Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hagnaður Skýrr hf. nam 103,2 milljónum króna á árínu 1999
Afkoman batnaði
um 86% milli ára
úr uPP9Íöri í OIV^i 1 hf ársins 1999 1 3*SV fíhf
| Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting |
Rekstrartekjur Milljónir króna 1.225,2 1.103,5 +11%
Rekstrargjöld 997,7 917,6 +9%
Fjármagnsgjöld 18,8 15,8 +19%
Afkoma af regluefri starfsemi 111,6 62,1 +80%
Tekju- og eignarskattur 33,4 6,3 +430%
Aðrar tekjur 30,7 0 -
Áhrif hlutdeildarféiaga -5,7 0 -
Hagnaður ársins 103,2 55,8 +85%
Efnahagsreikningur 3i.des.: 1999 1998 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 956,6 744,2 +29%
Eigið fé 343,6 246,8 +39%
Skuldir 613,0 497,4 +23%
Skuldir og eigið fé samtals 956,6 744,2 +29%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Eiginfjárhlutfall 36% 33%
Veltufjárhlutfall 1,29 1,23
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 191,1 162,6 +18%
Atvinnuástandið í janúarmánuði
1,8% atvinnu-
leysi á landinu
HAGNAÐUR Skýrr hf. nam 103,2
milljónum króna á árinu 1999 en var
55,8 milljónir króna á árinu 1998. Af-
koman batnaði því um 86% milli ára.
Veltufé frá rekstri var 191,1 milljón
króna sem er 28,5 milljóna króna
hækkun frá árinu áður. Rekstrar-
tekjur námu 1.225,2 milljónum, sem
er 11% hækkun frá árinu áður. Eigið
fé félagsins hinn 31. desember 1999
nam 343,6 milijónum króna, eigin-
fjárhlutfallið var 36% og arðsemi eig-
infjár á árinu 1999 var 43,1% en
29,3% á árinu áður.
Aukin umsvif á flestum sviðum
A árinu jukust umsvif á flestum
sviðum í þjónustu Skýrr hf., að því er
fram kemur í tilkynningu frá félag-
inu. Unnið hefur verið að uppbygg-
ingu nýrrar þjónustu, kerfisleigu,
sem fyrirhugað er að bjóða viðskipta-
vinum á næstunni. Aðalkostir kerfis-
leigu eru að fyrirtæki spara sér mikla
fjárfestingu í hug- og vélbúnaði, auk
þess sem rekstur kerfanna verður
einfaldari og hagkvæmari. Fjárfest
var í uppbyggingu örbylgjukerfis,
LoftNet Skýrr, og hófst rekstur þess
á seinni hluta ársins. Unnið hefur
verið að gerð nýrra upplýsingakerfa
á árinu og má í því sambandi nefna
nýtt tekjubókhaldskerfi ríkisins
(TBR), nýtt þungaskattskerfi og
virðisaukaskattskerfi. Þá var á árinu
lokið við undirbúning viðamikilla
kerfa ríkisins fyrir ártalið 2000.
Félagið bindur mikiar vonir við
viðskipti á sviði rafrænna viðskipta
og var fjárfest verulega á því sviði á
árinu, bæði í formi vinnu og fjár-
magns. Haldið var áfram fjárfesting-
um í skyldum fyrirtækjum, m.a. AX-
hugbúnaðarhúsi hf., deCode Genet-
ics Inc., Korti hf., Rafrænni miðlun
hf., Smartkortum ehf. og Verkfræði-
húsinu hf. Jafnframt voru seld hluta-
bréf félagsins í Gagnalind hf., Kögun
hf. og Intís hf.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að
leggja til við aðalfund, sem haldinn
verður 2. mars næstkomandi, að
hluthöfum verði greiddur 15% arður
af hlutafé. Lögð verður fram tillaga
um 10 milljóna króna aukningu
hlutafjár í félaginu til ráðstöfunar í
bónus- og valréttarsamninga við
starfsmenn þess. Forkaupsréttur
hluthafa að aukningarhlutum nær
ekki til þessarar aukningar.
Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr
hf., sagðist í samtali við Morgunblað-
ið vera mjög ánægður með niður-
stöðuna og hún væri töluvert betri en
rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir.
„Okkar rekstraráætlun í upphafi
gerði ráð fyrir 63 milljóna króna
hagnaði, en niðurstaðan er 103,2
milljónir, sem skýrist bæði af því að
afkoman af reglulegri starfsemi er
betri um 17 milljónir og síðan er
hagnaður af sölu hlutabréfa um 30
milljónir króna.
Horfumar eru mjög góðar og
verkefnastaðan góð. Við gerum ráð
fyrir því að veltan á næsta ári verði
um 1.400 milljónir og að hagnaður
verði ríflega 100 milljónir," sagði
Hreinn.
Hlutabréfaverð endurspeglar
ákveðnar væntingar
Albert Jónsson, forstöðumaður
verðbréfamiðlunar Fjárvangs,
sagði að ef horft væri á sjóðs-
streymi hjá Skýrr hefði veltufé frá
rekstri aukist um tæpar 30 milljónir
króna milli ára og því um ákveðinn
bata að ræða hjá félaginu.
„Það er greinilegt að félagið er að
skila meiri hagnaði en árið áður og
ljóst að menn hafa náð ágætis tökum
á rekstrinum. Eiginfjárstaðan er
sterk og veltufjárhlutfallið er í góðu
lagi, en ef maður setur þetta í sam-
hengi við þær gífurlegu hækkanir
sem orðið hafa á gengi hlutabréfa fé-
lagsins, sem hækkað hefur frá ára-
mótum úr 10-11 upp í 19, þá hljóta
skýringamar á því að vera vænting-
ar um að félagið verði ákveðinn
kjarni á tölvumarkaðinum á sviði
gagnageymslu. Menn sjá það fyrir
sér í nánustu framtíð að í kjölfar net-
væðingarinnar muni fyrirtæki sjá
um að geyma gögn, en Skýrr hefur
vaxið upp úr því umhverfí. Maður sér
fyrir sér að félagið verði leiðandi á
því sviði og geti væntanlega gert
góða samninga við viðskiptavini sína
sem leiða mun til góðs sjóðstreymis.
I þessu hlutabréfaverði hljóta að
vera væntingar um eitthvað þessu
líkt, en hlutabréf í tölvufyrirtækjum
hafa auk þess almennt verið að
hækka. Almennt má segja að upp-
gjörið hjá Skýrr sé eitthvað svipað og
væntingar gerðu ráð fyrir, en hluta-
bréfaverðið hefur farið nokkuð fram
úr því sem maður teldi almennt rök-
rétt og inni í því hljóta að vera tölu-
verðar væntingar um að fyrirtækið
verði leiðandi á sínu sviði,“ sagði Al-
bert.
ATVINNULEYSI mældist 1,8% á
landinu í janúarmánuði 2000, og var
atvinnuleysi hjá körlum 1,3% en hjá
konum 2,4%. Alls voru skráðir at-
vinnuleysisdagar ríflega 22 þúsund
hjá körlum en ríflega 30 þúsund hjá
konum. Þetta kemur fram í mánað-
arlegu yfirliti Vinnumálastofnunar
yfir atvinnuástandið í janúarmánuði.
Skráðir atvinnuleysisdagar á
landinu öllu í janúar voru tæplega 53
þúsund, og fjölgaði þeim um ríflega .
eitt þúsund frá mánuðinum á undan
en hins vegar fækkaði þeim um tæp-
lega 20 þúsund frá janúarmánuði
1998.
Atvinnulausum fjölgaði að meðal-
HLUTAFÉ Íslandssíma er nú 400
milljónir eftir hlutafjáraukningu
sem er nýlokið. Nýr hluthafi er
verðbréfafyrirtækið Burnham Int-
ernational sem á nú 9,5% hluta-
fjár, 38 milljónir að nafnvirði.
Markaðsgengi á bréfum íslan-
dssíma hefur verið á bilinu 16-20 á
gráum markaði og miðað við geng-
ið 18 er markaðsverðmæti fyrir-
tækisins 7,2 milljarðar króna.
Markaðsvirði 9,5% hluta er sam-
kvæmt sömu forsendum 684 millj-
ónir króna.
Sigrún Eysteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Burnham Internat-
ional, segir Burnham hafa áform
um endursölu á hlutabréfunum til
stofnana- og fagfjárfesta. Þegar
hefur verið samið um sölu á hluta
bréfanna, að hennar sögn. „Við
höfum mikla trú á fjarskiptamark-
aðnum og Íslandssími er að okkar
mati með stórhuga áform og því
um spennandi fjárfestingarkost að
ræða,“ segir Sigrún í samtali við
Morgunblaðið. Hún leggur áherslu
á að Burnham geri viðskiptavinum
sinum grein fyrir að um áhættu-
fjárfestingu sé að ræða þar sem
Islandssími er óskráð félag.
Nýlegir samningar Islandssíma
bæði við viðskiptamenn og sam-
tali um 2,1% frá desembermánuði.
Hins vegar fækkaði atvinnulausum
um 27,4% miðað við janúarmánuð ár-
ið 1999. Undanfarin ár hefur at-
vinnulausum fjölgað að meðaltali um
18,8% frá desember til janúarmán-
aðar, og er því árstíðasveiflan milli
desember og janúar nú talsvert
minni en í meðalári.
Atvinnuleysisdagar í janúar síð-
astliðnum jafngilda því að 2.434
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum. Þar af
eru 1.031 karlar og 1.403 konur. í yf-
irliti Vinnumálastofnunar er áætlað
að atvinnuleysið í febrúar geti orðið
á bilinu 1,6% til 1,9%.
starfsaðila hafa þegar aflað fyrir-
tækinu viðskipta umfram það sem
áæltanir gerðu ráð fyrir, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Islandssíma.
Búast má við vatnaskilum
á farsimamarkaði
Tilgangurinn með útboðinu nú
er meðal annars sá að afla fjár til
kaupa á fjarskiptafyrirtækjum svo
sem Intís og Gagnaveitunni, sem
nýlega var gengið frá kaupum á,
að sögn Eyþórs Arnalds, fram-
kvæmdastjóra Íslandssíma. Hann
segir að búast megi við vatnaskil-
um á farsímamarkaði á árinu þar
sem notkun WAP-síma er orðin
raunverulegur kostur. „Utboðið er
þó ekki síður ætlað til að undirbúa
farsímaþjónustu sem byggjast
mun á þráðlausri Internet- og
WAP-tækni. Starfsemi á þeim
vettvangi er í takt við þá trú al-
þjóðlegra fjarskiptafyrirtækja að í
náinni framtíð muni samskipti
jöfnum höndum vera á fjarskipta-
og tölvusviði. Fjárfestingar Is-
landssíma að undanförnu og fram-
tíðaráform tryggja þannig fyrir-
tækinu örugga stöðu á
fjarskiptamarkaðnum," segir í
fréttatilkynningu.
Burnham kaup-
ir í Islandssíma
✓
Markaðsverðmæti Islandssíma 7-8
milljarðar eftir hlutafjáraukningu
Afkoma Krossaness hf. árið 1999
Tap nam 69,7
milljónum kr.
Krossanes hf. i ■Él
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 342,8 330,0 -2,0 746,3 598,9 -9,6 ■54% -45% -79%
Hagnaður/tap af reglul. starfsemi Aðrar tekjur og gjöld -44,2 -25,5 44,9 -8,1 +213%
Hagnaður ársins -69,7 36,7 -
Efnahagsreikningur 31. des.: 1999 1998 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 679,4 778,1 -13%
Eigið fé 475,6 519,2 -8%
Skuldir 203,9 258,8 -21%
Skuldir og eigið fé samtals 679.4 778,1 -13%
Sjóðstreymi og kennitölur 1999 1998 Breyting
Handbært fé frá rekstri Milljónir kr. Eiginfjárhlutfall Veltufjárhlutfall 36,3 70,0% 1,77 287,3 66,7% 2,58 -87%
KROSSANES hf. var rekið með 69,7
milljóna króna tapi árið 1999 í sam-
anburði við 36,7 milljóna króna
hagnað árið 1998. „Þessi niðurstaða
segir allt sem segja þarf um það
hversu sveiflukennd atvinnugrein
sjávarútvegurinn er, ekki síst fyrir
þá sem eru eingöngu í vinnslu upp-
sjávarfiska. Báðar vertíðimar á ár-
inu voru daprar og því var ekki við
því að búast að afkoman yrði betri en
þetta,“ segir Jóhann Pétur Ander-
sen, framkvæmdastjóri Krossaness
hf., í fréttatilkynningu frá félaginu.
Tekjur fyrirtækisins árið 1999
námu 342,8 milljónum króna, en
tekjur ársins 1998 voru 746,3 millj-
ónir króna og lækkuðu þvi um meira
en helming eða um 403,5 milljónir
króna.
„Þarna voru versnandi markaðs-
aðstæður og minna framboð af hrá-
efni,“ segir Jóhann Pétur í samtali
við Morgunblaðið. Aðspurður um
það ár sem í hönd fer segir Jóhann
að „það byrjar vel hvað varðar
magnið, en það eru blikur á lofti í
sambandi við sölu á afurðunum og
afurðaverð".
Eiginfjárhlutfall Krossaness hf.
nam 70% í lok seinasta árs. „Fjár-
hagsstaðan er mjög sterk hjá
Krossanesi hf. og við erum vel undir
það búnir þó það komi upp slaki í
rekstrarumhverfi okkar,“ segir Jó-
hann Pétur.
I fréttatilkynningunni segir að
fyrir liggi áætlun um samruna
Krossaness og ísfélags Vestmanna-
eyja, sem samþykkt var af stjómum
félaganna í desember sl. Á hluthafa-
fundi Krossaness í gær var sam-
þykktur samruni félagsins við ísfé-
lag Vestmannaeyja hf. „Hluthafar í
ísfélaginu munu fjalla um þetta ein-
hvem tímann í kring um mánaða-
mótin. Ef sá fundur samþykkir sam-
mnann einnig er hann orðinn að
vemleika,“ segir Jóhann Pétur.
OZ.com á
Nasdaq á
þessu ári
TIL stendur að skrá bréf
OZ.com á einhverjum verð-
bréfamarkaði á þessu ári, að
sögn Skúla Mogensen, forstjóra
fyrirtækisins.
í frétt sem Reuters birti í
fyrradag var vitnað í Skúla, sem
sagði að OZ.com hefði í hyggju
að skrá bréfin á Nasdaq-mark-
aðinn í Bandaríkjunum.
Að sögn er skráningunni ætl-
að að koma í kjölfar þess að fyr-
irtækið er að hefja sölu á nýjum
hugbúnaði tengdum farsímum.
Haft var eftir Skúla, að mögu-
leiki væri á því að fyrst yrði sótt
um skráningu í Stokkhólmi,
vegna tengsla OZ.com við Sví-
þjóð, en á síðasta ári keypti
sænski símaframleiðandinn Er-
icsson 19% hlut í OZ.com.
Skúli sagðist í samtali við
Morgunblaðið engu hafa við
fréttina að bæta.