Morgunblaðið - 24.11.1999, Síða 22

Morgunblaðið - 24.11.1999, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Vinnslustöðin hefur slitið viðræðum um sameiningu við isfélagið, Ósland og Krossanes Hagsmunum best borgið með áfram- haldandi rekstri VINNSLUSTOÐIN hf. í Vest- mannaeyjum hefur slitið viðræðum um sameiningu fjögurra sjávarút- vegsfyrirtækja, sem orðið hefði eitt stærsta fyrirtæki í sjávarútvegi hér á landi. Geir Magnússon, formaður stjórnar Vinnslustöðvarinnar, segir að meðal þess sem áhrif hafi haft á þessa ákvörðun séu slæmar horfur í loðnuveiðum, en hið sameinaða fyrh-tæki, sem orðið hefði mjög einsleitt í uppsjávarveiðum, hefði farið illa út úr því til að byrja með. „Það hefði þá einfaldlega þýtt taprekstur og skuldauppsöfnun. Við teljum að miðað við þær að- gerðir sem við höfum gripið til ætti Vinnslustöðin að geta framleitt peninga til að standa undir lánum og vel það,“ sagði Geir. Ráðstafanir skilað árangri og styrkt stöðuna Verðbréfaþingi Islands barst í gærmorgun tilkynning um að stjóm Vinnslustöðvarinnar hf. hefði ákveðið að slíta viðræðum um sameiningu Vinnslustöðvarinnar, ísfélags Vestmannaeyja hf., Kross- aness hf. á Akureyri og Óslands ehf. á Höfn í Hornafirði. Viðræður um sameiningu fyrirtækjanna fjög- urra hófust síðastliðið sumai' og í lok ágúst var undirrituð viljayfir- lýsing um að stefnt skyldi að því að ganga frá formlegri áætlun um samruna fyrir miðjan október síð- astliðinn. f tilkynningunni til VÞÍ segir að stjóm Vinnslustöðvarinnar hafi fjallað ítarlega um málið undan- farnar vikur og komist að þeirri niðurstöðu að hagsmunum félags- ins og hluthafa þess sé best borgið með því að reka fyrirtækið áfram. Þessa ákvörðun beri ekki síst að skoða í ljósi þess að stjórn og stjómendur Vinnslustöðvarinnar gerðu umfangsmiklar ráðstafanir fyrr á þessu ári til að bregðast við gríðarmiklu rekstrartapi og sumar þeirra hafi verið afar erfiðar og sár- saukafullar fyrir starfsmenn fyrir- tækisins. Þessar ráðstafanir hafi tvímælalaust skilað árangri og styrkt stöðu fyrirtækisins. 851 milljónar króna tap varð af rekstri Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum á síðastliðnu rekstrarári félagsins, sem var frá 1. september 1998 til 31. ágúst 1999. Þar af var tap af reglulegri starf- semi fyrir skatta 610 milljónir króna. Vergur hagnaður fór úr 433 milljónum króna í fyrra í 105 mil- ljónir króna í ár. Þegar stjóm og stjómendur Vinnslustöðvarinnar sáu á fyrri hluta rekstrarársins að stefndi í um 600 milljóna króna tap- rekstur var gripið til þess að loka þeim deildum félagsins sem mestur taprekstur var á og leggja áherslu á þá rekstrarþætti sem skilað höfðu góðri afkomu. Þannig var land- frysting félagsins að mestu leyti lögð af síðastliðið sumar. Geir Magnússon sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að nettósk- uldir hins sameinaða fyrirtækis hefðu orðið um 5,8 milljarðar króna, en þar af em nettóskuldir Vinnslustöðvarinnar þrír milljarð- ar. „Við eram að vonast til að geta minnkað efnahagsreikninginn, en það eru komnar söluhorfur á Guldrang sem við eigum í Færeyj- um og það myndi létta stöðuna eitt- hvað á þriðja hundrað milljónir króna. Þá verða seld hlutabréf og ýmsar eignir sem ekki era nauð- synlegar til rekstrarins, og það verður stefnt að því að reyna að ná fram arðbæram rekstri og borga niður skuldir á næstu árum. Þetta var okkar niðurstaða, en hvort ein- hver hefur áhuga á að taka þetta mál upp aftur af hálfu Vinnslu- stöðvarinnar eða annarra, þá held ég að það sé ekki tímabært og við ákváðum að eiga ekki í slíkum við- ræðum á næstunni. Við eram ekki í viðræðum við neinn um sameiningu og stjómin ákvað það sérstaklega að vera það ekki,“ sagði Geir. Hann sagði að reynt hefði verið að verja landvinnslu Vinnslu- stöðvarinnar eftir fremsta megni, en afkomutölurnar á síðasta ári hefðu þýtt að ekki var um annað að ræða en að leggja landfrystinguna af. Þar með hefði starfsfólki Vinnslustöðvarinnar fækkað um 50%, eða úr tæplega 300 í 150. Geir sagði að þetta hefði verið erfiðasti þátturinn í þeim aðgerðum sem grípa þurfti tíl, og þótt af samein- ingu fyrirtækjanna fjögurra hefði orðið hefði það ekki skapað fleiri störf. Afkoma ísfélagsins ekki ástæða þess að viðræðunum var slitið Sigurður Einarsson, forstjóri Is- félags Vestmannaeyja, sagði að ákvörðun stjómar Vinnslustöðvar- innar væri sér vonbrigði en stefnt hefði í þetta upp á síðkastið. Hann sagðist ekki vita hvað hefði breyst, en sennilega hefði Vinnslustöðin ekki lagt í sameininguna þegar til hefði átt að taka. Hann sagði ekk- ert liggja fyrir um það á þessari stundu að Isfélagið færi í samein- ingarviðræður við önnur fyrirtæki. Ekki í viðræðum vlð neina aðra Geir Magnússon sagði að af- komutölur Isfélagsins fyrir síðasta rekstrarár hefðu ekki haft áhrif á ákvörðun stjórnar Vinnslustöðvar- innar um að slíta sameiningarvið- ræðunum, og Sigurður sagði að þegar tölurnar hefðu legið fyrir hefði það ekki breytt neinu um áætlaðan eignarhlut í sameinuðu fyrirtæki. „Við vorum búnir að áætla hver eignarprósentan yrði og þegar upp var staðið reyndist hún vera svipuð. Að vísu versnaði staðan hjá Vinnslustöðinni en hún versnaði líka hlutfallslega hjá okkur,“ sagði Sigurður. Verða að treysta því að aflaheim- ildirnar fari ekki frá Eyjum Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sagði að það hefði orðið mikill styrkur fyiir at- vinnulífið í Vestmannaeyjum ef af sameiningu fyrirtækjanna fjögurra hefði orðið og hann hefði viljað sjá eitt öflugt fyrirtæki. „Ef hins vegar stjórn Vinnslu- stöðvarinnar ætlar að halda sínu striki og vera með vinnsluna hér í Eyjum og ekkert af afiaheimildun- um fer er það út af fyrir sig mjög gott mál. Maður verður að trysta á að svo verði því allt annað er mjög dapurt fyrir eyjarnar," sagði Guð- jón. Skinnaiðnaður hf. Úr ársreikningi 1. sept. 1998-31. ág. 1999 1/9/98-31/8/99 1/9/97-31/8/98 Rekstrarreikningur 98/99 97/98 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 381,8 778,5 -51% Rekstraraiöld 482.5 821.8 -41% Rekstrartap -100,7 -43,3 +133% Fjármagnsliðir -24,9 -25,0 ~ Tap af reqlul. starfsemi -125,7 -68,3 +84% Reiknaðir skattar -2,2 17,8 - Aðrar tekjur og gjöld -6,5 -99,0 -93% Hagn. (tap) reikningsársins -134,4 -149,5 -10% Efnahagsreikningur 30.08.'99 31.08/98 Breyting 1 Eignir: | Fastafjármunir MWjípf/któnaa 190,8 202,6 -6% Veltufjármunir 508,9 505,0 +1% Eignir samtals 699,5 707,6 -1% | Skuldir og eigið fé: i Eigið fé 69,5 199,0 Skammtímaskuldir 260,7 111,7 Langtímaskuldir 369,5 396,9 Skuldir og eigið fé samtals 699,7 707,6 Kennitölur Eiginfjárhlutfall 9,9% 28,1% Veltufjárhlutfall 1,38 1,27 Veltufétil rekstrar Milljónir króna -97,4 -134,3 -27% Morgunveröarfimdur á Hótel Sögu ■ Fimmtudaginn 25. nóvember 1999, kl. 8:00 - 9:30 í Sunnusal Hótels Sögu SEÐLABANKINN GEGN VERÐBÓLGU Haustskýrsla Seölabankans kynnt • Er veröbólguhættan raunveruleg? • Hvaö er hægt að hækka vexti mikið? • Getur gengiö hækkað frekar? • Áhrif aðgerða Seðlabankans á atvinnulífið? • Er mjúk lending möguleg? FRAMSÖGUMENN: ___________________________________ Birgir ísleifur Gunnarsson, bankastjóri Seðlabankans Einar Benediktsson, forstjóri Olíuverzlunar íslands Óli Bjöm Kárason, ritstjóri DV Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.500,- Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er aö tilkynna þátttöku fyrirfram í sima 510 7100 eða bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is. VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS Tap Skinnaiðn- aðar 134,4 millj. SKINNAIÐNAÐUR hf. var rek- inn með 134,4 milljóna króna tapi á liðnu rekstrarári. Þar af nam tap af reglulegri starfsemi 125,7 milljón- um króna en að auki voru birgðir færðar niður um 8,7 milljónir króna til að mæta verðlækkunum sem átt hafa sér stað á helstu mörkuðum fyrir fullunnin mokka- skinn. Rekstrartapið á seinni hluta rekstrarársins var mun minna en á fyrri hluta þess og vonir standa til að reksturinn á nýhöfnu rekstrar- ári verði mun betri, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fé- laginu. Rekstrarárið 1997-1998 nam rekstrartapið 149,5 milljónum króna. Fjárfestar, sem hyggjast koma upp nýrri verslunarmiðstöð að Dalsbraut 1 á Akureyri, settu fyrir nokkru fram tilboð um kaup á hluta af fasteignum Skinnaiðnaðar hf. á Gleráreyrum, þar á meðal á aðalverksmiðjuhúsi félagsins. Stefnt er að ljúka gerð samninga á næstu dögum. Samningar hafa náðst um leigu á svonefndu Foldu- húsi og mun Skinnaiðnaður hf. flytja starfsemi sína þangað. Sam- hliða flutningnum verður unnið að enn frekari hagræðingu í rekstri félagsins. Hagnaður af fyrirhugaðri sölu ofangreindra fasteigna kemur fram í uppgjöri næsta rekstrarárs. „Þetta hefur að flestu leyti verið afleitt rekstrarár þó svo að seinni hluti þess hafi verið skárri en sá fyrri. Það era þó ýmis batamerki sjáanleg. Til dæmis er mun meiri hreyfing á helstu mörkuðum okkar en áður og viðtökur á nýjum mörk- uðum, svo sem í Kína, hafa verið jákvæðar. Það eru því teikn á lofti um að greinin sé að rétta úr kútn- um eftir langt erfiðleikatímabil," segir Bjarni Jónasson, fram- kvæmdastjóri Skinnaiðnaðar hf. Hann segir að félaginu hafi með margþættum aðgerðum tekist að lækka framleiðslukostnaðinn en engu að síður sé það staðreynd að afkoma félagsins ráðist að veru- legu leyti af því hversu mikið magn fullunninna afurða seljist. „Á liðnu rekstrarári var magn seldra afurða hið minnsta í a.m.k. 15 ár. Ljóst er að nýhafið rekstrarár verður mun betra hvað það varðar. Við sjáum því fram á betri tíð á nýhöfnu rekstrarári og vonumst til að reksturinn verði mun betri. Hvort okkur tekst að skila hallalausum rekstri þegar litið er til reglulegrar starfsemi, treysti ég mér hins veg- ar ekki til að segja til um á þessari stundu,“ segir Bjarni. Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. verður haldinn fimmtudaginn 16. desember nk. Stjóm félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður vegna ársins. I I I I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.