Morgunblaðið - 06.08.1999, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 51#
FRÉTTIR
URKÍ-R tekur á móti ung-
mennum frá Portúgal
UM þessar mundir dvelja hér á
landi 15 ungmenni frá Portúgal í
boði ungmennadeildar Reykjavík-
urdeildar Rauða kross íslands,
URKÍ-R. Ungmennin, sem eru á
aldrinum 17-22 ára, gista á heimil-
um íslenskra URKÍ-R-félaga sem
heimsóttu Potúgalana til heimabæj-
ar þeirra, Carcavelos, fyrir ári. Eru
ungmennin virk í sjálfboðastarfi í
sínu heimalandi.
íslensku krakkarnir kynntust í
fyrra sjálfboðastarfi sem unnið er í
tengslum við félagsmiðstöð smá-
bæjarins Carcavelos skammt frá
Lissabon. í félagsmiðstöðinni vinna
ungmennin við félagsstarf aldraðra,
úthlutun matar til fátækra og að-
stoða eiturlyfjaneytendur svo fátt
eitt sé nefnt.
títsölur í há-
marki á löngum
laugardegi
Á LÖNGUM laugardegi 7. ágúst
verður ýmislegt spennandi að ger-
ast í bænum. Utsölustemmning er á
Laugaveginum og ýmis tilboð í
gangi. í góða veðrinu undanfarið
hafa margir kaupmenn flutt slár
með fatnaði út á gangstétt.
Klukkan 13 á laugardag mun
Skólahljómsveit Kópavogs leggja af
stað frá Hlemmi niður Laugaveg-
inn. í sveitinni eru um 40 böm og
ungmenni. Harmoníkuleikari verð-
ur á sveimi um Laugaveginn og
línudansarar taka sporið fyrir gesti
og gangandi.
Þá bregður Götuleikhúsið á leik á
Laugaveginum og andlitsmálarar
verða á þremur stöðum til að mála
smáfólkið.
Nú eru nákvæmlega 5 ár síðan
langur laugardagur varð að veru-
leika og segir í fréttatilkynningu að
hann hafi „sannarlega sannað gildi
sitt fyrir Laugaveginn og viðskipta-
vini hans“. Frítt er í öll bílastæða-
hús á Iaugardögum, en frítt í stöðu-
og miðamæla eftir kl. 14.
I miðborginni eru um 300 versl-
anir og fjöldi veitinga- og kaffihúsa.
-------♦-♦-♦-----
Ýtur í líf! þjóðar
HELGINA 14.-15. ágúst nk. verður
sýningin Ýtur í lífi þjóðar haldin á
Hvanneyri. Tilefni hennar er 90 ára
saga beltavéla og jarðýtna á íslandi
og hlutur þeirra í ræktun en einnig
samgöngubótum í dreifðum byggð-
um.
Að sýningunni standa Búvélasafn-
ið á Hvanneyri og verktakafyrirtæk-
ið Jörvi hf., með atbeina Vegminja-
safns Vegagerðarinnar, Vegagerðar-
innar í Borgarnesi, Heklu hf. og
fleiri aðila. Sýndar verða beltavélar,
ýtur og fylgitæki þeirra frá ýmsum
tímum, auk þess sem gömlum, fá-
gætum myndum og söguþáttum
verður brugðið upp í sérstakri sýn-
ingardeild.
Laugardagskvöldið 14. ágúst verð-
ur ýtumannavaka í Sumarhótelinu á
Hvanneyri. Þangað eru áhugamenn
um ýtusögu og ýtusagnir velkomnir
Laugardaginn 16. ágúst munu
Portúgalamir, ásamt íslenskum
gestgjöfum sínum, sýna listir sínar
og setja upp „götuleikhús" á Ing-
ólfstorgi frá kl. 12.00 og fram eftir
degi. Gefst fólki einnig kostur á að
taka þátt í átaki sem Rauði kross
íslands gengst fyrir undir kjörorð-
inu „gegn ofbeldi“. Fólki gefst kost-
ur á að sýna í verki andstöðu við of-
beldi með því að þrykkja handarfar
sitt á borða. Meðan á dvöl þeirra
stendur munu þau m.a. skoða Gull-
foss og Geysi, fara í Þórsmörk, taka
þátt í sjálfboðastarfi og fleira.
Heimsóknir þessar eru styrktar af
Evrópusambandinu sem liður í
samstarfsverkefnum á vegum
„Ungs fólks í Evrópu“ sem hefur
aðsetur í Hinu húsinu.
til þess að rifja upp þætti um ýtur í
lífi þjóðar. Á sýningunni verður
brugðið á leik með ýtum og ýmislegt
verður í boði. Veitingar eru fáanleg-
ar í Sumarhótelinu. í Ullarselinu
geta gestir spreytt sig á flókavinnslu
og Kertaljósið býður gesti velkomna
til þess m.a. að steypa eigin kerti.
Sýningin Ýtur í lífi þjóðar stendur
frá kl. 13-18 báða dagana.
----------------
Verslun Símans
Internets
eins árs
VERSLUN Símans Intemets á
Grensásvegi 3 verður eins árs 16.
ágúst næstkomandi. í tilefni afmæl-
isins verður viðskiptavinum boðið á
sérstaka forsýningu myndarinnar
.Analyze This“ í Bíóborginni þann
sama dag og hefst sýningin kl. 21.00.
Til að eiga möguleika á miða þarf að
skrá sig á heimasíðu Símans Inter-
net, www.simnet.is. Alls verða 250
viðskiptavinir dregnir út fimmtudag-
inn 12. ágúst og fær hver þeirra tvo
miða á sýninguna.
Þá er Síminn Internet með af-
mælistilboð og fá nýir notendur, sem
skrá sig fyrir 16. ágúst, tveggja mán-
aða áskrift gjaldfrjálsa. Einnig eru
ýmsar vörur á tilboðsverði í verslun-
inni.
-------♦“♦-♦----
Afmælisferö um
Eyvindargötu
í TILEFNI endurfundar fjallvegar
þess er útilegufólkið Fjalla-Eyvind-
ur og Halla vísuðu á til Grænavatns,
þegar hjúin voru handsömuð við
Innrahreysi 7. ágúst 1772, verður
umræddur fjallvegur farinn á jepp-
um laugardaginn 7. ágúst.
Ferðin hefst klukkan 8 við Ey-
vindarhreysi (Háumýrar) eða Nýja-
dal. Farið verður norður eftir
Sprengisandsveginum foma að
Vegamótavatni en sveigt þar til
austurs, sunnan við Fjórðungsöldu,
um Tunguhraun að vaði á Skjálf-
andafljóti, áætlaður tími þar er kl.
12. Síðan verður farið að Hitalaug
við Neðribotna, norðan Laufrandar,
þaðan á fjallveg 910.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmálaráðherra tekur við fyrsta eintaki
nýrrar ökukennslubókar úr hendi Guðbrands Bogasonar, formanns ÖI.
Nýjar bækur til að bæta
umferðarmenningu
ÖKUKENNARAFÉLAG íslands
hefur gefið út tvær nýjar kennslu-
bækur í ökukennslu. Formaður öku-
kennarafélagsins, Guðbrandur
Bogason, afhenti dómsmálaráðherra,
Sólveigu Pétursdóttur, fyrstu ein-
tökin á kynningarfundi í húsnæði fé-
lagsins, að Þarabakka 3 í Reykjavík,
í gær.
Annars vegar er um að ræða
kennslubók sem ætluð er til kennslu
fyrir almenn ökuréttindi (B-réttindi)
en hins vegar kennslubók til kennslu
á bifhjól (A-réttindi). Bækurnar
leysa af hendi eldri kennslubók sem
kennd hefur verið um langt árabil.
Að sögn Guðbrands er í bókunum
lögð áhersla á myndræna útfærslu
til að aðalatriðin fari ekki milli mála.
I þeim er farið yfir helstu atriði sem
varða umferðarlög, viðhorf til akst-
urs og umferðar, fjallað um aksturs-
tækni og greint frá öllum umferðar-
merkjum og merkingu þeirra.
Einnig er lögð áhersla á mikilvægi
jákvæðra mannlegra samskipta til
Kransagerð úr
náttúrulegum
efnum
„KRISTÍN Bjamadóttir í Grænu
smiðjunni leiðbeinir um kransagerð
úr íslenskum jurtum laugardaginn
7. ágúst kl. 14-17. Jurtir verða tínd-
ar í landi Alviðru. Boðið er upp á
jurtate, kakó og kleinur.
Þátttökugjald og efniskostnaður
er 1.000 kr.,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
-------♦-♦-♦----
Steingrímur
kennir ekki
BJÖRN Teitsson, skólameistari
Framhaldsskóla Vestfjarða á ísa-
firði, óskar eftir að taka fram vegna
orða Steingríms St. Sigurðssonar í
Morgunblaðinu 30. júlí um að hann
hafi verið ráðinn kennari við skól-
ann, að Steingrímur hafi ekki sótt
formlega um kennslustarf við
Framhaldsskóla Vestfjarða og muni
hann ekki kenna við skólann næsta
vetur.
að stuðla að betri og öruggari um-
ferð.
Höfundar bókanna eru Arnaldur
Árnason ökukennari sem samdi bók-
ina til almennra réttinda og Njáll
Gunnlaugsson ökukennari sem
samdi bókina um bifhjólakennslu en
sú bók er fyrsta heildarkennslubók
um það efni sem samin hefur verið
og gefin út hérlendis.
------------------
LEIÐRÉTT
Eskimo í Bergen og Helsinki
í viðtali við Þóreyju Vilhjálmsdótt-
ur, annan eiganda Eskimo Models,
sl. laugardag kom fram að fyrirtæk-
ið ætti í samstarfi við menningar-
borgir í Evrópu en rangt var farið
með borgarheitin. Hið rétta er að
Eskimo Models er í samstarfi við
borgirnar Helsinki og Bergen.
Kunnuglegar persónur
I blaðinu í gær var vitnað í umsögn
dómnefndar leikritasamkeppni
Þjóðleikhússins um verðlaunaleikrit
Ragnars Arnalds. Þar féllu niður
tvö orð sem breyttu merkingu setn-
ingar. Rétt er setningin svona:“Hér
er tekið fyrir verðugt viðgangsefni
úr íslenskum nútímaveruleika svo
úr verður góður efniviður í
skemmtilega leiksýningu um per-
sónur sem ætla má að komi íslensk-
um áhorfendum kunnuglega fyrir
sjónir." Er beðist velvirðingar á
þessu.
fstak gaf brúna
í frétt blaðinu í gær um brú sem
verið er að setja á Mógilsá í hlíðum
Esju er því ranglega haldið fram að
ísal hafi gefið brúna. Hið rétta er að
verktakafyrirtækið ístak gaf efni og
vinnu við brúna. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
Ekki heimildir
I viðtali Jóhannesar Helga við
Gunnar Björgvinsson, „Fleiri hafa
augu en emir“ í blaðinu síðastliðinn
laugardag, slæddist villa. Neðan-
málsgreinarnar voru skilgreindar
sem heimildii- en sú skilgreining var
röng.
UTSALAN
í FULLUM
GANGI
ÚRVAL AF
TÍSKUSKÓM
EVERYl
Verð Áðuf-5r955T-
nú 2.495,-
nú 1.995,-
Verðiöuf-&395>
nú 2.995,-
nú 2.995,-
Verðifittf-5^95^
nú 1.995,-
Langurlaugardagur
opið 10-16
|
é
t
í
t
I
I
t
i
]
Ioppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG
SÍMI 552 1212
HEIMILISLÍFIÐ HEFUR SJALDAN VERIÐ
EINS FJÖRUGT OG EINMITT NÚNA.
Útsala 22. júlí -14. ágúst ♦ Minnst 15% afsláttur.
habitat Heimaer best.