Morgunblaðið - 04.12.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.12.1999, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 URVERINU MORGUNBLAÐIÐ Brokkgengnr rekstur fískvmnslu á Flateyri Komnir aftur á byrjunarreit FISKVINNSLA og útgerð Flateyi-- ar hefur orðið fyrir ýmsum áföllum síðustu tvo áratugi og hafa sjávar- útvegsfyrirtæki þar gengið í gegnum ýmsar þrengingar. Með stofnun Fiskvinnslunnar Kambs á Flateyri fyrr í vikunni má segja að Flateyr- ingar séu komnir aftur á bjmjunar- reit. Ugerðarfélagið Hjálmur hf. var stærsti atvinnurekandinn á Flateyri á 8. og 9. áratugnum. Árið 1976 lét dótturfélag Hjálms hf., Úgerðarfé- lag Flateyrar, smíða nýjan togara Gylli IS, sem sá fiskvinnslu félagsins að mestu fyrir hráefni. Útgerðarfé- lagið var síðar sameinað móðurfyrir- tækinu. Endurfjármögnun misheppnast I upphafi þessa áratugar gekk Hjálmur í gegnum miklar þrenging- ar og snemma árs 1993 var ákveðið að selja Ishúsfélaginu hf. á ísafirði togarann Gylli IS til að minnka skuldir fyrirtækisins og endurfjár- magna það. I nóvember árið 1993 ákvað stjórn Hjálms hf. að hætta fiskvinnslu á Flateyri vegna rekstr- arerfiðleika. Hjálmur hf. sameinaðist síðan Fiskvinnslunni Kambi hf. á Flateyri snemma árs árið 1994 undir nafni Kambs sem var mun minni fisk- vinnsla í eigu Hinriks Kristjánsson- ar. Kambur gerði eftir sameininguna út línubátana Gylli IS, Jónínu IS og Stakk ÍS og unnu tæplega 90 manns hjá fyrirtækinu, þar af nærri 30 sjó- menn. Veiðheimildir bátanna þriggja námu um 1.000 þorskígildis- tonnum. Kambur endurvakinn Kambur hf. tók síðan þátt í sam- einingu útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtækja á Vestfjörðum undir nafni Básafells árið 1997 og hafði félagið þá yfir um 2.400 þorskígildistonna kvóta að ráða. Að sameiningunni stóðu, auk Kambs, rækjuverksmið- jur Básafells hf. og Rits hf. á ísafirði, útgerðarfélögin Sléttanes hf. á Þing- eyri og Togaraútgerð ísafjarðar hf. og útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki Norðurtangans hf. á ísafirði. Bása- fell hefur ákveðið að hætta starfsemi sinni á Flateyri og Suðureyri og var öllu starfsfólki fyrirtækisins á stöð- unum sagt upp störfum írá og með áramótum. Heimamenn í báðum byggðarlögum hafa hins vegar tekið höndum saman og stofnað fiskvinn- slur til að halda rekstrinum áfram. Á Flateyri var Fiskvinnslan Kambur endurvakin og eru stærstu hluthafar fyrirtækisins Hinrik Kristjánsson, sem var framkvæmdastjóri félagsins fyrir sameininguna við Básafell, og eignarhaldsfélagið Hjálmur, sem að mestu er í eigu sömu aðila og áttu út- gerðarfélagið Hjálm fyrir samein- inguna við Kamb árið 1994. Oli í Sandgerði á sfld OLI í Sandgerði AK er á heimleið með um 300 tonn af kolmunna sem fékkst við Færeyjar en til stendur að líta næst á síldina fyrir vestan land. Tvö íslensk skip eru eftir á kol- munnaveiðunum. Hólmaborg var komin með 400 tonn í gær og Börkur NK um 500 tonn. Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Óla í Sandgerði, segir að lítið hafi verið að hafa að undanförnu af kol- munna við Færeyjar en hann landaði um 530 tonnum á Seyðisfirði 22. nó- vember og tæplega 200 tonnum á Eskifirði fjórum dögum síðar. „Við leituðum fyrst í íslensku lögsögunni og þar var sáralítið að finna. Því fór- um við suður eftir og fengum þessi tonn en þetta er frekar smár fiskur, auk þess sem lítið var af honum.“ Guðlaugur segir að veiðarnar hafi gengið erfiðlega að undanförnu. „Tíðarfarið hefur verið leiðinlegt og sáralítið verið hægt að vera við. Þeg- ar veðrið hefur skánað hefur farið mikill tími í að leita en svo þegar hef- ur átt að fara að gera eitthvað hefur aftur verið komin bræla.“ Frá fiskvinnslu Kambs hf. á Flateyri. Myndin er tekin árið 1993. Endurúthlutun byggðakvóta útilokuð FORMAÐUR stjórnar Byggða- stofnunar segir útilokað að byggða- kvóta Isafjarðjarbæjar verði úthlut- að upp á nýtt eins og heimamenn á Flateyri hyggjast gera kröfu um eft- ir að Básafell hf. hætti vinnslu á staðnum. Heimamenn á Suðureyri hyggjast einnig sækjast eftir þeim byggðakvóta sem byggðarlaginu var ætlaður en ráðstafað var til Þingeyr- ar sl. sumar. Byggðastofnun úthlutaði sl. sum- ar öllum byggðakvóta ísafjarðar- bæjar til Þingeyrar þar sem stofnað var nýtt fyrirtæki til að vinna kvót- ann, Fjölnir hf. Eins og Morgun- blaðið greindi frá í gær telja forsvar- smenn Fiskvinnslunnar Kambs á Flateyri sig eiga rétt á þeim byggða- kvóta sem eyrnamerktur var sveit- arfélaginu sl. sumar, samtals 115 tonnum, og hyggjast leita réttar síns í þeim efnum. Heimamenn á Suður- eyri hafa einnig tekið höndum sam- an um stofnun félags til að yfirtaka fiskvinnslu Básafells á staðnum. Fé- lagið hefur enn ekki verið stofnað en gert er ráð fyrir að það verði strax eftir helgi. Að sögn Óðins Gestsson- ar, sem er í forsvari fyrir heima- menn, mun hið nýja félag einnig leita réttar síns og sækjast eftir þeim byggðakvóta sem sveitarfélag- inu var úthlutað í upphafi, 102 tonn- um, líkt og félagar þeirra á Flateyri. Byggðakvótinn verður á Þingeyri Samkvæmt reglum um úthlutun byggðakvóta getur Byggðastofnun vikið frá skiptingu milli tegunda í einstökum byggðarlögum en hafa ber í huga að heildarskipting byggðakvótans, hlutur hvers byggð- arlags í þorskígildum og verðgildi byggðakvótans raskist ekki. Stjórn Byggðastofnunar gekk frá úthlutun byggðakvóta fyrir helgi og var 1.500 tonna þorskígildiskvóta úthlutað til byggðarlaga, sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Heimamenn á Suður- eyri telja sig líka eiga rétt á byggðakvóta Þegar tekin var ákvörðun um úthlut- un byggðakvóta sl. sumar var kvóta- tap byggðarlagsins í þorskígildum undanfarin fimm ár veigamesta við- miðunin. Einnig var tekið mið af hlut fiskvinnslu og fiskveiða, fækkun árs- verka í fiskvinnslu og fiskveiðum, meðaltekjum á íbúa, fólksfækkun og íbúafjölda. Byggðakvótanum var út- hlutað til næstu fimm ára, en sam- kvæmt lögum skal endurskoða for- sendur fyrir úthlutuninni árlega. Egill Jónsson, stjómarformaður Byggðastofnunar, segir útilokað að úthlutun byggðakvóta ísafjarðar- bæjar verði breytt, þrátt fyrir að mál Básafells hf. hafi þróast með þessum hætti á Flateyri og Suður- eyri. Þessi ákvörðun hafi verið tekin og byggðakvótinn verði á Þingeyri næstu fimm árin. „Við úthlutunina var miðað við að þeir sem fengu kvótann hafi tíma til að byggja upp sinn rekstur, þannig að eftir fimm ár verði þeir búnir að koma með álíka mikið í pottinn aftur. Eg er mest á að fullorðnir menn skuli svo mikið sem hafa orð á slíku,“ segir Egill. Skynsamleg ráðstöfun á sínum tima Stjórn Byggðastofnunar ráðstaf- aði öllum byggðakvóta ísafjarðar- bæjar til Þingeyrar sl. sumar að fenginni umsögn bæjarstjórnar sveitarfélagsins. Halldór Halldórs- son, bæjarstjóri ísafjai-ðarbæjar, segir stöðuna á Þingeyri hafa verið mjög slæma þegar ákveðið hafi verið að ráðstaða byggðakvótanum þang- að. Því hafi þessi ráðstöfun þótt skynsamlegust. Byggðastofnun hafi síðan staðfest umsögn bæjarstjórn- arinnar. Hann vildi ekki segja til um hvort hægt verði að breyta ráðstöf- uninni, enda væri það Byggðastofn- unar að ákveða slíkt. Halldór segist hins vegar vilja stuðla að því að Vestfirðingar taki höndum saman um að halda afla- heimildum Básafells innan fjórð- ungsins. Isafjarðarbær á tæplega 10% hlut í Básafelli eða um 73 mill- jónir króna að nafnvirði. Halldór segir sveitarfélagið hafa haft for- göngu um að kalla saman hluthafa Básafells og skoða möguleika á að kaupa aflaheimildir félagsins í skipt- um við hlutabréf. Eigendur Bása- fells hafi tekið vel í þessa umleitan, enda ljóst að þeir þurfa að selja mik- ið af eignum til að koma fyrirtækinu á réttan kjöl. Myndi kippa grund- vellinum undan öllum áætlunum á Þingeyri Helstu forsendur fyrir stofnun Fjölnis hf. á Þingeyri voru að hluta- féð yi’ði a.m.k. 400 milljónir króna, fyrirtækið fengi ráðstöfunarrétt yfir tæplega 387 tonna byggðakvóta Isa- fjarðarbæjar á ári næstu fimm árin og það hefði yfir að ráða a.m.k. 1.000 tonna þorskkvóta. í stað þess að fjárfesta í skipa var gerðursamning- ur við Vísi hf. í Grindavík þess efnis að Vísir landi að minnsta kosti 2.000 tonnum á Þingeyri á ári. Þessi afli á að samanstanda af 1.000 tonnum frá Vísi, byggðakvótanum og 600 tonn- um sem Fjölnir hefur þegar keypt. Pétur H. Pálsson, framkvæmda- stjóri Vísis hf., segir allar áætlanir hafa verið gerðar út frá ráðstöfun byggðakvótans og því myndi breyt- ing á ráðstöfuninni kippa grundvell- inum undan þeim samningi sem gerður hafi verið. Allar áætlanir hafi gengið eftir og enginn samningsa- ðila rætt um að horfið verði frá gerð- um samningum. Hann segir að margir hafi strax í upphafi lýst sig ósátta við ráðstöfun byggðakvótans og sú óánægja sé greinilega ennþá til staðar. Gæða leðursófasett 3+H Kr. m.ooo.-sígr. OpiÖ Iaugardagfrákl10-16 og mnudagfráki. 14-17 HUSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKORVEGl 66 HAFNARFIRÐl SlMI 565 4100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.