Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 25 ERLENT Suður-Afríkuferð Görans Perssons vekur deilur Fylgdarlið forsætis- ráðherrans 700 manns Reuters Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Jacob Zuma, vara- forseti Suður-Afríku, slá á létta strengi í Höfðaborg. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FYRSTA ferð Göran Perssons, forsætisráðherra Svía, til Suður- Afríku, sem hófst um helgina og á að standa í viku, hefur vakið upp miklai- deilur heima fyrir. I fylgd- arliði hans eru 700 manns, emb- ættismenn, stjórnmálamenn, fólk úr viðskiptalífinu, íþi’óttamenn og listamenn. Ferðin kostar hið opin- bera 25 milljónir sænskra ki’óna, um 250 milljónir íslenskra ki'óna, og er hún kostuð af Sida, sænsku þróunarstofnuninni. Ferðin er farin til að vekja at- hygli á stórfelldu sænsku átaki til stuðnings við Suður-Afríku, en sænskir fjölmiðlar eru fullir af fréttum um atburði í ferðinni, sem mistakast vegna skipulagsleysis, auk þess sem mörgum þykir rangt að nota þróunarfé í kynningu af þessu tagi. Ferðin hefur verið í undirbúningi í tvö ár. Henni er ætlað að vekja almenna athygli á Svíþjóð, sem lengi hefur stutt dyggilega við Suður-Afríku, fyrst við jafnréttisbaráttu blökku- manna þar og síðan við uppbygg- ingu landsins. Þrátt fyrir langan undirbúningstíma var fulltrúum annarra stjómmálaflokka ekki boðið með fyrr en fyrir skömmu. Það var þróunarstofnunin sem átti að bjóða þeim með. Þeir afþökk- uðu allir nema fulltrúar Mið- flokksins sem eru með í ferðinni. I viðtali við sænska útvarpið benti talsmaður stjórnarinnai' á að þegar í vor hefði dagskráin legið fyrir. Enginn hefði þá gert at- hugasemdir, heldui- ekki stjórn- málaflokkamir, sem nú gagn- rýndu ferðina hver um annan þveran eftir að fjölmiðlar tóku málið upp. Þrír tónleikagestir í stað 25 þúsund Með í ferðinni era fjölmargir listamenn. Dagski'áin átti að hefj- ast á laugardaginn með stórtón- leikum með ýmsum sænskum listamönnum, þai' sem búist var við að kæmu um 25 þúsund manns. Aðeins þrír keyptu þó miða, þai' af tveir sænsldr ferða- mepn. Ástæðan virðist vera sú að Magnus Ericsson, sem átti að sjá um tónleikana og kynningu þeirra, hafði ekki fengið að vita að sama dag var haldinn fótboltaleik- ur ársins í landinu. Auk þess hafði verið áætlunin að hafa tónleikana ókeypis, en úr því varð ekki. Tón- leikar með sænskum stórstjöm- um eins og Doktor Alban og þeim Bjöm Ulvaeus og Benny Anders- son úr Abba gætu einnig farið á sama hátt, því miðarnir era dýrir og era ekki til sölu hjá þeim, sem venjulega selja slíka miða. I viðtali við Svenska Dagbladet bar Ericsson sig vel. Tónleikarnir hefðu bara snúist upp í að lista- mennimir spiluðu hver fyrir ann- an og allir verið ánægðir. Þegar blaðið bar það undir starfsmann sænska utanríkisráðuneytisins hvort ekki hefði verið vita að Er- icsson hefði á bakinu langan og skrautlegan gjaldþrotaferil kom í ljós að það vissi ráðuneytið ekki, en ef það hefði verið vitað, hefði kannski annar verið fenginn til tónleikahaldsins. Eftir þessa um- fjöllun hefur utanríkisráðuneytið sagt upp samningum við Ericsson. Greiðslan til Ericsson er hluti af þeim átta af 25 milljónunum, sem átti að verja til að kynna Svía, Sví- þjóð og heimsóknina í Suður-Afr- íku. Mestur hluti þess fjár rennur til auglýsingastofa og annarra, er séð hafa um skipulag einstakra liða. Rétt notkun þróunaríjár? Notkun þessara átta milljóna og yfirleitt að verja 25 milljónum af þróunarfé í þessa ferð hefur valdð gríðarlegar deilur heima fyrir. í viðtali við Svenska Dagbladet bendir Marianne Samuelsson, talsmaður Umhverf- isflokksins, á að þetta fé hefði dug- að sænsku Afganistannefndinni til að fjármagna 1,2 milljónir sjúkra- vitjana og bólusetningu fyrir 800 þúsund böm. Göran Persson hafði áður hafn- að allri gagnrýni en hefur sagt í viðtali við sænska fréttamenn í Suður-Afríku að ekki komi til greina að nota krónu af þróunarfé í verkefni, sem ekki geti talist til þróunarhjálpai-. Sjálfur lítur hann á ferðina sem mikilvæga undir- strikun þess hve Svíar láti sér annt um viðgang Suður-Afríku. Grunur um fjárdrátt á sænsku ESB-skrifstofunni Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FJÁRDRÁTTUR við skrifstofu framkvæmdastjómar Evrópu- sambandsins, ESB, í Stokkhólmi er nú í rannsókn eftir að sjónvar- psstöðin TV4 sagði nýlega frá und- arlegu bókhaldi skrifstofunnar. Við- brögðin í Brussel vora snögg, því strax daginn eftir útsendinguna komu þrír endurskoðendur frá ESB til Stokkhólms til að kanna málið. Framkvæmdastjórnin er nú að herða reglur um eftirlit með starf- seminni, en óljóst er hvemig tekið verður á sænska málinu, líka af því að það virðist ekki einsdæmi, heldur hluti af þögulu samkomulagi. Málið snýst um launagreiðslur, sem ekki vora gefnar upp til skatts og greiðslur til lausamanna, sem áttu að breiða yfir launakostnað. Dæmin era rakin allt aftur til 1995, en Svíar gengu í ESB 1. janúar það ár. Þegar málið komst upp sagði Linda Steneberg, sem lét af störf- um sem yfirmaður skrifstofunnar nú í sumar eftir að hafa verið þar frá 1995, að hún kannaðist ekki við neinar misfellur af þessu tagi. Eftirmaður hennar, Annette Matthias-Wemer, sagði hins vegar í sjónvarpsviðtali að hún hefði heyrt orðróm um misfellui'nar, en ekkert aðhafst. Þar með gæti verið að hún þyi'fti að gjalda fyrir aðgerðar- leysið, því frá því í júlí hafa starfs- menn verið skyldugir að tilkynna allan grun um slíkt til þeirrai' deild- ar ESB, sem tekur á slíkum málum. Þar sem hún hefur nú sagst hafa vitað um misfellur án þess að segja frá því hefur hún gefið á sér högg- stað, andstætt Steneberg, sem ekk- ert hefur látið uppi. Málið virðist líkjast öðrum mál- um, sem komið hafa upp hjá starfs- mönnum framkvæmdastjórnarinn- ar. Ekki er fyi'st og fremst um að ræða að starfsmenn hygli sjálfum sér, heldur komist hjá að fastráða starfsmenn, þar sem framkvæmda- stjórnin stendur gegn því. Enn er óljóst hvað gert verður, en ljóst af viðbrögðum fram- kvæmdastjórnarinnar að málið á að taka föstum tökum. Steneberg tók nýlega við nýju starfi hjá ESB sem yfirmaður allra útlendu skrifstofa framkvæmdastjórnarinnar. I Svenska Dagbladet er bent á að verði hún látin hætta eða lækkuð í tign sé í raun verið að refsa henni einni fyrir aðferðir, sem víða hafi viðgengist í ESB-kerfinu. Á næstunni verða reglur fram- kvæmdastjórnarinnar um starfs- mannahald og eftirlit hertar til að spyrna við að ný hneykslimál á borð við þetta og íleiri mál haldi áfram að sverta orðstír stjórnarinnar. Á Norðuriöndum, sem era fremur laus við stórhneyksli, eru mál af þessu tagi ekki til þess fallin að auka vinsældir ESB og hafa óbeint áhrif á afstöðu manna til deilumála eins og aðildar að Efnahags- og myntsambandi Evrópu, EMU. Mál- ið er því óþægilegt fyrir stjórnina og stuðningsmenn EMU. Reuters Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, umkringdur öryggisvörðum við innganginn í dóminn í Karachi, þar sem réttar- höldin yfir honum fara fram. Sharif leiddur fyrir rétt í Karachi Segir ásakan- irnar uppspuna Islamabad. AP, AFP. NAWAZ Sharif, fyrrverandi for- sætisráðherra Pakistans, sem vikið var frá völdum í valdaráni hersins í október, var á mánudag leiddur fyrir rétt í borginni Karachi vegna málsóknar herstjórnarinnar á hendur honum. Sharif hefur verið sakaður um landráð, fyrir að leggja á ráðin um morð, fyrir mannrán og flugrán. Honum er gefið að sök að hafa ætlað að ráða Musharraf hers- höfðingja og foringja valdaráns- manna af dögum sama dag og valdaránið var framið með því að meina flugvél sem hann var farþegi í um lendingarleyfi á flugvellinum í Karachi. Mjög lítið eldsneyti var eftir á flugvélinni þegar hermönn- um hliðhollum Musharraf tókst að ná flugvellinum á sitt vald og vélin gat lent. Fjöldi stuðningsmanna Sharifs var staddur fyrir utan dómshúsið þegar komið var með hann þangað og meira en 200 lögreglumenn gættu stóðu vörð við dómshúsið meðan Sharif svaraði spurningum saksóknara. Auknar öryggisráð- stafanir hafa verið gerðar víða í Pakistan eftir að sprengjur sprangu í heimabæ Sharifs á laug- ardag með þeim afleiðingum að átta manns létust. Hópur stuðn- ingsmanna forsætisráðherrans fyrrverandi hefur lýst ábyrgð á sprengingunni á hendur sér. Skorar á umheiminn að fylgjast með Sharif sagði við fréttamenn skömmu áður en hann var leiddur fyrir dómara að ásakanirnar væru uppspuni frá rótum og að verið væri að beita sig andlegum pynt- ingum. „Heimurinn mun sjá hversu innantómar ásakanirnar era,“ sagði Sharif. Hann skoraði einnig á leiðtoga ríkja heimsins að fylgjast með gangi réttarhaldanna og kvartaði undan því að hafa þurft að vera í einangrun frá því að hann var handtekinn. „Eg vil að mál mitt fái opna og réttláta meðferð." ■ty MARAZZI Flísar KNARRARVOGI 4 • « 568 6755 Saksóknarar í málinu hafa frest fram á föstudag til að leggja fram formlega ákæru á hendur Sharif. Þeir fóru fram á að dómari veitti þeim meiri tíma til að yfirheyra Sharif en hann hafnaði þeirri beiðni. Krefjast þess að hæstiréttur ógildi valdaránið Flokkur Sharifs, Bandalag mús- líma í Pakistan, hefur krafist þess að hæsti réttur landsins ógildi vald- arán hersins með þeim rökum að það hafi verið ólöglegt og brot á stjórnarskrá landsins. Musharraf hershöfðingi lýsti yfir neyðarástandi í Pakistan tveimur dögum eftir að valdai'ánið var framið og nam stjórnarskrá lands- ins úr gildi. Hann gaf einnig út til- skipun þess efnis að dómstólar landsins gætu ekki höfðað mál gegn sér. Gott hiilukerfi tryggir hámarks nýtingu á plássi hvort sem er í bílskúr eða vörugeymslu. Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi sem henta þínum þörfum. Mjög gott verð! Lyftitaeki og trillur færðu einnig hjá okkur. Lagerlausnir eru okkar sérgrein - gæði fyrir gott verð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.