Morgunblaðið - 14.10.1999, Page 10

Morgunblaðið - 14.10.1999, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frumvarp stjórnarandstöðu um dreifða eignaraðild að viðskiptabönkum Forsætisráðherra spurð- ur um smíði frumvarps FRUMVARPI til laga um dreifða eignaraðild að viðskiptabönkum og öðrum lánastofnunum var vísað til annarrar umræðu við atkvæða- greiðslu á Alþingi á þriðjudag og fær efnahags- og viðskiptanefnd þingsins nú málið til meðferðar. Við umræður á mánudag fékk frum- varpið, sem lagt er fram af Stein- grími J. Sigfússyni og Ögmundi Jónassyni, þingmönnum Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, góðar viðtökur og mæltist Davíð Oddsson forsætisráðherra þá m.a. til þess að efnahags- og viðskipta- nefnd tæki það til rækilegrar skoð- unar. Góðar undirtektir forsætisráð- herra við írumvarpi stjómarand- stæðinga vöktu athygli og við um- ræður á mánudag kvaddi Jóhann Árælsson, þingmaður Samfylkingar, sér hljóðs og vildi vita hvort forsæt- isráðherra hefði í bígerð að leggja fram frumvarp af því tagi sem vinstri grænir hefðu lagt fram. Ef það væri ekki raunin fýsti Jóhann að vita hvers vegna svo væri ekki. „Mig langar til að átta mig á því hvort hæstvirtur forsætisráðherra er í einhvers konar minnihluta í rík- ALÞINGI isstjórninni, og hvort hann fái ekki sjónarmiðum sínum framgengt þar,“ sagði Jóhann. Velti hann því fyrir sér hvort forsætisráðherra sæi sér af þeim sökum hald í því að leita nú á náðir stjórnarandstöðu um það að koma sínum málum fram. „Mig langar til að vita hvort ríkisstjómin hefur ekki eina skoðun í þessu máli,“ sagði Jóhann. í svari forsætisráðherra kom fram að alger samstaða væri innan ríkisstjómarinnar um það megin- markmið að stefnt skuli að dreifðri eignaraðild að viðskiptabönkum. En Davíð benti jafnframt á að þegar hefði komið fram að ágreiningur væri um það innan ríkisstjómar- flokkanna, ekki síður í Sjálfstæðis- flokki en Framsóknarflokki, með hvaða hætti það yrði gert. Ennfremur áréttaði forsætisráð- herra þær vonir sínar að tryggja mætti dreifða eignaraðild án skráðra reglna þótt hann tæki fram að hann væri ekki mótfallinn skráð- um reglum ef ekki mætti tryggja dreifða eignaraðild með öðmm hætti. Taldi víst að eignarhaid væri hjá Sparisjóðunum í umræðunum á mánudag kvaddi Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar, sér einnig hljóðs og fór fram á að forsætisráðherra gerði grein fyrir því hvers vegna hann hefði ekki áréttað þau sjónar- mið sín, að eignaraðild skyldi vera dreifð, þegar Eignarhaldsfélag Sparisjóðanna og Kaupþing keyptu bréf í Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins (FBA) upp á um 28%. „Þegar það lá fyrir heyrðist ekk- ert í hæstvirtum forsætisráðherra. Hann ítrekaði ekki sín viðhorf, sem fram komu í Morgunblaðsviðtali í ágústmánuði 1998, en eftir að þessi sami eignarhlutur, sem þá var 28%, er seldur eignarhaldsfyrirtækinu Orca hf. - sem er skráð í Lúxem- borg að ég veit best - þá kemur hæstvirtur forsætisráðheira fram og lýsir því yfir að það sé algerlega nauðsynlegt að kúvenda hvað varð- ar einkavæðingu þessa ríkisbanka, og koma í veg fyrir að hann lendi í höndunum á fáeinum aðilum," sagði Lúðvík. Spurði hann hvað hefði eig- inlega breyst frá því að Eignar- haldsfélög Kaupþings og sparisjóð- anna eignuðust þennan ráðandi hlut og Eignarhaldsfélagið Orca eignað- istsama hlutinn. I svari forsætisráðherra kom fram að hann hefði talið víst að eignarhald á hlutum í FBA væri hjá Sparisjóð- unum. „Eg hafði ekki áttað mig á því að þeir hefðu allir verið færðir með þessum hætti, reyndar ekki tO Kaup- þings, heldur til einhvers félags sem skráð er úti í Lúxemborg, Scandin- avian Holdings. Og ég hef tekið eftir því að mjög margir höfðu ekki áttað sig á því,“ sagði Davíð. Vakti hann athygli á því að í regl- um, sem fram komu við sölu á bréf- unum nú frá einkavæðingamefnd, kæmi fram að Sparisjóðimir sem slíkir væra ekki taidir of skyldir að- ilar til að geta átt slík bréf. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst klukkan 10.30 í dag. Eftirfarandi mál verða á dagskrá: 1. Ættleiðingar. Frh. 1. umr. (atkv.) 2. Réttindi sjúkiinga. Frh. 1. umr. (atkv.) 3. Skýrsla umboðsmanns AI- þingis 1997. 4. Starfsskýrsla Ríkisendur- skoðunar 1998. 5. Vitamál. 1. umr. 6. Almenn hegningarlög. 1. umr. 7. Stofnun Snæfellsþjóðgarðs. Fyrri umr. 8. Aðgerðir vegna stríðsátak- anna í Kosovo. Fyrri umr. 9. Sjálfbær orkustefna. Fyrri umr. 10. Setning siðareglna í við- skiptum á fjármálamarkaði. Fyrri umr. 11. Könnun á læsi fullorðinna. Fyrri umr. ----------------- Ráðstefnunni er lokið RANGT var í niðurlagi fréttar um ofvirkni barna í blaðinu í gær að ráðstefna um efnið væri fyrirhuguð. Hið rétta er að hún var um síðustu helgi. Þá var Matthías Kristiansen tilgreindur á mynd með fréttinni en átti að vera Páll Magnússon sál- fræðingur. Er beðist velvirðingar á því. Forseti Alþingis í heimsókn í Manitoba í Kanada Morgunblaðið/JEG Halldór Blöndal og Svavar Gestsson skoða bókakost íslenska bóka- safnsins i Háskóla Manitoba. Mál vegabréfslauss Kiirda til umfjöllunar Handtaka manns- ins gagnrýnd Heitir stuðningi við íslenska bókasafnið f LOK fímm daga heimsóknar Halldórs Blöndal forseta Alþingis til Manitoba nýlega lýsti hann því yfir að hann mundi hvetja til aukinna tengsla fslendinga við Háskóla Manitoba. Halldór sagði að hann mundi gera það sem í hans valdi stæði til að útskýra fyrir ríkissljórn Is- lands mikilvægi þess að styðja við bakið á íslenskukennslu og ís- lensku bókasafni við háskólann. Með Halldóri í för voru eigin- kona hans, Kristrún Eymunds- dóttir, Benedikt Sveinsson stjórnarformaður Eimskips og Guðríður Jónsdóttir kona hans, Helgi Bernódusson ritari Alþing- is og eiginkona hans, Gerður Guðmundsdóttir. Fjársöfnun stendur nú yfir til að standa undir kostnaði við stöðu íslenskukennara og til að vinna að endurbótum á bókasafni íslenskudeildar Háskóla Manitoba. Safn þetta er stærsta safn fslenskra bóka í Norður-Am- eríku. Auk íslenskra bóka geymir safnið fjölda einkabréfa og skjala frá fyrstu árum landnáms fslend- inga í Kanada. Sigrid Johnson forstöðumaður safnsins segir að úrbóta sé þörf. í áætlunum þeirra er gert ráð fyrir lestrar- stofu, tækjaherbergi og helsta kostinn við hin nýju áform segir hún vera þann að safnið verði allt á einum stað og aðgengilegra fyrir þá sem vilja vinna þar rann- sóknarvinnu. „Við vonumst til þess að end- urbótum verði lokið fyrir októ- ber á næsta ári svo að við getum hýst þar handritasýningu Lands- bókasafnsins sem hingað kemur í tilefni aldamótanna," sagði Sigrid. Halldór sagðist telja að ís- lenskudeildin við Háskóla Manitoba væri injög mikilvæg og merkileg stofnun sem stuðaðli að bættum samskiptum milli land- anna. Hann sagðist líta á það sem svo að íslenskum stjórnvöldum bæri skylda til þess að aðstoða safnið. Samvinnuháskólinn með nemendaskipti Háskóli Manitoba og Sam- vinnuháskólinn á Bifröst hafa gert með sér samning um nem- endaskipti þar sem gert er ráð fyrir að tveir nemendur frá hvor- um skóla stundi nám í hinum skólanum hveiju sinni. Halldór Blöndal sagði að sér virtist sem möguleikar fslend- inga til að stunda nám við Há- skóla Manitoba væru góðir. Hins vegar mætti vera meira um nem- endaskipti og koma mætti á beinu flugi milli Islands og Manitoba. Aðstandendur söfnunar ís- lenskudeildarinnar hafa sett sér að markiniði að safna sem nemur áttatíu milljónum króna og er vonast til þess að því marki verði náð fyrir lok næsta árs. í UTANDAGSKRÁRUMRÆÐU á Alþingi í gær tók Lúðvík Berg- vinsson, þingmaður Samfylkingar, upp mál Marewans Mustafas Alis sem handtekinn var af lögreglu skömmu eftir komuna til íslands fyrir nokkram dögum, vegna þess að hann gat ekki gert grein fyrir ferðum sínum. Átaldi Lúðvík harð- lega háttalag lögreglunnar í þessu máli og taldi mannréttindi Alis, sem kveðst vera Kúrdi, hafa verið þverbrotin, en maðurinn hefur sótt um pólitískt hæli hér á landi. Héraðsdómur samþykkti í síð- ustu viku ósk lögreglunnar að úr- skurða manninn í gæsluvarðhald, en Hæstiréttur felldi þann dóm úr gildi á mánudag og var manninum þá sleppt. Lúðvík sagði hins vegar í ræðu sinni í gær að svo virtist sem íslensk yfirvöld hefðu þver- brotið viðurkenndar reglur um mannréttindi og meðferð flótta- manna. „Meðferðin sem þessi maður fékk hjá yfirvöldum bendir til þess að hann hafi frá upphafi verið með- höndlaður sem glæpamaður, þrátt fyrir að honum hafi aldrei verið til- kynnt um að grunur leiki á því að hann hafi framið refsiverðan verknað. Þessi málsmeðferð er ámælisverð og í andstöðu við þá grandvallarreglu að enginn teljist sekur fyiT en sekt hans hafi verið sönnuð," sagði Lúðvík m.a. Jafnframt spurði Þórunn Svein- bjarnardóttir, þingmaður Samfylk- ingar, hvort Útlendingaeftirlitið hefði tekið upp ný vinnubrögð við móttöku þeirra sem hér leituðu hælis af pólitískum ástæðum. „Og ef svo er, væri þá ekki rétt að hæstvirtur dómsmálaráðherra, greindi frá því í hverju hinar nýju reglur eru fólgnar?" Rétt á málum haldið Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra sagðist telja að rétt hefði verið á málum haldið af hálfu lög- reglunnar, erfitt hefði verið að dæma um sannleiksgildi frásagnar mannsins og að lögregla hefði vilj- að tryggja návist hans. Lagði hún ennfremur áherslu á að hér væri ekki um einfalt mál að ræða. Ekki væri sjálfgefíð að menn ættu rétt á pólitísku hæli á íslandi og sagði Sólveig að hér væri einnig um að ræða rannsókn á skipulögð- um, ólöglegum flutningi einstak- lings frá Tyi’klandi til Islands þar sem öllum brögðum hefði verið beitt. Það væri ekki sjálfgefið að ísland yrði móttökuland fyrir þá alþjóðlegu glæpahringi sem tækju að sér að smygla fólki frá vanþró- uðum ríkjum til hinna þróuðu. Innbrot í Breiðholti Yerðmætum á sjötta hundrað þúsunda stolið BROTIST var inn í hús í Breið- holti klukkan rúmlega 19 í gær. Að sögn lögreglunnar í Reykja- vík var farið inn um glugga með því að losa stormjárn á honum. Verðmætum á sjötta hundrað þúsund króna var stolið. Þar á meðal var tölva og skjár að verð- mæti 320-340 þúsund krónur, tvö myndbandstæki að verð- mæti 150 þúsund krónur og tveir gervihnattamóttakarar að verðmæti 70-80 þúsund krónur. Einnig var ferðatösku og hand- tösku, sem meðal annars inni- hélt vegabréf eins íbúans, stolið. Lögreglan í Reykjavík hefur málið í rannsókn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.