samt ennþá
frá löndum eins og Bandaríkjun-
um og Þýskalandi.
Þá segja þau að þrátt fyrir að
Sensation-sýningin hafi verið um-
deild og þau hafi sitthvað við
samsetningu hennar og eiganda
verkanna að athuga, þá hafi hún
verið ákaflega góð auglýsing fyr-
ir breska samtímamyndlist og
njóti þau öll góðs af því.
Talið berst aftur að Listahátíð
í Reykjavík og þau vilja koma á
framfæri að þau hlakki til að
sýna hér, í samstarfi við sýning-
arstjórann Pétur Arason. „Það er
svo óskaplega mikilvægt fyrir
okkur myndlistarmenn að sýna
verkin okkar,“ segir Angus. „List
snýst nefnilega um samskipti, að
koma hugmyndum okkar út á
meðal fólksins. Dags daglega er-
um við listamennirnir ekkert
annað en einmana fólk sem situr
hvert í sínu homi og er eitthvað
að krabba."
EIN mynda Guðnýjar Svövu
Strandberg í Gelleríi Stöðlakoti.
Guðný Svava
sýnir í
Stöðlakoti
GUÐNÝ Svava Strandberg opnar
sýningu á blek- og einþrykksmynd-
um í Galleríi Stöðlakoti við Bók-
hlöðustíg laugai-daginn 7. ágúst.
Guðný Svava stundaði nám við
Myndlistarskóla Reykjavíkur 1957-
59, MHÍ 1975-77 og aftur 1988-90.
Þetta er önnur einkasýning Guð-
nýjar Svövu en hún hefur tekið þátt
í nokkrum samsýningum.
Sýningin stendur til 22. ágúst og
er opin daglega kl. 14-18.
-------------------
Tónleikar í
Stykkishólms-
kirkju falla niður
AF ÓVIÐRÁÐANLEGUM orsök-
um falla niður tónleikar Jóns Rún-
ars Arasonar tenórsöngvara og
ÞórhUdar Björnsdóttur píanóleik-
ara í sumartónleikaröð Stykkis-
hólmskirkju.. Tónleikarnir áttu að
vera á sunnudag. Fyrirhugað er að
þau haldi tónleika með haustinu.
----------♦-♦-♦---
Sýningu lýkur
í Gallerí í
Ingólfsstræti 8
SÝNINGU Svövu Björnsdóttur,
Svövu Þórhallsdóttur og Rúnu Þor-
kelsdóttur lýkur nú á sunnudag.
Galleríið hefur verið meira og
minna lokað á meðan á sýningunni
hefur staðið vegna breytinga á
húnsæðinu, en opið verður föstudag
til sunnudags frá kl. 14-18.
------♦-*-*.---
Olíumálverk í
Galleríi Geysi
ÞORBJÖRG Óskarsdóttir opnar
einkasýningu á olíumálverkum á
morgun, laugardag, kl. 15. Þorbjörg
hefur haldið nokkrar sýningar í
Keflavík en þetta er fyrsta sýningin
hennar í höfuðborginni.
Sýningin verður opin frá 7. til 22.
ágúst frá kl. 8-18 virka daga.
'-----♦♦♦------
Sýningu í Perl-
unni framlengt
SÝNINGU Huldu Halldórs í and-
dyri Perlunnar verður framlengd til
22. ágúst.
Hulda Halldórs sýnir þar akryl-
myndir og nefnist sýningin Strend-
ur Islands.
20-70%
afsláttur
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeiíunni 19 - S. 568 1717 —
Russell Athletic bómull/fleece - Better Bodies - Columbia fatnaður - Tyr sundfatnaður - Fæðubótarefni o.m.fl.