Morgunblaðið - 19.02.2000, Page 14
14 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Borgarstjórn samþykkir
umdeilda lokun Alands
Morgunblaðið/Júlíus
Mikill gegnumakstur er um Áland vegria umferðar að Borgarspítala.
Fossvogur
MEIRIHLUTI borgarstjórn-
ar samþykkti í fyrrakvöld lok-
un Álands fyrir umferð. Lok-
unin verður endurskoðuð að
ári liðnu með tilliti til fenginn-
ar reynslu. Sjálfstæðismenn
greiddu atkvæði gegn lokun-
inni og gagnrýndu borgaryf-
irvöld fyrir meðferð málsins.
„Boi-garyfir\'öld hafa dregið
lappirnar í þessu viðkvæma
máli,“ sagði Jóna Gróa Sig-
urðardóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Lokun Álands var sam-
þykkt í skipulags- og umferð-
arnefnd borgarinnar í lok síð-
asta mánaðar þrátt fyrir
andstöðu sjálfstæðismanna í
nefndinni. Par létu þeir bóka
að umferðardeild borgarverk-
fræðings hefði sýnt fram á
aðrar leiðir til að auka um-
ferðaröryggi í Álandi en að
loka götunni. „Þær. leiðir
hefði verið rétt að reyna fyrst
enda valda þær minni óþæg-
indum, fyrir þá íbúa sem búa
neðar í hverfinu, en lokun
Álands," segir í bókuninni.
Ennfremur segir: „Mikill
ágreiningur er meðal íbúa
hverfisins varðandi þetta mál.
Lokun Álands er breyting á
deiliskipulagi og því hefði ver-
ið eðlilegra að vinna að lausn
málsins í samráði við íbúa
hverfisins. Betur hefði þurft
að undirbúa málið, t.d. liggja
ekki fyrir talningar umferðar-
deildar á umferð um Áland.“
Jóna Gróa beindi því til
borgarstjóra að frestað yrði
að taka ákvörðun um lokun
Álands, málið yrði skoðað
betur og sátta við íbúa í ná-
grenninu leitað. Jóna Gróa
varpaði meðal annars fram
þeirri hugmynd að Áland yrði
vistgata. Borgarstjóri taldi
hins vegar ekki eftir neinu að
bíða fyrir borgarstjórn að
taka ákvörðun í málinu, enda
hefði það verið skoðað vel og
gert sé ráð fyrir því að lokun-
in verði endurskoðuð að ári.
Borgarstjóri lagði á það
áherslu að gerðar verði um-
ferðartalningar áður en göt-
unni verður lokað og meðan á
lokun stendur þannig að fyrir
liggi öll gögn þegar lokunin
verður endurskoðuð.
Varðandi hugmyndir um að
vistgata myndi þjóna íbúum í
nágrenni Álands betur en lok-
un götunnar sagði borgar-
stjóri: „Vistgata er eitthvað
sem er til frambúðar, það ger-
ir maður ekki til reynslu. Það
verður að vera niðurstaða af
tilraun og standa til frambúð-
ar vegna þess að í slíkri götu
liggur heilmikil fjárfesting
sem má ekki verða bara tíma-
bundin," sagði borgarstjóri.
Nýja verslunarhúsið, Spöngin, í Grafarvogi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rekstur að hefiast á 700 fm
NÚ FER að styttast í að 700
fm verslunar- og þjónustu-
rými verði tekið í notkun í
hverfiskjarnanum Spönginni
í Grafarvogi. Jón Pálmi Guð-
mundsson, framkvæmda-
stjóri Þyrpingar hf., segir að
í tengslum við ákvörðun um
að opna Hagkaupsverslun í
stærra húsnæði en áætlað
hafi verið fyrir Nýkaups-
verslun hafi reynst nauðsyn-
legt að fresta opnun verslun-
arinnar þangað til í næsta
áfanga, sem yrði tekinn í
notkun í lok ársins, en þá
verður verslunar- og þjón-
usturými, alls orðið um 4.500
fm. Heilsugæsla verður opn-
uð í 1.500 fm, stofur tann-
lækna, augnlækna, sjúkra-
þjálfara, sérfræðinga og
fleiri á 800 fm og líkamsrækt-
arstöð á 1.200 fm árið 2001.
Bónusverslun tók fyrst til
starfa í 600 fm húsnæði í
Spönginni árið 1997. Blóma-
búð, banki, efnalaug, apótek
og myndbandaleiga fylgdu í
kjölfarið á 700 fm árið eftir.
Nú er að hefjast rekstur
Dominos pizza, Subway, hár-
greiðslustofu, snyrtistofu,
Hans Petersen, Islandspósts
og bókabúðar. Orku-bens-
ínstöð verður opnuð við
Spöngina seinna á árinu.
Alls verður um 8.000 fm
húsnæði að ræða. Gert er ráð
fyrir að heildarkostnaður við
byggingarnar nálgist einn
milljarð.
Engin sameign
Jón Pálmi sagði að Þyrp-
ing væri ekki aðeins eigandi
Spangarinnar heldur hefði
yfirumsjón með allri hönnun,
skipulagi, byggingu og
rekstri. Með því skapaðist
ákveðinn heildarsýn ólíkt því
þegar fleiri kæmu að sama
verkinu. Engin eiginleg sam-
eign verður í Spönginni eins
og t.d. f Kringlunni heldur
verður sameiginlegt svæði
aðeins eins konar skýli.
Aðspurður sagðist Jón
Pálmi ekki telja að húsnæðið
væri of stórt og benti í því
sambandi á að gert væri ráð
fyrir að íbúar í Grafarvogi
yrði yfir 20.000. Stærstu
verktakarnir við Spöngina
eru Alefli, Jarðvélar, Grand-
lagnir, Staðall, Þarfaþing og
gengur vinna samkvæmt
áætlun.
Umferðarnefnd Kópavogs vegna
umferðaröryggis um Vallartröð
Ekki tekin
afstaða til
umbóta við
gangbraut
Austurbær Kópavogs
UMFERÐARNEFND Kópa-
vogs hefur tekið undir erindi
íbúasamtaka gamla austur-
bæjarins í Kópavogi, skóla-
stjómenda Kópavogsskóla og
Foreldraráðs Kópavogsskóla
um að bæta þurfí umferðar-
öryggi gangandi vegfarenda
við Vallartröð. Erindinu er
vísað til skoðunar í tengslum
við áætlun um svokölluð 30
km/klst svæði. Rúna S. Geirs-
dóttir, formaður Ibúasamtak-
anna, segir vonbrigði að ekki
hafi verið tekin afstaða til ann-
arra atriða í tillögunni í
tengslum við umferðaröryggi
við gangbraut yfir Vallartröð.
Rúna sagði í samtali við
Morgunblaðið að Ibúasamtök-
in hefðu lengi barist fyrir
bættu umferðaröryggi við
skólann. „Umferðarhraðinn í
kringum skólann hefur lengi
farið fyrir brjóstið á okkur í
íbúasamtökunum. Þama em
börn frá sex ára aldri á ferð-
inni og slysagildrur á hverju
strái. Með seiglunni hefur
okkur tekist að ýta á að um-
bætur yrðu gerðar á Digra-
nesvegi og Skólatröð þó að
auðvitað megi alltaf gera bet-
ur. Nú er röðin komin að Vall-
artröð og sérstaklega umbót-
um í kringum gangbrautina.
Vandinn felst í því að börnin
fara beint út af skólalóðinni yf-
ir gangbrautina. Bílarnir
koma yftr blindhæð og öku-
menn sjá ekki krakkana fyrr
en alltof seint eins og þegar
strákurinn minn varð fyrir bíl
á gangbrautinni fyrir tveimur
árum.“
Með bréfí til umferðar-
nefndar fara Ibúasamtökin,
ásamt skólastjórnendum
Kópavogsskóla og foreldra-
ráði Kópavogsskóla, fram á að
dregið verði úr umferðar-
hraða með þrengingu rétt
sunnan Neðstutraðar, gang-
brautin verði betur merkt og
vakin athygli á umferð skóla-
bama svo og að komið verði
upp einhvers konar stýringu á
umferð skólabarna um vestur-
útganginn, t.d. með grindum.
Að auki er ítrekað að eðlilegt
sé að takmarka hraða öku-
tækja um götuna við 30 km/
klst.
Vonast eftir
framtíðarlausn
Umferðarnefnd frestaði af-
greiðslu erindisins á fundi sín-
um í desember. Erindið var
tekið fyrir á næsta fundi í jan-
úar. Nefndin tók undir að
auka þyrfti umferðaröryggi
um Vallartröð og vísar erind-
inu til skoðunar í tengslum við
svæði þar sem hámarkshraði
er 30 km/klst. Rúna tók fram í
tengslum við erindið að Ibúa-
samtökin vonist til að framtíð-
arlausn á vandanum við Vall-
artröð verði fundin í tengslum
við nýtt miðbæjarskipulag í
bænum. Hins vegar væri full
ástæða til að leita annarra
leiða þangað til eins og gert
hefði verið í erindinu. íbúa-
samtökin hefðu orðið fyrh'
vonbrigðum með að ekki væri
tekin afstaða til annarra atriða
í tillögunni í tengslum við um-
ferðaröryggi við gangbraut
yfír Vallartröð. Hún lýsti yfir
ánægju sinni með að girðingu
hefði verið komið fyrir ofan á
varasömum kanti samhliða út-
keyrslunni út úr Hamraborg.
Þórarinn Hjaltason, bæjar-
verkfræðingur, sagði í samtali
við Morgunblaðið vinnustofan
Þverá hefði verið valin til að
koma með tillögur að afmörk-
un svokallaðra 30 km svæða,
fleiri hraðahindrunum og að-
gerðum til að auka umferðar-
öryggi barna á gönguleiðum í
kringum skóIa.Tillöguí'nar
yrðu unnar í samráði við hags-
munaðila á borð við foreldra-
félög, íbúasamtök og skóla-
stjórnendur. Efnt yrði til
fundar með áðurnefndum
hagsmunasamtökum í næstu
viku. Heildartillagna fyrii'
bæinn væri að vænta frá
vinnusto^jnni í haust.
Fyrirtíðaspenna
nánast horfin !
„Ég hef tekið NATEN 1 2 3 í nokkra
mánuði með mjög góðum árangri.
Fyrír utan það að húð mín og hár
eru mun frísklegri, fannst mér
mesti munurínn að bræðisköst
og spenna fyrir blæðingar eru
nánast horfin. Einnig er ég
orkumeíri og mér líður allri betur.
Ég mæli með að konur um og yfir
fertugttaki Naten reglulega. Mín
reynsla er sú að Naten dregur
verulega úr fyrirtíðaspennu
og ég veit að það hefur mjög góð
áhrif á konur á breytingaskeiðinu.
Naten er sannkallað fegrunarmeðal
úr náttúrunni og frábær fæðubót
fyrir konur á besta aldri."
Fæst í sérverslunum og apótekum um land
Tossalisti
21. aldarinnar
Hafnarfjörður
HAFNARFJARÐARBÆR hefur
hleypt af stokkunum hugmynda-
samkeppnl um nýsköpun úr notuðu
efni í öllum skólum sveitarfélagsins.
Hugmyndasamkeppnin tengist al-
þjóðlegu átaki undir yfirskriftinni
Staðardagskrá 21.
Hulda Steingrímsdóttir, verkefn-
isstjóri, segir að ef til vill sé meira
lýsandi að tala um Tossalista 21.
aldarinnar. Verkefnið megi rekja til
Ríó-samningsins árið 1992. Tilgang-
urinn felist í því að ýta undir tillits-
semi í umgengni við náttúruna og
auðlindir og rýra ekki möguleika
komandi kynslóða til framtíðar á
jörðinni. Þessari langtímahugsun
hefur verið gefið nafnið sjálfbær
þróun.
Fyrsta ráðstefnan í tengslum við
Staðardagskrárverkefnið var haldin
hér á landi sl vor. Áðumefnd hug-
myndasamkeppni er haldin í tengsl-
um við aðra ráðsteíhu átaksins þann
4. apríl nk. Nemendur á öllum aldri í
öllum skólum Hafnaríjarðai'bæjai'
eru hvattir til að nota hugmynda-
flugið til listsköpunar úr notuðu
efni, þ.e. með endurvinnslu eða end-
umýtingu. Þemað er einfaldlega
endumýting. Formið er ekki fyrir-
fram ákveðið heldur tekið á móti
slagorðum, myndum, sögum o.s.frv.
Hugmyndum ber að skila til verk-
efnisstjóra á Strandgötu 6 í Hafnar-
íirði. Skilafrestur er til 20. mars nk.
Viðurkenningar verða veittar fyrir
bestu hugmyndimar og verður af-
rakstui' samkeppninnar sýndur í
ráðstefnusalnum.