Morgunblaðið - 14.10.1999, Blaðsíða 74
MORGUNBLAÐIÐ
74 FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999
FÓLK í FRÉTTUM
Tónlistarveislan
að hefjast
MARGIR erlendir gestir úr útgáfu-
heiminum eru staddir hérlendis til
að vera viðstaddir tónlistarhátíð þar
sem framsæknum, íslenskum
hljómsveitum gefst tækifæri til að
y. kynna tónlist sína á heimavelli fyrir
stórlöxunum í útlöndum.
Tónlistarhátíðin, sem nefnist
Airwaves, hefst í kvöld með tónleik-
um á Gauki á Stöng og koma þar
fram hljómsveitimar Land og synir,
Maus, Dead Sea Apple, Bang Gang
og Mínus. Á föstudaginn verður
blaðamannafundur þar sem fulltrú-
ar hljómsveitanna svara spurning-
um blaðamanna frá innlendum og
erlendum fjölmiðlum. Á laugardag-
inn verða síðan stórtónleikar í Flug-
skýlinu þar sem erlendu sveitimar
Thievery Corpration, Soul Coughin,
Zoe auk Gus Gus, Ensími, Quarashi
og norðlensku sveitarinnar Toy
Machine koma fram.
Mjótt á mununum
Efnt var til útsláttarkeppni meðal
níu íslenskra hljómsveita á X-inu og
völdu hlustendur stöðvarinnar
sveitina Toy Machine til að troða
uppi á stóra sviðinu á laugardaginn.
„Það var mjótt á mununum á Toy
Machine og Maus og einnig voru
Quarashi og Ensími ofarlega,“ segir
Þossi dagskrárgerðarmaður á X-
inu. „Þeir á Akureyri hafa greini-
lega verið búnir að safna liði,“ held-
ur hann áfram hlæjandi. Keppnin
liófst síðastliðinn miðvikudag og níu
sveitir sem markaðsstjóri EMI,
Harry Poloner, valdi tóku þátt.
Þegar var búið að ákveða að Qu-
arashi og Ensími yrðu á tónleikun-
um í Flugskýlinu og því var til mik-
ils að vinna fyrir Toy Machine.
„Þetta er svipað og hér áður fyrr
þegar stríð var milli Duran Duran
og Wham um sæti á vinsældalistan-
um á Rás tvö, þá beittu aðdáendur
sveitanna öllum brögðum," segir
Þossi og hlær.
Eiga góðan stuðningshóp
Ami Eliott Swinford er annar
söngvari og plötusnúður Toy
Machine og var í sjöunda himni er
blaðamaður náði tali af honum. „Við
kunnum að koma okkur á framfæri,
þess vegna sigraðum við,“ segir
Árni. „Einhvern veginn verður
maður að bjarga sér. Við eigum
góðan stuðningshóp sem við
hringdum í og svo spurðist þetta út
um bæinn og nágrenni og þá fór
þetta að verða spennandi. Það vora
allir hangandi í símanum í gær,“
segir hann hlæjandi. „Við viljum
endilega koma á framfæri þakklæti
til allra sem sýndu okkur stuðning
og einnig Flugfélags Islands sem
hefur stutt dyggilega við bakið á
okkur.“
Toy Machine spilar jaðar rokk-
tónlist og hefur verið starfandi um
nokkurt skeið. „Við eram með lög-
fræðing á okkar snæram í Banda-
ríkjunum sem verður einmitt á
Ljósmynd/Anton Brink Hansen
Strákamir í Toy Machine eiga marga góða vini.
Quarashi varð fyrir valinu hjá EMI og treður upp á tónleikunum í
Flugskýlinu.
Airwaves-tónlistarhátíðinni og við
hlökkum mikið til að hitta hann.“
Möguleikar á samningum
Þorsteinn Stephensen og Baldur
Stefánsson sáu um undirbúning
tónlistarhátíðarinnar Airwaves.
„Við vonumst til að tónleikarnir eigi
eftir að stuðla að samskiptum og
samböndum milli þessara stóra út-
gáfufyrirtækja og íslenskra tónlist-
armanna,“ segir Þorsteinn. „Ef þeir
sjá eitthvað sem þeim líst á gæti vel
verið að gerðir yrðu einhverjir
Morgunblaðið/Kristinn
Það munaði mjóu að Maus ynni
í hlustendakönnuninni og kæm-
ist á sviðið í Flugskýlinu á laug-
ardag.
samningar." Hingað til lands era
komnir fulltrúai’ útgáfufyrirtækja
sem starfa við að uppgötva tónlist-
armenn og koma þeim á framfæri
og að sögn Þorsteins hafa þeir
kynnt sér íslenska tónlist að undan-
förnu og í kjölfarið ákveðið að koma
á hátíðina. „Það kom á óvart hvað
það var auðvelt að fá fyrirtækin til
að senda hingað mannskap sem
sýnir að áhuginn er fyrir hendi.
Björk og Gus Gus hafa ratt braut-
ina og komið Islandi á kortið. Verið
er að leita að tónlist sem er öðravísi
en þó seljanleg og við íslendingar
eigum kannski meiri möguleika á
þessu sviði en í poppinu."
Þorsteinn vonast til að hægt verði
að halda hátíðina árlega og skapa
þannig vettvang fyrir hljómsveitir
sem hyggja á frama utan föður-
landsins.
Hægt er að nálgast miða í Flug-
skýlið á laugardaginn á skrifstofum
Flugleiða í Kringlunni og á Laugar-
vegi.
Spunaparið Hjálmar
SAMAN!
Hillary fékkj
grínspil
Frakkaskelfrrinn
Eyjólfur
Sverris.son:
DRAUMA-
Hallur
ser: . ■ ~%r
p jSþ 1 ||
VW * V' g|
fTf-
1 a] 1 m J
3 2 Higher Creed ■
4 Open Your Eyes ttoanoApes
5 3 Moving Supergrass
» « Strengir Maus
7 13 Can t Change Me ChrisComeil
| 8 7 LearnToRy FooRghters
9 6 Zipiock Ut
10 20 Re-Arranged Limp Bizkit
11 24 We re In This TogetheruppsUmlS Nme toch NaBs
12 18 OutOl Control The Chemical Brothers
13 8 Welcome To The Fold FBter
14 - TheChemicalsBetweenUs“fiiís Bush
15 5 At The River Groove Armada
10 8 Afrika Shox Lettfield
17 - Muscle Nhiseum ll/tose
18 12 Flottur Sófi Stjömiddsi
19 10 Without You lm Nothing HraW“umn9 Piaceho & David Bowie
20 22 Come Oríginal 311
21 15 Hring Elflr Hring Tvihölði
22 17 Goddes 0n A Highway Mercury Rev
23 16 Forever Charlatens
24 23 Rhyflmt & Blues Afibí Gomez
25 - Aísha Death !n Vegas
26 19 Cowboy KidRock
27
28
28
38
21
NýBatterí
THe CliHd
Build It Up, Tear It Down
____.,.._r_ginn *
12 vikur a lista
SigurRós
AtexGopher
FatftoySftn
Orgy