Morgunblaðið - 24.11.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.11.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR njótsdalsYÍrkjun [GrMUhlO Vígt vatn fær vottun Morgunblaðið/Arni Sæberg Vatnið í Gvendarbrunnum hefur fengið vottun samkvæmt alþjóðlegum staðli. VATNSVEITA Reykjavíkur hefur fengið vottað gæðakerfí skv. IST EN ISO 9001-staðIinum og fer af- hending vottorðsins fram nk. föstudag í Gvendarbrunnahúsi í Heiðmörk. Vatnið í Gvendarbunn- um var á sínum tíma vígt af Guð- mundi hinum góða. Vatnsveita Reykjavíkur var stofnuð árið 1907 og er því elsta veitufyrirtæki borgarinnar. Arið 1909 var búið að leggja fyrstu vatnsleiðsluna frá Elliðaánum til Reykjavíkur og sama ár var vatns- leiðsla frá Gvendarbrunnum í Heiðmörk til Reykjavíkur tekin í notkun. Vatnsveita Reykjavíkur á því90 ára afmæli í ár. Ástæðumar fyrir því að fyrir- tækið réðst í uppbyggingu á gæðakerfí skv. ISO 9001 em aðal- lega þijár: í fyrsta lagi var þetta gert fyrir hinn almenna viðskiptavin fyrir- tækisins. Vatnsveita Reykjavíkur vill veita nægu vatni til við- skiptavina, með góðri þjónustu- lund og öryggi bæði hvað varðar afhendingu vatnsins og gæði þess. f öðm lagi var þetta gert til þess að skerpa á skipulagi og verkferl- um hjá fyrirtækinu. í þriðja lagi var þetta gert til að styðja við bak- ið á Islenskum fyrirtækjum sem standa í útflutningi á matvælum. Vatnsveitan vill leggja sitt af mörkum til að tryggja að íslensk- ur útflutningur standi vel að vígi í hinni hörðu samkeppni erlendis, segir í fréttatilkynningu. Vatnsveita Reykjavíkur er fyrsta og eina borgarfyrirtækið með vottað gæðakerfí og eina vatnsveitan á Norðurlöndum með vottun skv. ISO 9001-staðlinum. Vottun hf. tók út gæðakerfí Vatns- veitu Reykjavíkur. Sjálfsákvördunarréttur aldraðra Heima o g á stofnunum Vilhjálmur Árnason MÁLÞING á veg- um Siðfræðist- ofnunar HÍ, Fé- lags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og Framkvæmdastj órnar árs aldraðra verður hald- ið í hátíðasal í aðalbygg- ingu Háskóla Islands föstudaginn 26. nóvem- ber nk. klukkan 14. Páll Skúlason mun opna mál- þingið. Þar verður til um- fjöllunar sjálfsákvörðun- arréttur aldraðra í íslensku samfélagi. Vil- hjálmur Árnason er for- maður stjórnar Siðfræði- stofnunar Háskóla Islands og heldur hann ásamt Ástríði Stefáns- dóttur dósent og lækni erindi á málþinginu sem þau kalla; Sjálfsákvörð- unarréttur aldraðra á stofnunum. Vilhjálmur var spurður hvort þetta erindi byggðist á nýjum rannsóknum. Já, fyrir þremur árum mynd- uðum við Ástríður og María Sig- urjónsdóttir geðlæknir rann- sóknarhóp um sjálfræði aldraðra. Markmið hópsins var að kanna sjálfræði aldraðra í ís- lensku samfélagi á gagnrýninn hátt og koma með tillögur tii úr- bóta ef ástæða væri til. Við feng- um til verksins styrk frá Fram- kvæmdasjóði aldraðra. Við skiptum rannsókninni upp í fjóra hluta, í fyrsta lagi greind- um við hvað fælist í sjálfræðis- hugtakinu og hvað gæti helst ógnað því með sérstöku tilliti til aldraðra. I öðru lagi könnuðum við lagalegt umhverfi aldraðra á Islandi og fórum yfir lög og reglugerðir sem þá varða. I þriðja lagi gerðum við úttekt á ýmsu opinberu efni sem varðar aðstæður aldraðra og veita upp: lýsingar um rannsóknarefnið. I fjórða og síðasta lagi útbjuggum við spurningalista sem voru lagðir fyrir vistmenn á nokkrum vistheimilum fyrir aldraða hér á landi. Einnig voru lagðar spurn- ingar fyrir starfsfólk á þeim sömu stofnunum. Við fengum einnig til verksins styrk frá Nýs- köpunarsjóði námsmanna, _en könnunina gerðu þær Olafía Ása Jóhannesdóttir og Kristín S. Kristjánsdóttir, sem báðar eru nýútskrifaðir hjúkrunarfræð- ingar. Þess má geta að Gallup á Islandi aðstoðaði við. gerð spurn- ingalista og úrvinnslu þeirra." - Hverjar eru niðurstöðurn- ar? „Niðurstöðurnar eru nýkomn- ar í hús ef svo má segja og í rauninni er öll raunveruleg vinnsla úr niðurstöðum könnun- arinnar eftir, en á málþinginu munum við Ástríður reifa allra fyrstu vísbendingar sem könn- unin veitir. Við munum taka dæmi sem gefa til kynna hvað áhrif vistmenn á umræddum stofnunum hafa á sitt nánasta umhverfi, hve miklu þeir ráða um hvers- dagslegar athafnir, t.d. hvenær þeir fara í bað o.s.frv., og um það hvort þeir hafi sjálfir tekið ákvörðun um að flytja inn á vistheimilið." - Hver erþín skoðun á hver á að vera sjálfsákvörðunarréttur aldraðra? „Mín skoðun er að samfélagið eigi að gera hverjum einstakl- ingi keift að vera þar sem hann sjálfur kýs svo lengi sem hann er um það fær. Samfélagið ætti að mínu mati að efla mjög aðstoð ► Vilhjálmur Árnason fæddist í Neskaupstað 1953. Hann lauk stúdentssprófí frá Menntaskól- anum að Laugarvatni 1973. BA- prófí í heimspeki og almennri bókmenntasögu lauk hann frá Háskóla íslands 1978 ásamt prófi til kennsluréttinda í þeim greinum. Doktorsprófi í heim- speki lauk Vilhjálmur frá Purd- ue-háskóla í Indianaríki í Bandaríkjunum árið 1982. Hann hefur starfað frá 1983 við Háskóla íslands og er þar nú prófessor í heimspeki. Vilhjálm- ur er kvæntur Onnu J. Briem kennara og eiga þau samtals fjögur börn. við aldrað fólk á heimilum sínum og við mættum gjarnan reyna að hugsa upp nýjar leiðir til þess að auðvelda fólki að vera heima ef það kýs það. Mér finnst einnig að við ættum að vera skapandi í því að móta hugmyndir um manneskjulegt umhverfi á vist- heimilum fyrir þá aldraða sem þurfa eða vilja búa á slíkum heimilum." - Hvað annað kemur fram á þessu málþingi? „Fimm aðilar halda erindi á þinginu fyrir utan okkur Ástríði. Margrét Sigurðardóttir við- skiptafræðingur talar um for- sendur sjálfsbjargarviðleitni aldraðra í íslensku samfélagi, ekki síst í fjárhagslegu tilliti. Gylfi Magnússon dósent flytur erindi sem hann kallar: Um ald- ursbindingu starfsloka og aldr- aða sem þiggjendur samfélags- legrar þjónustu". Sigríður Jónsdóttur yfirmaður Rann- sókna- og þróunarsviðs Félags- þjónustu Reykjavíkurborgar ætlar að fjalla um réttindi og réttleysi aldraðra kvenna. Þá mun Páll Hreinsson dósent kynna ný úrræði fyrir aldraða í lögræðislögunum, en þar ber hæst möguleikann á að fá sér skipaðan ráðsmann í fjármálum. Loks mun Helga Kress fjalla um þær hugmyndir um öldrun sem koma fram í bókmenntum. Hún mun ræða þau atriði sem bók- menntir tengja elli og öldrun og þann kynjamun sem í þessu má sjá. Málþing þetta er öllum opið og allir velkomnir. Þess má geta að framsögumenn munu ræða um efnið í pallborði eftir erindin og þá gefst áheyrendum kostur á að gera fyrirspurnir, fundar- stjóri er Kristín Þorsteinsdóttir fyrrverandi fréttamaður.11 Mættum hugsa upp nýjar leiðir!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.