Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 20

Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Samningurinn við LA og Sinfóníuhlíómsveitina Lyftistöng’ fyrir menningarlífíð STJÓRNENDUR Leikfélags Akur- eyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norð- urlands eru ánægðir með samninga sem undirritaðir voru á fimmtudag um íramlög Akureyrarbæjar til rekstrar atvinnuleikhússins og sin- fóníuhljómsveitarinnar, en um er að ræða þriggja ára samninga sem gilda til ársloka 2002. Þessir samningar voru undirritaðir í kjölfar samnings milli ríkisins og Akureyrarbæjar sem þeir Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri undirrituðu. Samkvæmt þeim samningi mun ríkið meira en tvöfalda framlög sín til menningar- mála á Akureyri frá því fyrst var sam- ið árið 1996. Fyrirsögn fréttar í blað- inu í gær var því röng, þar sagði að framlög hefðu nær tvöfaldast, en hið rétta er að hann hefúr meira en tvö- faldast. Árið 1996 var framlagið 29 milijónir króna, en verður í ár ríflega 41 milljón, hækkar í 52 milijónir á næsta ári og í 64 milljónir á lokaári samningsins. Sigurður Hróarsson leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar sagði að á þessu ári fengi félagið 59 milljónir króna sem væri svipuð upphæð og var á því síðasta, en framlagið færi svo stighækkandi. AUs fær félagið 68 milijónir árið 2001 og 80 miHjónir árið 2002. „Við munum áfram þurfa að halda frekar að okkur höndum í rekstrinum í ár, því ekki er um að ræða hækkun á framlagi milli áranna 1999 og 2000,“ sagði Sigurður. „Okk- ur þykir þetta samt góður samningur, raunar sá besti sem gerður hefur ver- ið um rekstur leikfélagsins, því aldrei hefur komið inn meiri hækkun á samningstímanum og því horfum við björtum augum fram á veginn.“ Sig- urður sagði að þegar kæmi fram á ár- ið 2002 myndi félagið fá myndarlegt fjárframlag til rekstrarins og fyrir þá upphæð yrði hægt að reka metnaðar- fullt leikhús. Það nýmæli er einnig í samningnum að Leikfélagi Akureyr- ar ber að leita samstarfs við tónlistar- fólk innan bæjarins, m.a. við Tónlist- arskólann á Akureyri og í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands um uppsetningu á óperusýningum „og við skulum vona að þess sjái stað strax næsta vetur,“ sagði Sigurður. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fær 7 milijónir króna til rekstrarins í ár og er þar um að ræða hækkun milli ára en í fyrra fékk hljómsveitin 5,8 milljónir. A næsta ári nemur framlag- ið 10 milljónum króna og fer svo í 18 milljónir króna á lokaári samningsins 2002. Gunnar Frimannsson formaður stjómar Sinfóníuhljómsveitar Norð- urlands sagði að í raun væri um tíma- mótasamning að ræða fyrir hljóm- sveitina. Stefnir stjóm hennar að því að ráða 13 hljóðfæraleikara í 40% starf á árinu 2002. Áætlað er að halda 5-7 hljómleika á ári með fullskipaðri hljómsveit, þ.e. 40-50 hljóðfæraleik- urum, og um 20 kammertónleika með færri hljóðfæraleikurum. Fastráðning hljóðfæraleikara við hljómsveitina í hlutastörf verður ótví- rætt lyftistöng fyrir tónlistarlíf á Norðurlandi með ýmsum hætti, að sögn Gunnars. í fyrsta lagi gefast áhugafólki um sígilda tónlist fleiri tækifæri til að njóta lifandi tónlistar og bara þess vegna verður Norður; land eftirsóknarverðara til búsetu. í öðm lagi verður auðveldara fyrir tónlistarskólana á svæðinu að ráða til sín góða kennara vegna þess að marg- ir munu sækjast eftir tækifæmm tii að starfa við hijóðfæraleik ásamt því að kenna. Fastráðnir hljóðfæraleikar- ar við SN yrðu fyrst og fremst úr hópi kennara tónlistarskólanna á Norður- landi, ekki aðeins á Akureyri heldur líka á svæðinu frá Sauðárkróki til Húsavíkur, jafnvel stærra svæði. Ráðning fleiri góðra tónlistarmanna til skólanna mun bæta starf þeirra og hag þeirra mörgu fjölskyldna sem telja tónlistamám mannbætandi. „Samningurinn við SN er þess vegna stórt framfaraspor í byggðamálum og mikilvægt framlag til þess að efla byggð á Norðurlandi,“ sagði Gunnar og bætti við: „Það er fyrst og fremst metnaður og fagmennska Guðmund- ar Óla Gunnarssonar aðalhljómsveit- arstjóra sem hefúr orðið til þess að Sinfóníuhljómsveit Norðurlands nýt- ur nú þess álits að bæjaryfirvöld velja hana til að vera í fararbroddi í upp- byggingu menningarlífs á Akureyri og Norðurlandi öllu. Ekki má heldur vanmeta starf framkvæmdastjóra hljómsveitarinn- ar, Sigurbjargar Kristínardóttur, en þau Guðmundur Óli hafa unnið ötul- lega að því að koma á tengslum við Dalvíkurbyggð, Húsavík og fleiri byggðarlög á Norðurlandi." Matvælasetur Háskólans Fjórir sækja um stöðu framkvæmdastj óra FJÓRIR sóttu um stöðu fram- kvæmdastjóra matvælaseturs Há- skólans á Akureyri en frestur til að sækja um rann út á mánudag. Þeir sem sóttu um voru Jóhann Örlygsson, dósent við Háskólann á Akureyri, Jón Ásbjömsson, kenn- ari við Menntaskólann á Egilsstöð- um, Sigþór Pétursson, dósent við Háskólann á Akureyri, og Þórar- inn E. Sveinsson, aðstoðarkaupfé- lagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga. Gert er ráð fyrir að stjóm mati vælasetursins komi saman fljót- lega og fjalli um umsóknimar. Matvælasetrið mun fyrst um sinn verða til húsa í húsakynnum há- skólans við Glerárgötu. Morgunblaðið/Margit Elva Glampandi sól í Grímsey LOKS eftir langa bið fengu Gríms- og snælduvitlaust á köflum. Þeir eyingar gott veður, en í vikunni var Bjarni Reykjalín Magnússon og glampandi sól og logn. Veðrið hef- Emil Árni Guðmundsson brugðu ur verið frekar slæmt síðustu vikur sér af þ ví tilefni út að viðra sig. Iðunn sýnir í Vín IÐUNN Ágústsdóttir myndlistar- maður opnar sýningu á verkum sín- um í blómaskálanum Vín, Eyjafjarð- arsveit, á sunnudag, 20. febrúar, sem jafnframt er konudagurinn. Um er að ræða afmælissýningu, en Iðunn hefur sýnt reglulega í blómaskálanum Vín síðustu 15 ár. Á þessari sýningu verða um 20 mynd- verk unnin með pastel. Þetta er tuttugasta einkasýning Iðunnar en hún hefur að auki tekið þátt í fjölda samsýninga. Yfirskrift sýningarinn- ar í Vín er Forréttur, en á árinu hyggst Iðunn sýna tvívegis til við- bótar og má gera ráð fyrir að hún beri aðalréttinn á borð gesta um páskana en ábætisrétturinn kemur svo væntanlega fyrir augu almenn- ings á haustdögum. Allir eru velkomnir á sýninguna, en hún stendur aðeins í viku, til sunnudagsins 27. febrúar, og er opin á afgreiðslutíma blómaskálans. Leir- meðferð NUDD- og snyrtistofan Betri líðan og Mecca spa efna í tilefni af konu- deginum á morgun, sunnudag, til kynningar á svonefndum spa-með- ferðum og phytomer-snyrtivörum. Kynningin stendur yfir frá kl. 14 til 17 á Fosshótel KEA. Boðið verður upp á léttar veitingar og Saga Jóns- dóttir leikari lítur inn og kynnir leik- ritið Skækjan Rósa sem sýnt verður í Samkomuhúsinu næstu helgar. Aglow- fundur AGLOW - kristileg samtök kvenna halda fund í félagsmiðstöðinni Víði- lundi 22 á Akureyri næstkomandi mánudagskvöld, 21. febrúar og hefst hann kl. 21. Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir prestfrú flytur hug- vekju. Söngur, lofgjörð og fyrir- bænaþjónusta og þá verður boðið upp á kaffihlaðborð. Þátttökugjald er 450 krónur og eru allar konur velkomnar. r \ Sýndu ást þína með Purity Herbs snyrtivörum! v Ef þú kaupir S/urity> erbs vörur fyrir 1.500 kr. eða meira færð þú fallega flösku með Ástareldi sem kaupauka (að verðmæti 749 kr.). Tiiboð þetta gildir alla helgina í Lyfju Lágmúla og á laugardag t Lyfju Setbergi og Hamraborg. Kynningar á vörum frá ^Airity- S'erbs t.d. heilsubaðolíum, undrakremi og unaðsolíu, verða í Lyfju Lágmúla og Lyfju Setbergi í dag laugardag kl. 12-16 og í Lyfju Hamraborg kl. 11-13 og á morgun Konudag í Lyfju Lágmúla kl. 13-17. Cb LYFJA Lyf á lágmarksverði Lágmúla, Setbergi og Hamraborg J Riðill í heimsmeistarakeppninni í íshokkí á fslandi í aprfl Litlar líkur á að leik- ið verði á Akureyri FLEST bendir til að keppni í D-riðli Heimsmeistaramótsins í íshokkí fari eingöngu fram í Skautahöllinni í Reykjavík en þegar sótt var um að halda keppnina hér á landi fyrir um tveimur árum, var gert ráð fyrir að spila bæði í Reykjavík og á Akureyri. Magnús Finnsson formaður Skautafélags Akureyrar sagði að framkvæmdir við Skautahöllina á Ak- ureyri hafi verið miðaðar við að hluti keppninnar færi fram þar en hún stendur yfir frá 10.-16. aprfl nk. Hann sagðist vondaufur um að hluti keppn- innar fari fram norðan heiða, hins vegar hafi ekki komið endanlegt svar frá íshokkídeild Skautasambandsins um hvort af því geti orðið eða ekki. „Það kostar eitthvað meira að spila lflca hér fyrir norðan en þegar sótt var um að halda keppnina var miðað við að hún yrði haldin á báðum stöðum. Eftir því sem nær hefur dregið keppninni hefur áhugi íshokkídeildar sambandsins á því að halda hana á báðum stóðum verið að minnka. Við höfum heldur ekki orðið varir við neinn vilja hjá meirihluta íshokkí- deildar til þess að vinna út frá því að þetta sé haldið hér. Menn hafa borið fyrir sig þennan kostnaðarauka og ég veit ekki hvaða stefnu þetta mál tekur um helgina. Við reiknum allavega ekki með að keppnin komi norður,“ sagði Magnús Finnsson. Hann sagði jafnframt að ítrekað hafi verið leitað eftir fundi með fram- kvæmdanefnd keppninnar frá því fyr- ir jól en án árangurs. Nú hefur hins vegar verið boðað til fundar um þetta mál á Akureyri í dag, laugardag. Ekkert mál að spila í einni höll Magnús Jónasson formaður ís- hokkídeildar Skautasambands ís- lands sagði að á sínum tíma hafi verið sótt um að halda keppnina á báðum stöðum, enda ætlist alþjóða skauta- sambandið til að lefldð sé í tveimur höllum, sé þess nokkur kostur. „Oft er það nú þannig að aðeins er leikið í einni höll og sérstaklega ef mikil fjar- lægð er á milli halla sem mögulegt er að spila í. Það er heldur ekkert mál að spila þessa keppni í einni höll, fyrir utan það að æfingatíminn á morgn- ana er styttur úr 45 mínútum niður í hálftíma." Magnús sagði jafnframt að á fundi í Bandaríkjunum í september hafi ekki legið fyrir hvort höllin á Akureyri yrði tilbúin fyrir tilsettan tíma en þá hafi framkvæmdin verið um einum og hálfum mánuði á eftir áætlun. „Við urðum á þessum fundi að leggja fram leikja- og æfingaplan keppninnar. Þar var miðað við að öll keppnin færi fram í einni höll í Reykjavík og allar þjóðimar sem eiga að leika hér sam- þykktu það. Jafnframt tilkynnti ég á fundinum og það er stjórnarsam- þykkt fyrir því, að ef höllin á Akureyri yrði tilbúin í tíma, myndum við áskilja okkur rétt til að nálgast Akureyringa | með málið á ný. Þannig stendur málið í í dag og á þeim nótum verður það rætt á Akureyri um helgina," sagði Magnús Jónasson. Hann sagði tvö sjónarmið uppi, í fyrsta lagi skipulagning á tveimur stöðum og hins vegar peningahliðin á þessari framkvæmd. „Við ætlum ekki að fara í eitthvað HM’95 handbolta- dæmi og ætlum að skila hagnaði af þessari heimsmeistarakeppni. Það er miklu dýrara og meira mál að halda keppnina á tveimur stöðum en ef | menn sjá einhverja leið til að fjár- magna það, erum við tilbúnir að skoða það. Og auðvitað er æskilegast, íþróttarinnar vegna, að halda keppn- ina á tveimur stöðum.“ Auk íslenska landsliðsins taka landslið Ástralíu, Nýja Sjálands, Lúx- emborgar, S-Afríku, Belgíu, ísraels, Tyrklands og Mexíkó þátt í keppninni hér á landi og ráðgert er að hingað til lands komi um 300 manns í tengslum við hana. f-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.