Morgunblaðið - 19.02.2000, Page 13

Morgunblaðið - 19.02.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 13 FRÉTTIR Biðja ráðherra að kanna verðhækkanir Verðhækkarnir - des. i998tii des. 1999 +3,7% +5,4% +1,8% Búvörur án grænmetis Grænmeti Aðrar innlendar mat- og drykkjarv. Aðrar innlendar vörur Innfluttar mat- og drykkjarvörur Bílar og varahlutir Bensín Innfluttar vörur aðrar I -0,1% Áfengi og tóbak B +1.6% Húsnæði Opinber þjónusta +3,4% Önnur þjónusta 1ÉM1B1 +5,3% +9,2% +9,2% | +18,9% +14,4% Heimild: Hagdeild ASl NEYTENDASAMTOKIN hafa far- ið þess á leit við Valgerði Sverrisdótt- ur viðskiptaráðherra að hún láti fara fram ítarlega athugun á orsökum þess að verðhækkanir og verðlag hér á landi eru langt umfram það sem gerist í nálægum löndum, eins og segir í bréfi samtakanna til ráðherra. Samtökin benda á að verð hafi hækkað hér á landi mikið mun meira en í öðrum löndum á Evrópska efna- hagssvæðinu, t.d. hafi búvörur aðrar en grænmeti hækkað í verði um 3,4% á síðustu tólf mánuðum og grænmeti hafi hækkað um 5,4%. Þá hafi aðrar innlendar matvörur og innfluttar matvörur hækkað talsvert meira, eða um 9,2%. I bréfi samtakanna til ráðherra segir ennfremur að þegar litið sé til upplýsinga frá Evrópusambandinu komi í ljós að verðhækkanir á mat- vörum undanfama tólf mánuði eru miklu meiri hér en í nágrannalöndum okkar. T.d. hafi matur og óáfengar drykkjarvörur hækkað hér um 6,8% en þær hafi hækkað að meðaltali á öllu EES-svæðinu um 0,1%. Brauð- meti og aðrar komvörur hafi hækkað hér um 10,6% en um 3% í öðrum löndum innan EES. Loks megi geta þess að fiskur hafi hækkað um 14,4% á íslandi en um 3% innan EES. „Þessi dæmi tala sínu máli. Þróun gjaldmiðla hefur á sama tíma verið okkur hagkvæm og hefði átt að leiða til lítillegrar lækkunar, en alls ekki hækkunar," segir í bréfinu og að það sé álit Neytendasamtakanna að það sé skylda stjómvalda að bregðast við því ástandi sem nú ríkir. Islenskir neytendur geti ekki unað því að þurfa að búa við hæsta verð í heimi á nauð- synjavömm og horfa á skuldimar hækka vegna ónógrar samkeppni og óeðlilega hárrar álagningar. Möðruvallaprestakall Sr. Birgir Snæ- björnsson settur í embætti til vors SÉRA Birgir Snæ- björnsson hefur verið settur í embætti sóknar- prests í Möðruvalla- prestakalli og mun hann gegna þar störfum fram til 30. maí næstkomandi. Séra Torfi K. Stefánsson sem verið hefur sóknar- prestur þar síðustu ár sagði starfi sínu lausu um síðustu áramót. Sr. Birgir lét af störf- um í Akureyrarprestakalli í ágúst síðastliðnum eftir að hafa þjónað þar um áratugaskeið, en hann var einnig um tíma prófast- ur í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Mun sr. Birgir m.a. sjá um ferm- ingarundirbúning í sókninni og ferma þar í vor. „Ég er ekki alveg ókunnur í sókninni, því ég þjónaði þar á áranum 1966 til 1968 og á góðar minn- ingar frá þeim tíma,“ sagði sr. Birgir, en hann sinnti sókninni með störfum sínum við Akur- eyrarkirkju og var oft býsna mikið að gera. „Ég var stundum með allt upp í fjórar messur sama daginn,“ sagði hann. Þó sr. Birgir hafi formlega lát- ið af störfum í lok síðasta sumars hefur hann sinnt ýmsum verkum, einkum jarðarföram, nú í vetur. Sagði m.a. um að ræða fólk sem tekið hefði af honum loforð á sín- um tíma um að jarðsyngja sig þegar að því kæmi. Undan því myndi hann ekki víkjast. Sr. Birgir Snæbjörnsson Frjálst sætaval Sætin í Scénic koma á óvart Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 2ja, 3ja, 4ja eða 5 sæta. Sætin gera Scénic enn skemmtilegri og fjölhæfari. Ekki nóg með að allir í bílnum sitji mun hærra en gengur og gerist heldur eru aftursætin t.d. á sjálfstæðum sleðum og auðvelt er að fjarlægja þau úr bílnum eða fella þau fram t.d. við flutninga. Ökumannssætið er hæðarstillanlegt og með sérstökum stillanlegum mjóhryggsstuðningi og svo mætti lengi telja. Fáðu þér sæti í nýjum og enn skemmtilegri Renault Scénic. RENAULT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.