Morgunblaðið - 19.02.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.02.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Gjöldin ólík og gjald- stofnarnir mismunandi Fasteignagjöld á höfuðborgarsvæð- inu eru innheimt samkvæmt mis- munandi reglum. Pétur Gunnars- son bar saman gjaldtöku sveitarfélaganna á svæðinu. Samanburður fasteignargjaicia á höfuðborgarsvæðinu 16 milljón kr. 10 milljón kr. Reykjavík eign í einbýli eign í fjölbýli Útskýringar á gjaldliðum (fm. húss og lóðar) (fm. íbúöar og lóðarhl.) Fasteignarskattur 60.000 37.500 0,375% af fasteignarmati húss og lóðar Lóðarleiga 1.740 725 fasteignarmat lóðar: 1,2 m.kr./0,5 m.kr. x 0,145% Holræsagjald 24.000 15.000 m.v. fasteignarmat húss og lóðar, 0,15% Vatnsgjald 19.172 10.672 85 kr. x 200/100 (víðmiðun í fermetrum) + 2.172 kr. Sorphirða/eyðing 6.000 6.000 m.v. eitt ilát SAMTALS kr. 110.914 kr. 69.897 1 Seltjarnarnes Fasteignarskattur 60.000 37.500 0,375% af fasteignarmati húss og lóðar Lóðarleiga 0 0 allt sérbýli á eignarlóðum og mestur hluti fjölbýlis Holræsagjald 0 0 holræsagjald ekki lagt á á Seltjarnarnesi Vatnsgjald 24.000 15.000 0,15% af fasteignarmati húss og lóðar Sorphirða/eyðing 4.800 4.800 m.v. eitt ílát SAMTALS kr. 88.800 kr. 57.300 | Mosfellsbær Fasteignarskattur 60.300 37.679 álagningarstofn: 16 m.kr./10 m.kr. x 1.005 x 0,375% Lóðarleiga 1.740 725 Fasteignarmat lóðar: 1,2 m.kr./0,5 m.kr. x 0,145% Holræsagjald 22.200 14.250 0,15% af fasteignarmati húss (14,8 m.kr./9,5 m.kr.) Vatnsgjald 24.000 15.000 0,15% af fasteignarmati húss og lóðar (16m.kr./1 Om.kr) Sorphirða/eyðing 5.000 5.000 m.v. eitt ílát SAMTALS kr. 113.240 kr. 72.663 | Kópavogur Fasteignarskattur 60.000 37.500 0,375% af fasteignarmati húss og lóðar Lóðarteiga 4.580 2.032 693,9 ferm.(einbýli)/307,8 ferm.(fjölbýli) x 6,60 kr. Holræsagjald 20.800 13.000 0,13% af fasteignarmati húss og lóðar Vatnsgjald 30.400 19.000 0,19% af fasteignarmati húss og lóðar Sorphirða/eyðing 7.000 7.000 m.v. eitt ílát SAMTALS kr. 122.780 kr. 78.532 5% staðgreiðsluafsláttur Garðabær Fasteignarskattur 72.000 45.000 0,45% af fasteignarmati húss og lóðar Lóðarleiga 12.000 5.000 fasteignarmat lóðar: 1,2 m.kr./0,5 m.kr. x 1 % Holræsagjald 12.000 7.000 0,07% af fasteignarmati húss og lóðar Vatnsgjald 11.200 7.500 0,075% af fasteignarmati húss og lóöar Sorphirða/eyðing 6.500 6.500 m.v. eitt ílát SAMTALS kr. 113.700 kr. 71.000 | Bessastaðahr. Fasteignarskattur 60.849 38.030 Fasteignarmat húss og lóðar + 5,64% x 0,36% Lóðarleiga 0 0 eignarlóðir Holræsagjald 13.320 8.550 0,09% af fasteignarmati húss (14,8 m.kr./9,5 m.kr.) Vatnsgjald 22.400 14.000 0,14% af fasteignarmati húss og lóðar Sorphirða/eyðing 7.500 7.500 m.v. eitt ilát SAMTALS kr. 104.069 kr. 68.080 1 Hafnarfjörður Fasteignarskattur 60.000 37.500 0,375% af fasteignarmati húss og lóðar Lóðarleiga 12.000 5.000 fasteignarmat lóðar: 1,2 m.kr./0,5 m.kr. x 1 % Holræsagjald 24.000 15.000 0,15% af fasteignarmati húss og lóðar Vatnsgjald 24.000 15.000 0,15% af fasteignarmati húss og lóðar Sorphirða/eyðing 4.000 4.000 m.v. eitt ílát SAMTALS kr. 124.000 kr. 76.500 i 1 SAMANBURÐUR á fast- eignagjöldum á höfuðborgar- svæðinu leiðir í ljós að eigandi 16 milljón króna sérbýlis, mið- að við fasteignamat húss og lóðar, greiðir mest til sveitar- félagsins í Hafnarfirði, 124.000 kr., en minnst á Seltamamesi, 88.800 kr. Eigandi 10 mkr. íbúðar í fjölbýlishúsi, miðað við fast- eignamat húshluta og lóðar- hluta, greiðir mest í Kópavogi, 78.532 en minnst á Seltjamar- nesi 57.300. Samanburðinn, sem birtist á kortinu hér til hliðar, gerði blaðamaður Morgunblaðsins á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögunum. Við samanburðinn er ein- göngu gengið út frá að fast- eignamat eignanna sé hið sama og að eigendur eigna með sambærilegt fasteigna- mat í sveitarfélögunum eigi jafnmikið fé bundið í eignun- um. Ekki er tekið mið af því að eignir kunna að vera mismun- andi, t.d. þannig að stærri hús fáist fyrir ákveðna íjárhæð í Mosfellsbæ og í Bessastaða- hreppi en í Reykjavík eða á Seltjamarnesi. Mismunandi álagningarstofn Álagningastofnar sveitarfé- laganna era heldur ekki að öllu leyti sambæriiegir. Að Bessastaðahreppi og Mosfellsbæ leggja sveitarfélög- in fasteignaskatt á sem ákveðið hlutfall af óbreyttu fast> eignamati húss og lóðar. Þetta hlutfall er 0,375% nema í Garða- bæ, þar sem það er 0,45%. í Bessastaðahreppi er búinn til álagningarstofn sem felur í sér að fasteignamat húss og lóðar er hækkað um 5,64% og á þann stofn lagður 0,36% fast- eignaskattur. Aðferðin jafn- gildir álagningu 0,38% fast- eignaskatts. í Mosfellsbæ er álagning- astofn búinn til með 5,7% hækkun fasteignamats, eða margföldun faseteignamats með 1,005, og á þann stofn er lagður 0,375% fasteignaskatt- ur. Við álagningu sérstaks álag- ningarstofns er miðað við að eignir séu ekki sambærilegar við fasteignamat í Reykjavík, þar sem fasteignamatsstuðu- llinn er 1. Menn fái stærri eignir iyrir sömu fjárhæð í öðram sveitarfélögum og álag- ningarprósentunni er ætlað að endurspegla það, að sögn Ás- bjöms Þorvarðarsonar, hjá fjárreiðudeild Mosfellsbæjar. Lóðarleiga á fermetra íKópavogi Einnig er lóðarleiga lögð á með mismunandi hætti. Kópavogur er t.d. eina sveit- arfélagið á svæðinu, sem inn- heimtir lóðareigu, sem fasta krónutölu, kr. 6,60, á hvem fermetra lóðar eða lóðahluta. í samanburðinum er gert ráð fyrir að sérbýlinu fylgi 693,3 fermetra lóð. Væri t.d. um 878,1 fermetra lóð að ræða, yrði lóðarleigan í dæm- inu til hliðar 1.220 kr. hærri en þar er gert ráð íyrir. Þar með væri upphæð heiidargjald- anna í dæminu hin sömu í Kópavogi og Hafnarfirði. Onnur sveitarfélög, þar sem um eignarlóðir er að ræða, innheimta ákveðið hlutfall af fasteignamati lóðar eða lóða- hluta í lóðarleigu. Við samanburðinn er gengið út frá því að fasteignamat lóð- ar í sérbýli sé 1,2 milljónir króna og fasteignamat lóðar- hluta í fjölbýli sé 500 þús. kr. í Reykjavík og Mosfellsbæ er hlutfall lóðarleigu af f'ast- eignamati lóðar 0,145%. í Garðabæ og Hafnarfirði er hlutfallið 1%. í Bessastaðahreppi eru, að sögn, eingöngu eignarlóðir. Á Seltjamamesi er allt sérbýli á eignarlóðum og þorri fjölbýlis. Blokkir við Eiðistorg og Aust- urströnd standa þó á leigulóð- um. Þegar um slíkt er að ræða er innheimt 2-4% lóðarleiga. Miðað við íbúð í fjölbýli á leigulóð, þar sem fasteignamat húshluta er 9,5 milljónir króna, og fasteignamat lóðar- hluta 500 þús. kr., væra greiddar 10-20 þúsund krónur á ári í lóðarleigu og fjárhæð heildargjalda 10 m.kr. eignar í ijölbýlishúsi á Seltjamamesi hækkar í slíku dæmi í 67.300 kr,-77.300 kr. Mismunandi holræsagjaldstofn Holræsagjald er einnig inn- heimt á mismunandi hátt í sveitarfélögunum; það er reyndar ekki innheimt á Sel- tjamamesi. Heimild til álagningar hol- ræsagjalds er að finna í 87. gr. vatnalaga frá 1923. Þar segir að bæjarstjóm sé rétt að leggja gjald á hús og lóðir í kaupstaðnum til þess að standa straum af holræsa- kostnaði. Gjald megi miða við virðingarverð fasteigna eða við stærð lóða eða við hvort- tveggja. I samræmi við þetta fara sveitarfélögin ólíkar leiðir. Mosfellsbær og Bessastaða- hreppur leggja holræsagjald á sem hlutfall af fasteignamati húss eða húshluta. Önnur sveitaríélög leggja það á sem hlutfall af fasteigna- mati hússÆúshluta og lóðar/ lóðarhluta. Hlutfall holræsagjalds er einnig mismunandi, eins og sést á kortinu; lægst í Garða- bæ. Vatnsgjald á fermetra í Reykjavík Ekki er heldur um að ræða samræmda innheimtu sveitar- félaganna á vatnsgjaldi. Þar miðar Reykjavík ein við stærð húss í fermetram. Dæmin að ofan miðast við 200 fermetra sérbýli og 100 fer- metra fjölbýli. Á hvem fer- metra leggur borgin 85 kr. vatnsgjald og að auki 2.172kr. fast gjald á hverja eign. Önnur sveitarfélög leggja á ákveðið hlutfall af fasteigna- mati húss/húshluta og lóðar/ lóðarhluta. Lægst erhlutfallið í Garðabæ, 0,075% en hæst í Kópavogi, 0,19%. I dæmunum hér að ofan jafngildir vatnsgjald í Reykja- vík um 0,12% hlutfalli af fast- eignamati sérbýlis og 0,106% af fasteignamati fjölbýlis. Öll sveitarfélögin innheimta gjald vegna sorphreinsunar, tunnuleigu og/eða sorpeyðing- ar. Þau gjöld eru ekki ná- kvæmlega greind hér, en birt sú fjárhæð, sem greidd er samtals af hverri eign, miðað við að leigð sé ein sorptunna. 827 Mosfellingar vilja aukna löggæslu Mosfellsbær 827 ÍBÚAR Mosfellsbæjar hafa skrifað á undirskrift- arlista þar sem krafist er aukinnar löggæslu í bæjar- félaginu. Guðrún Esther Árnadótt- ir, forgöngumaður um söfhunina, póstsendi dóms- málaráðherra undir- skriftalistann í gær. Hún segir að ekki hafi verið leitað til þingmanna því þingmenn Reykjavíkur- svæðisins séu ónýtir í bar- áttu af þessu tagi. Á undirskriftalistanum segir að þörfin fyrir aukna löggæslu í bæjarfélaginu sé augljós og megi nefna inn- brotafaraldur sem dæmi um það. „Ekki næst alltaf símasamband við lög- reglustöð en þar er starfs- maður frá kl. 10-18 virka daga. Vaktir lögregluþjón- anna eru tvær frá kl. 7-15 og frá kl. 15-23. Gegna þeir Mosfellsbæ að Víkur- vegþ, Kjalarnesi, Kjós að Hvalljarðarbotni ásamt Hvalfjarðargöngum og einnig austur að Grafningi. Engin vakt er frá kl. 6 á laugardagsmorgni til kl. 7 á mánudagsmorgni," segir þar. Guðrún Esther Árnadótt- ir segir bæjarbúa ánægða með lögreglumennina sem þar starfa en óánægða með að ekki sé lengri viðvera á lögreglustöðinni í bænum og markvissari löggæsla innanbæjar að kvöldlagi og um helgar. Mikil óánægja hefur ver- ið í bænum vegna þessa undanfarna mánuði og hafa bæjaryfirvöld m.a. fundað með lögreglustjóra og ráð- herra vegna málsins. Guðrún Esther sagðist hafa farið af stað með und- irskriftasöfnunina í fram- haldi af því að brotist var inn á heimili hennar meðan enginn var heima. „Það er ekki góð tilfinning að vita að einhver ókunnugur hafi verið heima hjá manni þeg- ar maður var í vinnunni," segir hún. „Ég vinn á stórum vinnu- stað og þegar ég fór að ræða þetta kom í ljós að það hafi verið farið inn hjá annarri konu og sama dag- inn og brotist var inn hjá mér voru spor eftir þjófa _ við hús neðar í götunni.“ í framhaldinu hafi hún og fleiri ákveðið að safna und- Morgunblaðið/Ámi Sæberg Eftir að hafa sent dómsmálaráðherra undirskriftalistana fór Guðrún Esther Árnadóttir í klippingu á Hárhúsi Onnu í Mosfellsbæ. irskriftum til að krefjast úrbóta í löggæslumálum bæjarins. Þótt innbrotið heima hjá henni og fleiri innbrot í bænum hefðu verið upplýst breytti það ekki því að bærinn væri jafnlöggæslu- laus eftir sem áður á kvöld- in og um helgar. Hún sagði að við söfnun- ina hefði ekki verið gengið í hús heldur látið nægja að undirskriftarlistar lægju frammi á fimm stöðum í bænum, t.d. í bensínstöðv- um, í stuttan tíma. Árang- urinn varð sá að af 5.849 bæjarbúum skrifuðu 827 á listann. Listarnir voru póstsend- ur Sólveigu Pétursdóttur, dómsmálaráðherra í gær með bréfi sem 14 manns undirrita og gera kröfu um að aukin löggæsla í bænum verði tekin til umfjöllunar og niðurstaða þeirrar um- fjöllunar kynnt almenningi- Ónýtir þingmenn Guðrún Esther kvaðst vonast til að dómsmálar- áðherra tæki málið nú upp en kvaðst ekkert vilja segja um hve langan tíma hún teldi eðlilegan til að af- greiða þaðð. Um það hvort hún eða aðrir Mosfellingar hefðu leitað liðsinnis þingmanna Reykjaneskjördæmis til að berjast fyrir úrbótum í lög- gæslumálum, sagði hún: „Ég held að þessir þing- menn okkar á Reykjavík- ursvæðinu séu ónýtir. Það er verið að gera jarðgöng hingað og þangað en hvað með t.d. Vesturlandsveginn og leiðir út úr bænum ef eitthvað gerðist? Mér finnst þingmennirnir ónýtir og þeir hugsa ekkert um okk- ur hér fyrir sunnan. Það er landsbyggðapólitíkin sem blffur."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.