Morgunblaðið - 19.02.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 57
UMRÆÐAN
V erslunarráð Islands
boðar þjóðarsátt
í MORGUNBLAÐ-
INU síðastliðinn laug-
ardag er greint frá
skýrslu Verslunarráðs
fslands til Viðskipta-
þings. í skýrslunni
kemur fram að kostn-
aðarvitund almennings
í heilbrigðismálum sé
nú lítil sem engin og sé
brýnt að breyting verði
þar á og kostnaður
fluttur í einhverjum
mæli frá ríkinu til
þeirra sem þjónustunn-
ar njóta. Hér kveður
við gamalkunnan tón
frá því í byrjun tíunda
áratugarins þegar sem mest var um
það rætt af hálfu stjórnvalda að inn-
ræta veiku fólki kostnaðarvitund.
Svo rammt kvað að þessari hugsun
að um miðjan áratuginn voru gefín
út svokölluð vasafjárlög þar sem gat
að finna nákvæman útreikning á þvi
hvað fatlað fólk kostaði samfélagið.
Allt bar að sama brunni: að réttlæta
niðurskurð og hlaða byrðunum á
„neytandann“ eða „notanda þjónust-
unnar“, hann átti að
hafa kostnaðarvitund,
gera sér grein íyrir því
hver baggi hann væri á
samfélaginu. Vitað var
að sá sem býr yfir slíkri
vitund gerir ekki mikl-
ar kröfur.
Verslunarráðið og
kostnaðarvitundin
Verslunarráð ís-
lands vill ganga lengra
en innræta sjúklingum
kostnaðarvitund. í
fyrmefndri skýrslu er
hvatt til víðtækrar
einkavæðingar í heil-
brigðisþjónustunni. Og til hvers
skyldi gera þetta? Ekki stendur á
svari: Svo um velferðarþjónustuna
skapist almenn sátt í þjóðfélaginu.
Til að ná þessari sátt vill Verslunar-
ráðið byrja á einkavæðingu ýmissa
þátta velferðarþjónustunnar þar
sem samkeppni verði vel komið við
svo sem langlegudeilda og hvíldar-
innlagna en einnig eigi að einkavæða
starfsemi þar sem „engin rök eru
Þjóðfélagsmál
Boðskapur Verslunar-
ráðs Islands um einka-
væðingu heilbrigðis-
þjónustunnar er á þá
lund, segir Ögmundur
Jdnasson, að ólíklegt má
heita að um hann geti
tekist þjóðarsátt.
fyrir“ ríkisrekstri. Þar eru meðal
annars nefnd þvottahús, apótek og
mötuneyti. Þessir þættir séu best
komnir hjá „aðilum með sérþekk-
ingu“. Nú er það náttúrlega svo að
sérþekkingu á þessum málum er að
finna hjá heilbrigðisstofnunum
landsins og fyrir þá sem ekki vita má
geta þess að á sínum tíma fór fram ít-
arleg skoðun á hagkvæmni þess að
einkavæða þvottahús Ríkisspítal-
Ögmundur Jónasson
anna. Niðurstaðan varð sú að slíkt
■ myndi ekki borga sig fjárhagslega.
Varðandi boðskap Verslunarráðs
Islands um einkavæðingu heilbrigð-
isþjónustunnar er það að segja að
hann er á þá lund að ólíklegt má
heita að um hann geti tekist þjóðar-
sátt. Er til dæmis líklegt að ein-
staklingurinn sé „líklegri til að taka
ábyrgari afstöðu til heilsunnar ef
hann getur átt von á því að þurfa að
axla einhverja fjárhagslega ábyrgð
af heilsubresti", svo vitnað sé til
skýrslunnar. Eða vilja menn láta
sérstaklega rukka fyrir aðhlynn-
ingu vegna meiðsla af völdum slags-
mála eins og Verslunarráðið leggur
til? Og hvar skyldi Verslunarráðið
vilja draga mörkin? Á ef til vill ekki
að hlú að krabbameinsjúklingi sem
hefur reykt um ævina, eða á að láta
áfengissjúklinga sigla sinn sjó og
hvað með fíkniefnaneytendur al-
mennt?
Hvers virði er heilsan?
Ætli staðreyndin sé ekki sú að þá
fyrst fari menn að huga að heilsunni
og fyrirbyggjandi aðgerðum til
heilsuvemdar þegar þeim skilst hve
mikils virði heilsan er hverjum ein-
staklingi; að hún er undirstaða lífs-
gæða. Hvað slagsmálin áhrærir þá á
ekki að refsa fyrir þau á sjúkrastof-
unni, það skal gert í réttarsal ef þörf
er á. Fyrst og fremst ber okkur þó að
stunda fyrirbyggjandi uppeldisstarf
á heimilum, í skólum og almennt í
þjóðfélaginu til að útrýma obeldi.
En aðeins nánar um þjóðarsáttina.
Viðamesta könnun sem gerð hefur
verið um afstöðu íslensku þjóðarinn*^
ar til skattlagningar og þjónustu-
gjalda var framkvæmd á vegum Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla
íslands fyrir BSRB haustið 1998.
Þar kom fram að yfirgnæfandi meiri-
hluti þjóðarinnar er ánægður með ís-
lenska velferðarþjónustu þótt víða
telji menn nauðsyn á úrbótum. Þær
úrbætur vilja menn fjármagna með
almennum sköttum en ekki þjón-
ustugjöldum og er athyglisvert í því
sambandi að andstaðan gegn þjón-
ustugjöldum hefur aukist borið sam-
an við könnun sem gerð var árið 1989
af sama aðila. Þannig voru yfir 70 aí>‘
hundraði andvígir auknum þjónustu-
gjöldum árið 1998 en einungis 60 af
hundraði voru þeirrar skoðunar árið
1989. Á þessum áratug voru þjón-
ustugjöld innleidd víða innan heil-
brigðisþjónustunnar þar sem þau
höfðu ekki þekkst áður. Þá kom
einnig fram í könnuninni að fólk (67
af hundraði) var tilbúið að borga
hærri skatta til að halda víðtækri fé-
lagslegri þjónustu. Þetta ætti að
verða Verslunarráði íslands um-
hugsunarefni áður en næst verður
boðað til þjóðarsáttar.
Höfuadur er formaður BSRB og al-
þingismaður.
Engin útborgun
38 á mánuði
Nú getur þú fengiö Freelander á rekstrarleigu
Hinn frábæri sportjeppi Land Rover Freelander er nú fáanlegur i rekstrarleigu fyrir aöeins 38.000 kr. á mánuði
(+vsk.) til 24 eða 36 mánaða.* Miðað er við Land Rover Freelander Base sem kostar kr. 2.350.000, allt að 20.000
km akstur á ári og 36 mánaða samning. Samtals með vsk. kr. 47.300 á mánuði.
Komdu í B&L, Grjóthálsi 1, og kynntu þér kosti Freelander á rekstrarleigu.
-c
Grjóthálsi 1 • Sími söludeildar 575 1210
www.bl.is
Þetta er innifalið í rekstrarleigu
• Engin útborgun • Akstur allt að 20.000 km á ári
• Afnot af bílnum til 2 eða 3 ára • Þjónustueftirlit á samnings-
• Válarstilling og annaö tímabilinu
venjubundið viðhald • Leigugreiðsla gjaldfærð að fullu
• Olíuskipti og smurning á rekstrarreikning