Morgunblaðið - 06.08.1999, Síða 43

Morgunblaðið - 06.08.1999, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 4^* um að aldri var það fátæktin, alls- leysið og hörð baráttan við að hafa í sig og á. Slík kjör settu á Helga mark til lífstíðar, hann varð sann- færður sósíalisti, jafnaðarmaður í þess orðs bestu merkingu. Sama má segja um Jóhönnu eftir að hún flutti til Húsavíkur. Þótt þau störf- uðu mikið að félagsmálum tengd- um lífsviðhorfum þeirra, hann í Verkalýðsfélagi Húsavíkur, sem formaður til fjölda ára, og Jóhanna í bæjarstjórn Húsavíkur og ýmsum nefndum, þá var birtingarform þessarar jafnaðarhugsunar e.t.v. ekki svo glöggt þar heldur miklu fremur í því sem ekki fór hátt og lítið bar á, þ.e. hvernig þau reyndu að greiða götu þeirra sem minna máttu sín og stóðu höllum fæti í grimmu, íslensku neyslusamfélagi. Fyrir utan fjölskylduna og vel- ferð hennar var það þrennt sem einkum átti hug Helga síðustu ár- in; íþróttafélagið Völsungur, lax- veiðin í Laxá og annar veiðiskapur, en hálfa hugsun hans átti samt uppbygging Safnahússins á Húsa- vík og einkum þó væntanlegs sjó- minjasafns. Á þeim vettvangi hafði hann starfað meira og minna síð- ustu 20 ár og áhugi hans aldrei ver- ið meiri en síðustu árin er nálgaðist að sjóminjasafnið yrði að veruleika. Hann var í byggingarnefnd síðustu 10 ár og jafnframt vakinn og sofinn í því að safna munum til safnsins, upplýsingum, taka viðtöl við sjó- menn svo upplýsingar glötuðust ekki o.fl. í þeim dúr. Hann gantað- ist oft með það að drífa yrði í þess- ari byggingu svo honum auðnaðist að sjá þetta allt saman vera orðið að veruleika áður en hann burtkall- aðist. En skjótt skipast um margt, m.a. vistaskipti við landamæri lífs og dauða. Þessi stórkarlalegi, margsamsetti frændi minn, sem þó var svo næmur og viðkvæmur, kemur ekki framar til mín í Safna- húsið á Húsavík. Ég mun ekki framar hlusta á eggjunarorð hans eða yfirlýsingar um hvað þurfi að gera og í hvað þurfi að ráðast. Fyr- ir samvinnuna á þessum vettvangi er mér ijúft að þakka. Helgi leit á það sem verkefni sitt að halda mér gangandi þegar tómlæti um mál- efni Safnahússins var á stundum að draga úr mér alla starfslöngun. Hans verður nánar minnst í næsta Safna, riti Safnahússins á Húsavík. Jóhönnu, Aðalsteini, Kristjönu, Bjarna Hafþóri, Helga, Ingibjörgu og aðstandendum öðrum sendi ég samúðarkveðjur. Guðni Halldórsson. Þegar maðurinn með Ijáinn heggur kemur það alltaf jafn mikið á óvart þótt þetta sé eitt af lögmál- unum sem enginn fær breytt. Þegar mér var tilkynnt andlát Helga Bjarnasonar, mágs míns, varð mér mikið um því hann og systir mín voru búin að vera í heimsókn fyrir skömmu og þá var hann hress og glaður og lék á als oddi eins og hann var vanur. Það fyrsta sem kom upp í hug- ann var: „Helgi dáinn, maður á besta aldri.“ Ég fór að rifja upp hve gamall hann hefði verið og átt- aði mig á því að hann hafði verið kominn á áttræðisaldur. Ég hafði ekki leitt hugann að því að hann væri orðinn þetta gamall. Sumir hafa þannig útgeislun að þeir eru alltaf á besta aldri, hvar sem þeir eru staddir í lífshlaupinu. Ég átti því láni að fagna að kynnast Helga vel. Við virtumst alltaf ná vel saman, enda held ég að við höfum litið svipuðum augum á lífið og samfélagið, en hann hafði þann sérstaka eiginleika að sjá alltaf skemmtilegu hliðarnar á til- verunni eins og hún kom fyrir hveiju sinni. Ég minnist sérstaklega þess tíma þegar hann var með útgerð sína á Suðurnesjum, en þá vann ég hjá honum nokkrar vertíðir. Það var á þeim tíma þegar menn unnu meðan eitthvað var að gera, en hvfldu sig þegar tími gafst til. Þetta voru strangar tarnir og oft mikið að gera ef vel fiskaðist. Þá var staðið við þar til gert hafði ver- ið að öllum afla og hver einasti fisk- ur saltaður og kominn í stæðu. Ég minnist þess þegar von var á bátnum með mikinn fisk að það gekk oft mikið á að hafa allt klárt til að taka á móti aflanum og þá þurfti helst að gera allt í einu. Þá gekk Helgi Bjarnason um og hug- aði vandlega að því að allt væri í lagi og púaði ein þrjú fjögur vind- stig og við hinir smituðumst af þessum krafti og áhuga og allir unnu saman sem einn maður. Svo var tekið til við vinnuna og enginn sló slöku við. Allir unnu af kappi. Það var einn sérstakur eig- inleiki sem íylgdi Helga Bjama- syni; hjá honum unnu allir vel. Hann hikaði ekki við að taka menn í vinnu þótt þau ummæli fylgdu þeim að þeir væru óduglegir og ekki mikils virði á vinnumarkaði. Það varð yfirleitt þannig að þessir menn unnu ekki verr en aðrir þeg- ar þeir voru komnir undir hans stjórn, eða öllu heldur í hans fé- lagsskap, því hann var félagi allra sinna starfsmanna og vann ætíð við hlið þeirra án nokkurra verka- skiptinga. Þegar tömin var orðin löng og menn vom farnir að þreytast kom það oft fyrir að hann tók aðeins hlé og kom með einhverjar skemmti- legar athugasemdir, eina litla sögu eða eitthvað sem kom mönnum til að hlæja og 50% af þreytunni hurfu eins og dögg fyrir sólu. Allir íyllt- ust af nýjum krafti og góðu skapi og allt gekk betur. Þegar komið var heim í verbúð eftir svona tarnir greip hann oft gítarinn og söng með sinni sér- stöku mjúku bassarödd nokkur sjómannalög, við tókum undir og þreytan leið hægt og hægt úr lík- amanum og tónarnir byggðu okkur upp fyrir átök næsta dags. En nú er hann farinn frá okkur og ég sakna hans og þeirrar smit- andi kímnigáfu sem hann átti svo mikið af og gat á augabragði hrifið hvern sem var upp úr öldudal leið- indanna og fyllt umhverfið af gleði og bjartsýni. Ég kveð Helga Bjarnason og sendi systur minni og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Hákon Aðalsteinsson, Húsum. Ég kveð nú í hinsta sinn Helga Bjarnason, fyrrverandi tengdaföð- ur minn, sem er látinn á 74. ald- ursári. Það leita á hugann minning- ar um margar góðar stundir sem við áttum saman. Mér er það ógleymanlegt að hafa fengið tæki- færi til að vera með Helga við veið- ar á bökkum Laxár í Aðaldal. Þar kenndi Helgi mér að veiða en hann var mikill og kunnur laxveiðimaður og var eftirsóttur leiðsögumaður við ána. Mér er minnisstætt hvað Helgi var í rauninni mikill veiði- maður og ég dáðist að því hvað hann þekkti ána vel, vissi hvar best væri að renna agninu og hvar lax- inn lægi. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hvað Helgi bar mikla virðingu fyrir náttúrunni. Að öðrum ólöstuðum tel ég að Helgi hafi verið einhver mesti veiðimaður sem stundað hefur veiðar við Laxá þegar hann var upp á sitt besta. Þó að heilsan væri farin að gefa sig síðustu árin var áhuginn enn mik- ill. Ég var alltaf velkominn í Grafar- bakka til Helga og Jóhönnu og þar varð engin breyting á þó leiðir mín- ar og dóttur þeirra hafi skilið. Það var mikið lán og heiður að hafa fengið að kynnast og verða sam- ferða Helga Bjarnasyni. Hann var réttsýnn og drenglyndur maður, ávallt glaðlyndur og skemmtilegur í kynnum og ég mun sakna hans sterku persónutöfra. Ég sendi Jóhönnu, börnum þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Páll Friðriksson. • Fleiri mianingargreinar um Helga Bjarnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. EMELIA MARGRET GUÐLA UGSDÓTTIR + Emelía Margrét Guðlaugsdóttir fæddist á Blönduósi 11. september 1911. Hún lést 29. júlí síð- astliðinn. Foreldrar Emelíu Margrétar voru Rakel Þorleif Bessadóttir, f. 18.9. 1880, d. 30.10. 1967, að Ökrum í Fljótum og Guðlaugur Sveinsson, f. 27.2. 1891, d. 13.10. 1977, á Ægisíðu á Vatns- nesi. Systkini Emel- íu Margrétar: Þor- lákur Húnfjörð, f. 26.8. 1912; Jóhanna Guðrún, f. 30.12. 1913, d. 13.3. 1998; Vésteinn Bessi Húnfjörð, f. 21.4. 1915; Kári HúnQörð, f. 3.7. 1918, d. 29.10. 1952; Einar Þorgeir Húnfjörð, f. 30.3. 1920; Bergþóra Heiðrún, f. 5.11. 1922. Fyrstu mánuði ævi sinnar dvaldi Emelía Margrét á Ytri- Ey en fluttist ásamt foreldrum sínum að Þverá í Norðurárdal, Austur-Húnavatnssýslu. Hún í foreldrahúsum þar til á er til var unglingsárum hún fór í vist læknishjónanna Guðrúnar og Krist- jáns Arinbjarnar. Emelía Margrét var einn vetur á Hólum í Hjaltadal er hún var 18 ára. Að því loknu fór hún aftur í vist til læknishjón- anna, með þeim dvaldi hún m.a. eitt ár í Kaupmanna- höfn. Emelía Mar- grét vann síðar á saumastofu þar til hún, 1954, réðst sem ráðskona til Snorra Hjartarsonar skálds. Hjá honum starfaði hún til fjöfda ára eða þar til Snorri lést. Emelfa Margrét bjó í Furu- gerði síðustu árin en flutti að Elli-og hjúkrunarheimilinu Grund í febrúar sl. Utför Emelíu Margrétar fer fram frá Fossvogskirlqu í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Jarðsett verður í Höskuldsstaðakirkjugarði, Austur-Húnavatnssýslu. Látin er á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund, föðursystir mín, Emelía Margrét Guðlaugsdóttir, Magga frænka, eins og hún var alltaf kölluð innan ættarinnar. Stærsti hlekkurinn í stórfjölskyld- unni er brostinn. Magga frænka var sú sem allir áttu, allir báru um- hyggju fyrir og allir voru í sam- bandi við. Hjá Möggu frænku feng- um við fréttir af stórfjölskyldunni. Hvemig unga fólkinu vegnaði, stækkun fjölskyldunnar, heilsu ætt- mennanna, erfiðleika og gleði. Magga hélt utan um okkur öll. Þetta var stórt hlutverk sem henni var kært og fór með af nærgætni, trúnaði og hlýju. Magga frænka var mikill fagur- keri og hafði ótrúlega innsýn í frumskóg mynd- og ritlista. Á góð- um stundum hafði hún yfir fyrir mig mörg kvæðin og þulumar og eyddum við oft drjúgum stundum í að öðlast skilning á dýrt kveðnum vísum. Þær vora ófáar ferðirnar okkar á myndlistasýningar sem í boði hafa verið í gegnum árin. Þetta vora ómetanlegar stundir og okkur báðum jafndýrmætar og gáfu tilefni til margra súkkulaðidropa og djúpra samræðna. Állir sem umgengust Möggu minnast skellihlátursins sem gat komið af minnsta tilefni, og við lærðum líka fljótlega að minnast ekki á pólitík, því þá hvessti all svakalega í minni og ef minnst var á heilbrigðismál og -menn, varð fyrst svart. Þá gat tekið drjúga stund að fá Möggu til að taka gleði sína á ný. Magga átti erfitt á lokasprettin- um en nú er þessi litla, teinrétta og kvika frænka mín búin að yfirgefa svæðið. Eftir sitja ljúfsárar minn- ingar. Ég er þakklát fyrir samvera- stundir okkar og bið Guð að blessa þessa einstöku frænku. Auður Bessadóttir. Nú er komið að kveðjustund Möggu frænku. Heldur vora síðustu ár henni erfið þegar hún gat ekki farið ein sinna ferða án þess að vera upp á aðra komin. Þessi litla kvika kona sem alltaf var að flýta sér. En ef hún komst á listsýningar gat mín eytt tímanum þar, enda var hún mikill listunnandi, sérstaklega er varðaði gömlu meistarana. Létti Auður systir henni lífið síðari ár með því að fara með hana á þær sýningar er hún hafði löngun til. Eins vora ljóð henni hugleikin, enda var ekki langt að sækja þann and- ans blæ, þar sem hún var ráðskona hjá Snorra Hjartarsyni skáldi til fjölda ára, eða þar til hann lést. Mörg eru minningarbrotin sem tengjast Möggu föðursystur. Ég kom oft í heimsókn á Eiríksgötu þar sem Magga réð ríkjum, og þá var dengt í mann súkkulaði og kökum, og alla tíð síðan hefur súkkulaði- drykkurinn verið kenndur við Möggu frænku. Og jafnvel eftir að heilsan fór að bila og hún komin í Furagerði var búið til súkkulaði. Hafðu þökk fyrir allt, Magga mín. Hvíl þú í friði. Far þú í friði, jt friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Rakel Bessadóttir. Ég fékk þær fréttir fimmtudags- morguninn 29. júlí að Magga frænka væri dáin. Það kom mér í rauninni ekkert á óvart þvi þú varst orðin gömul og þreytt og eflaust hvíldinni fegin. Ég man alltaf eftir þér, Magga mín, sem lítilli, smá hjólbeinóttri og gjafmildri konu sem mér þótti ein- staklega gaman að heimsækja sem krakki. Ég man þegar ég píndi ofan í mig blönduðu ávextina bara af því að Magga frænka var að gefa mér þá og allar heimatilbúnu jólagjafirn- ar sem þú gerðir handa mér þrátt fyrir háan aldur, en þetta ásamt öðram minningum þakka ég fyrir í dag því minningar eru eitt af því dýrmætasta sem við eigum í lífinu, þær getur enginn tekið frá okkur! Ég þakka fyrir stundimar sem ég átti með þér, Magga, en þakklátust er ég þó fyrir það að hafa getað kysst þig á ennið og kvatt þig í síéW*>- asta sinn. Elsku Magga, vonandi hefur þú það sem allra best á nýju tilvera- stigi og megi Guð geyma þig og varðveita. Hvfl í friði. Birna. + Okkar ástkæri KRISTINN SIGFÚS KRISTJÁNSSON, Lyngbrekku 13, Kópavogi, varð bráðkvaddur í Thailandi laugardaginn 24. júlí. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 10. ágúst kl. 15.00. Margrét Örnólfsdóttir, Kristján Eyjólfsson, Örnólfur Kristjánsson, Eyjólfur Kristjánsson, Árni Kjalar Kristjánsson, Sigurður Ármann Halldórsson, Anna Ragnhildur Halldórsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Árni Kjartansson, Ásdís Halldórsdóttir, Helga Steinunn Torfadóttir, Guðrún Eysteinsdóttir, Erla Kristófersdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Hlíf Árnadóttir, Kristján Torfi Örnólfsson, Eysteinn Eyjólfsson, Guðný Margrét Eyjólfsdóttir. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA LÁRUSDÓTTIR, Egllsbraut, Þorlákshöfn, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 4. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Lárus Sæmundsson, Birgir Sæmundsson, Grétar Sæmundsson, Brynjar Sæmundsson, Hildur Sæmundsdóttir, Ómar Sæmundsson, Erling Sæmundsson, Ellen Jónasdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Þórður Sigurvinsson, Anna Fía Ólafsdóttir, Ragnar Karlsson, börn, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir mín, BJÖRG ANDREA MAGNÚSDÓTTIR, áður til heimilis á Gerði, Fáskrúðsfirði, verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 7. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Róbert Dan Jensson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.