Morgunblaðið - 13.10.1999, Side 15
Sérstæður húmor
Bíómyndin Chasing Amy eftir
Kevin Smith, nefnist Vonbiðlar
Amy á íslensku, og verður
sýnd á Bíórásinni kl. 18 og kl.
2 þann 24. október.
Ottó Geir Borg hefur fylgst
meö leikstjóra myndarinnar frá
upphafi ferils hans og finnst_
hann sérlega áhugaveröur. „í
þessari mynd tekur Kevin
Smith mikiö stökk í þroska
sem leikstjóri og handritshöf-
undur, en heldur samt í mörg
af þeim gildum sem ein-
kenndu fyrri myndir hans tvær;
Clerks og Mallrats," segir Ottó
Geir. „Áöur en hann geröi Amy
höföu myndirnar sérviskulegar
persónur sem ræddu heim-
spekilega um Stjörnustríös-
myndirnar og höföu nánast
ekkert persónulegt Itf. En í
Amy er umfjöllunarefniö mun
alvarlegra og hvetur mann
frekar til umhugsunar, þótt
sérstæöur húmorinn sé ekki
horfinn og Smith passar sig á
aö messa aldrei yfir okkur.“
- Ég frétti að þú ættir mjög
sérstaka útgáfu af myndinni.
„Já, hún er frá „The Criter-
ion Collection" en þaö er
mynddiskafyrirtæki í Bandaríkj-
unum sem gefur út diska með
alls kyns aukaefni og auka-
hljóörás þar sem áhorfandan-
um gefst kostur á aö hlýöa á
einhvern tala um einstaka at-
riði t myndinni á meðan þaö
spilast á skjánum. „Chasing
Amy“ diskurinn frá Criterion
bætir miklu viö þá ánægju aö
horfa á myndina og bendir á
ýmsa fleti innan hennar sem
eru ekki augljósir þegar horft
er á hana í fyrsta sinn. Svo
fylgja líka nokkur aukaatriöi
sem Smith hefur ákveöiö aö
klippa úr myndinni og útskýrir
hann af hverju hann kaus aö
sleppa þeim.“
- En hvað finnst þér best
við myndina?
„Chasing Amy" er mynd
sem hefur mjög opinn boö-
skap, þ.e. hún ieyfir áhorfand-
anum sjálfum að komast að
niöurstööu og maður sér þaö
allt of sjaldan í myndum í
dag."
í málningu!
Einvígi við trukk
Steven Spielberg geröi
myndina Duel, eóa Einvígi, ár-
iö 1971 fyrir sjónvarp og var
hún 73 mtnútur að lengd. Ár-
iö 1983 var myndin tekin til
sýninga í bíóhúsum, í lengri
útgáfunni sem sýnd veröur á
Stöð 2 kl. 00.25 fimmtudag-
inn 14. október.
„Þetta er afskaplega ein-
föld mynd og nánast engin
samtöl í henni," segir Ragnar
Bragason kvikmyndaleikstjóri
sem er mikill aödáandi meist-
ara Spielberg. „Þetta er hrá
myndfrásögn og er alveg ein-
staklega vel upp byggð sem
slík. Hún fjallar um skrifstofu-
blók, sem er á ferðalagi í
fólksbíl, og lendir í því aö fá
geósjúkling á tíu hjóla trukk á
eftir sér upp og nióur fjöll.
Þetta er einn eltingarleikur út
í gegn.
Ég sá Duel fyrst í Sjónvarp-
inu þegar ég var tíu eöa tólf
ára og hún virkaói strax mjög
sterkt á mig og ég held að ég
hafi ekki séö hana síóan. En
ég man mjög vel eftir henni.
Þetta er klassísk spennu-
mynd, ekkert blóö, ofbeldi
eöa kynlíf. Bara hrein og klár
spenna."
- Og manni leiðist ekki þótt
lítið sé um samtöi?
„Nei, alls ekki. Þaö er alveg
ótrúlegt hvað hún heldur og
hún sýnir hversu fullkominn
kvikmyndagerðarmaöur Spiel-
berg er. Hann getur alit, sama
hvaö er. Duel er einfaldasta
myndin hans, engir stælar í
henni. Þetta er ekta vega-
mynd, þaö er varla aö menn
stoppi til að pissa eöa taka
bensín. Þaö er endalaust ver-
iö á feróinni. Hún sannar
einnig aö Spielberg hefði al-
veg eins getaö oröiö mjög
góöur óháöur kvikmyndagerö-
armaður eins og Hollywood-
maöur, málin þróuöust bara
þannig. Hann er snillingur."
15