Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 27
VIÐSKIPTI
Hlutafé í
Þórsbrunni
aukið um
80 milljónir
Vatnsútflutningsfyrirtækið Þórs-
brunnur ehf. hefur aukið hlutafé sitt
um 80 milljónir króna. Fyrri hluthaf-
ar félagsins, sem eru Fjárfestingar-
félagið Þor (40%), Orkuveitan (20%),
Vífilfell (20%) og Háahlíð (20%), tóku
allir þátt í hlutafjáraukningunni í
nánast sömu hlutföllum og áður, en
við bættust Kaupþing og Islenska
auglýsingastofan með óverulegan
hlut. Hlutafé í Þórsbrunni nemur nú
tæplega 300 milljónum króna.
Að sögn Þóris Kjartanssonar,
framkvæmdastjóra Þórsbrunns, er
markmiðið með hlutafjáraukning-
unni fyrst og fremst það að standa
straum af vöruþróun og markaðs-
starfi félagsins í Bandaríkjunum,
Evrópu og Asíu, þar sem góð teikn
séu á lofti. Hann segir tækifærum
fara fjölgandi og vonir um árangur
séu meiri nú en áður.
„Kaupþing fjármagnaði, með
breytilegu láni yfir í hlutafé, nýja
verksmiðju sem við vorum að byggja
á Réttarhálsi. Með henni munum við
auka sveigjanleika og afköst í fram-
leiðslu, enda höfum við undanfarið
gert marga dreifisamninga í Asíu,
Evrópu og Bandaríkjunum sem
miklar vonir eru bundnar við.
Verksmiðjan er allt að því tilbúin
núna og verður tekin í notkun á
næstu vikum,“ segir Þórir.
Hann bætir við að verið sé að
kynna nýtt vörumerki félagsins,
Iceland Spring, sem byggir á nú-
tímalegri flöskum og breiðari vöru-
línu auk þess sem það skapi meiri
tengingu við ísland, en það segir
hann að hafi alltaf vantað í markaðs-
setningu þeirra á íslenska vatninu.
---------------------
Össur Kristins-
son selur hlut í
Össuri hf.
ÖSSUR Kristinsson hefur selt hlut
að nafnvirði 10 milljónir króna í Öss-
uri hf., en gengi bréfa félagsins var í
gær 47 og hafði það hækkað um 8%
frá deginum áður. Kaupandi að
fjórðungi þessa hlutafjár er Jón Sig-
urðsson, forstjóri félagsins. í til-
kynningu til Verðbréfaþings íslands
segir að sala Össurar Kristinssonar
sé í samræmi við yfirlýsingu sem
gefin var í útboðslýsingu frá því í
september síðastliðnum þar sem lýst
er yfir að Össur Kristinsson hafi í
hyggju að minnka hlut sinn í félaginu
á komandi árum. Hlutur Össurar
Kristinssonar í félaginu eftir söluna
nú er 45%.
Jón Sigurðsson sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessi viðskipti
væru í samræmi við það sem lýst hafi
verið yfir og kaup hans á hlutnum
undirstriki trú hans á félaginu.
-----------*-+-*------
SAS kaupir
Airbus
SAS-flugfélagið tilkynnti í gær að
það hefði skrifað undir kaupsamning
á 12 Airbus A321-100s farþegaþot-
um, og er verðmæti kaupsamnings-
ins um 36,4 milljarðar króna. SAS á
einnig kauprétt á 10 vélum til viðbót-
ar. Fyrsta vélin verður afhent um
haust 2001, en fjórar til viðbótar fyr-
ir lok árs 2002.
------f-4-*-----
Hagnaður Phil-
ips þrefaldast
HAGNAÐUR Philips Eleetronics
fyrir árið 1999 varð þrefalt meiri en
árið á undan, eða 128,4 milljarðar
króna á móti 38,6 milljörðum. Grein-
ingaraðilar á markaði höfðu búist við
hagnaði á bilinu 112-124 milljarðar. í
bjartsýnu mati fyrir árið 2000 segir í
tilkynningu frá fyrirtækinu að áfram
væri stefnt að fyrri fjárhagslegum
markmiðum, þ.m.t. vexti sem væri
yfir 10%.
VEGSAUKI ÞEKKINGARKLÚBBUR KYNNIR KOMU BRIAN TRACY TIL ÍSLANDS
Nú gefst þér einstakt tækifæri tii að hitta BRIAN
TRACY í eigin persónu og læra af honum hvernig þú
getur aukið árangur þinn og hámarkað velgengni
þfna við upphaf nýrrar aldar. Skráðll þig í dag!
Phoenix klúbbfundur verður haldinn í bíósal Hótel
Loftleiða, mánudaginn 28. febrúar nk. frá kl. 20-22.
Koma Brian Tracy kynnt og nýtt myndband sýnt!
Brian Tracy er f hópi allra bestu fyrirlesara
heims á sviöi stjórnunar, söiu og árangurs.
Hann heldur árlega námstefnur í 14 löndum
fyrir allt að 20 þúsund áheyrendur í einu.
Hann er höfundur fjölda
bóka um stjórnun, árang-
ur og sölu. Bókin Hám-
arsksárangur, eftir hann
kom út í íslenskri þýðingu
fyrir nokkru og hefur hún
selst í stóru upplagi auk
þess sem hundruðir
íslendinga hafa sótt
Phoenix námskeið hans
sem boðið hefur verið
upp á á íslandi undan-
farin áratug.
Brian Tracy hefur hjálpað þúsundum karla og
kvenna um allan heim til að breyta lífi sínu,
bæta samskipti sín og lífsgæði. Árlega hlusta
300 þúsund manns á mál hans en alls hafa
um 2 milljónir manna sótt námstefnur hans
undanfarin 15 ár um allan heim.
BRIAISI TRACY'S
SUCCESS MASTERY
ACADEMY
BORGARLEIKHÚSINU
25. OG 26. APRÍL, 2000
HÓPAFSLÆTTIR: 3+1 FRÍTT & 7 + 3 FRÍTT
Námstefnan er 2 tiellir dagar, frá kl. 9 til 17
báða dagana. Á námstefnunni mun Brian
Tracy fjalla um fjölmargt, þar á meðal:
■ Eiginleika þeirra sem ná framúrskarandi árangri.
■ Hvernig þú átt að stjórna sjálfum þér og öðrum til
hámarksárangurs.
■ Hvernig þú átt að taka risastökk (quantum leaps) í
árangri, í stjórnun og sölu.
■ Bestu aðferðir í tímastjórnun. Aðferðir og ráð sem þú
getur strax farið að nota.
■ Bestu aðferðir í sölu og þjónustu við viðskiptavini og
hvernig þú getur margfaldað árangur þinn á því sviði.
■ Bestu aðferðir til að sannfæra, semja og hafa áhrif.
■ Bestu aðferðir til að hvetja sjálfan sig og aðra til
aukins árangurs og velgengni.
■ Töfra sjálfsstjórnunar og góðra venja.
■ Gerð velgengnisáætlunar fyrir 21. öldina.
■ Hvernig á að setja sér markmið, ná þeim og búa sér til
sigursæla framtíðarsýn.
■ Hvernig á að njóta fjárhagsiegrar veigengni og
farsældar í iífinu.
■ Hvernig þú getur aukið farsæld þína í fjölskyldulífi
jafnt sem í starfi.
■ Hvernig þú getur virkjað forystuhæfiieika þína og
skipað þér í framvarðarsveit.
www.vegsauki.is
g 555-8800
SKRÁNING Á NETINU:vegsauki@simnet;.is
Almennt verð: kr. 69.600,- Klúbbverð: 52.200,-
Verð í BESTU SÆTI (næst sviðinu): 25% viðbótarálag á verð.
Ath. númeruð sæti. Skráning í tíma tryggir betri sæti.
Innifalið: Vönduð námstefnu-
gögn, bókin „Hámarksárangur'
eftir Brian Tracy, vandað
viðurkenningarskjal og móttaka
eftir námstefnuna þar sem þú
getur spjallað við BRIAN TRACY.
Skráðu þig í Vegsauka í dag!
Klúbbaðild er ÓKEYPIS!
VEGSAUKI
ÞEKKINGARKLÚBBUR
vitínu meiri!