Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 47

Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 47
gengur furðu vel í sínu nýja hlutverki er hann verður að hlaupa í skarðið fyrir forsetann, illskeytt forsetafrúin eina Ijónið á veginum. Hann bjargar því af stakri karlmennsku og reisn. Sigourney Weaver, Ben Kingsley, Charles Grodin og Kevin Dunn. Bresta mynd Ivans Reitman langa lengi. RÚV, 11. sept. Rússarnir koma - Tlie Russians are Coming, The Russians are Coming (*6G) n Kaldastríðsspaug um skipreka, 9 rússneska sjóliða kafbáts á fjandsamlegum ströndum óvinanna á Nýja Englandi. Var góð skemmtun, spurning um ellimörkin. Besta atriðið þegar Sovétmaður heldur á lofti kunn- uglegum umbúðum og segir hróðugur af sinni heimsborgaralegu visku við skipsfélagana; “kókakóla!" Bíórásin, 4. september. Gæludýralöggan - flce Ventura Pet Detective (‘94) iy Gamanmynd um seinheppinn fP gæludýraspæjara í Flórída og leit hans að lukkudýri ruðningsliðs, hefur eitt tromp; Jim Carrey, kvik- myndaheimsins langbesta trúð. Bíórásin, 7. september. Mars Attacks! (‘96) éBitlaus farsi frá Tim Burton, yfir- leitt snjöllum og sérstæðum leik- stjóra. Hér skýtur hann langt yfir mark- ið í vísindaskáldsögulegri satíru um viðskipti Marsbúa og æðstu manna Bandaríkjanna. Urmull góðra leikara (Jack Nicholson, Danny De Vito, Ann- ette Bening) hefur fátt fyndið eða vit- rænt fyrir stafni. Bíórásin, 7. sept. Úrslitakvöldið - The Big Night (‘97) j, Dálítil perla með Stanley Tucci fr (sem jafnframt leikstýrir í fyrsta sinn) ogTony Shalhoub í aðalhlutverk- um ítalskra bræðra sem gera örvænt- ingarfullar tilraunir til að komast inn á markaðinn í veitingahúsabransanum í New York um miðja öldina. Minnie Dri- ver, Campbell Scott og ekki síst lan Holm krydda hráefnið. Bíórásin, 1. sept Það gerist ekki betra - As Good As it Gets (‘98} ii. Þær gerast ekki betri en þessi Hf, margverðlaunaða gamanmynd um gengilbeinu í tilvistarkreppu (Helen Hunt) - það á reyndar við um allar persónurnar - forríkan viðskipta- vin hennar (Jack Nicholson) sem jafn- framt er rithöfundur, illskeyttur mann- hatari og sérvitringur, með sérstaka andúð á hommanum í næstu íbúð (Greg Kinnear) og hundinum hans. Þau fara öll á kostum og handrit og leikstjórn James L. Brooks í hæsta gæðaflokki. Stöð 2, 11. september. Örlagavaldurínn - Destiny Tums. On the Radio (‘95) Fimbulfamb frá þeim tíma sem framleiðendur héldu að nafn Quentins Tarantinos dygði eitt til að tryggja afkomuna. Reyndar er hann nokkuð kúnstugur sem vafasamur bjargvættur minnipokamanna í Vegas. Bíórásin, 10. september. \HROLLVEK]UR 0Safnarinn - Kiss the jj Morgan Freem- 9 an og Ashley Judd, ung og stórefni- leg leikkona, lyfta nokkuð formúlu- kenndri fjöldamoröingjamynd vel upp fyrir meðallagið. Ljót en spennandi og nýtir vel mörkina í Norður-Karólínu. Stöð 2, 10. september. \SPENNUMYNDIR é Einvígið - Duel (‘70) ii Sjónvarpsmynd- 9 in sem vakti fyrst athygli á Spiel- berg. Ökumaður á ferð um þjóðvegi Bandaríkjanna lendir í meiriháttar hremmingum þegar honum verður Ijóst að bílstjóri stórs vörubíls ætlarsér að kála honum. Spennandi, óhugnanlegur þjóðvegahrollur og áhrifaríkur, m.a. fyrir þá sök að aldrei sést í þann morðóða á vörubílnum. Stöð 2, 10. september. Lestarránið - Robbery (‘67) Byggð á ráninu fræga '63, með Briggs ogfélögum. Hefðbundin hasarmynd með góðum spennuatrið- um sem opnuðu leikstjóranum, Peter Yates (Bullitt) veginn til Hollywood. Sýn, 5. september. Ferðin á hafsbotn - Voyage To the * Bottom Of the Sea (‘61) #Sögufræg vísindaskáldsöguleg mynd, forveri þekktra sjónvarps- þátta, segir af áhöfn glænýss kjarn- orkukafbáts sem bjargar heiminum með aðstoð vísindamanna. Ætti að vera þokkalegasta afþreying enn og brellurnar standa vonandi enn fyrir sínu. Sýn, 7. september. Glæsipían - Seperate Lives (‘95) rGrútmáttlaus sálfræðitryllir þar sem áhorfandinn verður að kaupa alltof margt á útsöluverði til að geta notið hans. Fyrst af öllu (að venju) hrikalega slappan James Belus- hi í hlutverki sálfræðiprófessors. Er hægt að leggja þvílíkt og annað eins á mann? Sagan af tvöföldu lífi aðal- kvenpersónunnar (Linda Hamilton) er ámóta rýr í roðinu. Bíórásin, 8. sept. Stjörnuhliðið - Stargate (‘94) jj Spennandi, mátulega ævintýra- 9 le8 vísindaskáldsöguleg mynd um tímaflakk fyrir tilverknað dularfulls hrings sem finnst í Egypsku eyðimörk- inni. Kurt Russell, James Spader. Leik- stjóri Roland Emmerich (Independence Day). B-mynd í betri fötunum. Bíórás- in, 14. sept. og Stöð 2, 9. sept. Innsti ótti - Primal Fear (‘96) tj j Stórleikarinn Edward Norton 9 stelur senunni í sinni fyrstu mynd, í hlutverki kórdrengs sem grun- aður er um morð. Leikur tveim skjöld- um af snilli. Richard Gere, Frances McDormand, John Mahoney, o.fl. góðir leikarar koma við spennandi söguna. Stöð 2, 7. september. |B7iRN7i- OQ F]ÖLSKYLDUMYNDIR\ Apaspil - Dunston Checks In (‘96) jj Ljómandi flöl- 9 skylduskemmt- un um hótelstýru, leið- an son hennar, þjóf og órangútu. Þau flækjast hvert fyrir öðru með góðum árangri fyrir geðheilsuna. Faye Dunaway, Rupert Everett og Jason Alexander (sem stráksi) eru öll í fínu formi, apinn fyestur. Stöð 2, 8. sept. Fagrí Blakkur - Black Beauty (‘94) Að þessu sinni segir hrossið sjálft viðburðaríka sögu sfna í nýjustu útgáfu margkvikmyndaðrar, sí- gildrar barnasögu. Rekur æviferilinn frá því að vera gæludýr eigandans uns hann endar sem dráttarjálkur. Vel kvikmynduð og falleg fyrir augað en frásagnarmátinn gerir atburðarásina fyrirsjáanlega. RÚV, 10. september. Tvær eins - It Takes Two (‘95) Tvíburasystur (Ashley og Mary Olsen) bjarga því sem bjargað verður í mynd um tvíburasystur sem kynnast af tilviljun. Önnur moldrík, hin mösulbeina. Steve Guttenberg og Kir- stie Alley eru heldur ólánlegir foreldrar. Barnaævintýri. Bíórásin, 11. sept. Ofurgengið -Mighty Morphin Power Rangers (‘95) fFjölskyldugrín byggt á sjónvarps- þáttum um sex unglinga sem geta breytt sér í slagsmálahunda. * Hugnast helst óvitum. Sýn, 6. sept. D71NS- OQ SÖNQVfíMYNDIR □ Brigadoon (‘54) jj Tveir Banda- 9 ríkjamenn finna draugabæ í skosku Hálöndunum sem vaknar einu sinni á öld með hoppi, híi og tralala. Dans- og söngvamynd eins og þær gerast bestar. Allur pakkinn: Leikstjóri Vincent Minelli; Gene Kelly og Cyd Charisse í aðalhlutverkunum; lög og textar eftir Lerner og Lowe. Allt snillingar. TNT, 12. sept. Evíta - Evita (‘96) Byggð á söngleiknum með Ma- donnu í hlutverki konunnar sem vann sig úr allsleysi í hvílu einræðis- herrans Peróns og síðar á stall þjóðar- dýrlings Argentínu. Það eru þó þeir Antonio Banderas og Jonathan Price sem eiga leikheiðurinn skilinn í flatneskjulegri mynd frá Alan Parker en tónlist Andrews Lloyds Webber tendur fyrir sínu. Bíórásin, 7. september. La Bamba (‘65) Síðasta árið eða svo í ævi mexíkansk-bandaríska rokkgoðs- ins Ritchie Valens, sem lést í flugslysi með Buddy Holly aðeins 17 ára gam- all, rakið á einkar líflegan hátt með smellinn La Bamba til að halda uppi fjörinu. Ekki án væminnar tilfinninga- semi en yfirleitt mjög smekklega og vel gerð með tilfinningu fyrir uppruna rokkarans og sterkri saknaðarkennd. Lou Diamond Phillips er afar góður í hlutverki Valens. Bíórásin, 3. sept. rólínu. Stöð 2,10. september. \VESTRm I * | Tombstone (‘93) Slakir Wyatt Earp og Doc I Holliday í ófullnægj- ! andi útgáfu goðsagn- arinnar. Veljið flestar aðrar. Með Kurt Russell, Val Kilmer og óteljandi fjölda skapgerðarleikara, umdir leikstjórn Ge- orge Pan Cosmatos. Bíórásin, 6. sept Sæbjörn Valdimarsson $ Meistaraverk l Góð Sæmileg f Léleg 47

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.