Morgunblaðið - 19.02.2000, Side 2

Morgunblaðið - 19.02.2000, Side 2
2 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjárlagatillaga verði gerð um sendiráð í Japan og Kanada RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi í gær að utanríkisráðuneytið undirbyggi fjárlagatillögu þess efnis að hægt verði að opna sendiráð í Jap- an árið 2001 og jafnframt í Kanada. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði eftir fundinn að þetta mál hefði oft verið tekið fyrir í ríkis- stjóm á undanfórnum árum, en aldrei hefði verið svigrúm til þess af fjárhagsástaeðum að taka endanlega ákvörðun um það að íslendingar opnuðu sendiráð á þessum stöðum. Halldór sagði að Kanada væri eina ríkið í Norðurskautsráðinu, sem ekki hefði sendiráð á íslandi, og að sama skapi væri ísland eina ríkið í ráðinu, sem ekki væri með sendiráð í Kan- ada. Kanadamenn hafa tekið vel í að opna sendiráð hér „I samtölum, sem ég hef átt við ut- anríkisráðherra Kanada, hefur hann tekið vel í að þeir opnuðu sendiráð hér,“ sagði hann. „Við þurfum að ræða það betur við Kanadamenn og verður það meðal annars gert í opin- berri heimsókn forsætisráðherra til Kanada nú í apríl.“ Halldór sagði að jafnframt yrði dregið úr rekstri skrifstofunnar í Winnipeg, en þó væri gert ráð fyrir að þar yrði áfram viðskiptafulltrúi, sem einnig sinnti menningarmálum. Áætlaður kostnaður af rekstri sendi- ráðs í Kanada er um 40 milljónir á ári. Gert er ráð fyrir að í sendiráðinu í Ottawa verði sendiherra, sendi- ráðsfulltrúi, kanadískur ritari og bíl- stjóri. Ekkert hefur enn verið rætt um það hverjir verði sendiherrar í Japan og Kanada. Halldór sagði að það væri ótímabært, enda ætti eftir að taka þetta fyrir á þingi. ■ Vilja stuðla/43 Úrvalsvísitala VÞÍ lækkaði um 2,9% Bréf 24 fyrir- tækja lækkuðu GENGI bréfa 24 fyrirtækja lækkaði á Verðbréfaþingi Islands í gær og lækkaði úrvalsvísitalan um 2,92%, sem er mesta lækkun hennar frá miðju ári 1993. Mest lækkaði gengi bréfa Opinna kerfa, um 9,1% í við- skiptum fyrir 94 milljónir króna, verð bréfa Samvinnusjóðsins lækkaði um 8% í sex milljóna króna viðskiptum, verð bréfa Tryggingamiðstöðvarinn- ar um 6,4% í 10 milljóna króna við- skiptum, verð bréfa FBA um 6,3% í 43 miHjóna króna viðskiptum og verð bréfa Marels um 5,2% í 36 milljóna króna viðskiptum. Eina umtalsverða hækkunin var 8% hækkun á bréfum Össurar. í VS fréttum Búnaðarbankans Verðbréfa í gær segir að mikil lækkun í gær og mikil viðskipti síðustu daga séu merki um að sumir fjárfestar hafi verið að innleysa hagnað eftír skarpa hækk- un hlutabréfa undanfama mánuði. Fjárfestar fari sér hægt „Úrvalsvísitala hlutabréfa hefur hækkað um tæp 60% síðustu 12 mán- uði. Búnaðai-bankinn Verðbréf telur að meðaltalsverð innlendra hluta- bréfa sé orðið hátt og að fjárfestar hafi nú þegar tekið inn í hlutabréfa- verð væntingar um góða afkomu. Pví ráðleggur Búnaðai-banldnn Verðbréf fjárfestum að fara sér hægt í fjárfest- ingarákvörðunum á hlutabréfamark- aði þar til uppgjör síðastliðins árs eru kunn,“ segir í ‘A5 fréttum Búnaðar- bankans Verðbréfa. Fækkun rúma á geðdeild SHR ekki afráðin INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra segir að ekki hafi verið ákveðið með hvaða hætti unnt verð- ur að ná endum saman á sjúkrahús- unum í Reykjavík og því ekki ljóst enn hvort legudeild geðdeildar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur verður flutt á Landspítala og/eða rúmum fækk- að. Sú hugmynd kom fram í stjórn spítalans og að með því móti yrði unnt að lækka útgjöld SHR um ná- lega 100 milljónir króna. „Við gerð síðustu fjárlaga voru framlög til sjúkrahúsanna í Reykja- vík ákveðin 19 milljarðar króna og þau hafa þá hækkað um fimm millj- arða á tveimur árum,“ sagði heil- brigðisráðherra í samtali við Morg- unblaðið. „Við vorum þess fullviss að hægt væri að halda að minnsta kosti óbreyttum rekstri. Sjúkrahúsunum í Reykjavík verður ekki stýrt af ráðu- neytinu, ekki hverri deild fyrir sig, og ég verð að treysta stjóminni til að fara bæði með faglega og fjárhags- lega ábyrgð á málunum. Stjómin er ekki búin að ákveða rammann," seg- ir Ingibjörg Pálmadóttir. Hún var spurð hvort þjónusta við geðsjúka yrði ekki skert, yrði af þessum áformum um fækkun rúma á SHR. Benti hún á að fjármagn til barna- og unglingageðdeildar Landspítala og Barnahúss hefði verið aukið á síð- asta ári um rúmar 100 milljónir króna og kvaðst þeirrar skoðunar að þjónusta við geðsjúka hefði verið að styrkjast. Ráðherra kvaðst að öðm leyti ekki geta tjáð sig um þetta ein- staka mál meðan ekkert væri afráðið íþví. Átta veikinda- dagar á ári STARFSFÓLK var að jafnaði frá vinnu vegna veikinda 3,2% af virk- um dögum ársins 1998, samkvæmt könnun sem Samtök atvinnulífsins (SA) gerðu sl. haust. Þetta jafn- gildir því að starfsmaður í fullu starfi hafi verið veikur í átta daga. Mikið var um skammtímaveikindi skv. könnuninni. Fram kemur á fréttavef SA að veikindadagar á íslandi eru álíka margir og í Danmörku, heldur færri en í Svíþjóð og mun færri en í Noregi. Um 13% svarenda segja að algengt sé að veikindadagar séu reglulega teknir út. Fleiri telja að veikindaréttur sé misnotaður. íslandsbanki F&M gerir tilboð í hlut ísafjarðar í Básafelli Bæjarstjórn svar- ar tilboðinu í dag ÍSLANDSBANKI F&M hefur gert bindandi kauptilboð í hluta- bréf ísafjarðarbæjai' í Básafelli hf. á ísafirði. Að sögn Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra stendur tilboðið í tvo daga og rennur út kl. 16 í dag en bæjarstjómin kemur saman klukkan 10 fyrir hádegi í dag til að ákveða hvemig svara skuli tilboð- inu. Tilboðið er á genginu 1,5 í hlut að nafnverði liðlega kr. 74,6 millj- ónir eða samtals 112 milijónir króna. Bæjarstjómin kom saman sl. fimmtudagskvöld til að ræða um tilboðið og var þá ákveðið að fá mat á því áður en ákvörðun yrði tekin. Morgunblaðið/Amór Forsetaslagur við bridsborðið NÍTJÁNDA Bridshátíðin hófst í gærkvöld á Hótel Loftleiðum. Það var Halldór Blöndal, forseti Al- þingis, sem setti mótið og spilaði síðan fyrstu umferðina við Guð- mund Ágústsson forseta Brids- sambandsins. 124 pör taka þátt í tvímenningskeppninni, sem lýkur um kl. 19.30 í kvöld. Á morgun hefst sveitakeppni og eru um 80 sveitir skráðar til kcppni og má ætla að um 400 spilarar taki þátt í þessari keppni. Þátttakendur eru af öllu landinu en auk þess eru spilarar frá Bandaríkjunum, Kan- ada, Svíþjóð, Noregi og Færeyjum. Sveitakeppnin hefst kl. 13 á morgun og verður spilað til kl. hálftólf en hátíðinni lýkur á mánu- dag. Þá verða spilaðar fjórar síð- ustu umferðirnar í mótinu og að þeim loknum er verðlaunaafhend- ing. Myndin var tekin í upphafi móts í gærkvöld. Forsetarnir Halldór Blöndal og Guðmundur Ágústsson spila gegn Kanadamönnnunum Howard Weinstein og Ralph Katz. Meðal áhorfenda má þekkja Árna Njálsson og Kristján Krisljánsson. 4SbHi Helgi Valur fer til AC Milan / B1 Hallast ad sigri Gróttu/KR / B3 Sérblöð í dag illMimiiiialyÍElMyBI J . . — LV : ú.U ” ■. . Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is T LloDu .1 MH.ADSIVS LAUGARDOGUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.