Morgunblaðið - 14.10.1999, Síða 80
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI569IIOO, SÍMBRÉF569 U81, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Varla sást móta fyrir stóra sigkat.linum við Sólheimajökul í sumar en
ntí mælist hann 40-50 metra djtípur. Myndin er tekin í suður, ský eru
yfir skriðjöklinum Sólhcimajökli.
Fyrstu mælingar á Mýrdalsjökli
Sigkatlar 40-50
Bætt heilsa
aldraðra en
depurð meiri
Mikil
hækkun á
leigukvóta
LEIGUVERÐ á þorskkvóta hækk-
aði um 21,5% á síðasta fiskveiðiári
frá fiskveiðiárinu þar á undan, sam-
kvæmt samanburði Bjöms Jónsson-
ar, fulltrúa hjá LIU, á meðalverði á
leigukvóta sem Kvótamiðlun LIU
leigði fiskveiðiárið 1997/1998 og því
sem leigt var á Kvótaþingi Islands á
síðasta fiskveiðiári. Samanburður-
inn sýnir að leiguverð hefur hækkað
verulega á flestum tegundum, allt
upp í 164% á ýsu.
Samkvæmt samanbm'ðinum
lækkar leiguverð á rækju og loðnu
en þar náðist ekki að veiða kvóta
síðasta fiskveiðiárs. Leiguverð á sfld
lækkar einnig en það segir Björn
helgast af lægra afurðaverði íyrir
sfld. Hækkanir í öðrum tegundum
séu hinsvegar vemlega umfram
hækkanir á afurðaverði. Björn segir
að þegar leigu á kvóta sé beint í
gegnum einn markað, líkt og gert er
á Kvótaþingi, hafi leiguverðið til-
hneigingu til að hækka. Hann segir
þetta fyrirkomulag koma sérstak-
lega illa niður á einyrkjaútgerðun-
um.
■ 164% hækkun/26
-----------------
10-15 stiga hiti
VEÐURSPÁ landsins fyrir daginn
gerir ráð fyi'ir auknum hlýindum.
Sunnan- og suðaustanáttar gætir
um landið allt, nokkuð ber á rign-
ingu og súld, en hlýtt verður víða.
Samkvæmt veðurspá verður hiti á
landinu víða um 6-12 stig, nema á
miðhálendinu þar sem gert er ráð
fyrir að hitinn verði á bilinu 3-8 stig.
Á Norðurlandi eystra og Austur-
landi verður einna hlýjast, en þar
verður hiti á morgun um 10-15 stig
og þurrt að mestu.
metra
STÆRSTU sigkatlamir í Mýr-
dalsjökli era 40 til 50 metra djúpir og
flestir era tvöfalt stærri en þeir vora
áður en umbrotin hófust í Kötiu í
haust. Hefur þetta komið í ljós við úr-
vinnslu gagna úr fyrstu mælingum á
yfirborði Mýrdalsjökuls með nýrri
tækni sem fram fóra á fostudag. Sig-
katlarnir era fjórtán.
Mælingar á Mýrdalsjökli era gerð-
ar úr flugvél Flugmálastjórnar. Yfir-
borð jökulsins er mælt með flughæð-
arratsjá og samtímis er mæld stað-
setning vélarinnaiv með GPS-tæki.
Gögnin era skráð sjálfvirkt í tölvu og
út frá þeim má kortleggja yfirborðið.
Með því að endurtaka mælingarnar
er unnt að sjá breytingar.
Magnús Tumi Guðmundsson, jarð-
djúpir
eðlisfræðingur hjá Raunvísindastofn-
un Háskólans, segir að enn sé verið
að vinna úr gögnunum. Hann stað-
festir að innan Kötluöskjunnar og
með brún hennar séu fjórtán sigkatl-
ar, tólf greinilegir og tvær dældir
suðaustan í Goðabungu. Einnig hafi
sést vísbendingar um hugsanlegan
jarðhita á fleiri stöðum. Flestir eða
allir sigkatlamir era á þekktum sig-
stöðum en þeir hafa allir stækkað
veralega, margir tvöfalt miðað við
það sem var í sumar. Verið er að
teikna upp stærð og lögun katlanna
en Magnús Tumi segir að tveir þeir
stærstu, það er að segja sigketillinn
yfir Kötlu og ketillinn sem myndaðist
við Sólheimajökul í hræringunum í
sumar, séu 40 til 50 metra djúpir.
ALDRAÐIR á Norðurlöndunum,
Bretlandi og Bandaríkjunum eru
mun betur á sig komnir líkamlega og
andlega en jafnaldrar þeirra voru
fyrir 20-30 áram. Petta kom fram í
erindi Ólafs Ólafssonar, fyrrverandi
landlæknis og formanns Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni, á
ráðstefnu um ár aldraðra í gær.
Niðurstöður Ólafs byggjast á nið-
urstöðum íslenskra hjartaverndar-
rannsókna og samsvarandi rann-
sókna sem gerðar vora í Skandinav-
íu, Bretlandi og Bandaríkjunum. Þá
byggjast þær á mælingum á stöðu
hjarta-, æða- og lungnastarfsemi og
sýna þær að þar hefur orðið mikil
framför í aldurshópnum 60 til 70 ára
á sl. 20-30 árum.
Orsakir þess að aldurshópurinn nú
er í mun betra ástandi en sami ald-
urshópur fyrir 20-30 áram segir
Ólafur að megi meðal annars rekja
til bættra lífskjara. „Þá hefur mikið
dregið úr reykingum, mun fleiri
stunda líkamsrækt og matarvenjur
hafa orðið heppilegri en hins vegar
ber meira á streitu í þessum aldurs-
hógi nú,“ sagði Ólafur.
Ólafur benti hins vegar á að þrátt
fyrir bætta heilsu aldraðra væri dep-
urð og óyndi algengasti fylgikvilli
ellinnar. Það hefði meðal annars þau
áhrif að allt að helmingi fleiri væru á
hinum nýju geðdeyfðarlyfjum hér-
lendis en í nágrannalöndunum.
Fleiri á stofnunum
,Á öldranarstofnunum eru 7 af
hverjum 10 á slíkum lyfjum sem er
mun meira en gerist í þeim löndum.
Þetta er ekki skemmtileg staðreynd.
En hver er orsökin? Líklega era þær
nokkrar. Ein er sú að hlutfallslega
era mun fleiri á einhverskonar öldr-
unarstofnunum á Islandi en í fram-
angreindum löndum og getur það
verið upp í allt að þrisvar sinnum
fleiri.“
Ólafur benti á að fólki á öldranar-
stofnunum væri sinnt vel hérlendis
en eigi að síður skapaði óvirkni þess
óyndi og depurð. „Margir telja að
ástæður fyrir vistun á stofnunum
komi til af því að bætur Trygginga-
stofnunar séu allt að helmingi lægri
en í nágrannalöndunum og því kjósi
menn að hverfa inn á stofnanir frek-
ar hér en þar. Einnig kvarta menn
mjög um einsemd á öldranarstofn-
unum og ef til vill má rekja það að
einhverju leyti til þess að aðstand-
endur þeirra vinna 10-15 klukku-
stunda lengri vinnutíma á viku en
aðstandendur aldraðra á hinum
Norðurlöndunum og þar af leiðandi
hafi íslenskir aðstandendur minni
tíma til að heimsækja ættingja sína.“
Tillögur Félags eldri borgara til
að bæta þetta eru að sögn Ölafs að
stuðla að virkari ellidögum, m.a.
sveigjanlegum eftirlaunaaldri. I öðra
lagi að leiðréttar verði bætur al-
mannatrygginga og dregið verði úr
jaðarsköttum því að í ljós hafi komið
að grannlífeyrir sem hlutfall af
verkamannalaunum hafi stöðugt far-
ið lækkandi og tekjutryggingin bæti
það ekki upp. I þriðja lagi að óeðli-
legt sé að þeir sem hafi ávaxtað fé
sitt til elliái'a á annan hátt en með líf-
eyrissjóðsgreiðslum greiði einungis
um 10% í skatta en lífeyrissjóðaþeg-
ar 39%.
Rfkislögreglustj óri
til Reykjavíkur
STARFSEMI ríkislögreglustjóra
verður flutt til Reykjavíkur á næsta
ári, en selja á húsnæði embættisins
í Auðbrekku 6 í Kópavogi.
Flytja á starfsemi ríkislögreglu-
stjóra á Skúlagötu 21 í Reykjavík,
en tvær efstu hæðir hússins verða
teknar á leigu. Að sögn Þórhalls
Arasonar, skrifstofustjóra fjár-
málaráðuneytisins, var orðin þörf á
endurbótum húsnæðisins við Auð-
brekku. Hagkvæmara þótti hins
vegar að leigja en að fara út í
kostnaðarsamt viðhald. Ríkislög-
reglustjóri undirritaði leigusamn-
ing til 20 ára við byggingafélagið
Viðar hf. fyrir um mánuði. Leigðar
eru tvær efstu hæðir hússins, sam-
tals 1.500 fermetrar auk 300 í kjall-
ara. Áætlað er að byggingu hússins
verði lokið 1. febrúar á næsta ári.
Þórhallur segir stefnu stjóm-
valda nú vera að leigja húsnæði
fremur en kaupa.
Gæðamat á grænmeti
Verð og gæði haldast
ekki í hendur
í GÆÐAKÖNNUN á þremur
grænmetistegundum sem gerð var
í tíu verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu í síðustu viku kom í ljós að gæð-
in voru mest hjá Fjarðarkaupum og
Hagkaupi. Lægstu heildareinkunn
fær 11-11 verslunin. Gæði og verð
haldast ekki í hendur þar sem Ný-
kaup er með dýrasta grænmetið í
öllum flokkunum en í fímmta sæti
^if tíu þegar kemur að gæðum.
Það var starfsfólk Matvælarann-
sókna, Keldnaholti, sem fram-
kvæmdi gæðamatið að beiðni Neyt-
endasamtakanna og ASI-félaga á
höfuðborgarsvæðinu. Könnunin var
gerð á jöklasalati, tómötum og
paprikum og voru sýnishorn tekin
úr verslununum af handahófi. Met-
ið var útlit, bragð og safi grænmet-
isins og þeim eiginleikum gefnar
einkunnir.
■ Besta grænmetið/22
Stækkuð Kringla með 38 nýjum fyrirtækjum opnuð í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
j rmTfmr>'r~P
Opið til
níu í kvöld
UM tíu þúsund fermetra nýbygg-
ing verslunarmiðstöðvarinnar
Kringlunnar verður formlega tek-
in í notkun fyrir hádegi í dag.
Voru iðnaðarmenn og eigendur
íýrirtækjanna í nýja hluta Ki'ingl-
unnar á þönum 1 gær við að leggja
síðustu hönd á undirbtíningimi.
Með nýbyggingunni sameinast
undir eitt þak upprunalega Kringl-
an, Borgarkringlan og Borgarleik-
húsið, auk tengibyggingar milli
Kringlunnar og Borgarleikhúss-
ins, samtals yfir 60 þtísund fer-
metrar.
Fyrst í stað verða að minnsta
kosti 38 verslanir, veitingastaðir
og þjónustufyrirtæki í nýju bygg-
ingunni eða alls um 150 í Kringl-
unni allri. Fyrirtæki Kringiunnar
verða opnuð fyrir gesti kl. tíu í
dag og verður opið til kl. 21.
Fimmtán míntítum síðar hefst mik-
il flugeldasýning við Kringluna.
Afgreiðslutími verslana í Kringl-
unni verður frá kl. 10 til 21 á
morgun, föstudag, frá kl. 10 til 18
á laugardag og frá kl. 13 til 17 á
sunnudag. I tilefni af stækkun
Kringlunnar fylgir 56 síðna sérút-
gáfa með Morgunblaðinu í dag en
þar er m.a. fjallað um ný fyrirtæki
og verslanir Kringlunnar.