Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ þjóðleikhúsið Sími 5511200 Sýnt á Stóra sóiði kl. 20.00 KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS eftir Bertolt Brecht. 3 sýn. í kvöld mið. 24/11 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 25/11 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 26/11 örfá sæti laus, 6. sýn. mið. 1/12, örfá sæti laus, 7. sýn. fim. 2/12, örfá sæti laus. SJÁLFSTÆTT FÓLK eftir Halldór Kiljan Laxness Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir Fyrri sýning: BJARTUR — Landnámsmaður íslands Lau. 27/11 kl. 15.00 uppselt, langur leikhúsdagur. Síðasta sýning. Síðari sýning: ÁSTA SÓLLILJA - Lífsblómið Lau. 27/11 uppselt, langur leikhúsdagur, siðasta sýning. GLANNI GLÆPUR í LATABÆ Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson. Sun. 28/11 kl. 14.00 uppselt, kl. 17.00 uppselt, sun. 5/12 kl. 14.00 uppselt, kl. 17.00 uppselt, aukasýning lau. 4/12 kl. 13.00 uppselt, fim. 30/12 kl. 14.00 og kl. 17.00. MEIRA FYRIR EYRAÐ — Þórarínn Eldjám og Jóhann G. Jóhannsson. Sýning fyrir kortagesti sun. 28/11 kl. 21.00 uppselt. Stftit á Litla sOiði kl. 20.00: ABEL SNORKO BÝR EINN - Eric-Emmanuel Schmitt Sun. 28/11 kl. 15.00 uppselt, þri. 30/11 uppselt, sun. 12/12, mið. 15/12. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst Sýnt á SmiðaUerkstteði kt. 20.30: FEDRA — Jean Racine Sun. 28/11. Síðasta sýning. MEIRA FYRIR EYRAÐ — Söng- og Ijóðadagskrá Þórarinn Eldjárn og Jóhann G. Jóhannsson. Þri. 30/11. Síðasta sýning. Miðasalan er opin mánud.-þriðjud. kl. 13-18, miðvikud.-sunnud. kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200. www.leikhusid.is.______________nat@theatre.is. Baneitrað samband eftir Auði Haralds. Sýn. mið. 24. nóv. kl. 20.00 sýn. fim. 25. nóv. kl. 20.00 sýn. fös. 26. nóv. kl. 20.00 Aðeins þessar sýningar. Miðasala opin alla virka daga kl. 13—17 og fram að sýningu sýningardaga. Sími 462 1400. _____www.leikfelag.is_______ Formaðurinn dansar! Á morgun kl. 20.00 John Adams: The Chairman Dances Snorri Sigfús Birgisson: Coniunctio Sergei Prokofiev: Píanókonsert nr. 3 Hljómsveitarstjóri: Anne Manson Einleikari: Roger Woodward IHáskólabíó v/Hagatorg Sími 562 2255 Miöasala alla daga kl. 9-17 www.sinfonia.is SINFÓNÍAN 5 30 30 30 Mðasala er of«i Irá kL 12-18, máHau og Ira kL 11 þegar er hádegisLhús. _____jjmsvan acan súbíimiiioíiíl_ ÓSÓTTAB PftMTfllW SHJlflB DflfflfflÁ FRANKIE & JOHNNY Fim 25/11 kl. 20.30 nokkur sæti laus Lau 27/11 kl. 20.30 örfá sæti iaus LEITUM AÐ UNGRI STÚLKU miö 24/11 kl. 12.00 f sölu núna! ÞJÓNN í SÚPUNNI mið 1/12 kl. 20 síðasta sýning GLEYM MÉR El OG UÓNI KÓNGSSON lau 27/11 kl. 15.00 Bama- og fjölskykfuleikrít TÓNLEIKARÖÐ IÐNÓ mið 24/11 kl. 21.00 Margrét Eir og Hera Björk LEIKHÚSSPORT mán 29/11 kl. 20.30. www.idno.is iiiii rinii ISLENSKA OPERAN II!.....jíiii La voix humaine Mannsröddin ópera eftir Francis Poulenc, texti eftir Jean Cocteau 5. sýn. mið. 24/11 kl. 12.15 6. sýn. mið. 1/12 kl. 12.15 7. sýn. 8/12 kl. 12.15 lokasýning. Sýn. hefst m/léttum málsverði kl. 11.30 Einsöngstónleikar 25. nóvember kl. 20.30 Helga Rós Indriðadóttir, sópran Gerrit Schuil, píanó Lau 27. nóv kl. 20 örfá sæti laus Lau 4. des kl. 20 UPPSELT Síðustu sýningar fyrir jól! Símapantanir í síma 5511475 frá kl. 10 Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga nema sunnudaga Gamanleikrit I leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar fös. 26/11 kl. 20 UPPSELT fim. 2/12 kl. 20 örfá sæti 3/12 kl. 20 UPPSELT SÁLKA óstarsaga eftlr Halldór Laxness Fös. 26/11 kl. 20.00 uppselt Lau. 27/11 kl. 20.00 örfa sæti laus Fös. 3/12 kl. 20.00 Fös. 10/12 kl. 20.00 Mið. 29/12 kl. 20.00 FÓLKí FRÉTTUM Aflýsti tón- leikunum SÖNGKONAN Jewel hefur aflýst tónleikum stnum á gamlárskvöld á heimasidðum sínum í Alaska. Aðeins eitt þúsund miðar höfðu selst á tdnleikana af 8000 og telja kunnugir það líklegustu ástæðuna fyrir afboðun tdn- leikanna, en miðarnir voru seldir á verðbilinu 4-7000 krdnur. Jewel gaf út fyrr í mánuðinum plötuna „A Holi- day Collection". Lau. 27. nóv. kl. 19.00 Lau. 4. des. kl. 20.00 Miðasalan er opin kl. 16—23 og frá kl. 13 á sýningardag. Sími 551 1384 OBÍÓLEIKHðilD BÍÓBORGINNI VIÐ SNORRABRAUT KaííiLeikbúsið Vesturgötu 3 Óskalög landans Söngtextar Jónasar Ámasonar úr ástkærum leikritum. fkvöld, mið. 24/11, kl. 21. Ö-þessiþfóð'. Ný revía eftir Karl Agúst Utfsson og Hjálmar H. Ragnarsson í leikstjórn Brynju Benediktsdóttur. Fös. 26/11, uppselt, lau. 27/11 uppselt, fös. 3/12 kl. 21, laus sæti, lau. 4/12 kl. 21, laus sæti, fös. 10/12 kl. 21, örfásæti. Kvöldverður kl. 19.30 Ath.: Pantið tímanlega í kvöldverð Starismannafélög/hópar athugið — jólahlaðborð i desember. cÆvintýrið um ástina eftir Þorvald Þorsteinsson. Sun. 28/11 kl. 15, síðasta sýn. fyrir jól. MIÐAPANTANIR I S. 551 9055 ERLENDAR ooooo Skúli Helgason skrifar um nýjustu plötu Scritti Politti - Anomie a nd Bonhomie. ★ ★★ 'Á 19.800 dagvinnu- tímum síðar! ÉG HEF stundum rifjað upp með sjálfum mér spurninguna sem ég fékk í andlitið frá vinkonu minni sem kleif minn ætternisstapa um árið og spurði mig hvað foreldrar mínir gerðu. Ja, þau eru leikarar sagði ég. Já, en hvað gera þau sagði vinkonan þá og ég var kjaft- stopp! Þetta færði mér heim sann- inn um að staðfest væri ákveðin gjá milli hins almenna launa- manns með sitt daglaunastreð og listamanna sem svæfu á dag- vinnutíma en rifu úr sér hjartað á kvöldin frammi fyrir alþjóð. Green Gartside, holdgervingur Scritti Politti, mun ekki gera neitt til að brúa þessa gjá. Scritti Pol- itti gaf síðast út plötu árið 1988, fyrir heilum 11 árum síðan. Ég skal játa það strax að ég hélt að maðurinn væri búinn að fá sér heiðarlega vinnu - en nei! 130 mánuðum síðar rumskar piltur eins og eftir fyllerí aldarinnar og lætur eins og ekkert hafi í skorist. 130 mánuðir - þetta eru 19.800 dagvinnutímar ef lögbundin frí eru undanskilin. Hvern fjandann hefur maðurinn verið að gera all- an þennan tíma meðan við hin strituðum? Sjáið þið þetta gerast hjá einhverjum venjulegum manni? Maður upplifír netta slokknun í starfí, fær leyfí yfir- mannsins til að fara heim upp úr hádegi og mætir svo næst árið 2010. Engin skýring - bara:_ „Æ, ég var bara ekki í formi.“ Ég er svo hneykslaður að það er með naumindum að ég geti spýtt út úr mér orði um þessa plötu sem loks er fædd eftir þennan úrkynjaða meðgöngutíma. En ég verð að skrifa eitthvað þó ekki sé nema til að halda uppi merki hins almenna launþega. Þörf er á upprifjun, Scritti Politti er bresk hljómsveit, stofnuð árið 1977 í Leeds á Englandi af Wales- verjanum Green Gartside sem merkilegt nokk var félagi í ung- liðahreyfingu kommúnista í Bret- landi. Nafnið Scritti Politti mun vera sótt beint í smiðju ítalska stjórnmálaspekingsins Antonio Gramsci sem reit bók með þessu nafni sem lenti á náttborði Gartsi- de. Green hefur alla tíð verið mjög pólitískur og jafnan hallað sér til vinstri. Scritti Politti gaf út Songs to Remember 1982 og sló í gegn árið 1984 með lögum eins og Wood Beez (Pray like Aretha Franklin), The Word Girl og Per- fect Way. Þau voru öll á annarri plötu Scritti Politti, Cupid and Psyche frá 1985, sem var með skemmtilegri poppplötum þessa tíma, tónlistin eins og bleikur van- illubúðingur, borinn uppi af Vín- ardrengjarödd Greens sem gaf Scritti sérkenni sem ekki varð flúið. Næsta plata, Provision frá 1988, var slök eftirlíking, fékk slæmar viðtökur og var aðallega eftirminnileg fyrir þá sök að Miles Davis lék á henni. Green fór á bömmer eftir þetta, sást kasta píl- um á öldurhúsum og fór í göngu- ferðir en ef undan eru skildar tvær smáskífur með gömlum slög- urum árið 1991 heyrðist hvorki hósti né stuna frá okkar manni. Ég er nú bara að fabúlera en kannski fékk það svona á rauðlið- ann Green að sjá Berlínarmúrinn falla á alla spilaborg Evrópu- kommúnismans. Það tekur sig upp gömul glenna við að heyra rödd Greens því hún á engan sinn líka - hljómar eins og kalkborinn geldingur í kvenna- búri. Tónlistin hefur þróast nokk- uð, áhrif frá rappi og hip hop- tónlist eru áberandi og amerísku rappararnir Mos’Def, Lee Majors og Me’Shell Ndegeocello setja líf- legan svip á plötuna. Fyrstu þrjú lögin bera af að mínu mati. Ummm er kraftmikið og fjöl- skrúðugt lag, Tinseltown To The Boogiedown er gott popplag og svo er það First Goodbye. Það verk jaðrar reyndar við refsilög- gjöfina því meistaralegri stælingu á Prefab Sprout hef ég ekki heyrt fyrr. Mat á svona lagasmíð þarf að skoðast í samhengi við þá sið- ferðilegu spurningu hvort þýfí geti verið aðdáunarvert í sjálfu sér. Here Comes July er Bítl- og pönkkássa sem virkar og nefna mætti fleiri lög en heilt á litið er platan mjög áheyrileg. Aðal- smerki Scritti Politti eru smekk- legar grípandi laglínur og tónlist- in er áferðarfalleg. Anomie and Bonhomie er vel- komin viðbót í magurt safn Scritti Politti-platna - hún er mun betri en Provision en hins vegar engin opinberun og auðvitað er engin sú þróun á þessari plötu sem réttlæt- ir 11 ára frí. Svona menn á auð- vitað bara að setja á stimpilkort og engar refjar! Þess skal getið að ég hafði einsett mér að senda ekki frá mér þessa umsögn fyrr en síðla árs 2010 en samviskusamir starfsmenn Morgunblaðsins báru mig ofurliði. Green Gartside, holdgervingur Scritti Politti, rankar við sér eftir langt hlé.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.