Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Rætt um hlutverk spilakassa í fjáröflun
fyrir félagastarfsemi
Brýnt að ágóði renni
til samfélagsþjónustu
Morgunblaðið/Jim Smart
Hr. Stowe Shoemaker, markaðssérfræðingnr frá háskólanum í Nevada,
lengst til vinstri ásamt fulltrúum félaganna sem standa að
íslenskum söfnunarkössum.
ÁGÓÐI af rekstri íslenskra söfnunar-
kassa er um 1.200 milljónir króna ár-
lega og skipta kassamir félögin sem
að þeim standa sköpun í rekstrinum.
Þetta kom m.a. fram á hádegisverðar-
fundi sem SÁÁ, Slysavamafélagið
Landsbjörg og Rauði kross íslands
héldu um hlutverk söfnunarkassa í
fjáröflun mikiivægrar félagsþjónustu.
Á fundinum kom einnig fram, að þrátt
fyrir neikvæðar afleiðingar spilafíkn-
ar er talið nauðsynlegt að viðhalda
þessum tekjustofnum félaganna til
þess að þau geti haldið fjárhagslegu
sjálfstæði sínu.
í upphafserindi Sigmundar Emis
Rúnarssonar fundarstjóra kom fram
að þjóðinni hefði lærst að ágóðinn af
spilakössum og happdrættum væri
best nýttur í þágu samfélagsins, en
færi ekki tii einkaaðila líkt og víðar
annars staðar. Þá væra kassamir
ekki aðeins grundvallarþáttur í
rekstri félaganna, heldur beinlínis sá
lykilþáttur sem gerði þeim kleift að
starfa. Allt að 90% af rekstrarfé
Rauða krossins koma úr söfnunar-
kössunum og 70% af innkomu þeirra
fara beint í rekstur félaganna, sem
era um 1.200 milljónir króna á ári.
„Gagnrýnendur spilakassa hafa
ekki getað bent á betri leiðir fyrir
þessi félög til að safna peningum. AU-
ir vita hins vegar að með þessari leið
sparar ríkisvaldið sér gríðarlegar
fjárhæðir, sem annars færu til samfé-
lagsmálefna."
Á fundinum fluttu erindi þeir
Stowe Shoemaker, sérfræðingur í
markaðsrannsóknum við háskólann í
Nevada, og Einar Oddur Kristjáns-
son alþingismaður. í erindi sínu rakti
Shoemaker þátt fjárhættuspila í
bandarísku, sem og alþjóðlegu samfé-
lagi, og komst að þeirri niðurstöðu að
sú löngun manna til að spila fjárhætt-
uspil yrði ekki umflúin. Hann sagði að
fjárhættuspil væra mjög algeng í
Bandaríkjunum og hvergi tíðari en í
Nevada þar sem spilamennska í Las
Vegas risi hæst. Jafnframt sagði hann
að kannanir sýndu fram á að meiri-
hluti þeirra sem spilaði liti á það sem
skemmtun en það að græða peninga.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Shoemaker að fjárhættuspil í Nev-
ada, sem væra langtum algengari en
á íslandi, væra ekki vandamál, þó að
vissulega lenti h'till hluti þeirra sem
spiluðu í vandræðum vegna spilafíkn-
ar. Það stoðaði hins vegar htt að
banna fólki að stunda fjárhættuspil.
„Við verðum að horfa á þá stað-
reynd að fjárhættuspil er tíl staðar.
Það er löglegt sums staðar en annars-
staðar ekki. En það fer samt alls stað-
ar fram. Mín persónulega skoðun er
sú að fjárhættuspil sé valkostur
neytandans. Ef fólk vill spila fjár-
hættuspil á það að eiga möguleika á
því. Það er síðan hlutverk stjómvalda
að tryggja að sú spilamennska fari
heiðarlega fram og að skipulögð
glæpastarfsemi þrífíst ekki í fjár-
hættuspilum.“
Einar Oddur Kristjánsson sagði
það mikilvægt að félögin, sem unnið
hefðu gott starf í samfélaginu, fengju
áfram að njóta þessarar fjáröflunar.
Væri þetta ekki til staðar væri eina
úrræðið að setja þau á opinbera fram-
færslu.
„Ég held að það væri alveg skelfi-
legt. Ég tel að við væram að gera
mjög rangt í því að svipta þau þessum
tekjustofhum, vegna þess að sjálf-
stæði þeirra er grundvöllurinn fyrir
því að þau séu viðurkennd og að það
starf sem þau vinna sé unnið betur af
þeim en öðram.“
Flugmönnum
hættara en
öörum við húð-
krabbameini
ÍSLENSKUM flugmönnum er
tíu sinnum hættara við að fá
húðkrabbamein en öðram sam-
kvæmt íslenskri rannsókn en
niðurstöður hennar voru birtar
nýverið í bresku læknatímariti
um atvinnusjúkdóma og umverf-
ismál, Occupational and Envir-
onmental Medicine. Niðurstaðan
gefur til kynna að þeim sé sér-
staklega hætt sem fljúga yfir
fimm tímabelti eða fleiri.
Rannsóknina unnu Vilhjálmur
Rafnsson, prófessor í heilbrigð-
isfræðpm við læknadeild Há-
skóla íslands, Jón Hrafnkelsson,
sérfræðingur í krabbameins-
lækningum, og Hrafn Tulinius,
yfírlæknir Krabbameinsskrár-
innar. Rannsakaðir voru 458
flugmenn í innanlands- og milli-
landaflugi en 265 þeirra hafa
starfað hjá Flugleiðum. Var
þeim skipt í þrjá hópa eftir
flugstundafjölda þeirra, undir 5
þúsund flugstundir, 5 til 10 þús-
und og yfír 10 þúsund stundir og
eins var skoðað hver tíðni
krabbameina var annars vegar
hjá þeim sem fljúga eingöngu til
Evrópu og hinna sem fljúga til
Bandaríkjanna og því yfír nokk-
ur tímabelti.
Húðkrabbamein eða sortu-
krabbamein var algengast
krabbameinstegunda hjá flug-
mönnunum. Sortukrabbameinið
var 10 sinnum tíðara hjá flug-
mönnunum en hjá jafn stórum
og jafn gömlum hópi íslenskra
karla og allt að 25 sinnum al-
gengara hjá þeim sem flugu yfir
mörg tímabelti.
Vilhjálmur Rafnsson tjáði
Morgunblaðinu að fara yrði var-
lega í að draga ályktanir af
þessari rannsókn. Ljóst væri að
flugmenn yrðu í vinnunni fyrir
geimgeislun, rafsegulsviði og ra-
díóbylgjum, auk þess sem þeir
ílygju gegnum mörg tímabelti.
Ekki væri mikið rannsakað
hvort íslenskir eða erlendir flug-
menn væru mikið í sólbaði en
útfjólublá geislun sólar hefur í
öðrum rannsóknum tengst hárri
tíðni húðkrabbameina.
Frekari
rannsókna þörf
„Við vitum ekki hver er orsök
þess að flugmenn eru umfram
samanburðarhóp í hættu á að fá
húðkrabbamein,“ segir Vil-
hjálmur í samtali við Morgun-
blaðið. „En við vitum að þeir
verða fyrir geimgeislun, þeir eru
í rafsegulsviði og verða fyrir
radargeislun í stjórnklefanum
og þeir fljúga yfir mörg tíma-
belti sem ruglað getur lífs-
klukku þeirra. Hópurinn er hins
vegar of lítill til að meta krabba-
meinshættu af geimgeislun. Til
þess þarf frekari rannsóknir og
meðal annars þarf að kanna
hvort hugsanleg sólböð þeirra,
óreglulegt mataræði og annað
slíkt skiptir einhverju máli í
þessu sambandi.“
Vilhjálmur sagði að í undir-
búningi væri rannsókn á flug-
mönnum á öllum Norðurlöndum,
um 10 þúsund manna hópi.
Sagði hann að líklegt væri að
draga mætti ákveðnari ályktanir
af niðurstöðum rannsókna á svo
stórum hópi.
Pétur Hauksson, formaður Mannverndar, gagnrýnir viðbrögð heilbrigðisyfírvalda
Segir yfírvöld hafa
gert heilsufarsupp-
lýsingar að söluvöru
HÖRÐ viðbrögð heilbrigðisráðu-
neytis vegna hvatningar samtak-
anna Réttlát gjaldtaka til einstakl-
inga um að segja sig úr
gagnagranninum og fá lögmenn til
að semja um greiðslur fyrir að láta
upplýsingar í granninn koma Pétri
Haukssyni, formanni samtakanna
Mannverndar, á óvart og kvaðst
hann í gær vera þeirrar hyggju að
heilbrigðisyfirvöld hefðu átt fram-
kvæðið í þessu máli og bæru því
fulla ábyrgð á því að heilsufarsupp-
lýsingar væra orðnar að söluvöra.
Haft var eftir Guðríði Þorsteins-
dóttur, skrifstofustjóra í heilbrigð-
isráðuneytinu, í Morgunblaðinu á
fimmtudag að það væri alveg ljóst
að ákvæðið í gagngrunnslögunum
um að einstaklingar ættu rétt á að
segja sig úr gagnagranninum hefði
ekki verið sett í þeim tilgangi að
fólk segði sig úr honum í þeim til-
gangi að semja síðan um greiðslur
fyrir að fara aftur inn í hann. Heil-
brigðisráðuneytið brást við yfirlýs-
ingum samtakanna Réttlát gjald-
taka með því að senda frá sér
fréttatilkynningu á miðvikudag þar
sem vakin var athygli á því að
hvorki íslenskri erfðagreiningu né
öðram sambærilegum fyrirtækjum
væri heimilt að greiða einstakling-
um fyrir þátttöku í gagnagranni á
heilbrigðissviði.
Jákvætt að færa eignarhald
upplýsinga til einstaklinga
„Þessar áætlanir ganga að mínu
mati út á það að færa eignarhaldið á
heilbrigðisupplýsingum yfir til
sjúklinganna," sagði Pétur. „Að því
leyti era þessar hugmyndir jákvæð-
ar, þótt þær hafi ýmsa ókosti í för
með sér, þar á meðal að sjúkraskrár
verða áfram verslunarvara.“
Hann kvaðst hins vegar telja að
það væri á ábyrgð heilbrigðisyfir-
valda, sem hefðu ákveðið að gera
sjúkraskrár að viðskiptavöra. Þetta
skref væri eðlileg afleiðing af því.
„Mér finnst eðlilegt að virða þann
rétt einstaklingsins að vilja fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð,“ sagði hann.
„Það hefur hins vegar ókosti í för
með sér, til dæmis að menn verða
tældir til að selja þessar upplýsing-
ar. Þeir freistast til þess þegar þeir
eiga möguleika á peningalegum
hagnaði og geta þá selt mikil verð-
mæti fyrir lítinn pening, einkum
þeir, sem era í fjárhagsvanda.“
Pétur kvaðst einnig meta það svo
að heilbrigðisyfirvöld væra með yf-
irlýsingunni komin í ákveðna mót-
sögn: „Það skýtur mjög skökku við
að ráðuneytið skuli lýsa því yfir að
þetta sé ólöglegt þegar ráðuneytið
gerir þetta sjálft, tekur gjald fyrir
heilsufarsupplýsingar."
Pétur sagði að hvergi kæmi fram
í samningi íslenskrar erfðagrein-
ingar við ríkið að ekki væri heimilt
að greiða einstaklingum fyrir þátt-
töku í gagnagranninum og kvaðst
ekki átta sig á þvi hvernig ráðu-
neytið kæmist að þeirri niðurstöðu
að þetta væri ekki heimilt. Þá væri
heldur ekki rétt sú fullyrðing Guð-
ríðar Þorsteinsdóttur að ekki væri
heimilt að taka greiðslu fyrir þátt-
töku einstaklinga í rannsóknum.
Hann benti á að það kæmi fram í yf-
irlýsingu þeirri, sem vísindasiða-
nefnd sendi frá sér á fimmtudag, að
það væri heimilt að taka gjald, sem
ætti að vera eðlileg endurgreiðsla á
kostnaði og umbun fyrir þann tíma,
sem færi í að taka þátt í rannsókn-
inni.
Heimilt að greiða
einstaklingum fyrir þátttöku
í rannsóknum
„Samkvæmt þessum alþjóða siða-
reglum er heimilt að taka gjald, en
spurningin er hversu mikið það á að
vera,“ sagði hann. „Það era því
þarna miklar mótsagnir. Stærsta
mótsögnin er hins vegar sú að ráðu-
neytið skyldi vera að fjalla um siða-
reglur núna þegar mikið hefur verið
bent á að gagnagrannslögin era
brot á siðareglum. Það er okkar af-
staða og ástæðan fyrir því að við
ætlum að fara í mál við ríkið út af
gagnagrannslögunum.“
Pétur gagnrýndi einnig viðbrögð
vísindasiðarnefndar og sagði að þau
kæmu á óvart.
„Það hefur ekki heyrst í þessari
nýju vísindasiðanefnd út af gagna-
grunnsmálinu fyrr en núna,“ sagði
hann. „Þá bregst nefndin mjög
harkalega við með mjög ítarlegri yf-
irlýsingu með litlum fyrirvara þeg-
ar þessi hugmynd kemur fram. Það
hefði verið æskilegra að hún úttal-
aði sig um gagnagrunnsmálið í heild
frekar en að bregðast svona harka-
lega við því að eignarhald á heilsu-
farsupplýsingum færist yfir til
sjúklinganna."
Hann sagði einnig athyglisvert að
vísindasiðanefnd skyldi nú lýsa yfir
því að hún myndi ekki leyfa rann-
sóknir, sem greitt væri fyrir með
þessum hætti, vegna þess að gagna-
grunnslögin gerðu ekki ráð fyrir því
að vísindasiðanefnd gæti bannað
gagnagrunnsrannsóknir.
„Einn helsti tilgangur gagna-
grannslaganna er að veita rekstrar-
leyfishafa undanþágu frá þessum
venjulegu siðareglum vísindamanna
um að fá leyfi óháðrar vísindasiðan-
efndar," sagði Pétur. „Ef vísinda-
siðanefnd er þeirrar skoðunar að
hún geti bannað þessar rannsóknir
ef greitt verður fyrir þær er það nýr
skilningur á gagnagrannslögunum."
Hann sagði að ríkið væri búið að
semja um greiðslu fyrir upplýsing-
arnar, en það útilokaði ekki að ein-
staklingar gætu krafist greiðslu.
Þarf að tryggja að fólk skaði
sig ekki með sölu upplýsinga
„Mér finnst eðlilegt að virða
þennan rétt einstaklingsins og frelsi
hans til að hagnast á því, sem hann
getur hagnast á,“ sagði hann. „En
um leið þarf að horfa á þá ókosti og
hættur, sem það hefur í för með sér,
og tryggja að fólk skaði sig ekki
þannig að það verði ekki eins og í
þriðja heiminum þar sem fátækling-
ar era að selja úr sér nýran.“
Að sögn Péturs er nú mikið að
gerast í þessum málum og kvað
hann hverja höndina upp á móti
annarri.
„Þegar verið er að tala við lækna-
félagið núna um einhvers konar
samþykki lýsir það þeirri upplausn,
sem þetta mál er í,“ sagði hann.
Pétur gagnrýndi einnig viðbrögð
rekstrarleyfishafa við þessum hug-
myndum um sölu á heilsufarsupp-
lýsingum, en Kári Stefánsson, for-
stjóri íslenskrar erfðagreiningar,
viðhafði nýlega í viðtali orðin „hýen-
ur og hælbítar" um þá, sem hann
sagði að væra á eftir fyrirtæki sínu,
sumir af persónulegum ástæðum,
aðrir af peningalegum ástæðum og
örfáir af prinsippástæðum.
„Þau orð, sem eru látin falla um
þá menn, sem eru með þessar hug-
myndir, og látið fylgja með slík orð
um þá, sem era í andstöðu, hafa
sært marga,“ sagði hann. „Fólk,
sem starfar af heilindum að mann-
réttindamálum hefur tekið því illa
að þurfa að þola svona nafnaköll í
fjölmiðlum - án þess að geta svarað
fyrir sig - fyrir þá sök eina að vinna
að bættri persónuvernd."