Morgunblaðið - 24.11.1999, Side 50
50 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
, PETTA ER SJALFUM PER /4Ð KENNA !
EG VARABIPIG VW EN PÚ VJLDIR EKKI
HLUSTA. EKKIÆTLA EG AÐ
VOPKENNA PER
Ljóska
Smáfólk
THEY'KE SONEÍMV' BR0THER5 ARE 60NEÍ UIHAT are thet 60IN6TO 007THEV CAN'T UlANPER AR0UND F0REVER.. _ STILL,THEY'RE PRETTY SMARt.TMEY'LL FINP 50METHIN6 U5EFUL TO DO.. _ @ VOU KNOW U/HATWE 5HOULD D07WE SH0ULD B0YBANJ0S..
CfÁ 1 §
i 3 O)
& mv hr^z\ 1
-- W' - w - - ■ l&Q 1
l.r " \ * ~ ~
Þeir eru farnir.
Bræður mínir
eru farnir
Hvað ætla þeir að gera. Samt sem áður eru þeir Veistu hvað við ættum að gera.
Þeir geta ekki ráfuð bara nokkuð snjallir. Við ættum að kaupa banjó.
um alla æfi. Þeir gætu snúið sér að
einhverju gagnlegu.
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Verslunarskóli Is-
lands, hrokafullir
stj órnunarhættir
Frá Bjarna Bærings Halldórssyni:
VITIÐ þið hvað? Ég held að skól-
astjóri Verslunarskóla íslands lifi
orðið í öðrum
veruleika en við
hin.
Flestir sem
til hans þekkja
tala um hroka
og yfirlæti, er
rætt er um
hann. En nú
keyrir um þver-
bak. Hvað hald-
ið þið að hann
sé nú farinn að
gera? Eins og
allir vita, er Verslunarksólinn dýr-
asti skóli á íslandi í dag. En eins
og það sé ekki nóg, þá eru skólast-
jóri og undirmaður hans, húsvörð-
urinn , farnir að láta draga bíla
nemenda af skólalóðinni og upp í
Vöku. Þar verða nemendur að
leysa bílana út með ærnum til-
kostnaði.
Finnst ykkur þetta hægt? A
þetta svo við um alla bíla? Nei,
ekki hans sjálfs, nei, ekki húsvarð-
arins, nei, ekki kennaranna. Þeir
halda allir á gylltum fjarstýring-
um, opna sín einkahlið og leggja í
sín afgirtu stæði, sem kostuð eru
af skólagjöldum nemenda.
Mottóið er, þrír til fjórir bílar á
dag, til að sýna nemendum hver
það er sem ræður.
Ekki veit ég hvers konar tilvist-
arkreppu skólastjórinn er í.
Hann ræður kannski ekki leng-
ur við, að fylgjast með nýjungum,
bættum stjórnarháttum, nýjum
siðum.
Kannski er Benz-merkið farið af
honum og Trabantinn kominn í
ljós.
Ég segi: Skólastjóri, húspassari
og kennarar. Skammist þið ykkar!
Þið ættuð að reyna að hafa önnur
mál í forgangi, en berja á nemend-
um þar sem þeim svíður sárast.
Þið ættuð að snúa ykkur að því,
sem ykkur er borgað fyrir. Að
kenna nemendum ykkar fögin og
góða siði.
Hættið þið þessu! Takið þessa
ljótu ákvörðun til baka. Þið verðið
meiri menn og konur eftir.
Ef ekki, farið þið þá í langt,
langt frí.
BJARNI BÆRINGS
HALLDÓRSSON,
innflytjandi, Vesturbergi 92,
Reykjavík.
Bjarni Bærings
Ilalldúrsson
Ein pitsa á Islandi -
matur í heilan mánuð
í vanþróuðu landi!
Frá Sonju Haraldsdóttur:
í OKTÓBER byrjuðu jólaauglýs-
ingamar. Þetta finnst mér alveg
hrikalegt vegna þess að aðventan
byrjar ekki fyrr en 28. nóvember.
En nú á að selja, selja og selja.
Dæmigerð auglýsing: Nýtt eldhús
íyrir jól! Ég spyr: Hvað kemur
þetta jólunum við? Eru jólin ein-
göngu orðin hátíð kaupmanna? Og
hvað verður keypt? Eru einhverjar
jólagjafir þarna á meðal handa af-
mælisbarninu sjálfu, Jesú Kristi,
frelsara okkar?
Hugsum við í þessu „kristna"
velferðarríki til þeirra sem um sárt
eiga að binda, bæði hér heima og
erlendis? Eða erum við að ftiðþæga
samvisku okkar með litlum 1.000
eða 2.000 kr. einu sinni á ári handa
hungruðum heimi eða mæðra-
styrktsnefndinni? í þessu góseni
hér á íslandi lifa nefnilega margir
við hungursmörkin dagsdaglega,
það veit ég af eigin reynslu. Svo
segja sjónvarpsfréttir, að uppselt
sé á hóteli einu á gamlárskvöld og á
verði sem er 64.000 kr. fyrir hjónin!
Og þegar margir hér heima
háma í sig áhyggjulausir eina með-
alstóra pitsu, ættu þeir að hugsa til
þeirra barna í vanþróuðu löndum
þar sem þau geta lifað á þessu í
heilan mánuð (og einnig fengið
skólagöngu og læknisaðstoð).
Látið nú, Islendingar, andvirði
einnar pitsu af hendi rakna hana
þessum bömum. Hér á landi starfa
bæði SOS-bamaþorpin og Borne-
fonden (Christian childrens Fund
síðan 1938), og koma þau peningum
og gjöfum á leiðarenda. Þeir sem
vilja geta haft bréfasamband við
bamið, fengið myndir og skóla-
skýrslu árlega. Ég hef sjálf verið
með alveg yndisleg böm síðan 1978
í Afríku, Mexíkó, Indlandi, Guat-
emala, Taílandi og meðal indíána í
Bandaríkjunum.
Á Indlandi t.d. starfa læknar
uppí sveit fyrir $100 á mánuði, sem
eru andvirði tveggja kartona af síg-
arettum hér. Og fyrir aðeins 4
pakka - eða 80 sígarettur - er hægt
að framfleyta einu bami þarna á
mánuði! Hér kostar ein sunnudags-
steik frá 1.300 kr., líkjör 1.700 kr.,
geisladiskur 1.700 kr., myndband
1.590 kr., 2 bíómiðar 1.300 kr. Og
svona mætti lengi telja.
Ég skora á alla Islendinga, sem
álíta sig kristna, að taka að sér eitt
lítið barn í vanþróuðu löndunum
íyrir aðeins 1.400 kr. á mánuði til að
gefa Jesúbarninu þessi jól.
En hinir, sem eiga meira en nóg,
ættu að hjálpa einstæðum mæðrum
og öryrkjum hér í eigin landi, því að
of margir þeirra lifa í sárri fátækt í
bullandi góðæri sem er hér á Isl-
andi.
SONJA HARALDS,
Bakkakoti, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.