Morgunblaðið - 06.08.1999, Page 54
V 54 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ISLENSKA OPERAN
__illn
i\í'M5D3Lj,i
^ Gamanleikrit í leikstjórn
k Sigurðar Sigurjónssonar
81
Næstu sýningar
auglýstar
sunnudaginn 8. ágúst
Ósóttar pantanir
seldar daglega
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
S.O.S. Kabarett
í leikstjórn Sigga Sigurjónss.
Frumsýning lau. 7/8 kl. 20.30.
2. sýn. fös. 13/8 kl. 20.30.
3. sýn. lau. 14/8 kl. 20.30.
4. sýn. lau. 21/8 miðnætursýning
á menningamótt Reykjavíkur.
HIRÐFÍFL HHNNAR HÁTIGNAR
Næstu sýn. sun. 8/8 og sun. 15/8.
Miðasala i s. 552 3000. Opið virka daga
kl. 10—18 og fram að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
5 30 30 30
Mteato ofr frá 12-18 oohmat
iyTignfaBa. Opa fa 11 fyrt-
)rÍC^p'l^a
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 1Z00
Fös. 6/8 örfá sæti laus.
Mið. 11/8 laus sæti.
Rm. 12/8 laus sæti.
Fös. 13/8.
Mið. 18/8.
Fim. 19/8.
SNYRAFTVR
Fös 13/8 kl. 23.00, nokkur sæti laus.
Fos 20/8 kl. 23.00.
Ath! Aðeins þessar sýningar
TÓNLEIKARÖÐ IÐNÓ kl. 20.30.
Atonal future flytur ný íslensk tónverk,
þri. 10/8.
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti I Iðnó.
Boiðapantanir í síma 562 9700.
LEIKFELAG «
REYKJAVÍKURjj?
181)7 1997
BORGARLEIKHÚSIÐ
Á SÍÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hálfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
LitU liHftlitujfbúðik
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
fös. 06/8 örfá sæti laus
lau. 07/8 nokkur sæti laus
fös. 13/8 laus sæti
lau. 14/8 nokkur sæti laus
fös. 20/8 laus sæti
lau. 21/8 nokkur sæti laus
fös. 27/8 Laus sæti
lau. 28/8 iaus sæti.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Erum byrjuð að taka niður
pantanir fyrir ágústmánuð.
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Simapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Simi 568 8000, fax 568 0383.
Aðsendar greinar á Netinu
v||> mbUs
v __ALL.TAf= e/TTHVAÐ HÝTT
FÓLK í FRÉTTUM
KYIKMYNDIR/Bíóhöllin og Kringlubíó hafa tekið tíl sýninga myndina
Tarsan og týnda borgin, Tarzan and the Lost City, með Casper Van Dien
og Jane March í aðalhlutverkum.
Tarsan
snýr
aftur
Frumsýning
KONUNGUR apanna er
kominn aftur. Frá því Tars-
an apabróðir birtist fyrst á
hvita tjaldinu árið 1918 hefur saga
Edgars Rices Burroughs um
drenginn sem týndist í skóginum
og varð konungur apanna stöðugt
heillað bæði lesendur og kvik-
myndagerðarmenn. í þessari nýj-
ustu útfærslu á sögunni um Tarsan
snýr hann aftur til frumskógarins
eftir að hafa dvalið sem Greystoke
lávarður í Englandi.
Casper Van Dien sem gerði
garðinn frægan í mynd Pauls Ver-
hoevens Starship Troopers leikur
Tarsan. Hann er um það bil að gift-
ast hinni fallegu Jane (Jane
March) þegar mynd birtist í huga
hans af æskuslóðum sínum verða
eyðileggingu að bráð. Myndin er
sem greypt í huga hans og hann
berst við þá spurningu hvort hann
eigi að dvelja áfram í Englandi hjá
Jane eða snúa til baka til frum-
skógarins og verja sína heimahaga.
En átthagamir kalla og þegar
Tarsan snýr til baka til frumskóg-
ÞAÐ er hinn vígalegi
Casper Van Dien sem
túlkar Tarsan apabróður.
JANE Marsh fer með hlutverk
Jane og hér ér hún komin
á heimaslóðir Tarsans.
arins verður hann að berjast hetju-
legri baráttu við óprúttna hermenn
sem hafa ekkert nema gróðahyggj-
una að leiðarljósi í leit sinni að æv-
intýraborginni Opar.
„Eg held að það sem heillaði mig
mest við myndina hafi verið að
Tarsan var hetja mín í bamæsku
og það var eins og að draumur
rættist um að fá loksins að túlka
æskuhetjuna á hvíta tjaldinu," seg-
ir Casper Van Dien. Van Dien hef-
ur alltaf verið mikið í íþróttum og
var m.a. fyrirliði ruðningsliðs síns í
skóla. Leikferill hans hófst í sjón-
varpi og þekkja hann margir úr
þáttunum Beverly Hills 90210.
Jane March náði fyrst athygli
umheimsins í myndinni Elskhug-
inn sem byggð var á samnefndri
sögu Marguerite Duras. Hún hefur
einnig leikið á móti Bruce Willis í
The Color of Night og í myndunum
Provocateur og Never Ever. Hún
segir að myndin hafi höfðað til
hennar bæði vegna ævintýrsins og
vegna þess að hún fékk að túlka
Jane á nýjan og ferskan átt.
Leikstjórinn Carl Schenkel
fæddist í Sviss og hóf feril sinn sem
blaðamaður í Þýskalandi. Hann hóf
fljótlega að skrifa auglýsingatexta
og gera auglýsingar. Hann á að
baki nokkrar þýskar kvikmyndir
og má helstar nefna Kalt Wie Eis
og Abwarts, en eftir miklar vin-
sældir hinnar síðamefndu hafði
bandaríska sjónvarpsstöðin HBO
samband við hann og hefur hann
m.a. gert spennuþættina Profiler
sem hafa notið mikilla vinsælda
vestanhafs.
KVIKMYNDIR/Bíóborgin hefur tekið til sýninga rómantísku gaman-
myndina Hin systirin, The Other Sister, með þeim Juliette Lewis, Giovanni
Ribisi og Diane Keaton í aðalhlutverkum.
Ástin er
fyrir
öllu
Frumsýning
CARLA (Juliette Lewis) hefur
eytt mörgum árum í sérskóla
fyrir andlega þroskaheft
böm og þar hefur hún náð að sigr-
ast á mörgum hindrunum. Þegar
hún útskrifast og snýr heim til of-
vemdandi og metnaðargjamrar
móður sinnar Elizabeth (Diane
Keaton) kemur fljótlega í Ijós að
Carla vill halda áfram með líf sitt og
vera sjálfstæð, en móðir hennar ótt-
ast stöðugt um hana. Þegar Carla
verður ástfangin af Danny
(Giovanni Ribisi) sem á einnig við
andlega annmarka að etja breytist
allfc líf hennar og þau þurfa í
sameiningu að kijást við
fötlun sína, samfélagið og
fjölskylduna.
Hlut-
verk
Cörlu
Hinni
systurinni
er fyrsta hlut-
verk Juiiette Lewis
í langan tíma og hefur
hún fengið frábæra
dóma fyrir túlkun sína
hinni saklausu og einföldu
Cörlu. Lewis byrjaði mjög ung að
leika og á að baki myndir eins og
Cape Fear, Husbands and Wives,
Kalifomia og Natural Bom Killers.
Samband hennar við Brad Pitt var
frægt á sínum tíma en Juliette seg-
LEIKSTJÓRINN Gary Marshall með aðalleikurunum Giovanni Ribisi
og Juliette Lewis.
ist hafa dregið sig í hlé fyrir þremur
ámm til að takast á við fíkniefna-
neyslu sína og ná stjórn á lífí
sínu. Hún segir að hlutverk
Cörlu hafi verið eins og himna-
sending, ögrun sem hafi gefið
henni tækifæri til að sýna hvað í
henni býr. Lewis og Giovanni Ri-
bisi eyddu miklum tíma í að búa
sig undir hlutverk sín og kynntu
sér af kostgæfni líf þroskaheftra
unglinga til að geta túlkað per-
sónur sínar af meiri trú-
mennsku.
Lewis segir um Cörlu að
hún þrái það
frelsi sem flest-
ir taka sem
sjálfgefnum
hlut. „Frelsi til að
elska og taka ákvarð-
anir. Frelsi til að reyna,
mistakast og reyna aftur.
„Ribisi segir að Danny skilji
en þrái ást-
ina og þá staðfestingu á sjálfsí-
mynd sem hún veitir. „Fólk
CARLA og Danny upp-
götva ævintýri ástarinnar.
eins og Carla og Danny þurfa að fá
ákveðið frelsi svo þau geti blómstrað
á sínum eigin forsendum," segir
hann. Ribisi á að baki langan feril í
kvikmyndum þrátt fyrir ungan ald-
ur og hefur sést m.a. í myndunum
Björgun óbreytts Ryans á móti Tom
Hanks og í Póstmanninum á móti
Kevin Costner. Einnig muna margir
eftir Ribisi úr þáttunum Vinir þar
sem hann fer með hlutverk hins sér-
kennilega bróður Phoebe.
Leikstjórinn Garry Marshall er
einn af virtari leikstjórum
Hollywood. Fyrir meira en áratug
leikstýrði hann Pretty Woman sem
skaut Juliu Roberts upp á stjörnu-
himininn, en meðal annarra mynda
hans má nefna Frankie & Johnnie,
Beaches, Overboard og The
Flamingo Kid. „Gary Marshall hef-
ur hæfileika til að hreyfa við áhorf-
endum á einhvern hátt sem fáum
leikstjórum er gefið,“ segir einn
framleiðandi myndarinnar, David
Hoberman. „Hann getur sýnt mjög
tilfinningarík atriði á mjög áhrifa-
ríkan máta en á sama tíma brugðið
ljósi kímninnar yfir sviðið. Það er
ekki öllum gefið.“
Stutt
Gult skal
það vera
í TILEFNI af endurútgáfu kvik-
myndar og hljómplötu Bítlanna um
Gula kafbátinn verður Evrópulest-
in sem fer í sína fyrstu ferð 8. sept-
ember næstkomandi frá Lundúnum
til Parísar máluð heiðgul sam-
kvæmt frétt í breska blaðinu Sun.
Sagt er að Paul McCartney, Geor-
ge Harrison og Ringo Starr hafi
lagt út meira en 100 þúsund pund
til að iestin gæti skartað gula Iitn-
um og skrautlegum teiknimynda-
fígúrum í ætt við Gula kafbátinn.
„Gult er liturinn í ár. Paul, George
og Ringo eru mjög spenntir yfir út-
gáfunni,“ hafði Sun eftir talsmanni
Bítlanna þriggja.
I endurútgáfu myndarinnar
munu verða myndskeið sem klippt
voru út á sínum tíma og á hljóm-
plötunni munu heyrast þekkt lög
eins og With a Little Help from my
Friends og Lucy in the Sky With
Diamonds í nýjum útsetningum. Þá
geta Bítlaaðdáendur klætt sig í
gulu peysuna og beðið spenntir.
Kurteis þjófur
ÞÝSKUR þjófur skildi eftir afsökun-
arbeiðni á ránsstað þar sem hann
stal skartgripaskríni og peningaveski
þar sem hann bað eigendurna að líta
á stuldinn sem gjöf til líknarmála.
Þjófurinn sem stal þýfi að verðmæti
rúmlega þrjátíu þúsund króna í húsi
í litlum bæ rétt hjá Mainz sagðist
eiga þrjá litla bræður og veika móð-
ur sem hann þyrfti að hugsa um.
Gleraugu í pósti
RÚMENSKIR póstburðarmenn
ætla að nýta sér sólarmyrkvann
sem verður í næstu viku til að
drýgja tekjurnar. Lögreglunni í
Búkarest hefur borist fjöldi kvart-
ana frá eldri borgurum og bóta-
þegum sem segja að andvirði gler-
augna sem seld hafa verið til að sjá
sólarmyrkvann hafi verið dregið af
eftirlaunum þeirra að þeim for-
spurðum.
I fréttaþætti í rúmenska sjón-
varpinu var talað við unglings-
stúlkuna Ana Panti sem hefur ver-
ið blind frá fæðingu og fær mánað-
arlega greiðslu frá ríkinu sem var
skert vegna gleraugnakaupanna.
„Hvað á hún að gera við gler-
augu?“ spurði faðir hennar reiður
yfir atferli póstburðarmannanna.
í fréttinni kom fram að framleið-
andi gleraugnanna hefði boðið
póstburðarmönnunum prósentur af
sölu ef þeir seldu gleraugu fyrir
þá. Horia Morutan sem er í for-
svari póstburðarmanna sagði að
póstburðarmenn hefðu einungis
fengið þau skilaboð að það væri
hluti starfs þeirra þessa vikuna að
dreifa gleraugunum og vildi ekkert
tjá sig um þóknun þeim til handa.
Sólarmyrkvinn verður 11. ágúst
næstkomandi og mun vara í tvær
mínútur og 23 sekúndur og sjást
um alla Rúmeníu.
Ilmvatn
sem virkar
GÓÐUR ilmur getur gert kraftaverk
í því að laða að hitt kynið segja aug-
lýsingar ilmvatnsframleiðenda. Nú
hafa vísindamenn í dýragarðinum í
Dallas komist að því að mikið er hæft
í þeirri staðhæfingu, í það minnsta
hjá dýrunum.
Vísindamenn hafa verið að rann-
saka hvernig hægt sé að örva pardu-
sketti til fjörugra ástarlífs, en teg-
undin er í hættu og talið að aðeins
um 100 parduskettir lifi villt í Texas-
fylki. Þegar vísindamennirnir próf-
uðu að nota karlmannsilmvatnið Ob-
session frá Kalvin Klein urðu pardu-
slæðumar afar ástleitnar og telja vís-
indamennirnir að lyktin af ilmvatninu
geti nýst þeim vel í að tryggja við-
hald stofnsins. Fyrst ilmvatnið virkar
svona vel á parduslæðumar er ekki
loku fyrir það skotið að einmana karl-
menn geti nýtt sér sama ilm til að
laða að sér kvenfólkið.