Morgunblaðið - 19.02.2000, Page 12

Morgunblaðið - 19.02.2000, Page 12
12 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Borgarstjóri segir brýnt að leysa stjórnunarvanda Borgarleikhússins Vilja breyta rekstrarfyr- irkomulagi leikhússins INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir nauðsynlegt að breyta rekstrarfyrirkomulagi Borg- arleikhússins, margt hafi staðfest það á umliðnum árum. Að mati borg- arstjóra koma aðeins tvær leiðir til greina í því sambandi; annars vegar að stofnað verði eignarhaldsfélag Borgarleikhússins sem semji við Leikfélag Reykjavíkur til þriggja til fimm ára í senn um starfsemi í hús- inu, hins vegar að leikhúsið verði borgarstofnun. Þetta kom fram í svari borgar- stjóra við fyrirspum Áma Þórs Sig- urðssonar borgarfulltrúa um málefni Borgarleikhússins og Leikfélags Reykjavíkur á fundi borgarstjómar í fyrrakvöld. Aðferðir við ráðningu nýs leikhússtjóra Borgarleikhússins, sem Ámi Þór kaus að kalla sérkenni- legan sjónleik, vom tilefni fyrir- spurnarinnar. Árni Þór spurði borgarstjóra hvort hún teldi núverandi rekstrar- fyrirkomulag Borgarleikhússins á vetur setjandi og hvort einhver vinna væri í deiglunni við að leita nýrra leiða við rekstur Borgarleikhússins. „Ég vil út af fyrir sig ekki blanda mér í það hver gegnir starfi leikhússtjóra enda ekki á valdi borgarstjórnar að ráða í það starf. Á hinn bóginn leggur Reykjavíkurborg mikið af mörkum og leggur umtalsverða fjármuni til rekstrar í Borgarleikhúsinu. Það varðar okkur því öll og borgarbúa al- mennt hvemig farið er með þá fjár- muni og hver orðstír Borgarleik- hússins er,“ sagði Árni Þór. Reksturinn veldur áhyggjum Ami segir valda áhyggjum hvem- ig komið sé fyrir leikhúsrekstri í Borgarleikhúsinu, svo kunni að fara að þeim stöðugleika og trúverðug- leika sem byggður hafi verið upp á undanfömum áram sé nú stefnt í voða en á því þurfi Borgarleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur síst að halda. „Það er mín persónulega skoð- un að það sé misráðið af stjóm leikfé- lagsins að efna til þess óvinafagnaðar sem nú er hafinn og það hefði verið leikhúsinu og leiklistarstarfsemi í Borgarleikhúsinu fyrir bestu að byggja áfram á þeim ávirmingi sem þrátt fyrir allt hefur tekist að ná á síðustu árum,“ sagði Ámi Þór. Borgarstjóri segir viðræður hafa staðið um fyrirkomulag rekstrar Borgarleikhússins milli fulltrúa borgarinnar og Leikfélags Reykja- víkur frá árinu 1994. Hún telur brýnt að leysa úr stjórnunarvanda leik- hússins sem hún segir byggðan inn í skipulag hússins og kallar eftir því að þeirri vinnu ljúki hið fyrsta. Hún leggur á það áherslu að ekki sé ein- falt að fmna þá lausn sem best gefst við reksturinn og bendir á að Leikfé- lag Reykjavíkur og borgarstjóm þurfi að vera sammála um breytingar á stofnskrá Borgarleikhússins til þess að þær nái fram að ganga. Forsendur fyrir stofnun eignarhaldsfélags I stofnskránni sem sett var árið 1975 segir að starfsemi í leikhúsinu verði í höndum Leikfélags Reykja- víkur undir yfirstjóm leikhúsráðs fé- lagsins og á grandvelli stofnskrár- innar var gert samkomulag um rekstur Borgarleikhússins. Sam- komulaginu hefur verið sagt upp af hálfu borgarinnar og síðan hefur átt sér stað vinna við að skoða með hvaða hætti best sé að koma fyrir rekstri í leikhúsinu, meðal annars hefur Borgarendurskoðun gert at- hugasemdir við reksturinn og ráð- gjöf verið fengin. Borgarstjóri segist ekki viss um að hagstætt sé að stofna raunveralegt borgarleikhús, borgarstofnun. Hún aðhyllist frekar þá lausn, sem lögð hefur verið til, að stofnað verði eign- arhaldsfélag Borgarleikhússins og Leikfélag Reykjavíkur og eftir atvik- um starfi fleiri aðilai- sem leikhópar í húsinu. Gerður verði þriggja til fimm ára samningur milli eignarhaldsfé- lagsins og Leikfélags Reykjavíkur þar sem verði ákvæði þess efrús að Leikfélag Reykjavíkur leigi skil- greindan hluta húsnæðisins af eign- arhaldsfélaginu. Leikfélagið fái ákveðna fjármuni og verði gert að uppfylla ákveðnar kröfur sem Reykjavíkurborg setji í samningnum. Forsendan fyrir því að þetta sé hægt er að skilgreint verði hver eignarhluti hvers eigenda Borg- arleikhússins sé. Unnið hefur verið að því og nú liggur fyrir, að sögn borgarstjóra, að talið er að eignar- hluti Leikfélags Reykjavíkur í Borg- arleikhúsinu sé um sjö prósent, met- inn á um 250 milljónir króna. Borgarstjóri telur því að nú liggi fyr- ir allar þær upplýsingar sem nauð- synlegar eru til að þessi leið verði farin. Hollvinasamtök Háskóla fslands undirrita samning við þrjú fyrirtæki , Morgunblaðið/Sverrir Hollvinasamtök Háskóia Islands undirntuðu í gær samstarfssamning við Flugfélag Islands, Opin kerfi og Landsbankann um að fyrirtækin verði svo- kallaðir hornsteinar samtakanna. Frá vinstri: Páll Skúlason, rektor Háskóla Islands, Jón Karl Ólafsson, framkvæmdasijóri Flugfélags íslands, Frosti Bergsson, stjómarformaður Opinna kerfa, Ragnhildur Hjaltadóttir, formaður Hollvinasamtakanna, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsban- kans og Bjami Ármannsson og Steingrímur Hermannsson, stjórnarmenn Hollvinasamtakanna. abinnréttingar i miklu úrvali Friform HÁTÚNI6A ff húsn. R5nl)4 SlMI: 552 4420 Nýtt upphaf í samskiptum Háskólans og atvinnulífsins HOLLVINASAMTÖK Háskóla ís- lands, sem stofnuð voru árið 1995, undirrituðu í gær samning við Flugfélag íslands, Landsbank- ann og Opin kerfi, um að fyrir- tækin verði svokallaðir hornstein- ar samtakanna. Ragnhildur Hjaltadóttir, formaður Hollvina- samtakanna, sagði að samningur- inn, sem gildir í eitt ár, fæli í sér að fyrirtækin, eða hornsteinarnir, styrktu samtökin fjárhagslega, en fengju í staðinn t.d. að nota merki Háskólans og nafn Holl- vinasamtakanna í sínu kynningar- efni. Að sögn Ragnhildar markar samningurinn nýtt upphaf í sam- skiptum Hollvinasamtakanna, Há- skóla fslands og atvinnulífsins. „Undirritunin sýnir að íslensk fyrirtæki sjá hag í því að efla Há- skóla íslands og styrkja þar með undirstöðu menntunar og visinda á íslandi,“ sagði Ragnhildur. „Þau hafa trú á að framtíð okkar byggi á bestu menntun.“ Fjölbreytt verkefni Ragnhildur sagði að verkefni Hollvinasamtakanna og hollvina- félaga væru fjölbreytt. „Sem dæmi um framlög til að efla skólann fjárhagslega má nefna tölvuátak samtakanna og Stúdentaráðs, sem er nýlokið. Einstaklingar og fyrirtæki lögðu þar fram andvirði á sjötta tugs milljóna til að bæta tölvukost HÍ. Næsta stórverkefni á þessu sviði er að safna fé til kaupa á nýjum stólum í Hátiðasal Háskólans. HoIIvinasamtökin undirbúa um þessar mundir umfangsmikið verkefni, sem felst í því að styrkja bönd útskriftarárganga í einstökum greinum. Að eignast hollvini þegar í Háskólanum og viðhalda tengslum kandidata við skólann og sína deild. Þessi hefð hefur ekki skapast við HÍ með sama hætti og stúdentaárgangar gera. Það er athyglisvert að þau þrjú fyrirtæki, sem valin hafa verið sem fyrstu hornsteinar Hollvina- samtakanna, Flugfélag íslands, Landsbanki íslands og Opin kerfi, tengjast starfsemi sem myndar undirstöðu, hornsteina, búsetu og velsældar á íslandi. Góðar sam- göngur, efnahagsleg velferð og tölvu- og upplýsingatækni eru forsendur þess að á íslandi búi sjálfstæð nútímaþjóð." Fyrrver- andi oddviti ákærður fyrir um- boðssvik og fjárdrátt FYRRVE RANDI oddviti V- Landeyjahrepps, Eggert Haukdal, hefur verið ákærður fyrir umboðssvik og fjárdrátt upp á rúmar tvær milljónir króna. Opinber rannsókn efnahags- brotadeildar ríkislögreglu- stjórans á meintum brotum oddvitans, sem níu íbúar í hreppnum fóru fram á í mars 1999, leiddi til ákæra á hendur honum. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Suðurlands næst- komandi fimmtudag og fer embætti ríkissaksóknara með saksókn í málinu. íbúarnir níu vildu með beiðni sinni um rannsókn ríkis- lögreglustjórans að gengið yrði úr skugga um hvort brot sem vörðuðu almenn hegning- arlög, bókhaldslög, sveitar- stjórnarlög, stjómsýslulög og skattalög hefðu átt sér stað hjá oddvitanum fyrrverandi og löggiltum endurskoðanda hreppsins. Blaðamanni DV greidd of lág yfir- vinnulaun / ••• / í sjo ar HÉRAÐSDOMUR Reykja- víkur hefur dæmt Frjálsa fjölmiðlun ehf. til að greiða blaðamanni á dagblaðinu DV 295 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum, auk 200 þús- und króna í málskostnað, vegna deilna um ógreidda yfir- vinnu aftur í tímann. Aðalkrafa blaðamannsins, stefnanda í málinu, á hendur Frjálsri fjölmiðlun byggðist á því að honum bæri réttur til greiðslu mismunar annars vegar yfirvinnu samkvæmt launaseðlum fyrir tímabilið maí 1992 til og með mars 1999, sem Frjáls fjölmiðlun hefði reiknað af launum stefnanda eingöngu, og hins vegar yfir- vinnu, sem reiknuð var af grunnlaunum hans að við- bættu álagi. Frjáls fjölmiðlun krafðist sýknu í málinu og bar m.a. fyrir sig að stefnandi hefði ekki rétt til að krefjast leið- réttingar launa aftur í tímann þrátt fyrir nýja túlkun Félags- dóms á kjarasamningi Blaða- mannafélags íslands, VSÍ og Samtaka iðnaðarins árið 1999, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að yfirvinna blaða- manna sem vinna eftir vakta- vinnufyrirkomulagi hjá DV skyldi reiknast af grannlaun- um að viðbættu vaktaálagi. Frjáls fjölmiðlun taldi að stefnandi hefði glatað kröfu- rétti sínum vegna aðgerðar- leysis hafi hann verið fyrir hendi, enda hefði hann tekið athugasemdalaust við launum sínum alla tíð og sætt sig með því við framkvæmd stefnda á launaútreikningum. Dómurinn tók afstöðu með stefnanda og segir í niður- stöðu dómsins að Frjáls fjölm- iðlun hefði greitt stefnanda of lág yfirvinnulaun allt frá kjarasamningnum frá því 7. maí 1992 til 1. maí 1999 þegar breyting varð á vegna dóms Félagsdóms.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.