Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 29 Kammersveit á Háskóla- tónleikum Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Norræna húsinu í dag, miðvikudag, kl. 12.30, leika félagar í Kammer- sveit Reykjavíkur, þær Rut Ing- ólfsdóttir og Sigurlaug Eðvalds- dóttir á fiðlu, Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu og Inga Rós Ingólfsdóttir á selló. Verkið sem þær flytja eni strengjakvartett III op. 64 - E1 Greco - eftir Jón Leifs. Þessi kvartett var eitt af síðustu verkum Jóns Leifs, saminn 1965. Það sumar hafði Jón setið tón- skáldaþing í Madríd og gert sér ferð til Toledo. Þar hreifst hann svo áf myndum spænska málarans E1 Grecos (1541-1614) að hann samdi verkið undir áhrifum þeirra og nefndi kaflana fimm efth- nokkrum myndanna. Kammersveit Reykjavíkur hélt nýlega tónleika í Bonn og var þetta verk Jóns þar á efnisskrá. Aðgangseyrir er 500 kr. Ókeypis fyrir handhafa stúdentaskírteina. ----- Mars í nóvember LÚÐRASVEIT Hafnarfjarðar heldur tónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði annað kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 20:30. Yfirskrift tón- leikanna er „Mars í nóvember“. Á efnisskránni eru m.a. kröftugir marsar í bland við suðræna sveiflu og hugljúfa tóna. Stjómandi lúðra- sveitarinnar er Stefán Ómar Jak- obsson. Aðgangseyrir á tónleikana er 500 krónur. ♦ ♦ ♦ Söngtextar Jónasar ÓSKALÖG landans, söngtextar Jónasar Amasonar úr leikritum, verður endurflutt í Kaffileikhúsinu í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 21. Það er Bjargræðistríóið sem flyt- ui- lögin. Hópinn skipa Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanó, Anna Sigríð- ur Helgadóttir söngur og Örn Arn- arsson gítar. Guitar Islancio: Björni Thor- oddsen, Gunnar Þórðarson og Jdn Rafnsson. Nýjar plötur • Guitar Islancio er fyrsta geislap- lata tríósins, sem skipað er Birni Thoroddsen gítarleikara, Gunnari Þórðarsyni gítarleikara og Jdni Rafnssyni kontrabassaleikara. Á plötunni er að finna þjóðlega ís- lenska tónlist, flest gömul þjóðlög en einnig nýtt lag eftir Björn Thor- oddsen og Vísur Vatnsendarósu eftir Jón Ásgeirsson. I fréttatilkynningu segir að Guit- ar Islancio spinni við laglínumar og færi þær í djassbúning. Einfald- ar, þjóðlegar laglínur fá á sig nú- tímalegan blæ og minna okkur á að fornar rætur íslenskrar menningar era lifandi hluti af íslensku nútíma- samfélagi. Guitar Islancio var stofnað í Reykjavík haustið 1998 af Birni Thoroddsen gítarleikara, Gunnari Þórðarsyni gítarleikara og Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara. Guitar Islaneio hefur ferðast víða, m.a Danmörk, Noreg og Sví- þjóð auk íslands. Á döfinni er tón- leikaför um Bandaríkin og Kanada. Útgefandi Polarfonia Classics. Dreifmg Japis. Bæklingurinn er prentaður á fjórum tungumálum. Upptökustjórn og hljóðblöndun var íhöndum Bjöms Thoroddsen. Verð2.099 kr. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Atriði úr leikritinu Að eilífu, sem Leikfélagið Grímnir í Stykkishdlmi sýnir um þessar mundir. Grímnir í Stykkishólmi frumsýnir „Að eilífu“ Stykkishólmi. Morgunblaðið. LEIKFÉLAGIÐ Grímnir í Stykkis- hdlmi hefur frumsýnt leikritið „Að eilíí'u" eftir Árna Ibsen. Æfingar hafa staðið yfír síðustu vikur. Sýn- ingin er Qölmenn og eru hlutverk- in 20 og eru leikendur og annar eins hdpur kemur að sýningunni. Aðalhlutverk eru í höndum Gunn- steins Sigurðssonar og Karínar Bæringsddttur. Leikritið Qallar um ungt par sem er ástfangið og ætlar að gift- ast. Foreldrar væntanlegra brúð- hjdna koma mikið við sögu og eins vinir. Þar segir frá undirbúningi brúðkaupsins og brúðkaupinu sjálfu. Það er fldkið mál að stofna til hjúskapar og þarf að mörgu að hyggja til að ekki illa fari og dug- ar það þd ekki alltaf til eins og fram kemur í ieikritinu. Leiksviðið er frábrugðið venju. Auk þess að nota sviðið er hluti áhorfendasvæðisins notaður sem leiksvið og er áhorfendur í nánu sambandi við leikara. Frumsýn- ingin gekk vel og var hin besta skemmtun. Leikmyndin og Ijds komu vel út. Leikarar stdðu sig með ágætum. Þama vom nokkrir leikarar að stiga sín fyrstu skref á leiksviði. Leikstjdri er Ingibjörg Bjöms- ddttir og er það þriðja verkið sem hún leikstýrir hjá Grímni. Ingi- björg er búsett í Stykkishölmi og er það mikill styrkur fyrir leikfé- lagið að fá hana til starfa. Sýningar á leikritinu verða að- eins sjö, fjdrar sýningar vom um helgina og síðustu sýningar verða á miðvikudags-, fimmtudags- og föstudagskvöld. Á föstudag- skvöldið verður boðið upp á skemmtipakka, sem inniheldur jdlahlaðborð hjá Foss-hóteli og leiksýningu á eftir og kostar hann 3.500 kr. Leikfélagið Grímnir var stofnað árið 1967 og hefur sett upp 35 leikrit á starfstímanum. For- maður leikfélagsins Grímnis í Stykkishólmi er Jóhann Ingi Hin- riksson. Lesið úr nýjum bókum HÖFUNDAR lesa úr nýjum bók- um á Súfistanum, bókakaffi í versl- un Máls og menningar, annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Andri Snær Magnason les úr bók sinni Sagan af bláa hnettinum. Stefán Máni les úr bók sinni Myrkravél og Didda les úr bók sinni Gullið í höfðinu. Einnig les Hjalti Rögnvaldsson leikari úr bók Barkar Gunnarssonar, Sama og síðast. Kökubox HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is ✓ I öllum stærðum og gerðum Verð frá 295 kr. 1 Harry potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur 2-3 Einar Benediktsson II/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn 2-3 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 4 Kular af degi/ Kristín Marja Baldursdóttir/ Mál og menning 5 I róti hugans/ Kay Redfield Jamison/ Mál og menning 6 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell 7 Vetrarferðin/ Ólafur Gunnarsson/ Mál og menning 8-9 Minningar geisju/ Arthur Golden/ Forlagið 8-9 Milljón steinar og Hrollur í dalnum/ Kristfn Helga Gunnarsdóttir/ Mál og menning 10 Líneik og Laufey/ Ragnheiður Gestsdóttir endursegir/ Mál og menning Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 Kular af degi/ Kristin Marja Baldursdóttir/ Mál og menning 2 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell 3 Vetrarferðin/ Ólafur Gunnarsson/ Mál og menning 4 Minningar geisju/ Arthur S. Golden/ Forlagið 5 Áður en þú sofnar/ Linn Ullmann/ Mál og menning 6 Sægreifi deyr/ Árni Bergmann/ Mál og menning 7-8 Lífsins tré/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning 7-8 Stúlka með fingur/ Þórunn Valdimarsdóttir/ Forlagið 9 Afródíta/ Isabel Allende/ Mál og menning 10-11 Hlaðhamar/ Björn Th. Björnsson/ Mál og menning 10-11 Parísarhjól/ Sigurður Pálsson/ Forlagið ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 Hugástir/ Steinunn Sigurðardóttir/ Mál og menning 2 Sálmabók íslensku kirkjunnar/ Lögin valdi Róbert A. Ottósson/ Skálholt 3 Mararbárur-Úrval 1946-1998/ Elías Mar/ Mál og menning 4-5 Hringferli/ Hallberg Hallmundsson/ Brú 4-5 Vasadiskó/ Jónas Þorbjarnarson/ Forlagið ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur 2 Milljón steinar og Hrollur í dalnurn/ Kristín Helga Gunnarsdóttir/ Mál og menning 3 Líneik og Laufey/ Ragnheiður Gestsdóttir endursegir/ Mál og menning 4 Úlfurinn og sjö kiðlingar/ Richard Scarry/ Björk 5 Ástarsaga úr fjöllunum/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell 6 Öxi/ Gary Poulsen/ Mál og menning 7 Ferðin á heimsenda/ Henning Mankell/ Mál og menning 8 Ríki guðs/ Geraldine McCaughrean/ Mál og menning 9-10 Dísa ijósálfur/ G. Th. Rotman/ Forlagið 9-10 Tarzan og Kala/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 í róti hugans/ Kay Redfield Jamison/ Mál og menning 2 Kortlagning hugans/ Rita Carter/ Mál og menning 3 Almanak Háskólans-ÁRIÐ 2000/ / Háskóli islands 4 Sjórán og siglingar/ Helgi Þorláksson/ Mál og menning 5 Skyggnst á bak við ský/ Svava Jakobsdóttir/ Forlagið 6-7 Hvað gengur fólki til?/ Sæunn Kjartansdóttir/ Mál og menning 6-7 Islandslag-Ymis tungumál/ Sigurður Steinþórsson og Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 8 Öld öfganna/ Eric Hobsbawm/ Mál og menning 9 Almanak Þjóðvinafélagsins-ÁRIÐ 2000/ / Hið íslenska þjóðvinafélag 10 Amazing iceland-Ýmis tungumál/ Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið ÆVISÖGUR OG ENDURMINNINGAR 1-2 Einar Benediktsson II/ Guðjón Friðríksson/ Iðunn 1-2 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 3 Einar Benediktsson I/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn 4 Sviptingar á sjávarslóð/ Höskuldur Skarphéðinsson/ Mál og menning 5 Steingrímur Hermannsson II/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Eymundsson, Kringlunni Penninn-Eymundsson, Austurstræti Penninn, Kringlunni Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókval, Akureyri KÁ, Selfossi l \if .£VY\ r\rrM\í- -ó Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka 15.-21. nóv. 1999 Unnið fyrir Morgunblaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.