Morgunblaðið - 19.02.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 53
+ Hulda Bjarna-
dóttir fæddist á
Blönduósi 14. nóv-
ember 1921.Hún lést
á héraðssjúkrahús-
inu á Blönduósi 8.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ingibjörg Þor-
finnsdóttir frá
Glaumbæ í Langa-
dal, f. 29. maí 1892,
d. 5. mars 1968 og
Bjarni Bjarnason frá
Illugastöðum á Lax-
árdal, A-Hún„ f. 7.
desember 1883, d.
10. maí 1967. Móðurforeldrar:
Kristín Davíðsdóttir og Þorfinn-
ur Jónatansson frá Glaumbæ í
Langadal. Föðurforeldrar: Ingi-
björg og Bjarni.
Eiginmaður Huldu var Páll
Mamma ætlar að sofna og mamma er svo
þreytt,
sumir eiga sorgir og sumir eiga þrár,
sem aðeins í draumheimum
uppfyllamá
Þetta lag hljómar í útvarpinu þeg-
ar ég fæ upphringingu frá Páli Guð-
mundssyni, syni mínum, sem búsett-
ur í Danmörku.
Stuttu áður hafði verið haft sam-
band við mig og mér tjáð að móðir
mín hefði andast í svefni aðfaranótt
8. febrúar. Eg hafði nýlega verið hjá
henni í blíðviðri. Allt var snjólaust
bæði fyrir norðan og sunnan. Þegar
hún kvaddi mig sat hún í stól við
rúmið sitt í fallegri grænni blússu
sem hún átti. Ég sagði við hana:
„Mamma, þú ert falleg“. Hún gladd-
ist við og spurði eftir börnum, barna-
börnum og bamabarnabömum og
rétti mér tvo fallega trefla, sem hún
hafði prjónað. Annan svartan fyrir
dóttur mína, Hildi Guðmundsdóttur
og hinn rauðan fyrir Guðrúnu Ósk.
Þannig kvaddi ég móður mína
hinsta sinni. Fram í hugann kemur
þakklæti fyrir svo ótalmargar gleði-
stundir.
Minningar leita á þegar lítil stúlka
er að alast upp á Blönduósi. Húsið
hennar heitir Tilraun.
Hún fer með móður sinni niður á
neðri hæðina þar sem afi og amma
búa, Bjami Bjarnason og Ingibjörg
Þorfinnsdóttir. Mamma er létt á sér
þá. Hún hoppar niður í þró og fer að
moka kolum í miðstöðina og kveikja
upp eld. Mikið frost er úti, 18-20
gráður, en brátt fer að skíðloga og
ylur færist um húsið.
Húsið stendur við hlið kirkjunnar
fyrir innan ána. í Tilraun var fyrsti
barnaskólinn á Blönduósi, símstöð
og bókasafn. Foreldrar mínir breyta
húsinu í hlýlegt heimili á eftirstríðs-
árunum.
Móðir mín á frændfólk og vini í
húsunum í kring, í Þorsteinshúsi bjó
föðurbróðir hennar og vinur og ég
eignast góða vinkonu og frænku í
Sólheimum hjá frænda hennar og
vini Agnari.
Bjami afi heldur kindur og kýr. Á
sumrin er heyjað bæði á efra og
neðra túni, eins og sagt var.
Kristín systir mömmu er líka með
og Siggi frændi, leikbróðir minn og
vinur. Allir hjálpast að og sumarið
líður við leik og störf.
Páll Stefánsson, faðir minn er í
vegavinnu á vörubílnum sínum og
Bjarni bróðir minn í sveit á Leys-
ingjastöðum þar sem ég fæ einnig að
dvelja í smátíma. Mömmu þykir
ákaflega vænt um heimili sitt og þeir
em margir sem koma við í Tilraun,
bæði vinir og ættingjar.
Nú kemur vetur. Lítil stúlka er að
byrja í skóla. Hún þarf að fara út fyr-
ir á. Tilhlökkun og kvíði leita á til
skiptis en tilhlökkunin verður yfir-
sterkari. Það er gaman í skólanum.
Alltaf bíður mamma heima með mat í
hádeginu handa okkur systkinunum.
Bjarni afi og Páll faðir minn rökræða
í eldhúsinu.
Það em komin jól. Tilhlökkun og
gleði sem mamma tekur þátt í. Litlu
jólin í skólanum og aðfangadagur
Stefánsson frá
Smyrlabergi í A-
Hún., f. 6. septem-
ber 1912, d. 16. nóv-
ember 1982. Börn
þeirra: 1) Bjarni
Pálsson, f. 12. júní
1947, kvæntur
Huldu Leifsdóttur.
Þeirra börn: Leifur,
Björk, Bjarni, Hug-
rún og Fannar. 2)
Ásdís Pálsdóttir, f.
22. desember 1950.
Börn hennar og
Guðmundar Árna-
sonar: Páll og Hild-
ur. Barnabarnabörn: Guðrún
Ósk, Kristófer og Alexander. 3)
Stefán Pálsson, f. 7. apríl 1968.
Útför Huldu fer fram frá
Blönduóskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
líða. Jóladagur: Við emm á leið út á
Skagaströnd til bróður mömmu Þor-
finns Bjarnasonar og Huldu konu
hans, til að eiga samverastund þar
með bömum þeirra.
Allt gengur vel og við emm á leið
upp í Grænuhlíð á annan í jólum til
föðurbróður míns og bama hans.
Þannig hða árin við leik og störf á
Blönduósi.
Barnabörn fara að fæðast og
mamma gleðst með glöðum og
hryggist með syrgjendum.
Þegar móðir mín var ung fór hún á
saumanámskeið til Reykjavíkur og
dvaldist þá hjá Gígju frænku sinni í
föðurætt (systkinadætur). Ingi-
björgu Þorfinnsdóttur móður henn-
ar var umhugað um að stúlkur
menntuðu sig og lærðu handverk.
Ingibjörg var á Kvennaskólanum á
Blönduósi. Eins var systir hennar
Sigumnn mikil hannyrðakona. Man
ég vel þegar amma kvaddi mig 16
ára gamla þegar ég fór í Mennta-
skólann á Akureyri. I M.A. var ynd-
islegur tími þar sem ég kynntist föð-
ur bama minna Guðmundi Amasyni,
sem móðir mín mat mikils og er hon-
um fært þakklæti frá henni. Síðast
hitti ég Elínu vinkonu sunnudaginn
áður en móðir mín lést. Ninný
frænka og vinkona hafði líka sam-
band, einnig Karítas og margar góð-
ar frænkur í föðurætt.
Á langri ævi hafa ýmis áföll orðið í
lífi móður minnar en líka gleðistund-
ir. Hún óskaði börnum og barna-
börnum alls hins besta og gladdist
yfir góðum árangri.
Hún missti tvo bræður sem báðir
hétu Bjarni, annar tvítugur en hinn
aðeins tveggja ára.
Með samheldni og dugnaði hélt
þólífið á „Ósnum“ áfram. Eina systur
átti hún, Kristínu (Nennu). Hún lést
fyrir nokkmm árum. Mjög sterkt
samband var á milli þeirra systra og
saknaði hún hennar mikið eins og
margir fleiri.
Árið 1982 missti hún Pál Stefáns-
son af slysfömm, einn af tíu systkin-
um frá Smyrlabergi, A-Hún.
En hún eignaðist ljós 7. apríl árið
1968, Stefán Pálsson, sem var henni
stoð og stytta og henni þótti óskap-
lega vænt um. Einnig Huldu tengda-
dóttur, Lám vinkonu og fjölmarga
aðra sem vom henni styrkur í veik-
indum. Einnig átti hún góða vini í
Sæmundsenhúsi.
Á Héraðshæli, A-Hún. kvaddi hún
þetta jarðlíf. Hún var þar á meðal
vina, Helgu í Helgafelli og margra
annarra.
Ég man eftir mér lítilli stúlku þeg-
ar verið var að vinna við uppbygg-
ingu sjúkrahússins. Þar var ég með
föður mínum þegar verið var að hífa
upp steypuna í bygginguna, ásamt
mörgum dugnaðarmönnum frá
Blönduósi. Táknrænt er það að Páll
V. G. Kolka læknir frændi hennar
stuðlaði að því að gott sjúkrahús var
byggt á Blönduósi. Þar hafa margir
litið sín fyrstu augnablik og margir
notið líknar og alúðar. Þegar ég var
tíu ára stúlka á Blönduósi seldi ég
Vikuna.
Hjólaði um allan bæ á „Möve“-
hjólinu mínu. Einnig heimsótti ég
alla á öldmnardeildinni og alltaf tók
Halldóra Bjamadóttii- vel á móti
mér.
Hulda Bjamadóttir var hreykin af
Blönduósi og uppbyggingu staðar-
ins. Ung vann hún á Hótel Blönduósi
og eignaðist vini þar.
Meðal annarra sem dvöldust þar
var meistari Kjarval málari. Sagði
móðir mín mér frá því þegar hún ung
stúlka var að útbúa nesti fyrir hann.
Þá var hann að gera skissur til að
mála eftir. Mikið málverk hef ég séð
eftir hann á Kjarvalsstöðum, sem er
útsýni út að Spákonufelli á Skaga-
strönd.
Ég veit að móðir mín hefur átt
góða heimkomu þar sem faðir minn,
systkini og frændfólk hafa tekið á
móti henni. Henni þótti líka ákaflega
vænt um frænda sinn og vin Auðun
Þorsteinsson og konu hans Svövu.
Mikil tilhlökkun var hjá mér þegar
þau komu með bömin sín Margréti
og Kristján að heimsækja Margréti
móður Auðuns. Var þá margt
skemmtilegt gert. Farið í berjaferðir
oggleði og kátína ríkti.
Ollum á H A.H. em hér með færð-
ar alúðarþakkir. Einnig öllum á
Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar og
öðmm sem veittu líkn í þraut.
Mamma mín vildi öllum það besta
og hafði áhyggjur af Þómnni. Dóttir
hennar Brynhildur fóstraði okkur
systkinin. Hún var nýbúin að vera
hjá henni, og mamma sýndi mér svo
fallegt kort og gjöf sem hún fékk frá
Binnu sinni og gladdist yfir. Ég og
Sigurlaug systir hennar emm jafn-
gamlar, fermingar- og skólasystur.
Einungis tveim dögum eftir lát
mömmu lést Þómnn á H.A.H. Em
fjölskyldunni færðar innilegar sam-
úðarkveðjur frá okkar fjölskyldu.
Öll voram við eins og ein stór fjöl-
skylda fyrir innan ána, eins og kallað
var.
Börn, barnabörn og barnabama-
böm færa þér innilegt þakklæti fyrir
allar glaðar stundir. Bestu kveðjur
frá Ingunni, Kristófer og Alexander
í Danmörku.
í heimsókn hjá frænku minni í
Haukshólum varð mér litið í afmæl-
isdagabók sem hún á. Það gladdi mig
þegar ég fletti upp á 14. nóvember,
að þú hafðir skrifað nafnið þitt í
þessa bók og einnig var skriftin hans
pabba heitins í þessari bók þar sem
hann skráði: Ásdís, f. 22. des. 1950 og
Bjami, f. 12. júní 1947. Við afmælis-
daginn þinn var skráð þetta fallega
ljóð eftir Davíð Stefánsson og finnst
mér það eiga vel við þig.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Ég elska bæði skin og skúr
og skugga og sólarvegi.
Því allt er brot og eining ein
þeim eina og sama degi,
og sá, sem þyngstar byrðar bar
fær bætur engu minni,
því guð er allt og alls staðar
í allri veröldinni.
(Dav. Stef.)
Þín dóttir
Ásdís Pálsdúttir.
t
Elskuleg móðir okkar,
AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Brautarlandi 24,
lést á Landspítalanum að kvöldi fimmtudagsins 17. febrúar.
Jón G. Stefánsson,
Sigurjón Stefánsson,
Jóhanna E. Stefánsdóttir.
HULDA
BJARNADÓTTIR
HLYNUR ÞÓR
SIGURJÓNSSON
+ Hlynur Þúr Sig-
urjúnsson fædd-
ist í Keflavík 6. des-
ember 1976. Hann
lést í umferðarslysi á
Spáni 15. janúar síð-
astliðinn og fúr útför
hans fram frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju 29.
janúar.
í örfáum orðum
langar mig til þess að
kveðja ágætan vin
minn, Hlyn.
Unnusta hans, Haf-
dís Perla, hefur verið
vinkona mín frá leikskólaaldri og
vomm við samferða alla skólagöng-
una hingað til, í fjórtán ár, og eigum
margar góðar minningar saman.
Eftir eitt og hálft ár í menntaskóla
kynnti Hafdís mig fyrir Hlyni. Þá
kom hann upp í skóla að sækja okkur
á flottasta sportbflnum í bænum og
rúntaði með okkur nið-
ur Laugaveginn.
Næstu þrjú árin
eyddum við skemmti-
legum tíma saman og
ber einna hæst tveggja
vikna útskriftarferð
okkar þar sem Hlynur
var einn af okkur stelp-
unum.
Frá upphafi vora
Hafdís og Hlynur eitt
og við áttum góðar
samverustundir sem •?
eru einstaklega dýr-
mætar í minningu
minni og ég mun varð-
veita þær í hjarta mínu. Aldrei mun
ég gleyma þessum hressa strák með
glaðlega andlitið, stríðnisbrosið og
spékoppana.
Elsku Hafdís og aðrir aðstandend-
ur, ég bið Guð að hugga ykkur og
styrkja.
Maren Brynja.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BENEDIKT VALGEIRSSON,
Árnesi II,
Árneshreppi,
sem lést sunnudaginn 13. febrúar, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 23. febrúar kl. 15.00.
Hávarður Benediktsson,
Þórstína Benediktsdóttir,
Einar Benediktsson,
Valgeir Benediktsson,
Þorgeir Benediktsson,
G. Ingólfur Benediktsson,
Sesselja Benediktsdóttir,
barnabörn og
Sveindís Guðfinnsdóttir,
Brynhildur Bjarnadóttir,
Hrefna Þorvaldsdóttir,
Halla Hauksdóttir,
Jóhanna Kristjánsdóttir,
Þorgeir Pálsson,
barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu
okkur samúð og hiýhug við andlát föður okkar,
tengdaföður og afa,
JÓNS BJARNASONAR
bónda,
Auðsholti.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis-
ins Blesastaða fyrir góða umönnun.
Bjarni Jónsson,
Ari Jónsson,
Vignir Jónsson, Ásdís Bjarnadóttir,
Borgþór, Bjarney, Harpa
og Jón Hermann Vignisbörn.
+
Inniiegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
INGU KR. BJARTMARS,
Bókhlöðustíg 11,
Stykkishólmi.
Svanlaugur Lárusson,
Sara E. Svanlaugsdóttir, Jónas Jónsson,
Gunnar Svaniaugsson, Lára Guðmundsdóttir,
Lárus Þór Svanlaugsson, Helga Harðardóttir,
Anna Kr. Svanlaugsdóttir, Ingvar G. Jónsson
og barnabörn.
%■
+ Einlægar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og
útför föðursystur okkar,
JÓRUNNAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Sörlastöðum,
og heiðruðu minningu hennar. % ^
Hjörtur og Hreinn Pálssynir.