Morgunblaðið - 24.11.1999, Qupperneq 58
GRAFiSKA SMIDJAN 1998
-58 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
Hlaut silfrið í ferðaþjónustu
NYLEGA fór fram evrópsk fag-
keppni ferða-, hótel og veit-
ingaskóla sem haldin var í Lúx-
emborg. Keppt var í sex liðum
og fóru þrír keppendur frá ísl-
andi. Berglind Osk Guðmun-
dsdóttir nemi á ferðabraut
Menntaskólans í Kópavogi
keppti fyrir íslands hönd f
ferðaþjónustu og lilaut silfur-
verðlaun.
„Keppnin var haldin dagana
2-7 nóvcmber og það voru um
650 þátttakendur og 40 sem
tóku þátt í ferðaþjónustukeppn-
inni,“ segir Berglind. Hún
keppti
í þriggja manna liði og ásamt
henni voru í liðinu stúikur frá
Póllandi og Portúgal. „Okkar
verkefni reyndist vera Lúxem-
borg í Evrópu og Evrópa í Lúx-
emborg.
Hjálpargögnin sem við feng-
um voru veggspjöld, tússlitir,
skæri og lím.
Við ákváðum að nota vegg-
spjöldin til útskýringar. Stiga-
gjöfinni var skipt í þrennt, inni-
hald, notkun fagorða,
orðaforða og kynningu efnisins.
í lokin áttum við að svara fyrir-
spurnum." Berglind segir að
liðið hafi fengið tvo daga til að
Berglind Ósk Guðmundsdóttir
hlaut silfurverðlaun þegar hún
keppti í fagkcppni Hótel,
-ferða og veitingaskóla í Lúx-
emborg fyrir skömmu.
undirbúa sig og síðan tíu min-
útur til að koma efni sínu á
framfæri með fyrirlestri.
„Það var lögð mik.il áhersla á
að markaðsfræðileg hugsun
byggi að baki huginyndum okk-
ar og frumleiki.
Markhópur okkar var fólk í
viðskiptum og við kynntuin
Lúxemborg út frá því sjónar-
horni.“ Berglind segir það hafa
verið mikla reynslu fyrir sig að
stauda frammi fyrir f'jölda fólks
og kynna Lúxemborg. Þegar
hún er spurð hvort hún hyggist
starfa við ferðaþjónustu seinna
meir segist hún sem stendur
vera að hugsa um lögfræðinám
jafnvel með tengsl við ferða-
þjónustu í huga.
ALLIR JOLAPAKKARNIR
staður fyrir þ'S
Jsb góður
Síðustu forvöð að fá
árskortin á þessum kjörum
Kr. 36.000.- staðgreitt eða
kr. 45.000.- í áskrift
{Visa - Euro kr. 3.750.- pr. mánuð)
PAKKINN TIL AÐ GEFA!
24 tíma gatakort, 10 tíma Ijósakort og JSB bofur
andvirði kr. 13.000,- Jólaverð kr. 9.900.- ,,
15 Tíma gatakort, 5 tíma Ijósakort og JSB boiur
andvirði kr. 9.000,- Jólaverð kr. 6.900.-
GOEy5LAPAKK| N N
í sKóin£
Qpnum keðjuna. Nú geta allir keypt JSB kort með 4. VIKNfl
BÓNUS! Kr. 15.000.- Þær sem eiga JSB kort í gildi og
endurnýja fyrir 22/12 fá 1 O tíma Ijósakort í bönus!
Innritun
í janúarnámskeið
TT 1 og TT 2
hefst 1. desember 1999
greiðir núna fyrir TT 1 eða 2 námskeiðið í janúar er
tímabilið frá greiðsludegi til 10/1 2000 ókeypis. Þær sem
eru á TT1 og ætla á TT2 eftir áramót fá 3ja vikna bónus
=12 vikur á verði 9 vikna.
Aukakort á gatakortin!
15. tímar 0 18 tímar, sama verð kr. 6.000.
24 tímar 0 30 tímar, sama verð kr. 8.500.
Lágmúla. 9 • Símt 581 3730
MYNPBONP
Mállaus
söngfugl
Amy
Urama/gaman
Framleiðendur: Nadia Tass og Da-
vid Parker. Leikstjóri: Nadia Tass.
Handrit: David Parker. Aðal-
hlutverk: Rachel Griffíths, Alana
De Roma og Ben Mendelsohn. (100
mín.) Ástralia. Háskólabíó, 1999.
Bönnuð innan 10 ára.
AMY er að mörgu leyti óvenjuleg
kvikmynd. Hún segir frá stúlkunni
Amy sem varð mál- og heyrnarlaus
eftir að hafa orð-
ið fyrir miklu
áfalli. Amy litla
flækist um með
fátækri móður
sinni sem reynir
hvað hún getur
að flýja ágenga
barnaverndar-
fulltrúa. Þegar
vinalegur ná-
granni syngur fyrir stúlkuna, sýnir
hún viðbrögð sem koma öllum á
óvart.
Myndin er á mörkum þess að
vera dans- og söngvamynd því
söngatriðum af ýmsu tagi er bland-
að inn í atburðarásina sem lýsir sál-
rænu lækningarferli Amy iitlu.
Talsverð átök verða í tegundarlegri
skilgreiningu myndarinnar, sem
sveiflast milli þess að vera félagsleg
raunsæismynd oggamansöm dans-
og söngvamynd. Utkoman er engu
að síður skemmtileg og á myndin
víða góða spretti. Hins vegar er
mjög klisjulegu sálgreiningaratriði
beitt á afdrifaríku augnabliki en
það hefði vel mátt missa sín. En
þrátt fyrir mistækan söguþráð er
myndin lífleg og vel gerð, og er ekki
síst vel staðið að leikaravali og tón-
list.
Heiða Jóhannsdóttir
Líf eftir
skilnað
Að lifa upphátt
(Living Out Loud)
R ii ni a n t í s k
g a m a n iii y n (I
★★%
Leikstjóri: Richard LaGravenese.
Aðalhlutverk: Danny De Vito, Holly
Hunter og Queen Latifah. (99 mín)
Bandaríkin. Myndform, júlí 1999.
Bönnuð innan 12 ára.
RICHARD LaGravenese á
sterkan feril að baki sem handrits-
höfundur í Hollywood en hann hef-
ur skrifað handrit mynda á borð við
„The Fisher King“, „The Mirror
Has Two Faces“ og „The Bridges
of Madison County“. Lifað upphátt
er fyrsta kvikmyndin sem La-
Grevense leikstýrir auk þess að
semja handritið. Segir þar frá Ju-
dith (Holly Hunter), konu á besta
aldri sem nýlega hefur mátt sjá á
eftir eiginmanni sínum í fangið á
yngri konu. Eftir skilnaðinn tekur
hún smám saman að uppgötva
sjálfa sig upp á nýtt og kynnast
nýju fólki, meðal annars lyftuverð-
inum Pat (Danny DeVito).
f þessari hlýlegu og mannlegu
gamanmynd er stefnt saman
áhugaverðri blöndu gamalkunnra
leikara. Holly Hunter gerir áhuga-
verða aðalpersónu enn áhugaverð-
ari og DeVito er hlýi’ og krúttlegur
sem vinurinn og vonbiðillinn Pat.
Þá er alltaf gaman að sjá Martin
Donovan bregða fyrir, jafnvel þótt
það sé í hlutverki skíthæls. Lifað
upphátt er notaleg saga um þroska
og mannleg samskipti en dálítið of
máttlaus, ef ekki stefnulaus á köfl-
um. Engu að síður er hún vel þess
virði að sjá.
Heiða Jóhannsdóttir