Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 46

Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 46
Ást á stríðstímum - In Love and War (‘961 Éj Kveikjunni að Vopnin kvödd, klassíkinni hans Hemingways (Chris 0' Donnell), misboðið á flestan hátt. Byggð á fýrstu, stóru ást skáldsins á sér eldri konu (Sandra Bullock), í fyrra stríði. Tilfinningasnauð, slælega leikin og skrifuð. Verst af öllu steingelt sambandið á millí leikaranna og Bull- ock alltof ung fyrir hlutverkið. Dæmi- gert Hollywood-raunsæi. Bíórásin, 9.september. Farvel frilla mín - Farewell My Concubine (‘93) jj Löng en áhrifamikil mynd, 9 spannar hálfa öld í ævi tveggja æskuvina sem verða stjörnur við Pek- ing-óperuna. Annar, sem festist í kvenhlutverkum, elskar hinn, sem vel- ur sér gleðikonu til fylgilags. Tilfinn- ingarík með átakamikla sögu landsins á þessari öld í bakgrunni, ásamt litríku ástalífi og innsýn í glæstan menning- arheim. Stöð 2. 2. september. Hasar í Minnesota - Feeling Minnesota (‘96) / Heimilisfriðurinn er úti þegar litli- W bró (Keanu Reeves) kemur óvænt í giftingarveislu þess eldri (Vincent D'Onofrio). Kvenpeningurinn (Cameron Diaz) hleypir öllu í bál og brand. Mislukkuð, kjánaleg endaleysa með mergð góðra leikara (Tuesday Weld, Dan Aykroyd, Delroy Lindo, o.fl.) sem hafa ekkert til málanna að leggja. Bíórásin, 4. sepbember. Herbergi Marvins - Marvin's Room (‘98) r Hollywood kann ekki að með- . * höndla návist dauðans án þess að sökkva sér í ódýra væmni. Þessi vel leikna mynd með úrvalsleikurunum Meryl Streep, Roþert De Niro og Leon- ardo Di Caprio (og fjölda annarra) er engin undantekning. Gæti verið fram- leidd af vasaklútasamtökunum. Bíórásin, 9. september. IP5 (‘921 éj Síðasta mynd franska leikarans I og sjarmörsins Yves Montand sem, líkt og persónan sem hann leik- ur, lést á meðan á tökum stóð. Sögu- hetjurnar tvær eru ungir Parísarbúar sem taka sér far með flutningabíl til Grenoble. Annar spænskættaður vegg- krotari, hinn þeldökkur rappari. Vand- Frumsýningar í sjónvarpi ræðin hefjast er þeir stela bíl því óvelkominn gestur leynist aftan í vagn- inum. Roskinn maður, sem við nánari kynni reynist ekki jarðneskur, heldur dularfullur skógarandi sem kennir þeim sitt af hverju um lífið og tilver- una. Montand átti aðdáendur um allar jarðir og var einn fárra, franskra leik- ara sem náðu fótfestu á Vesturlönd- um. Hann varfrábær leikari, aðlaðandi söngvari, mikill listamaður og lífs- nautnamaður sem varð goðsögn í lif- anda lífi. Montand skilaði einatt hlut- verkum sínum með miklum sóma og gaf þeim og myndunum sinn einstaka, persónulega svip. Bíórásin, 11. sept. Reikningsskil - Ghosts of Mississippi (‘96) L Byggð á sönnum atburðum sem W gerðust ‘63. Svartur mannrétt- indafrömuður var skotinn til bana og réttað yfir þeim grunaða til málamynda. Myndin fjallar um endurupptöku máls- ins 30 árum síðar. Litlaust drama þrátt fyrir fínan leikhóp þar sem Whoopi Goldberg (sem ekkja hins myrta) og James Woods (sem morðinginn), láta ein að sér kveða. Flatt handrit og leik- stjóm Robs Reiners, sem virðist heillum horfinn. Bíórásin 11. sept. Meistari af guðs náð - The Natural (‘84) u Við sjáum ekki annan eins leik- 9 arahóp á hverjum degi: Robert Redford í aðalhlutverki afburða horna- boltaleikmanns, auk hans Robert Du- vall, Glenn Close, Wilford Brimley, Kim Basinger, Richard Farnsworth, Robert Prosky, o.fl. gott fólk. Myndin er tilfinn- ingaþrungið drama, byggt á skáldsögu e. Bernard Malamud um fæddan af- reksmann, en annð er gæfa en gjörvi- leiki. Bíórásin, 13. september. Take the High Ground (‘54) jj Harðneskjuleg mynd um her- 9 mannaframleiðslu á tímum Kóreustríðsins í æfingabúðum banda- ríska landhersins ÍTexas. Richard Wid- mark og Karl Malden fara á kostum sem stjórnendur sem taka á ólíkan hátt á nýgræðingunum í hálfgleymdri mynd e. Richard Brooks, sem svipar nokkuð til upphafskafla Full Metal Jacket, Kubrick. TNT, 9. september. Vinaminni - Circle Of Friends (‘95) jj Skemmtileg og vel skrifuð mynd W um unga, írska sveitastúlku (Minnie Driver) sem hleypir heimdrag- anum og heldurtil æðra náms ÍDyfl- inni. Verður ástfangin af aðalsmannin- um (Chris 0 'Donnell). Fljótt snjóar yfir kaþólskuna og búðarlokuna, sem bíður vongóð heima í plássi. Einkar aðlaðandi mynd, gerð af Pat 0 'Connor (Cal), með furðu góðum O'Donnell og stormandi fínni Minnie Driver í aðalhlutverkinu - sem skaut henni upp á stjörnuhimininn. Bíórásin, 4. september. Ævi Antoníu - Antonia's Line {‘95) jj Kvenfólkið er ofan á, karlarnir 9 undir, í flestum skilningi, í gam- ansamri ádeilu.og Óskarsverðlauna- mynd á karlaveldið. Aðalpersónurnar fimm ættliðir hollenskra kjarnakvenna sem lifa á jaðri samfélagsins og skýla utangarðsfólki og einfeldningum í næð- ingi jarðlífsins. Að mörgu leyti heillandi og óvenjuleg, morandi af forvitnilegum persónum. Bíórásin, 2. sept. GflMnNMYNDIR Kelly's Heroes (70) jj Vitlaus en feiki- 9 vinsæl afþreying á sínum tíma um ofur- svala bandaríska her- menn og nasistagull á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Clint Eastwood, Telly Savalas og Donald Sutherland halda uppi fjörinu. TNT, 9. september. Verðlaunabikarinn - Tin Cup (‘96) / Kevin Costner var ofurstjarna fyrir W örfáum árum. í dag berst hann fyrír tilveru sinni í Hollywood. Það getur hann þakkað þessum hortitti og nokkr- um öðrum (Postman, Watemorld, Message In a Bottle). Slöppum við- fangsefnum sem hann valdi í striklotu af dæmafáu dómgreindarleysi. Hér leikur hann afdankaðan golfleikara sem má muna sinn fífil fegri. Ekki hjálpar mótleikarinn, Rene Russo, upp á sakirnar. Bíórásin, 5. sept. Einræðisherrann - Moon Over Parador (‘88) / Á sömu nótum og myndin að of- 9 an. Richard Dreyfuss fer með hlutverk leikara sem hleypur í skarðið fyrir nýlátinn einræðisherra í Ró- mönsku Ameríku. Fer fljótlega að líka lífið. Sonia Braga, Raul Julia o.fl. gæðaleikarar lífga upp á mynd sem markaði upphafið að hnignunarskeiði leikstjórans/handritshöfundarins Pauls Mazurky. RÚV, 4. september. Fuglabúrið - The Birdcage (‘96) jj Það kemur sér vel að hommar 4? tveir (Robin Williams og Nathan Lane) eru vanir menn í skemmtana- bransanum þegar sonur annars þeirra staðfestir ráð sitt því tilvonandi tengdaþabbi stráksa er siðavandur þingmaður (Gene Hackman) með ýmigust á ergi. Byggð á La Cage aux Folles, fráþærri franskri gamanmynd, sem einnig hefur farið sigurför á sviði. Hollywood fær 7,5, sérstaklega „af- hommun" Lanes. Bíórásin, 1. sept. Batman og Robin (‘96) fGeorge Clooney er lufsulegur leð- urblökumaður og Arnaldur Schwarzenegger eins og léttruglað sterröll, sem illinginn í nýjustu og al- verstu myndinni um titilpersónumar. Leikstjórinn Joel Schumacher gerir það óþolandi sem kollegi hans, Tim Burton, gerði illþolandi. Bíórásin, 12. sept. Blankur í Beverly Hills - Down and Out In Beverly Hills (‘85) jj Satíra um hamingjusnautt líf ný- 9 ríkra í Beverly-hæðum og Messí- asarlegan róna (Nick Nolte) sem af til- viljun slagar inn í líf þeirra og breytir til hins betra. Bette Midler og hundtíkin standa uppúr. Bandarískir kvikmynda- framleiðendur hafa grætt ómælt fé á að almúginn þar í landi skilur ekki múkk í frönsku, en myndin er þanda- rísk útgáfa Boudu bjargaö frá drukkn- un. Jean Renoir (‘32). Stöð 2, 2. sept. Fri í Vegas - Vegas Vacation (‘97) / Nýjasta afkvæmi lífseigrar 9 myndaraðar um seinheppna vísi- tölufjölskyldu (Chevy Chase, Beverly D 'Angelo, tveir táningar) á ferðalög- um. Að þessu sinni í lastaborginni, þar sem Chase og Randy Quaid eiga góða spretti. Bíórásin, 5. september. Dave (‘93) jj Kevin Kline fer vel með tvöfalt 9 hlutverk forseta Bandaríkjanna og tvífara hans. Meðaljóninum Dave 46

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.