Morgunblaðið - 19.02.2000, Page 46
1
46 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
Hvar og
hvenær
sem er
„I umrœddri könnun kom fram að
um fjórðungur reglulegra netnotenda,
þ.e. þeirra sem fara inn á Netið að
minnsta kosti fimm sinnum í viku
samkvæmt skilgreiningu, vann meira
heima hjá sér en áður án þess þó að
draga úr tímanum sem þeir dvöldu á
vinnustað sínum. “
LYNDON Johnson,
fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hafði
á sér orð fyrir að
beita ýmsum áhrifa-
ríkum, en að sama skapi óvinsæl-
um, stjórnunaraðferðum áður en
hann settist á forsetastól. Johnson
stundaði það meðal annars þegar
VIÐHORF skýrsíu'r
starfsmanna
sinnaað
merkja með
rauðu bleki
þar sem honum þótti einhverju
ábótavant í málfari, en eingöngu
þó ef hann hafði engar efnislegar
athugasemdir við viðkomandi
skýrslu. Góðar, vel unnar skýrslur
fengu þannig raunverulega verri
útreið hjá Johnson en þær lélegri,
svona til þess að þeir sem þær
skrifuðu velktust ekki í neinum
vafa um hver væri við stjómvöl-
inn.
Eftir Hönnu
Katrínu
Friðriksen
Annað og öllu óvinsælla tiltæki
Johnsons var að kalla starfsmenn
sína með sér inn á baðherbergi
svo hann gæti lesið þeim fyrir á
meðan hann sat á saleminu. Þessa
meðferð hlutu þeir sem Johnson
taldi sérstaka ástæðu til að halda
á teppinu. Eins einstaklega óað-
laðandi og þetta tiitæki var - og
þrátt fyrir að tilgangur Johnson
hafi fyrst og fremst verið að nið-
urlægja undirmenn sína - má
segja að hann hafi þama að vissu
marki verið brautryðjandi. Að
minnsta kosti má túlka margar
þeirra auglýsinga sem dynja á al-
menningi þessa dagana um undur
tækninnar á þá vegu. Meðal kosta
farsímans, fartölvunnar, lófatölv-
unnar og hvað þetta nú allt heitir,
ku nefnilega vera sá að nú sé hægt
að nýta til vinnu þann annars
dauða tíma sem fer í salemisferð-
ir fólks. Virðulegur kaupsýslu-
maður birtist á sjónvarpsskjánum
með allt niður um sig og fartölv-
una á hnjánum, alsæll með að geta
loksins slegið tvær flugur í einu
höggi. I næsta bás er ekki síður
virðuleg kaupsýslukona að svara
SMS-skilaboðum á farsímanum
sínum og í þeim þriðja nýtir svo
iðnaðarmaður tímann í að skipu-
leggja þétt setna dagskrá sína
með lófatölvunni sinni.
Burtséð frá því hve margir fá
hugljómun vegna þessara auglýs-
inga er Ijóst að einn af helstu
fylgifiskum tækniþróunarinnar í
hinum vestræna heimi er sá að
hugtakið
„að vera einn með sjálfumsér“
virðist í útrýmingarhættu. Mað-
urinn er hættur að vera aleinn,
hann þarf aldrei að vera sam-
bandslaus við aðra og ef til vill
verður hann innan tíðar ófær um
það með öllu. Það er svo athyglis-
vert að á sama tíma er samband
fjölda fólks við aðrar manneskjur
að þróast á nýjan og líklegast ekki
svo eftirsóknarverðan hátt vegna
netvæðingarinnar.
Nettenging verður sífellt út-
breiddari og kannanir hafa sýnt
svo ekki verður um villst að því
meiri tíma sem fólk eyðir á Net-
inu, því minni samskipti á það við
annað fólk. Reyndar ætti varla að
þurfa kannanir til, þetta er eigin-
lega bara einfalt reikningsdæmi,
en það er samt gott að hafa niður-
stöðumar vísindalega skjalfestar.
I vikunni birti Stanford-háskóli
niðurstöður margra ára könnunar
sinnar, einnar viðamestu sem
unnin hefur verið á félagslegum
áhrifum netvæðingar og netnotk-
unar í Bandaríkjunum. Sam-
kvæmt viðtölum fjölmiðla við
Norman Nie, prófessor við há-
skólann og annan tveggja yfir-
umsjónarmanna könnunarinnar,
eru niðurstöðumar í stuttu máli
þær að Netið hefur skapað nýjan
gmndvöll fyrir félagslega ein-
angran Bandaríkjamanna þar
sem sífellt fleiri þeirra eigi hverf-
andi samskipti við aðrar mannleg-
ar verur.
I umræddri könnun kom fram
að um fjórðungur reglulegra
netnotenda, þ.e. þeirra sem fara
inn á Netið að minnsta kosti fimm
sinnum í viku samkvæmt skil-
greiningu, vann meira heima hjá
sér en áður án þess þó að draga úr
tímanum sem þeir dvöldu á vinnu-
stað sínum. Margir þeirra sem
hafa aðgang að heiman að tölvu-
póstfanginu sínu í vinnunni, vinna
sér það til dæmis til hagræðis að
fara yfir póstinn heima á kvöldin
og um helgar, svona rétt til að
létta á álaginu í vinnunni. Hjá
sumum er það líka nánast orðin
kvöð að fylgjast með tölvupóstin-
um á meðan þeir era í fríi og
skiptir þá litlu hvar á jarð-
arkringlunni þeir era staddir.
Þetta þýðir þó ekki að lífið sé að
verða tóm vinna. Líklega felst lyk-
illinn hér í hugtakinu að dvelja í
vinnunni, vegna þess að á sama
tíma og Netið hefur orðið til þess
að fólk vinnur meira í frítímanum
- ef svo má að orði komast - þá
hefur það líka gert að verkum að
fólk tekur sér meira frí í vinnunni.
Það þarf að svara persónulegum
tölvupósti sem slæðist innan um
þann vinnutengda, panta bækur,
skoða brandara, senda afmælis-
eða önnur tækifæriskort, tékka á
stöðunni á verðbréfamarkaðinum,
leita uppi hagstæðustu ferðatil-
boðin eða fylgjast með fréttum.
Svo fátt eitt sé nefnt.
Með öðram orðum, skilin á milli
einkalífs og vinnu eru að verða sí-
fellt óljósari hjá fjölda fólks. Þrátt
fyrir ótvíræða kosti þess að tölvu-
tæknin geri fólki kleift að vinna
sveigjanlegri vinnutíma, getur
hagræðið auðveldlega snúist upp í
andhverfu sína ef landamærin
hverfa alveg og hurðin inn á sal-
emið verður alltaf upp á gátt.
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Fjörlegur skipu-
L E I K I R
Theme Park World, nýjasti leikur-
inn í Theme Park-seríunni frægu
kom nýlega út, leikurinn er hann-
aður og gefinn út af Bullfrog sem
hefur lengi verið í fremstu röð í
þessari gerð leikja. Leikurinn
krefst 200 MHz Pentium örgjörva
hið minnsta, 32 MB af lausu minni
og 300 MB pláss á diski, fjögurra
hraða geisladrifs og skjákorts með
a.m.k. fjórum MB.
MARKMIÐ Theme Park World,
sem er leikur fyrir alla aldurshópa,
er að byggja hinn fullkomna
skemmtigarð fyrir börn. Fjölmörg
borð eru í leiknum, hvert með sitt
þema. Sem dæmi má nefna að í
fyrsta borði leiksins er spilandinn í
risaeðlu-tímabilinu og öll tækin og
allir hlutirnir sem spilandinn getur
byggt einkennast af því. Þannig er
hopp-kastalinn klassíski ekki kast-
ali heldur stór risaeðla sem snýr
maganum upp í loftið. Útsýni spil-
andans er ofan frá þótt einnig sé
hægt að nota tækin sjálfur og er
útsýnið þá í þrívídd.
í raun er engum söguþræði fyrir
að fara í leiknum en til þess að
komast á milli borða þarf spiland-
inn að sanka að sér eins miklu og
hann getur af gullnum lyklum.
Lyklarnir fást fyrir að klára viss
markmið innan hvers borðs, ef
spilandinn nær 50 þúsund gestum
inn í garðinn innan vissra tíma-
marka nær hann gullnum lykli.
Stór partur af leiknum er að sjá
um starfsfólk garðsins, þjálfa það
til að gera það að betri starfs-
Ný iBók
STEVE JOBS kynnti á
makkahátíð í Japan í vikunni
nýjar gerðir af iBook-fistölvu
Apple og nýjar gerðir Power-
Book-fartölvanna. iBókin nýja
er með 366-MHz G3 örgjörva
og svipar til iMac DV-sérút-
gáfunnar, þ.e. í hálfgagnsæju
gráu húsi sem ætti að draga
úr jóssi vegna útlits tölvunn-
ar, en sumir hafa sett fyrir sig
hve litskrúðugar þær eru.
Nýju PowerBook-tölvumar
verða með 450 eða 500 MHz
G3 örgjörvum. Aflagt er í
þeim SCSI-tengi, en þess í
stað tekið upp FireWire-tengi,
sem gerir til að mynda kleift
að vinna á þeim stafrænar víd-
eómyndir eða kyrrmyndir, og
stuðningur við AirPort. Móð-
urborðið er með 100 MHz
gagnagátt og minni er ýmist
64 eða 120 MB, eftir hraða
vélanna. Heldur hefur dregið
úr sölu á PowerBook-tölvum
Apple undanfarið, en það er
trú Apple-manna að uppfærsl-
an eigi eftir að snúa því við.
Ekki þótti mönnum minnst
um vert að Apple skýrði frá
því að loks væri almennt fáan-
leg tölva með 500 MHz G4 ör-
gjörva. Slík vél var reyndar
fyrst kynnt í september en
framleiðandi örgjörvans, Mot-
orola, lenti í vandræðum með
framleiðsluna.
mönnum, passa upp á að það sjái
um alla hluta garðsins og semja við
það þegar það vill meiri laun.
Hægt er að ráða öryggisverði til að
lemja alla litlu hálfvitana sem
finnst svo sniðugt að henda drasli
út um allt, vísindamenn til að
rannsaka fleiri hluti og leiktæki í
garðinn og ræstitækni til að þrífa
upp alla æluna og kandíflossið.
Grafík leiksins er með afbrigðum
og hefur vart sést betri í leik af
þessari tegund. Ef spilendur hafa
þrívíddarkort plús ágæta tölvu get-
ur jafnvel verið gaman að sitja
sjálfur í tækjunum. Hægt er að
súmma alveg inn að öllum tækjum
og jafnvel inn að hverjum einasta
krakka í garðinum og sjá nákvæm-
lega hvað hann er að gera.
Hljóð leiksins er afar gott og
sérstaklega hjá ráðgjafa hans.
Ráðgjafinn er lítill svartur karl
sem lítur út eins og hálfur maur
sem svífur í lausu lofti og segir ná-
kvæmlega allt um hvernig á að
stjórna skemmtigarði. Þar sem
Bullfrog, framleiðandi leiksins, er í
Englandi eru allar raddirnar með
ákveðnum breskum hreim sem get-
ur reynst erfitt að skilja fyrir þá
sem ekki eru langt komnir i skóla.
Öll tónlist er nógu fjölbreytt til að
verða ekki strax pirrandi,sem er
afar mikilvægt fyrir leiki af þess-
um toga, og hægt er að slökkva á
henni ef fólk er orðið pirrað.
Greinarhöfundur hikar ekki við
að ráðleggja öllum sem hafa gam-
an af fjörlegum skipulagsleikjum
að prófa Theme Park World, fáir
munu verða fyrir vonbrigðum.
Ingvi M. Árnason
Geimskip fullt
af skrímslum
feiii
System Shock tvö, framhald Syst-
em Shock, var nýlega gefíð út af El-
ectronic Arts. Leikurinn er úr
smiðju Looking Glass, en hljóð-
blöndunin var í höndum Irrational
Software. Leikurinn þarfnast
minnst 200 MHz Pentium-örgjörva,
fjögurra hraða geisladrifs, 32 MB
innra minnis, 200 MB á hörðum
diski og 4 MB þríviddarkorts.
SAGA System Shock 2 hefst þar sem
síðasti leikur skildi við; AJ-Shodan,
tölvan sem brjálaðist í síðasta leik,
hefur verið eyðilögð og mannkynið
telur að það hafi komið í veg fyrir að
annað eins geti gerst aftur. Leikur-
inn á sér mestallur stað um borð í
geimskipi sem var hannað af sama
fyrirtæki og framleiddi Al-Shodan
þar sem svipuð tölva hefur brjálast
og breytt lífveram um borð í einhvers
konar skrímsli með hjálp sníkjudýrs
sem leggst á heilann í fólki.
Spilandinn er ungur maður sem
hefur ákveðið að ganga í herinn. Spil-
endur ákveða sjálfir hvort þeir vilji
ganga í herinn, þar sem mest áhersla
er lögð á bardaga og notkun vopna,
sjóherinn svokallaða, þar sem mest
áhersla er lögð á notkun tækni og
forritun, eða OSA, sérstaka nýja
sveit þar sem hugurinn er þjálfaður
svo hægt sé að nota hann bæði til
bardaga og þess að hafa stjórn á
tækni. Spilendur fá svo að velja sér
þær greinar sem þeir vilja leggja
mesta áherslu á að læra innan hvers
hóps og eftir að hafa valið visst verk-
efni vakna þeir svo á geimskipi fullu
af skrímslum (kunnuglegt, ekki satt).
Söguþráðurinn er afar flókinn og
ólíklegt er að nokkur skilji upp eða
niður í leiknum fyrr en eftir marga
daga og sumir munu líklega aldrei ná
honum. Endalaust þarf að læra nýja
tækni til að opna dyr, gera við vopn
og svo framvegis og það versta er að
engar góðar ástæður virðast vera
fyrir neinu, spilandinn ráfar aðeins
um þar til einhver segir honum að
hann verði að gera einhvað.
Stjóm leiksins er ágæt. Það getur
komið fyrir að spilendur festist hér
og þar í leiknum vegna einhverra
bögga við hopptakkann en það er
ekkert sem kemur í veg fyrir að leik-
urinn geti verið spilaður eðlilega.
Grafík leiksins er ekkert sérstök
og er miklu betri í mörgum leikjum
sem era að koma út um þessar mund-
ir, ekkert nýtt þar. Hljóð leiksins er
frábært. Öll skrímsla- og mannahljóð
era afar vel tekin upp og greinileg.
Tónlist leiksins er ein sú besta sem
greinarhöfundur hefur heyrt í skot-
leik til þessa og býr til spennuand-
rúmsloft sem aldrei hefði náðst án
hennar.
System Shock 2 er ágætis hlut-
verkaleikur og fyrir þá sem hafa
virkilegan metnað og tíma fyrir
svona leiki er hann fínn. Þeir verða
að vísu líka að vera mjög góðir í að
púsla, annars munu þeir aldrei skilja
söguþráðinn. Ágætis skotleikur get-
ur hann aldrei orðið og þeir sem
nenna ekki öllu þessu veseni ættu að
ná fyrst í kynningarútgáfuna.
Ingvi M. Árnason