Morgunblaðið - 19.02.2000, Side 1

Morgunblaðið - 19.02.2000, Side 1
42. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Kjörsókn í þingkosningum í Iran um 75 af hundraði Umbótasinnar vongóðir um sigur á heittrúuðum AP Konur úr röðum kjósenda í Teheran hjálpast að við að útfylla kjörseðla sína í gær. Talið er að úrslit þingkosn- inganna geti valdið því að íhaldssamir heittrúarklerkar missi meirihlutann á þingi. Teheran. AP, AFP, Reuters. FORYSTUMENN frjálslyndra og umbótasinnaðra afla í íran voru bjartsýnir á sigur í þingkosningun- um sem fram fóru í landinu í gær. Muhammad Khatami, forseti írans, sem jafnframt er helsti leiðtogi um- bótaaflanna, sagði að kosningarnar gætu fært með sér „bjartari framtíð" fyrii’ íbúa landsins. „Pingið hefur sérstaklega mikil- vægu hlutverki að gegna í ríkinu, einkum nú þegar hafið er nýtt tíma- bil í sögu landsins,“ sagði Khatami við fréttamenn í gær. „Því fleiri sem kjósa í dag, þeim mun betur mun þingið endurspegla vilja þjóðarinn- ar.“ Fulltrúar innanríkisráðuneytisins mátu stöðu mála svo í gær að bróðir forsetans, Mohammad-Reza Khat- ami, yrði efstur í höfuðborginni Teheran og fengi mun fleiri atkvæði en Akbar Hashemi Rafsanjani, fyrr- verandi forseti, sem fer fyrir lista íhaldsmanna og hófsamra. Kosn- ingaþátttaka var almennt góð meðal þeirra tæplega 39 milljóna manna sem hafa atkvæðisrétt í landinu, um 75% og mun allt hafa farið friðsam- lega fram. Mynduðust víða biðraðir við þá 36.000 kjörstaði sem settir höfðu verið upp í landinu. Talið er að líða muni allt að þrjár vikur áður en úrslit verða að fullu kunn. Talið er að kosningarnar geti haft mikil áhrif á framtíð landsins því tek- ist er á um hvort slakað verði á ströngum íslömskum reglum sem samfélagið er mótað af eða áfram haldið á sömu braut og mörkuð var í byltingu heittrúarmanna gegn Reza Pahlavi keisara árið 1979. Kosið er um 290 þingsæti og keppa á sjötta þúsund frambjóðenda um þau. Frambjóðendur bjóða ýmist fram undir merkjum einhverrar af átta stjórnmálafylkingum í landinu eða eru á eigin vegum. Sex fylkingar styðja Khatami forseta og umbóta- stefnu hans en heittrúarmenn hafa undirtökin í tveimur þeirra. Muhammad Ali Khameini, æðsti- klerkur í íran, sagði í gær að kosn- ingarnar væru mikilvægar og hvatti fólk til að hugsa sig vel um áður en það kysi. „Kjósið þá sem munu hjálpa ykkur og verða trúir íslam,“ sagði æðstiklerkurinn. ■ Mjög góð kjörsókn/30 Slæm sjón felldi Golíat Jerúsalem. Daily Telegraph. HUGSANLEGT er að Davíð hafi fellt Golíat vegna þess að Filistinn stóri sá svo illa. Það er a.m.k. skoð- un ísraelsks læknis. Vladimir Berginer, taugasér- fræðingur við Ben Gurion- háskólann, telur að Golíat hafi þjáðst af sjúkdómi, sem veldur of- vexti í andlitsbeinum og útlimum. Segir Berginer, að risavaxið fólk sé oftar en ekki haldið þessum sjúk- dómi, en þá er um að ræða æxli í heiladingli. Það getur aftur þrýst á sjóntaugina þannig að sjónsviðið skerðist. Davíð var aðeins vopnaður slöngvivað og Berginer telur, að hann hafi getað nálgast Golíat frá hlið, án þess hann tæki eftir því. Ef marka má Gamla testamentið var Golíat um þriggja metra hár. --------------------- Dumas fer fyrir rétt Paris jVP RANNSÓKNARDÓMARAR í París skipuðu í gær Roland Dumas, fyrr- verandi utanríkisráðherra úr Sósíal- istaflokknum, að mæta fyrir rétti, þar sem hann mun svara til saka fyr- ir meinta aðild að mútuhneyksli. Dumas, sem er 77 ára, er sagður hafa þegið afnot af munaðaríbúð í París, fyrir að hafa beitt áhrifum sín- um til að fá Loik Le Floch-Prigent kjörinn stjórnarformann olíurisans Elf Aquitaine. Frilla Dumas, Christine Deviers- Joncour, var milligöngumaður í mútumálinu. Henni hefur ásamt Le Floch-Prigent verið skipað að mæta einnig fyrir réttinn. Rússnesk stjdrnvöld sökuð um mannréttindabrot Tsjetsjneskir fangar pyntaðir Moskvu, Grosní. AFP, AP, Reuters, The Daily Teiegraph. TALSMENN mannréttindasamtak- anna Human Rights Watch og Al- þjóða Rauða krossins sögðust í gær hafa fengið nýjar vísbendingar um illa meðferð á Tsjetsjenum í rúss- neskum fangabúðum í Kákasus-hér- aði. Fólkið væri barið, beitt pynting- um og sumum nauðgað. Var meðal annars vitnað í þrjá karlmenn sem voru í haldi og sleppt eftir að ætt- ingjar þeirra höfðu greitt háar mút- ur. Vladímír Pútín, starfandi forseti Rússlands, skipaði í gær Vladímír Kalamanov sérstakan gæslumann mannréttinda í Tsjetsjníu en full- trúar alþjóðlegra mannréttindahópa segja að aðeins sé um blekkingar að ræða. Rússar neita að leyfa alþjóðasam- tökum að kynna sér af eigin raun ástandið í héraðinu. Hefur Mary Robinson, fulltrúi Sameinuðu þjóð- anna í mannréttindamálum, kvártað yfir því að stjórnvöld í Moskvu meini henni að fara á vettvang til að kynna sér málið. Malcolm Hawkes, fulltrúi Human Rights Watch í Moskvu, nefndi dæmi um hryðjuverk Rússa: „Komið hefur í ljós að í janúar tóku rúss- neskir hermenn 41 óbreyttan borg- ara af lífi í Staropromyslovskí-hverfi (í Grosní) án dóms og laga. Fómar- lömbin í þessum aftökum voru fyrst og fremst aldrað fólk,“ sagði Hawkes. Að sögn Rons Redmonds hjá Flóttamannahjálp SÞ hafa um 3.000 manns flúið frá Tsjestjníu til grannhéraðsins Ingúsetíu síðan á miðvikudag. Ibúum Grosní, höfuð- staðar Tsjetsjníu, var í gær bannað að fara frá borginni. Var útgöngu- bannið sagt nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að^kæruliðar gætu laum- ast aftur inn f borgina, einnig þyrfti að leita að sprengjum og gera þær óvirkar. Valerí Manílov, varaforseti rúss- neska herráðsins, sagði í gær að enn væru um 300 skæruliðar í Grosní en stríðinu í héraðinu væri hins vegar að ljúka með sigri Rússa. Talið er að um 7.000 skæruliðar verjist enn yfir 100.000 manna liði Rússa í fjalla- skörðum sunnarlega í Tsjetsjníu og er ljóst að enn geisa harðir bardagar. Rubin sakaður um „upp- lýsingahry ðj uverk“ Á fimmtudag lýstu rússnesk stjórnvöld yfir áhyggjum sínum af ástandi mannúðarmála á Norður-ír- landi. Hvöttu þau Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu, ÓSE, til að miðla málum í deilunum í héraðinu. Þá fordæmdu Rússar gagnrýni Jam- es Rubins, talsmanns bandaríska ut- anríkisráðuneytisins, á hernað þeirra í Tsjetsjníu. Ummæli hans voru sögð jafngilda því að hann að- stoðaði uppreisnarmenn sem stund- uðu „upplýsingahryðjuverk". Reuters Mótmæla fréttum CNN Lögregla í Beirút í Líbanon beitti í gær táragasi og háþrýstisprautum gegn allt að 10.000 manns, aðallega stúdentum, sem mótmæltu frétta- flutningi sjónvarpsstöðvarinnar CNN af loftárásum Israelsmanna á suðurhluta Lfbanons. Einn stúdent- anna mun hafa slasast í átökunum. Mótmælin hafa staðið undanfarna daga og fullyrðir fólkið að frétta- flutningur stöðvarinnar sé einhliða og ísraelsmönnum í hag. Sunginn var þjóðsöngur Líbanons og hrópuð vígorð gegn ísraelsmönnum og Bandaríkjamönnum. Á fimmtudag söfnuðust urn 2.000 manns saman við bandaríska sendiráðið, brenndu fána Bandarfkjanna og kröfðust þess að sendiherra landsins yrði rekinn frá Líbanon. MORGUNBLAÐK) 19. FEBRÚAR 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.