Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 33

Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 33
32 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 33- pltirjpmMiíMt* STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. UMF AN GSMIKIL TRYGGINGASYIK TRYGGINGASVIK virðast vera ótrúlega mikil hér á landi ef marka má niðurstöður starfshóps á vegum Sambands íslenzkra tryggingafélaga. Starfshópurinn fékk það verkefni að meta umfang vátryggingasvika og voru niðurstöður birtar í skýrslu um vátryggingasvik á Norðurlöndum. Vinnan við þá skýrslugerð hófst árið 1998 á vegum norrænu vátrygginga- samtakanna og starfaði vinnuhópur í hverju landanna fimm, auk sameiginlegs vinnuhóps fyrir verkefnið í heild. Niðurstaða íslenzka hópsins er sú, að heildarkostnaður hér á landi vegna vátryggingasvika geti numið á bilinu 500-1.000 milljónum króna á ári. Það er um 5-10% af bótagreiðslum tryggingafélaganna. Aætlað er, að bróðurparturinn, eða um 60%, sé til kominn vegna tryggingasvika í tengslum við trygg- ingar á ökutækjum. Samkvæmt skýrslunni fyrir Norðurlöndin í heild er áætlað, að bótagreiðslur norrænu tryggingafélag- anna nemi um 10% umfram það, sem réttmætt er. I kjölfar skýrslunnar hafa íslenzku tryggingafélögin ákveð- ið að efla enn frekar eftirlitsþátt sinn og skráningu í þeim til- gangi að draga úr tryggingasvikum. Það eru eðlileg viðbrögð. Skýrslan bendir til þess, að svikin séu umfangsmeiri en flestir hafa sjálfsagt gert sér í hugarlund. Við svo búið má ekki standa og nægir að vísa þar til eftirfarandi ummæla í tilkynn- ingu SÍT: „A vátryggingafélögunum hvílir siðferðileg skylda að draga úr vátryggingasvikum með öllum tiltækum og löglegum að- ferðum, þar sem augljóst er, að kostnaður vegna vátrygginga- svikanna lendir að endingu á hinum heiðarlega í formi hærri iðgjalda en ella.“ Þetta er að sjálfsögðu mergurinn málsins. Það er illþolandi, að viðskiptamenn tryggingafélaganna beri allt að því milljarð króna í óþarfa iðgjöldum á ári hverju. Abyrgð tryggingafélaganna í þessum efnum er að sjálfsögðu mikil og eðlilegt er, að þau grípi til ráðstafana til að draga úr svikunum. Þær ráðstafanir mega þó ekki bitna á heiðarlegum viðskiptavinum. Félögin eiga einnig að líta í eigin barm og skoða t.d., hvort þeirra eigin vinnubrögð og stirfni við að bæta tjón kalli fram óeðlileg viðbrögð. Eru ákvæði í trygginga- samningum nægilega einföld og skýr og reglur þær, sem fé- lögin vinna samkvæmt? Hagsmunir tryggingafélaganna og viðskiptamanna fara saman. Jákvæð samskipti þeirra munu draga úr freistingu til svika. HÁSKÓLI OG TUNGA STAÐA tungunnar er mun sterkari um þessi aldamót en hin síðustu,“ sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra á málræktarþingi sem haldið var um helgina. Vafalaust efast enginn um sannleiksgildi þessara orða enda var staða íslensk- unnar ekki mjög sterk um síðustu aldamót vegna danskra áhrifa sem meðal annars stafaði af því að Islendingar sóttu enn menntun sína til Danmerkur. Síðastliðna áratugi hefur hins vegar verið unnið mikið mál- ræktarstarf, eins og ráðherra benti á, sem endurspeglast meðal annars í gróskumiklu íðorðastarfi og blómlegri bóka-, blaða- og tímaritaútgáfu, starfsemi orðanefnda og íslenskrar málstöðvar. Vitundin um mikilvægi þess að viðhalda tungunni og efla hana fyrir sjálfstæði og sjálfsmynd þjóðarinnar hefur tvímælalaust aukist eins og dagur íslenskrar tungu er tákn- rænn um. Eigi að síður er víða pottur brotinn líkt og ráðherra benti á. Ahyggjur flestra hérlendis sem víða annarsstaðar tengjast sífellt aukinni sókn enskrar tungu og hrakandi mál- vitund. Enskan virðist sækja á víða í þjóðfélaginu. Háskóli ís- lands hefur sennilega átt einn mestan þátt í eflingu tungunnar á öldinni en svo virðist sem vægi íslenskunnar sé að minnka þar eins og fram kom í máli Kristjáns Arnasonar, prófessors í íslensku og formanns Islenskrar málnefndar, á málræktar- þinginu. Kristján benti á að sífellt fleiri námskeið væru haldin á ensku í Háskóla íslands. Taldi hann að alþjóðahyggja og markaðssjónarmið hafí minnkað vægi íslenskunnar og ís- lenskra fræða innan stofnunarinnar. Þannig hafi íslensk fræði lengi verið þungamiðjan í heimspekideild en nú aukist nem- endafjöldi í almennum og erlendum greinum hennar mun hraðar. Þarf að mati Kristjáns að sporna við þessari þróun ef íslenska og íslensk fræði eiga að halda velli innan Háskólans. Aukin alþjóðavæðing, hnattvæðing og sífellt meiri út- breiðsla og áhrif bandarísks menningariðnaðar gefur til kynna að það muni verða æ erfiðara að halda í sérkenni eins og íslenska tungu og menningu. Háskóli íslands þarf vitan- lega að vera þátttakandi í því alþjóðlega samfélagi sem hann og þjóðin eru hluti af en hann verður einnig að standa vörð um sérkenni sín og þjóðarinnar sem felast fyrst og fremst í ís- lenskri tungu og menningu, rækt þeirra og eflingu. 4 MORGUNBLAÐIÐ Umræður um arðsemi virkjana og beina eignaraðild Islendinga í stóriðju á ráðstefnu TFÍ og VFÍ Arðsemi og áhætta eru ráðandi þættir Arðsemi virkjana og bein eignaraðild Islendinga í stóriðju var umfiöllunarefni —— 7 ráðstefnu Tæknifræðingafélags Islands og Verkfræðingafélags Islands sem haldin var í gær. Ragna Sara Jónsdóttir sat ráðstefnuna þar sem lífiegar umræður spunnust um áhættu við fjárfestingu í stóriðju, verðlagningu umhverfisþátta og hagkvæmni orkusölu til stóriðju. Morgunblaðið/Ásdís Fjörugar umræður urðu um arðsemi virkjana og þátttöku Islendinga í stóriðju á ráðstefnu TFÍ og VFÍ í gær. Yerkfræðingafélag íslands og Tæknifræðinga- félag íslands vildu með ráð- stefnunni stuðla að upplýstri umræðu um arðsemi virkjana og þátt- töku Islendinga í stóriðju. Hákon Ólafsson, formaður VFÍ, sagði í setn- ingarræðu sinni að umræðan sem átt hefði sér stað um virkjanir og stóriðju undanfarið hefði að mestu leyti snúist um náttúruvernd. Minna hefði verið rætt um áhættu við þátttöku fjárfesta í stóriðju, hagnað af orkusölunni fyrir Landsvirkjun og þjóðhagslegan arð fyrir þjóðarbúið af slíkum fjárfesting- um. Hákon benti á að ísland væri í samkeppni við aðrar þjóðir um að laða að sér fyrirtæki sem vildu fjárfesta í stóriðju. Nauðsynlegt væri að bjóða vel, en ekki mætti bjóða of vel, arður yrði að hljótast af stóriðjufram- kvæmdum og þær yrðu að vera hag- kvæmar fyrir þjóðarbúið. Þorgeir Örlygsson, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu, flutti ávarp í fjarveru Finns Ingólfssonar, iðnaðar- ráðherra, og sagði að það skipti meg- inmáli að komast að niðurstöðu um það hvort þjóðin væri betur sett með stóriðju eða án hennar. „I iðnaðar- ráðuneytinu höfum við haldið á lofti þeirri skoðun að þjóðin sé betur sett með stóriðju en án hennar,“ sagði Þor- geir. Elías B. Elíasson, verkfræðingur hjá Landsvirkjun, gerði grein fyrir því hvernig Landsvirkjun metur arðsemi virkjana til stóriðju. Hann sagði að undanfarið hefði verið skrifað um arð af virkjunum í blöð og þá hefði mikið verið lagt í að skýra hvaða vexti Landsvirkjun notaði í því samhengi. Menn hefðu ekki verið sammála um það hver lágmarksarðsemin ætti að vera, en fyrir nokki-um árum hefði Þjóðhagsstofnun sagt að eðlilegt væri að krefjast 3-4% arðs af eigin fé til Landsvirkjunar. I greinarskrifum undanfarið hefði þessi tala þó verið metin margfalt hærri. Arðsemiskrafa opinberra fyrirtækja Iægri Elías sagði að misjafnt væri hvaða arðsemiskröfur væru gerðar til fyrir- tækja, það færi til dæmis eftir því hvort fyrirtækið væri opinbert eða einkafyrirtæki. Hann vildi ekki gefa upp hver arðsemiskrafa Landsvirkj- unar til orkusölu til stóriðju væri en tók dæmi um ákvörðun arðsemiskröfu hjá opinberu íyrirtæki og einkafyrir- tæki. I dæminu kom fram að opinbera íyrirtækið þyrfti að fá töluvert minni meðalarðsemi af sínum fjárfestingum en einkafyrirtækið þar sem það væri að fá lán með lægri grunnvöxtum, væri með minna áhættuálag og lægri lánsvexti. Ai'ður af eigin fé var jafn- ft-amt lægri og hlutfall eiginfjár lægra. Egill B. Hreinsson, prófessor við verkfræðideild Háskóla Islands, sagði að hagkvæmara væri að ráðstafa orku hverrar stórvh'kjunar bæði til stóriðju og almenns markaðar, fremur en ein- göngu til stói'iðju. Hingað til hefði Landsvirkjun miðað vel við að hafa það sjónarmið að leiðarljósi, til dæmis hefðu bæði Búrfellsvirkjun og Sig- ölduvirkjun verið byggðar með sölu til almenns markaðar og stóriðju í huga. Nú væri hins vegar fyrirhugað að ráð- stafa alh-i orku Fljótsdalsvirkjunar til álvers á Reyðarfirði og það væri óhag- kvæmara. Hann sagði að Fljótsdalsvirkjun væri það lítil að hagkvæmni stærðar- innar væri ekki nýtt. Því væri nauð- synlegt að tryggja hagkvæmni hennar með stækkun í nánustu framtíð. Á þessu væri þó sá galli að virkjanaleyfi Alþingis væri aðeins til staðar fyrir til- tekna stærð Fljótsdalsvirkjunar. „Það er heppilegra að virkja stærra í Fljótsdal, þá er verið að nýta hag- kvæmni stærðarinnar. Afmennur markaður nýtur góðs af því og verð lækkar til stóriðju," sagði Egill. Tímasetning stóriðju- framkvæmda skiptir máli Dr. Páll Harðarson, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, sagði að stóriðja hefði aukið hagsæld þjóðarinnar á tímabilinu 1966-1997. Hún hefði skilað sem nemur um 0,5% aukningu í þjóð- arframleiðslu á hverjum tíma. Hann sagði að efnahagsástand á þeim tíma sem ráðist væri í stóriðjuframkvæmd- ir myndi ráða úrslitum um það hvort stóriðja muni bæta hag landsmanna og hver áhrif hennar yrðu á þjóðarbú- skapinn. Þar sem enginn slaki væri á hagkerfinu nú mætti ekki reikna með sömu áhrifum stóriðjuframkvæmda og verið hefðu í efnahagslægðum. „Gróflega áætlað ylli 120 þúsund tonna álver um 0,5% varanlegri hækk- un þjóðarframleiðslu ef reiknað er með fullum fórnarkostnaði fram- leiðsluþáttanna, það er um 3-4 millj- arða króna hækkun þjóðarframleiðslu miðað við núverandi verðlag. Hér á þó eftir að taka til greina allan um- hverfiskostnað vegna stóriðju- og virkjanaframkvæmda. Hann verður að taka til greina áður en ávinningur þjóðarinnar er metinn," sagði Páll. I öðrum hluta ráðstefnunnar var fjallað um beina eignaraðild Islend- inga í stóriðju og hversu hagkvæmt og áhættusamt það væri. Steinþór Páls- son, viðskiptafræðingur hjá Islands- banka, gerði grein fyrir undirbúningi að stofnun álfyrirtækis sem kannar forsendur fyrir þátttöku íslenskra fjárfesta í álveri í Reyðarfirði. Félagið Hæfi hf., sem stofnað var á haustmán- uðum, vinnur nú að því að kanna hvort álver sé álitlegur fjárfestingarkostur. Hann sagði að svarið lægi ekki fyrir en athuganir í sumar hafi gefið tilefni til að rannsaka þyrfti og þróa málin nánar. ,Ákvörðun um að ráðast í byggingu álvers mun væntanlega eingöngu verða tekin ef svarið við spurningunni verðui' jákvætt. Verkið er enn í vinnslu og þeir samningar sem eftir er að gera munu varpa skýrara ljósi á arðsemi og áhættu og hvort líklegt verði að fjármögnun fáist til verkefnis- ins,“ sagði Steinþór. Hann benti á að verðþróun á áli hefði mjög mikil áhrif á arðsemi álversins og áhættu við að fjárfesta í því. Verðbreytingar á áli væru mun tíðari en verðbreytingar á fiski og því væri áhættan meiri hvað varðaði álverð en fiskverð. Áhættumatið þarf að vera kaldhamrað Jón Sigurðsson, fyrrverandi for- stjóri Járnblendifélagsins, rakti reynsiu Islendinga af þátttöku í stór- iðju. I máli hans kom fram að fjárfest- ing í slíkum stórrekstri sem komin væri upp á heimsmarkaðinn yrði alltaf áhættusöm. Tók hann dæmi af hremmingum járnblendiverksmiðj- unnar sem áttu sér stað undir lok ní- unda áratugarins. „Áhættumatið þarf því að vera kaldhamrað og miðast við hverju menn hafa efni á að hætta og tapa, fari allt á versta veg,“ sagði Jón. Jón sagðist halda að fyrst Norsk ^ Hydro vildi eingöngu eiga 20-25% hlut í álverinu myndu þeir leggja sáralítið ef nokkurt fé fram. Samstarf við er- lendan aðila sem hætti litlum eða eng- um fjármunum skorti það að sameig- inlegir hagsmunir væru í húfi, og væri þar af leiðandi varasamara en ef geng- ið væri til samstarfs við erlendan aðila sem hætti verulegum eigin fjármun- um í fyrirtækið. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, sagðist ekki sjá nein haldbær rök sem bentu til þess að fyrstu tveir áfangar álvers í Reyðar- firði væru ekki viðráðanlegir fyrir innlendan fjármagnsmarkað. Hann benti jafnframt á að fjárfestar í álver- inu litu á fyrsta áfanga álversins, 120 þúsund tonn, sem sjálfstætt verkefni. „Það er, fjárfestarnir gera kröfu um að sá áfangi geti staðið undir sér að öllu leyti. Hins vegar sjá þeir mikla möguleika í stækkun álversins, þótt ekki sé verið að taka ákvörðun um annað en fyrsta áfanga nú. Það er því ekki ljóst hvort til stækkunar komi,“ sagði Þórður. Uppboð á veiðiheimildum Fyrir tuttugu árum má segja að skilningur hagfræðinga á uppboðum hafí ekki verið meiri en svo að þeir skildu hvernig best var að bjóða upp einfalda hluti eins og listaverk. Síðan þá hefur fræðunum fleygt fram, segir Jón Steinsson. I dag hafa verið hannaðar flóknar uppboðs- gerðir sem hægt er að nota til þess að leysa flókin hagstjórnarvandamál eins og hagkvæma úthlutun veiðiheimilda. FÁ ÞJÓÐMÁL hafa verið meira rædd á síðustu árum er hugsanlegar breyt- ingar á núverandi fiskveiðistjórnunar- kerfi. Umræða um þetta mál hefur hins vegar því miður verið helst til ein- hæf. Hún hefur einkennst meira af skotgrafahernaði andstæðra fylkinga en uppbyggilegri umræðu um það hvernig best sé að haga fiskveiði- stjómun. Nánast öll umræðan hefur verið um það annars vegar hvort nú- verandi fiskveiðistjórnunarkerfi sé hagkvæmt og hins vegar hvort úthlut- un veiðiheimilda innan kerfisins sé réttlát. Engum dylst að núverandi kerfi er ekki fullkomið. Samt sem áður hefur lítið sem ekkert verið fjallað um ná- kvæmar útfærslur á leiðum til að breyta kerfinu og ráða bót á þeim ann- mörkum sem í því eru fólgin. Ein af þeim leiðum sem hefur til þessa allt of lítið verið rædd er uppboð á veiðiheim- ildum. Andstæðingum breytinga á núver- andi fiskveiðistjórnunarkerfi hefur hingað til reynst auðvelt að berja nið- ur alla umræðu um uppboðsleiðina. Þeir hafa haldið því fram að uppboð hafi í för með sér veigamikla ókosti og lýst eftir nákvæmri útfærslu uppboðs- leiðarinnar sem ræður bót á þessum vandamálum. Því miður hefur engin alvarleg útfærsla uppboðsleiðarinnar litið dagsins ljós til þessa. Fyrir þá sem hafa kynnt sér kosti uppboða sem hagstjórnartækis er þetta nánast óskiljanlegt. En verður mun skiljanlegra í ljósi þess hvað upp- boð hafa almennt lítið verið notuð við hagstjórn hér á landi. Með aðferðum nútímahagfræði er hægt að hanna uppboðsgerð sem leysir flest þau vandamál sem bendluð hafa verið við uppboð á veiðiheimildum. Þar að auki má færa sterk rök fyrir því að uppboð á veiðiheimildum hafi mikilvæga kosti fram yfir bæði núverandi fiskveiði- stjórnunarkerfi og flestar útfærslur kvótakerfis með veiðileyfagjaldi. Uppspretta þeirra vandamála sem hingað til hafa verið tengd við upp- boðsleiðina er að landsmenn, eða a.m.k. þeir sem hafa tjáð sig gegn uppboðsleiðinni, hafa haft of einfalda uppboðsgerð í huga. Það er nokkuð ljóst að ekki myndi reynast vel að bjóða upp veiðiheimildir á sama hátt og listaverk eða verklegar fram- kvæmdir. Mun þróaðari gerð uppboðs þarf til þess að uppboð á veiðiheimild- um gangi vel fyrir sig. Uppboðshagfræði hefur tekið stór- stígum framförum á síðustu árum. Fyrir tuttugu árum má segja að skiln- ingur hagfræðinga á uppboðum hafi ekki verið meiri en svo að þeir skildu hvernig best var að bjóða upp einfalda hluti eins og listaverk. Síðan þá hefur fræðunum fleygt fram. I dag hafa ver- ið hannaðar flóknar uppboðsgerðir sem hægt er að nota til þess að leysa flókin hagstjórnarvandamál eins og hagkvæma úthlutun veiðiheimilda. Það er því skiljanlegt að uppboðs- leiðin hafi ekki verið rædd alvarlega fyrir fimmtán árum þegar núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi var tekið upp. Þekkingin sem þurfti til þess að út- færa uppboð á veiðiheimildum á skyn- saman hátt var einfaldlega ekki til staðar. Sá skilningur sem orðið hefur til síðan þá sýnir hins vegar að ef tak- mark stjórnvalda er hagkvæmni og réttlát skipting arðs af auðlindinni er nánast borðliggjandi að breyta á fisk- veiðistjórnunarkerfinu og taka upp uppboð á veiðiheimildum. Hér á eftir fara helstu þættir í skyn- samlegri útfærslu á uppboði á veiði- heimildum. í stuttri blaðagrein eins og þessari er því miður ekki hægt að gera ítarlega grein fyrir öllum smáatriðum slíkrar útfærslu, sérstaklega í ljósi þess að sumir þættir uppboðsins eru nokkuð flóknir. Þeim sem hafa áhuga á nákvæmari lýsingu bendi ég á grein- ina Uppboð á veiðiheimildum sem er aðgengileg á slóðinni http://www. princeton.edu/~steinson. Uppboð með löngum aðlögunartíma og löngum gildisf íma veiðiheimilda í fyrsta lagi þarf uppboð á veiði- heimÚdum að gera ráð fyrir löngum aðlögunartíma. Skynsamlegur aðlög- unartími væri á bilinu tíu til tuttugu ár. Tuttugu ára aðlögunartími myndi þýða að á hverju ári fyrstu tuttugu ár- in eftir kerfisbreytinguna væru 5% af núverandi varanlegum veiðiheimild- um tekin af kvótahöfum og boðin út. I öðru lagi ætti gildistími þeirra aflaheimilda sem boðin væru út að vera langur, t.d. 20 ár. Það er, rétt- indin sem ríkið byði út ættu að veita eiganda sínum réttinn til þess að veiða ákveðið hlutfall af leyfilegum heildarafla á hverju ári í tuttugu ár. Eftir þessi tuttugu ái' renna réttindi eigandans út og ríkið býður aftur upp sömu réttindin fyrir næstu tutt- ugu ár. Uppboð með löngum aðlögunar- tíma og löngum gildistíma veiðiheim- ilda hefur nokkra veigamikla kosti fram yfir einfaldari uppboð. I fyi'sta lagi kæmi slíkt uppboð í veg fyrir óhóflega rekstraróvissu í sjávarút- vegi. 1 uppboði með stuttum gildis- tíma veiðiheimilda, t.d. 1 ár, myndu fyrirtæki í sjávarútvegi búa við mikla óvissu þar sem þau vissu ekki fyrir- fram hvað þau myndu ráða yfir miklum afla- heimildum í framtíðinni. Slík rekstraróvissa skap- ast hins vegar aðeins þegar stór hluti kvótans er boðinn upp á sama tíma. Með löngum gildis- tíma veiðiheimilda yrðu aðeins 5% kvótans boðin út í einu. Vel rekin sjáv- arútvegsfyrirtæki myndu þá haga kvóta- eign sinni þannig að þau lentu aldrei í því að stór hluti hennai' rynni út á sama tíma. I öðru lagi kæmi upp- boð með löngum aðlögunartíma og löngum gildistíma í veg fyrir að tekj- ur ríkisins af uppboðinu verði veru- lega sveiflukenndar. Ef uppboðið gerði ráð fyrir stuttum gildistíma veiðiheimilda færi verðið á uppboðinu að verulegu leyti eftir ástandi fiski- stofnanna á hverjum tíma og myndu því sveiflast á sama hátt og stofn- stærðir. Ef hins vegar uppboðið gerði ráð fyrir löngum gildistíma færi verð- ið að miklu meira leyti eftir meðal- stærð stofnanna. I þriðja lagi má benda á það að uppboð með löngum aðlögunartíma skilur stóran hluta af framtíðarrent- unni eftir hjá núverandi kvótahöfum. Útgerðarmenn ættu því að taka bet- ur í slíkt uppboð en uppboð með stuttum aðlögunartíma. Uppboð með löngum aðlögunartíma ætti því að vera auðveldari leið frá pólitísku sjónarhorni. Forkaupsréttur fyrir smábáta Ein algengustu rökin gegn uppboði á veiðiheimildum eru að óhjákvæmi- leg afleiðing þess sé að allur kvótinn færist á fárra hendur þar sem smærri fyrii-tæki hafi ekki bolmagn til þess að keppast um kvóta við stærri fyrir- tæki á uppboði. Sérstaklega hefur verið bent á að samkeppnisstaða smábáta væri ómöguleg ef tekið væri upp uppboð á veiðiheimildum. Tvenns konar ástæður gætu valdið því að smábátaeigendur og lítil sjáv- + arútvegsfyrirtæki hafi ekki bolmagn til þess að keppa við stærri útgerð- ir á uppboði. Annað- hvort ráða slíkar útgerð- ir ekki við að búa til raunhæf boð, t.d. vegna upplýsinga- eða kunn- áttuleysis; eða þá að þær ráða ekki við að greiða jafn hátt verð fyrir veiðiheimildir og stærri útgerðir. Rétt hönnun á upp- boði getur auðveldlega komið í veg fyrir að upp- lýsinga- og/eða kunn- áttuleysi smærri út- gerða sé vandamál, sérstaklega hvað smábáta varðar. Þetta er gert með því að byggja forkaupsréttarákvæði inn í uppboðið. Mikilvægt er hins vegar að forkaupsréttarákvæðin séu af ákveðinni gerð til þess að þau valdi ekki óhagkvæmni. Þrjú atriði eru mikdvægust í þessu sambandi. I fyrsta lagi þarf að vera hámark á því magni sem hver aðili má taka frá. I öðru lagi má slíkur smábátakvóti ekki vera framseljanlegur fyrr en að nokkrum árutn liðnum. Og í þriðja lagi ætti verðið á slíkum kvóta ekki að vera fyrirfram ákveðið heldur ætti það að vera sama verð og þeir greiða sem fá kvóta á sjálfu uppboðinu. Þessi þrjú ákvæði tryggja þrennt. I fyrsta lagi tryggja þau smábátum að- gang að kvóta. I öðru lagi tryggir ákvæðið um skertan framseljanleika að aðeins sé hagkvæmt fyrir þá sem standa í útgerð að taka frá afla á þennan hátt. Þetta er mikilvægt til þess að koma í veg fyrir að stærri fyrirtæki geti komið sér hjá því að keppast um kvóta á uppboðinu með því að safna kennitölum. Loks er tryggt að smábátaútgerðii' geti ekki dregist verulega aftur úr stærri út- gerðum hvað hagkvæmni snertir þar sem þeim er gert að greiða jafn hátt verð fyi'ir sínar fráteknu aflaheimild- ir og stóru fyrirtækin greiða fyrir það sem þau fá á uppboðinu. Ef hins vegar vandi smárra út- gerða felst í því að þær ráði ekki við að greiða jafn hátt verð fyrir afla- heimildir og stærri útgerðir getur það aðeins stafað af því að þær séu óhagkvæmari en stærri útgerðir. Slíkt vandamál er aðeins hægt að „leysa með niðurgreiðslum. En niður- greiðslur eru auðvitað ekki lausn á óhagkvæmni smárra útgerða heldur aðeins tæki sem stjómvöld geta not- að til þess að halda lífí í óhagkvæm- um sjávarútvegsfyrirtækjum á kostn- að samfélagsins. Niðurgi-eiðslur eru því ekki hluti af skynsamlegri út- færslu uppboða á veiðiheimildum nema ef til vill niðurgreiðslur til skamms tíma sem hluti af aðlögunar- ferli fyrir smæmi byggðarlög. Raunar er mikilvægt að skilja eitt varðandi þetta meinta vandamál smárra útgerða. Sú staðreynd (þ.e. ef hún er sönn) að smáar útgerðir yrðu illa úti við upptöku uppboðs á veiði- heimildum felur í sér áfellisdóm á hagkvæmni núverandi fiskveiði- stjómunarkerfis. Með því að halda slíku fram er í rauninni verið að segja að óhagkvæm sjávarútvegsfyrirtæki sem uppboð myndi útrýma snarlega fái þrifíst innan núverandi fiskveiði- stjómunarkerfis. Getur það verið? Svo sannarlega. Frjálst framsal er nefnilega ekki eina skilyrðið sem þarf að vera fullnægt til þess að kvótinn færist til þeirra sem best geta nýtt hann eins og svo oft hefur verið hald- ið fram í umræðunni um kvótakerið. Onnur gmndvallarforsenda slíks ferl- is er að vii'k samkeppni ríki bæði á kvótamarkaði og fjármálamörkuðum. Ekki þarf að rýna mikið í þessa markaði hér á Islandi til þess að átta sig á því að þeir eru mjög ófullkomn- ir. Augljósasta vísbendingin um þetta er hið gríðarlega ósamræmi sem er milli verðs á varanlegum veiðiheim- ildum og markaðsverðs sjávarútvegs- fyrirtækja. Markaðsverð kvótaeignar nánast allra fyrirtækja á Islandi er hærra en markaðsverð fyrirtækjanna sjálfra. Ef kvótamarkaðurinn og fjár- málamarkaðir væru virkii' myndi slíkt ástand ekki vara lengi. Hagnað- artækifærið leynir sér ekki. Núver- andi fiskveiðistjórnunai'kerfi sem byggist aðeins á frjálsu framsali virð- ist því ekki vera nóg til þess að ná fram hagkvæmni í sjávarútvegi. Einn helsti kosturinn sem uppboð á veiðiheimildum hefur fram yfn- nú- verandi fiskveiðistjórnunarkerfi er að uppboð líkir betur eftir fullkominni samkeppni en núverandi kvótamark- aður. Uppboðið myndi því leiða til meiri hagkvæmni en núverandi kerfí þar sem það myndi leiða til þess að veiðiheimildir færðust til þeirra sem best gætu nýtt þær mun hraðar en innan núverandi kvótakerfis. Ákvæði gegn óhóflegri samþjöppun aflaheimilda Ef pólitískur vilji er fyrir því að tryggja enn dreifðari eignaraðild á veiðiheimildum en fyrrnefnd for- kaupsréttarákvæði myndu leiða af sér er auðvelt að byggja slíkt inn í uppboð. Það er einfaldlega hægt að banna sama aðilanum (eða tengdum aðilum) að bjóða í meira en tiltekið hlutfall af heildaraflanum í hverri tegund. Þetta væri auðvitað ekki nóg til þess að tryggja dreifða eignarað- ild þar sem stór sjávarútvegsfyrir- tæki gætu keypt kvóta á eftirmark- aði. En jafn auðvelt er að setja lög um það að sami aðilinn (eða tengdir aðilar) megi ekki eiga nema ákveðið hlutfall af heildaraflaheimildum í tii- tekinni tegund. Það er því hin mesta fjarstæða að uppboð á veiðiheimild- um leiði óumflýjalega af sér of mikla samþjöppun veiðiheimilda á fárra hendur. Vickrey-uppboð með mörgum umferðum Bæði fræðilegar niðurstöður hag- fræðinga og reynsla annarra þjóða bendir til þess að skynsamlegast væri að nota tiltölulega flókna uppboðs- gerð við uppboð á veiðiheimildum. Mikilvægt er að sem flestar tegundir séu boðnar út samtímis með uppboði sem býður upp á margar umferðh'. í fyrsta lagi minnkar slíkt uppboð óvissuna sem bjóðendur búa við bæði vegna þess að þeir sjá hvað hinir hafa verið að bjóða og einnig vegna þess að þeir geta verið vissir um að þeir muni fá annað tækifæri til þess að bjóða ef þeim mistekst í tÚtekinni umferð. I öðru lagi er slíkt uppboð mikilvægt þar sem verðmæti kvóta- eignai' í einni tegund er oft háð kvótaeign í öðrum tegundum. Ef kvóti í mörgum tegundum er boðinn upp samtímis gefur það bjóðendum færi á að búa til hagkvæmar sam- setningar af kvóta mismunandi teg- unda og/eða hætta við að bjóða í eina tegund og bjóða í staðinn í aðra ef sú fyrri verður of dýr. Þar að auki er skynsamlegt að not- að sé svokallað Vickrey-uppboð. I Vickrey-uppboði borga bjóðendur samþykktra boða ekki það verð sem tiltekið er í þeirra boði heldur verð sem ræðst á nokkuð flókinn hátt af öllum hinum boðunum sem bárust. Bæði fræðilegar niðurstöður hag-. fræðinnar og reynsla annarra þjóða benda til þess að Vickrey-uppboðið sameini betur en önnur uppboð markmiðið um að hagkvæmni og há- mark tekur til uppboðshaldara. Fyrir ítarlegri umfjöllun um Vickrey-upp- boð svo og aðrar uppboðsgerðir vísa ég lesendum á greinina Uppboð á veiðiheimildum sem ég nefndi hér að ofan. Uppboð, ekki uppboðsmarkaður Loks vil ég taka það fram að þess- ai' tillögur gera ráð fyrir að uppboð á veiðiheimildum fari fram einu sinni á ári. Hér er ekki verið að tala um svo- kallaðan uppboðsmarkað eins og hef- ur verið við lýði á kvótamarkaði. Á milli þessara uppboða er auðvitað skynsamlegt að frjálst framsal afla- heimilda sé leyfilegt (sjá þó ákvæði um forkaupsrétt smábáta). Ef tekið væri upp uppboð á veiðiheimildum myndi því markaður með veiðiheim- ildir um margt líkjast markaði með ríkisskuldabréf. Ríkið selur ríkis- skuldabréf á uppboði með reglulegu millibili. Þess á milli ganga ríkis- skuldabréfin kaupum og sölum á frjálsum markaði. Af þessu sést að með skynsamlegri hönnun á uppboði á veiðiheimildum er hægt að leysa flest ef ekki öll þau vandamál sem bendluð hafa verið við uppboðsleiðina. Þar að auki hefur, uppboðsleiðin a.m.k. tvo mikilvæga kosti fram yfir núverandi kvótakerfi. Með uppboði myndi stór hluti af framtíðarrentunni renna til ríkisins. Ríkið gæti notað þetta fé annaðhvort til að lækkað skatta eða einfaldlega sent öllum landsmönnum sinn hluta rentunnar af sameigninni í fomi ávísunar einu sinni á ári. Uppboðs- leiðin hefur einnig þann kost að hún leiðir af sér mun meiri hagkvæmni í sjávarútvegi þar sem aflaheimildir munu leita hraðar til þeirra sem bet- ur geta notað þær en innan núver- andi kerfis. Uppboð á veiðiheimildun/ fæli því í sér bæði aukna hagkvæmni og réttlátari skiptingu ai'ðs. Það er því erfitt að finna rök fyrir því af hverju við ættum ekki að taka upp uppboð á veiðiheimildum. Höfundur er Imgfræðinemi, sem stundar nám við Princeton-háskóla í Ban daríkjun um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.