Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 40

Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ 40 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 Astmi Eru öndunarfærin ofvemduð? Lækningar Læknirinn segir frá blettaskalla Rannsóknir Meðferðaráhrif hláturs könnuð Lyfjamál Víetnamar fá íslenska ráðgjöf Hjartasjúkdómar Konur sem hrjóta í meiri hættu New York. Reuters. HÆTTAN á hjartasjúkdómum og heilaáföllum er tvöfalt meii-i meðal kvenna sem hrjóta að staðaldri en meðal kvenna sem hrjóta aldrei, að því er fram kemur í nýrri bandarískri rannsókn. „Hrotur þýða ekki að kon- an muni áreiðanlega fá hjartakvilla, en þær benda til aukinnar áhættu," sagði dr. Meir J. Stampfer við Brig- ham-kvennasjúkrahúsið í Boston í Bandaríkjunum. „Kona sem hiýtur ætti að einbeita sér að því, í samvinnu við lækni, að draga úr öðrum áhættu- þátturn." Niðurstöðumar fengust úr átta ára rannsókn á hrotum og alvarlegum hjartasjúkdómum hjá um 72 þúsund hjúkrunarkonum. Dr. Frank Hu, við heilsugæsludeild Harvardháskóla í Bandaríkjunum, stjómaði rannsókn- inni. Vísindamennimir taka fram, að fyrri rannsóknir á tengslum hrota og hjartasjúkdóma hafi verið gerðar á styttri tíma og beinst að karlmönnum. Þær konur sem hrjóta að staðaldri reyndust ekki við eins góða heilsu og þær sem ekki hrjóta, og vom líklegri til að þjást af sykursýki, háum blóð- þrýstingi eða mikilli blóðfitu, að því er fram kemur í niðurstöðum rannsókn- arinnar, sem vom birtar í febrúar- hefti American College of Cardiology. Konur sem hmtu vom ennfremur l£k- legri til að reykja og nota áfengi. í samanburði við konur, á svipuð- um aldri, sem ekki hrjóta, vom konur sem hrjóta að staðaldri tvisvar sinn- um líklegri til að deyja af völdum hjarta- eða heilaáfalla. Konur sem hrjóta stundum reyndust 50% líklegri til að verða fyrir áföllum, og 61% lík- legri til að deyja af þeim völdum. Þeg- ar tekið hafði verið tillit til lélegra heilsufars yfirleitt reyndust konur sem hrjóta vera í 20% meiri hættu á að verða fyrir hjartaáföllum en þær sem ekki hrjóta, og þær sem hrjóta að staðaldri reyndust vera í 33% meiri hættu. Vísindamennimir segja að niður- stöðumar bendi til þess, að smávægi- leg en marktæk tengsl séu á milli hrota og aukinnar hættu á hjartasjúk- dómum hjá konum, óháð aldri, reyk- ingum, offitu og öðram áhættuþáttum hjartasjúkdóma. Óhreinindi til góðs? MIKLA fjölgun astmatilfella kann að hluta til að vera að rekja til hollustuhátta og hreinlætis sem algengt er í þróuðum löndum, að því er BBC, hefur eftir rannsak- endum. Telja sumir vfsindamenn að sumar sýkingar hjá ungum bömum geti átt þátt í að koma í veg fyrir ofnæmi á borð við astma. Orsökin er sú, að ónæmiskerfið kemst upp á lag með að takast á við „innrásir", og ef það fær ekki að venjast því verður ónæmiskerf- ið áfram veikt og lítils megnugt. Þessi kenning hefur verið gagn- rýnd af sumum, en rannsóknir ít- alskra vísindamanna, virðast taka af allan vafa. Gagnrýnendur segja þó ekki rétt að slakað sé almennt á hreinlætiskröfum, eins og t.d. þeirri að maður eigi að þvo sér um hendurnar áður en matvörur em meðhöndlaðar. Einungis þurfi að líta til þriðja heimsins til þess að sjá hvaða áhrif sýkingar geti haft áböra. Reuters Löngum hefur verið viðtekin sú speki að hláturinn lengi lífið og nú á að rannsaka hvort grínið geti hjálpað til f glímunni við nokkra erfiðustu sjúkdómana. Hlátur gagnleg viðbótarmeðferð? Medical PressCorps News Service. VÍSINDAMENN við krabba- meinsmiðstöð Kaliforníuháskóla í Los Angeles (UCLA) hafa hafið fyrstu rannsóknina á því hvort hlátur geti linað þjáningar og stuðlað að skjótari bata barna og unglinga sem em haldnir krabba- meini eða alnæmi. Rannsóknin er undir stjórn Margaret Stuber, krabbameins- sérfræðings og prófessors við geð- lækninga- og lífatferlisfræðideild taugageðlækningastofnunar UCLA. Vísindamennirnir ætla fyrst að rannsaka hvað fái börn til að hlæja og verða sígildar teikni- myndir, sjónvarpsþættir og gam- anmyndir notaðar í því skyni. Við- brögð barnanna verða metin og vísindamennirnir hyggjast síðan nota það skemmtiefni sem hlægir börnin mest til að rannsaka við- brögð ónæmiskerfisins í ungum sjúklingum. Vísindamennirnir segja að reyn- ist hláturinn hafa jákvæð líffræði- leg áhrif verði teiknimyndir, sjónvarpsþættir og gamanmyndir felldar inn í hefðbundna meðferð við alvarlegum sjúkdómum í börn- um við ýmsar læknisaðgerðir og efnameðferð til að draga úr streitu og ótta og stuðla að skjótari bata. „Við vonumst til þess að geta að lokum hjálpað börnum sem eru lögð inn á sjúkrahús og gangast undir meðferð við krabbameini og alnæmi, alvarlegum sjúkdómum þar sem ónæmiskerfið skiptir miklu máli og styrking þess getur bjargað lífi sjúklinganna,“ sagði Stuber. „Við vitum nokkurn veginn hvaða áhrif hlátur og kímni getur haft á líðan manna,“ sagði einn vís- indamannanna, Lonnie Zeltzer, prófessor í barnalækningum og svæfinga- og deyfingarfræði við UCLA. Hann bætti við að á hinn bóginn hefði engin ítarleg rannsókn verið gerð á hugsanlegum líffræðilegum áhrifum hláturs og góðrar kímni- gáfu á sjúklinga. Hvað eru blettaskalli og þunnar neglur? Magnús Jóhannsson iæknir svarar spurningum lesenda Spuming: Fyrir um einum og hálfum mánuði tóku neglur mínar að þynnast mjög og flagna í lögum eins og þær væm úr pappír. A sama tíma varð ég vör við mikið hárlos. Hárlosið er nú hætt en neglumar halda áfram að þynnast og era komnar langleiðina inn að kviku á öllum fingmm nema tveim- ur á sitt hvorri hendinni. Eg tek bæði vítamín og kalk en ég þjáist af beinþynningu. Hvað veldur þessu og er eitthvað hægt að gera? Svar: Ýmsum sjúkdómum geta fylgt þunnar neglur en vegna þess að bréfritari talar einnig um hár- los, er blettaskalli (alopecia areata) það fyrsta sem manni dettur í hug. Blettaskalli og þunnar eða aflagað- ar neglur fara oft saman. Venju- lega er hárlos aðalvandamálið, oft detta skallablettir á höfuðið en í sjaldgæfum tilfellum þróast sjúk- dómurinn yfir í að allt hár dettur af höfðinu (um 5% tilfella) eða jafnvel öllum líkamanum (minna en 1% til- fella). Blettaskalla var fyrst lýst fyrir meira en 2000 ámm og alltaf hafa verið uppi alls konar kenningar um orsakir þessa sjúkdóms. Nú er helst talið að um sé að ræða það sem kallað er sjálfsofnæmis- sjúkdómur en það er þegar ónæm- iskerfi líkamans ræðst gegn eigin vefjum, í þessu tilfelli hámm og nöglum. Ekki er vitað hvers vegna þetta gerist en það liggur oft í ætt- um (er ættgengt) og í sumum ætt- um koma fyrir ýmsir mismunandi Sjálfs- ofnæmi sjálfsofnæmissjúkdómar. Bletta- skalli hefur oft þrjú stig, fyrst verður skyndilegt hárlos og í sum- um tilfellum breytingar á nöglum, síðan verður áframhaldandi hárlos og skallablettir stækka og að lok- um kemur hárið aftur og neglumar lagast. Þetta ferli getur tekið mán- uði eða jafnvel mörg ár. Blettaskalli er ekki srnitandi og hann stafar ekki af vissum fæðu- tegundum eins og sumir virðast halda. Einstaka sinnum byrjar þetta í kjölfar mikillar streitu en það er ekki oft. Blettaskalli er ekki hættulegur sjúkdómur en hann getur valdið sjúklingnum miklu hugarangri. Ómgg meðferðar- úrræði em ekki mörg og venjulega lagast þetta af sjálfu sér að lokum. Stundum er nýja hárið grátt eða hvítt en það fær oftast sinn upp- haflega lit að lokum. Ýmiss konar meðferð hefur verið reynd, ekkert er þekkt sem hjálpar öllum en sumir fá bata hvort sem það er vegna meðferðarinnar eða að sjúk- dómurinn lagast af sjálfum sér. Stundum er reynt að sprauta ster- um í skallablettina og reynt hefur verið að bera ýmis efni á húðina. Svipað gildir um neglumar þegar þær breytast og valda óþægindum. Fleiri sjúkdómar eins og t.d. sóri (psoriasis) geta lagst á hár og negl- ur og bréfritari ætti að fara sem fyrst til heilsugæslu- eða húðsjúk- dómalæknis til að fá sjúkdóms- greiningu og ráðleggingar um meðferð. •Á NETINU: Nálgast má skrif Magnúsar Jóhannssonar um lækn- isfræðileg efni á heimasíðu hans, http://www.hi.is/~magjoh/ • Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dög- um milli klukkan 10 og 17 ísfma 5691100 og bréfum eða símbrófum merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrirspurnir sfnar með tölvupósti á net- fang Magnúsar Jóhannssonar: elmag- (o)hotmail.com I
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.