Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 31 Embættismaður bandaríska innflytjendaeftirlitsins handtekinn Akærður fyrir njósnir íþágu Kúbustjórnar Miami. AP. Hafði aðgang að leynilegum upp- lýsingum um flöttamenn Lagt að Mugabe að hætta HART er lagt að Robert Mug- abe, forseta Zimbabve, að láta af forystu í stjórnarflokknum en hann beið niðurlægj- andi ósigur í þjóðarat- kvæða- greiðslu um breytingar á stjómar- skránni um síðustu helgi. Tillag- an var um að völd forset- ans yrðu óskert, að Mugabe fengi að bjóða sig fram í tvö kjörtímabil enn og ríkinu væri heimilt að gera jarðeignir hvítra manna upptækar án þess að greiða neinar bætur fyrir. Stjómarflokkurinn boðaði til skyndifundar í gær og var búist við að þá myndi Mugabe reyna að kenna öðrum um ósigurinn, ekki síst þingmönnum flokksins. Þeir viija hins vegar Mugabe burt og óttast að óvinsældir hans meðal landsmanna sé ávís- un á enn meiri ósigur í þing- kosningum. Talið var að reynt yrði að fá Mugabe, sem er 76 ára gamall, til að fara frá með friði. Mismunun hætt YFIRMENN menntamála á Flórída í Bandaríkjunum sam- þykktu í gær einróma að hætta að láta kynþátt eða kyn ráða nokkra um aðgang að ríkis- styrktum skólum. Hér eftir verður það námsárangurinn einn sem sker úr um skólavist, en ekki hvort viðkomandi er svartur eða hvítur, tilheyrir ein- hverjum minnihluta eða er karl eða kona. Ýmsir fulltrúar minni- hlutahópa hafa gagnrýnt þessa ákvörðun en sama fyrirkomulag er nú í Kalifomíu, Texas og Washington. Lagt hald á Time YFIRMAÐUR í tollgæslunni í Kalkútta sagði í gær að hann hefði lagt hald á 3.000 eintök af bandaríska vikuritinu Time til að fjarlægja með svertu viðtal við bróður mannsins sem myrti þjóðhetjuna Mohandas Gandhi árið 1948. Sagði embættismað- urinn að í viðtalinu væra ýmis „niðrandi" ummæli um Gandhi og þau myndu verða þjóðinni til minnkunar. Einnig gætu þau valdið átökum í landinu. Eintök- unum verður skilað þegar búið er að gera viðtalið ólæsilegt. Sex sjómanna leitað SPÆNSK skip og þyrla leituðu í gær að sex mönnum sem sakn- að er eftir að sprenging varð í dönsku flutningaskipi innan al- sírskrar lögsögu. Skipið, sem heitir Thor Emilie, sökk á skömmum tíma en skipstjóran- um, sem er danskur, var bjarg- að um borð í ítalskt skip. Saknað er eins dansks manns og fimm Filippseyinga. Haft er eftir skipstjóranum, að hann hafi verið í brúnni er sprengingin varð, líklega nærri vélarrúminu, og komst hann einn í björgunar- bát. EMBÆTTISMAÐUR bandaríska innflytjendaeftirlitsins, INS, sem hafði aðgang að leynilegum upplýs- ingum um flóttamenn, hefur verið ákærður fyrir njósnir í þágu Kúbu- stjórnar. Mariano Faget, 54 ára embættis- maður, sem átti sæti í einni af eftir- litsnefndum INS, gat haft eftirlit með ákvörðunum sem teknar voru um stöðu þeirra sem óskað hafa eft- ir dvalarleyfi í Bandaríkjunum eða hæli sem pólitískir flóttamenn. Fag- et var handtekinn á heimili sínu í úthverfi Miami í fyrradag vegna gruns um að hann hefði látið leyni- þjónustumönnum frá Kúbu í té „leynilegar og viðkvæmar upplýs- ingar um kúbverska flóttamenn“, að sögn bandarísku alríkislögreglunn- ar FBI. Honum verður haldið í STIPE Mesic sór embættiseið for- seta Króatíu í gær og lofaði að gera landið að sönnu lýðræðisríki og stuðla að friði í löndunum sem til- heyrðu gömlu Júgóslaviu. Made- leine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og leiðtogar nokk- TVEIR blaðamenn breska dagblaðs- ins The Mirror vora leystir frá störf- um í gær vegna hneykslismáls sem tengist hlutabréfaviðskiptum. Stjórn The Mirror tilkynnti eftir mikil fundahöld að blaðamennimir tveir, Anil Bhoyral og James Hip- well, hefðu látið af störfum vegna málsins og dálkur þeirra, City Slickers, hefði verið lagður af. Stjóm- in komst hins vegar að þeirri niður- stöðu að ritstjórinn, Piers Morgan, ætti að halda starfi sínu. Áður hafði Anthony Laker, starfs- maður verðbréfaíyrirtækisins Kyte Securities, fengið að fjúka, en hann annaðist hlutabréfakaup fyrir Morg- an og 14 aðra starfsmenn The Mirror. Málið hófst, þegar Piers Morgan festi kaup á hlutabréfum, sem daginn eftir var mælt með í City Slickers og tvöfölduðust hlutabréfin í verði. fangelsi í Miami þar til réttað verð- ur í máh hans. Jose Basulto, formaður banda- rískrar hrcyfingar kúbverskra út- laga, kvaðst telja að margir stund- uðu njósnfr fyrir Kúbustjórn í Bandaríkjunum. „Þetta hlýtur að valda Bandaríkjastjórn vandræð- um,“ sagði hann. „Að okkar mati var staða þessa manns mjög áta- kanleg." Fjórtán menn vora handteknir á Flórída í október árið 1998 og bandarísk yffrvöld sögðu að þeir til- heyrðu stærsta njósnahópi Kúbu- manna sem afhjúpaður hefði verið í Bandaríkjunum í áratugi. Hópurinn urra nágrannaríkja Króatíu voru viðstaddir athöfnina. Mesic fékk 56% atkvæðanna í for- setakosningunum 7. þessa mánaðar og er annar forseti landsins síðan það fékk sjálfstæði frá gömlu Júgó- slavíu árið 1991. Morgan sagðist ekki hafa vitað af efni City Slickers fyrr en eftir að hann keypti bréfin gegn um Anthony Lak- er hjá Kyte Securities og stjóm The Mirror féllst á skýringar hans og komst að þeirri niðurstöðu, að hann hefði hagað sér heimskulega en ekki brotið af sér. Siðanefnd sú, sem rannsakar kvartanir á hendur blöðum og blaða- mönnum, er með málið til rannsóknar og sömuleiðis sérstakar rannsóknan- efndir kauphallarinnar og viðskiptar- áðuneytisins. Rannsókn kauphallar- innar nær einnig til hlutabréfaviðskipta umsjónarmanna City Slickers; Hipwells og Bhoyrals, fleiri blaðamanna og aðstoðarritstjór- ans Tinu Weaver. Siðareglur brezkra blaðamanna banna þeim að fjárfesta í fyrirtækj- um, sem þeir fjalla um. var sagður hafa reynt að fá atvinnu í bandarískum herstöðvum, ganga í hreyfingar kúbverskra útlaga og hafa áhrif á fjölmiðla og stofnanir í Bandaríkjunum. Fimm sakborninganna játuðu sekt sína og þrír hafa verið dæmdir í allt að sjö ára fangelsi. Hinir eiga að koma fyrir rétt í maí. Dagblaðið Orlando Sentinel hafði eftir talsmanni FBI að Faget tengdist ekki þessum hópi. „Hvaða hlutverki gegndi hann í máli Elians?“ Fernando Rojas, formaður lands- sambands Kúbumanna í Bandaríkj- KRISTILEGIR demókratar í Þýzkalandi (CDU) frestuðu í gær ákvörðunum um hverjir taka skulu við af Wolfgang Scháuble í emb- ætti flokksleiðtoga og þingflokks- formanns CDU og bæverska syst- urflokksins CSU, en hann tilkynnti í fyrradag að hann myndi láta af báðum embættum til að opna brautina fyrir endurnýjun flokks- forystunnar í kjölfar fjármála- hneykslisins sem skekið hefur flokkinn undanfarna mánuði eftir að Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari, viðurkenndi að hafa hald- ið úti kerfi leynilegra bankareikn- inga til fjármögnunar flokksstarfs- ins. Þingmenn CDU og CSU ákváðu að fresta kjöri nýrrar þingflokks- forystu frá þriðjudeginum næsta fram til 29. þ.m., eða fram yfir kosningar til þings Slésvíkur-Holt- setalands, sem fram fara sunnu- daginn 27. Á enn einum aukafundi flokksstjórnar CDU í fyrrakvöld var ákveðið að ekki yrði fyrr en í marz gert opinbert hverjir yrðu í framboði til flokksleiðtoga á flokksþingi í apríl. Systurflokkurinn CSU krefst meiri áhrifa Frestunin á vali nýs þingflokks- formanns var ákveðin eftir að þingmenn CSU kröfðust þess að hafa meira um það að segja hverjir veldust í forystuhlutverkin. Hún kann líka að vera til vitnis um að menn vilji halda möguleikum opn- um fyrir Volker Rúhe, fyrrverandi varnarmálaráðherra, sem fer fyrir kosningabaráttu CDU í Slésvík- Holtsetalandi en talið er að eigi eins og sakir standa hverfandi möguleika á sigri, á að komast í ábyrgðarstöðu í flokksforystunni. Verði útkoma hans úr kosningun- um ekki of slæm á hann sennilega stuðning allmargra flokksmanna vísan. Eftir afsögn Schaubles, sem unum, sagði handtöku Fagets sanna það sem margir útlagar hefðu alltaf talið - að leyniþjónusta Kúbustjórn- ar væri mjög atkvæðamikil í Banda- ríkjunum. „Hvaða hlutverki gegndi þessi herramaður í örlögum Elians Gonzalez eða annarra flótta- manna?“ spurði Rojas og vísaði til máls kúbverska flóttadrengsins sem fannst á hjólbarðaslöngu undan strönd Flórída 25. nóvember. Bandaríska innílytjendaeftirlitið hefur úrskm’ðað að verða eigi við kröfu föður drengsins og Kúbu- stjórnar um að hann verði sendur til Kúbu. Ættingjar drengsins í Miami hafa áfrýjað þeim úrskurði og kraf- ist þess að drengurinn fái að vera áfram í Bandaríkjunum og hefur forræðisdeilan valdið spennu í sam- skiptum Bandaríkjanna og Kúbu. mun þó gegna flokksformenn- skunni áfram fram að flokksþing- inu, hefur hin 45 ára gamla austur- þýzka Angela Merkel, núverandi framkvæmdastjóri flokksins, verið talin eiga einna bezta möguleika á að taka við. En þótt henni þyki hafa farizt það vel úr hendi að fást við fjármálahneykslið, sem hún hefur heldur ekki verið bendluð við, þá eiga margir flokksmenn, einkum þeir íhaldssamari meðal þeirra, erfitt með að ímynda sér tiltölulega unga konu - sem á þar að auki sinn bakgrunn í kommún- istakerfi Austur-Þýzkalands - setj- ast í flokksleiðtogasætið. Athyglin beinist að Stoiber Vangaveltur hafa líka beinzt að eldri herramönnum á borð við Bernhard Vogel, forsætisráðherra Þyringjalands, sem er 67 ára, eða hinum sjötuga Kurt Biedenkopf, forsætisráðherra Saxlands, en hann er gamall innanflokksan- dstæðingur Kohls, en annar hvor þeirra er af mörgum talinn geta gegnt flokksleiðtogahlutverkinu í stuttan tíma, eða þar til sterkara kanzlaraefni fyrir þingkosningarn- ar árið 2002 kemur fram á sjónar- sviðið. í gegn um tíðina hefur það hlut- verk verið svo til frátekið fyrir CDU-mann en leiðtogi CSU hefur aldrei haft eins sterka stöðu og nú til að krefjast þess að verða kanzl- araefni systurflokkanna í næstu kosningum. CSU-leiðtoginn Ed- mund Stoiber, forsætisráðherra Bæjaralands, er 58 ára metnaðar- fullur íhaldsmaður sem nýtur mik- ils trausts í sinni heimabyggð. „Nú er það Stoiber sem horft er til að leiða flokkinn út úr kreppunni - það veltur á því hve vel honum tekst í því hlutverki hvort hann verður næsta kanzlaraefni kristi- legu flokkanna," skrifar Die Welt í forystugrein í gær. Mugabe Mesic sver forsetaeiðinn Kreppa flokks Kristilegra demókrata í Þyskalandi Vali á nýrri forystu frest að um sinn Berlín. AFP, Reuters. Blaðamenn fjúka í Mirror-málinu London. Morgunblaðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.